Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 4
4
MÖRÚUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986
Hagnaður útgerðar yfir á frystingu:
„Fiam öllu lagi“
— segir Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ
„AÐ MÍNUM dómi eru þesssar hugmyndir forsætisráðherra fjarri
öllu lagi,“ sagði Kristján Ragnarsson, formaður Landsambands
íslenskra útvegsmanna, er hann var inntur álits á ummælum
Steingríms Hermannssonar í frétt Morgunblaðsins á föstudag. Þar
lýsir ráðherrann þeirri skoðun sinni að færa verði eitthvað af hagn-
aði útgerðarinnar yfir á frystinguna.
í umræddri frétt segir forsætis- farin ár og hefur safnað verulegum
ráðherra að á sama tíma og fryst- vanskilaskuldum. Úr þessu hefur
ingin hafi tapað umfram það sem ræst nokkuð að undanfömu, og til
gert var ráð fyrir í samningum um
fiskverðshækkun, hafi staða út-
gerðarinnar batnað meira en þá var
gert ráð fyrir. „Það kemur ekki til
greina að fella gengið til þess að
bæta stöðu frystingarinnar, heldur
er ég þeirrar skoðunar að færa
verði eitthvað af hagnaði útgerðar-
innar yfir til hennar," sagði
Steingrímur.
Um þetta sagði Kristján Ragn-
arsson meðal annars: „Útgerðin
hefur verið rekin með halla undan-
þess liggja margar ástæður. Ein er
sú að við höfum selt ferskan fisk í
ríkari mæli en áður og fengið fyrir
hann hlutfallslega mun hærra verð.
Aflabrögð hafa verið betri án þess
að stofnað hafi verið til nýrra fjár-
festinga og í því felst aukin
hagkvæmni. Allt þetta hefur bætt
hag útgerðarinnar. Að ætla sér svo
nú að færa þennan hagnað til
vinnslunnar er ekki raunhæft að
mínum dómi,“ sagði Kristján.
„Fiskvinnslan á útgerðina að
stórum hluta, og ekki mun það
breyta miklu á þeim bæjum," sagði
hann ennfremur. „Hvað varðar
aukna sölu á ferskum físki tökum
við undir þau sjónarmið að fara þar
að með gát. En ef ætti að fara að
lækka fiskverðið, sem mér fínnst
vera tónn forsætisráðherra, þá
myndi það náttúrlega hafa gagn-
stæð áhrif á þessa þróun og ýta
enn undir frekari sölu á ferskum
físki.
Það er alls staðar vöntun á
fiski og fískverð fer hækkandi. Við
skulum vona að svo verði áfram og
okkur auðnist að halda okkar fiski-
stofnum í lagi á sama tíma og aðrir
ofveiða. En það er §arri öllu lagi
að vera að tala um að flytja hagnað-
inn, af því meðal annars að selja
ferskan físk, yfír til vinnslunnar til
að hún þurfí að borga lægra físk-
verð,“ sagði Kristján Raemarssnn
Rannsóknarlögregla ríkisins:
Hefur upplýst á annan tug þjófn-
aða og innbrota undanfarna daga
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur undanfarna daga upplýst
á annan tug innbrota og þjófn-
aða, sem framin hafa verið á
höfuðborgarsvæðinu síðustu vik-
Helgi Daníelsson, yfirlögreglu-
þjónn, sagði að brotist hefði verið
inn í bifreiðir, íbúðarhúsnæði og
fyrirtæki á undanfömum vikum og
stolið myndbandstælqum, sjónvörp-
um, hljómflutningstækjum og
kvikmyndatökuvélum fyrir hundruð
þúsunda. Nú hefur rannsóknarlög-
reglan haft hendur í hári 8
ungmenna, sem öll hafa komið oft
við sögu lögreglunnar. Sagði Helgi
tækin flest komin til skila, en með-
al þeirra mála sem leyst voru var
innbrotið í Greiningarstöð ríkisins
fyrir fatlaða, eins og sagt hefur
verið frá í Morgunblaðinu. Þá hefur
konan, sem rænd var á Barónsstíg
í síðustu viku fengið aftur veski
sitt ásamt innihaldi, nema hvað
peningunum hafði verið eytt.
Helg^i sagði þjófnaði þessa tengj-
ast skjalafalsi, þ.e. ávísanamisferli
og misnotkun greiðslukorta. Hefði
ungmennunum m.a. tekist að greiða
vörur fyrir um 50 þúsund krónur
með greiðslukorti sem var stolið.
„Okkur rannsóknarlögreglumönn-
Leignþotu Arnarflugs
hlekktist á í Marseille
DC-8 LEIGUVÉL Arnarflugs hlekktist á í lendingu í Marseille í
Frakklandi í gærkveldi með þeim afleiðingum að lendingarbúnaður
vélarinnar skemmdist lítillega. Vélin var fullsetin, með 249 farþega
um borð.
Agnar Friðriksson framkvæmda-
stjóri Arnarflugs sagði að þegar
vélin hefði komið úr aðflugi til lend-
ingar hefði hún komið hátt inn úr
aðfluginu. Vélin hefði lent á aftur-
hjólunum og þegar nefhjólið hefði
skollið niður hefði dempari í nef-
hjóli ekki virkað. Líklega hefði hann
lofttæmst við höggið og þar af leið-
andi hefði höggið verið talsvert.
Agnar ságði að hér væri sem betur
fer um minni háttar óhapp og tjón
að ræða.
um finnst ljóst að innbrot og
þjófnaðir tengjast í æ ríkari mæli
fíkniefnaneyslu. Það virðist sem
fólk skorti fé fyrir fíkniefnum og
reyni að afla þess með þjófnuðum,"
sagði Helgi.
Hann sagði hafa komið í ljós við
rannsókn mála þessara að stolið var
ávísun úr skjalatösku sem var í
Mercedes-bifreið fyrir utan Landa-
kot. Ávísun þessi er að upphæð
tæpar 5.000 krónur og er bifreiðar-
eigandinn beðinn um að hafa
samband við rannsóknarlögregluna.
Þó svo að margir þjófnaðir hafí
verið upplýstir að undanfömu virð-
ast ný mál sífellt bætast við. í
gærmorgun var tilkynnt um innbrot
í Fellaskóla í Breiðholti, en engu
var stolið þaðan. Farið var í fyrir-
tæki í Breiðholti þessa sömu nótt
og úr einu var stolið skiptimynt og
takkasímtæki úr öðm. Þá var farið
inn í nokkur fyrirtæki við Lang-
holtsveg aðfaranótt þriðjudagsins
og úr einu þeirra var stolið takka-
símtækjum. Úr öðru var stolið
sambyggðu útvarps-sjónvarps- og
segulbandstæki. Ekki er allt upptal-
ið, því brotist var inn í 4 bifreiðar
við Smiðjuveg í Kópavogi og tekin
úr þeim útvarps- og segulbands-
tæki. Sagði Helgi Daníelsson
þjófnaði úr bifreiðum færast í vöxt.
í bás sjávarútvegsráðuneytisins á sýningunni Heimilið 86 fram-
reiða matreiðslumeistarar réttí úr íslenskum fiski og sérfróðir
menn svara spumingum um sjávarútvegsmál.
Heimilið 86:
Sjávarútvegsráðuneyt-
ið með sýningarbás
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ tekur í fysta sinn þátt í sýning-
unni Heimilið 86, sem haldin er í Laugardalshöll.
í frétt frá ráðuneytinu segir að
tilgangurinn með þátttökunni sé
að vekja athygli sýningargesta á
sjávarútvegi, mikilvægi hans fyrir
landsmenn og þeim framtíðar-
möguleikum sem í honum felast.
Lögð er áhersla á að sýna gæði
íslensks sjávarafla og möguleika
í framleiðslu. Þá segir að ráðu-
neytið hafí fengið veitingahús til
samstarfs við sig sem sýna hvem-
ig matreiða má físk.
Dag hvem veitir sérfróður mað-
ur um sjávarútvegsmál sýningar-
gestum upplýsingar í sýningar-
básnum. Með þessu framtaki
vonast ráðuneytið til að auka
þekkingu landsmanna á sjávarút-
vegsmálum.
Julio Iglesias á
HINN heimsþekkti söngvari og kvenna-
gull, Julio Iglesias, gerði stuttan stans
á Reykjavíkurflugvelli i gær. Kappinn
var að koma úr nokkurra daga fríi á
Spáni og var ferðinni heitið til Boston,
þar sem hann heldur hljómleika í kvöld.
Þann stutta tíma, sem Iglesias og föru-
neyti dvaldi á landinu, notaði hann til að
kynna sér íslenska matargerð og snæddi
hópurinn síðbúinn hádegisverð á Hótel
Loftleiðum.
„Ég elska laxinn hérna," sagði hjarta-
knúsarinn, eftir að hafa gætt sér bæði á
soðnum laxi og graflaxi. Því til staðfest-
ingar festu Iglesias og vinir hans kaup á
verkuðum laxi til að taka með sér til
Bandaríkjanna.
Sólbrúnn söngvarinn lék á als oddi og
sagðist vera meira en reiðubúinn að koma
aftur til landsins, svo framarlega sem
hann hitti á gott veður.
„Ég hef komið hingað einu sinni áður
og stoppaði í jafn stuttan tíma. En ég er
alveg til í að koma hingað aftur ef þið
bjóðið mér að koma og syngja," sagði
hann skælbrosandi.
Iglesias er sem stendur í miðri hljóm-
leikaferð um öll Bandaríkin og verður
þeirri ferð lokið 29. október. Hann fékk
sex daga frí á milli hliómleika og skellti
Julio Iglesias áritar bók fyrir ungan
aðdáanda á Hótel Loftleiðum i gær.
sér því til heimalandins, Spánar, í einka-
þotu sinni. Söngvarinn átti hús þar, en
heldur nú heimili í tveimur villum í Banda-
ríkjunum, annarri í Kalifomíu og hinni á
Flórída.
„Ég er nú reyndar líka að taka upp
hljómplötu með Stevie Wonder," sagði
0
Islandi
Iglesias. „Ég söng áður mjög evrópska
tónlist, en er að snúa mér meira að svert-
ingjatónlist," sagði hann og þandi radd-
böndin fyrir viðstadda, sem vel kunnu að
meta.
Það voru ekki margir sem bára kennsl
á Iglesias á Hótel Loftleiðum, en nokkrir
urðu þó til þess að biðja hann um eigin-
handaráritun. Hann lét sér ekki muna um
að verða við þeim óskum, en komst svo
að því að flestir aðdáendanna á Hótel
Loftleiðum, vora erlendir ferðamenn.
„Þetta er ágætt; það þekkir mig enginn
á Islandi. Það er ljóst að ég verð að koma
aftur," sagði Iglesias í stuttu spjalli við
blaðamann á meðan hann beið eftir föra-
neytinu, sem ýmist var að útvega honum
laxinn, eða fjárfesta í íslenskum ullarfatn-
aði.
„Blessaðar stelpur, viljið þið ekki bara
koma með til Boston?" spurði hann um
leið og hann steig upp í bifreið, sem flutti
hópinn að einkaþotunni. Útsendarar Morg-
unblaðsins afþökkuðu kurteisislega, en
snéra við ijóðar í kinnum eftir að kvenna-
maðurinn mikli hafði smellt á þá léttum
burtfararkossi.
„Sjáumst síðar,“ sagði kappinn að end-
ingu á móðurmálinu og veifaði í kveðju-
skyni.
Morgunblaðið/Emilla
Söngvarinn missti af góða veðrinu í
fyrradag og sagðist ætla að athuga
veðurspána áður en hann kæmi aftur
til ísiands.