Morgunblaðið - 04.09.1986, Side 27
mfeððsmss, hmmmmi. mmmm.
m
Frá samsætinu sem tsfirðingar héldu til heiðurs Þorbjörgu Bjamadóttur skólastjóra Húsmæðraskól-
ans.
En skólastjómin hefur þó alla tíð
verið hennar mikilvægasti vett-
vangur, enda skólinn þekktur
fyrir reglusemi og stjómfestu
skólastjórans. Mjög erfíðlega
gekk oft af skiljanlegum ástæðum
að halda ungum fjörmiklum
námsmeyjunum innan veggja
skólans, á meðan aðeins var leyfð
ein klukkustund á dag til útiveru,
og ísfirsku drengjunum utan
veggjanna. Margar sögur hafa
spunnist um þau vandamál öll, en
einum þættinum hefur verið hald-
ið vandlega leyndum þar til í
hófinu að hún sagði frá hvað gerð-
ist eina vetramóttina á meðan hún
svaf áhyggjulaus í íbúð sinni í
skólahúsinu.
Morgunverðar-meyjamar
vöktu hana snemma morguns og
sögðu henni með miklu írafári að
eitthvað væri að niðri í borðsal.
ísfirðingar kveðja Þorbjörgn Bjarna-
dóttur skólastjóra Húsmæðraskólans
Iufirði.
ÍSFIRÐINGAR kvöddu Þor-
björgu Bjamadóttur fyrrver-
andi skólastjóra Húsmæðra-
skólans Óskar með veglegu
samsæti i samkomusal frimúr-
ara sl. föstudagskvöld.
Þorbjörg lætur nú af störfum
eftir 38 ára stjóm skólans, en hún
kom að skólanum þegar hann tók
til starfa í núverandi húsnæði við
Austurveg árið 1948.
Nokkur félagasamtök sem hún
hefur átt aðild að hér á ísafirði
efndu til samsætisins þar sem á
annað hundrað manns kom sam-
an. Samkvæminu stjómaði Pétur
Bjamason fræðslustjóri. Sigríður
Ragnarsdóttir skólastjóri Tónlist-
arskóla ísafjarðar og Jónas
Tómasson tónskáld léku samleik
á píanó og flautu, Ólafur Krist-
jánsson forseti bæjarstjómar
Bolungarvíkur stjómaði fjölda-
söng og 12 manns fluttu ávörp
þar sem henni vöm þökkuð
margvísleg afskipti af skóla-,
menningar- og kvenréttindamál-
um á Vestfjörðum þau 38 ár sem
hún hefur búið hér.
Þorbjörg Bjamadóttir stjómaði
húsmæðraskólanum af röggsemi
og festu, enda var skólinn mjög
eftirsóttur á meðan það þótti álit-
Morgunblaðið/Úlfar
Magnús Reynir Guðmundsson, fuUtrúi bæjarstjóra, afhendir Þor-
björgu eintak af sögu ísafjarðar.
legur kostur fyrir ungar stúlkur
að læra hússtjómarfræði. Nú á
seinni ámm hefur heimavistar-
námið lagst af, en skólinn hefur
verið fullnýttur flesta vetur fyrir
heimilisfraéðakennslu gmnnskól-
ans og menntaskólans auk þess
sem haldin hafa verið kvöldnám-
skeið fyrir almenning.
Elsa Bjartmarsdóttir hússtjóm-
arkennari hefur verið ráðinn
skólastjóri skólans og tekur hún
við störfum næstu daga. Þá verð-
ur sú breyting á að Tónlistarskóli
ísaijarðar fær efstu hæð skóla-
hússins til afnota, en þar var áður
heimavist nemenda og kennara-
íbúð.
Þorbjörg Bjamadóttir kvaddi
samkomugesti með snjallrí ræðu
þar sem hún gat ýmsra mála sem
hún hafði unnið að á ísafírði en
hún hefur auk skólastjórastarfs-
ins verið formaður Norræna
félagsins um árabil, formaður
Kvenfélagasambands Vestfjarða í
6 ár og einn af stofnendum Sjálf-
stæðiskvennafélags ísaQarðar.
Sennilega lægi maður þar á borð-
inu. Hún hraðaði sér á vettvang
og sá sér til mikillar undmnar,
að á borðinu lá heil hnísa, með
hníf og gaffli í. Umhverfís var svo
fulldekkað borð fyrir 12 manns.
Nú varð að bregðast rétt við þess-
ari utanaðkomandi ögmn. Hún lét
fara með hnísuna út í Norður-
tanga og urða hana þar. Síðan
bannaði hún öllum stúlkunum að
hafa orð á atburðinum, enda fór
það svo að þetta komst aldrei í
hámæli og gerendumir líklega
ekki fengið þá athygli • sem þeir
ætluðust til.
Það má leggja að því gild rök
að þær ástir sem tókust milli
námsmeyjanna og ísfirsku pilt-
anna séu einhver sterkastijmttur-
inn í viðhaldi byggðar á Isafirði,
því hér er fyöldi góðra heimila, sem
rekja upphaf sitt til dvalar ungrar
stúlku undir handleiðslu Þorbjarg-
ar Bjamadóttur og samkennara
hennar um eins veturs skeið.
Þorbjörg flytur nú til Reykja-
víkur, en að eigin sögn vonast hún
til að eiga eftir að njóta margra
daga hér í framtíðinni og á fæð-
ingarbæ sínum Vigur við Isafjarð-
ardjúp.
Úlfar
Fundi
NOS-N
lokið
FUNDUR samstarfsnefndar
norrænna rannsóknaráða á sviði
náttúruvísinda, NOS-N, var hald-
inn í Reykjavik 28. áigúst sl. Þetta
er í fyrsta sinn sem fundur ráðs-
ins er haldinn hér á landi, eftir
að Rannsóknaráð ríkisins gerðist
fullgildur aðili að þessu sam-
starfi fyrr á árinu.
Vilhjálmur Lúðvíksson, fram-
kvæmdastjóri Rannsóknaráðs,
Sveinbjörn Björnsson, prófessor,
Páll Theódórsson, eðlisfræðingur,
og Leó Krisjánsson, jarðeðlisfræð-
ingur sátu fund NOS-N af Islands
hálfu.
Meðal málefna á dagskrá var
samstarf Norðurlanda um aðild að
alþjóðaverkefni um úthafsboranir
(Ocean Drilling Program), sem
skipulagt hefur verið að frumkvæði
bandaríska vísindaráðsins. Hafa
Norðurlöndin myndað í sameiningu
helmingafélag við önnur smærri
Evrópuríki um aðild að þessu verk-
efni. í fréttatilkynningu frá
Rannsóknaráði segir að þetta sam-
starf veiti íslenskum vísindamönn-
um tækifæri til að taka þátt í
víðtækum rannsóknum á uppruna
og eðli jarðskorpunnar.
Sérstakur kynningarfundur um
úthafsboranir var haldinn á vegum
NOS-N fyrir íslenska jarðvísinda-
menn. Fulltrúar Norðurlandanna í
undirbúningsnefnd fyrir úthafs-
boranimar skýrðu frá helstu atrið-
um í áætluninni og verkefnavali.
Áætlunin kostar um 35 milljónir
dala á ári og stendur hún fram á
næsta áratug. Framlag Norður-
landanna er um 1.250.000 dalir og
mun ísland árlega leggja fram
10.000 dali, Noregur 500.000 dali,
Danmörk 350.000 dali, Svíþjóð
160.000 dali og Finnland 25.000
dali. Norðurlandaráð leggur fram
205.000 dali árlega.
íslendingar fá fulltrúa í stjómar-
neftidum samstarfsverkefnisins, en
fá jafnframt fulltrúa í sérfræði-
nefndum, sem Qalla um mælingar
í borholum. Fulltrúi íslands í nor-
rænni skipulagsnefnd um málið
verður Leó Kristjánsson.
Heimilið'86
Það getur verið gaman að sleppa stundum
fram af sér beislinu. Hoppa og skoppa, kasta
bolta í mark, dorga fyrir vinning í
veiðipottinum eða fara í hlutaveltuna.
Allt þetta og miklu meira í SKEMMTILANDI.
Eitthvað fyrir alla. Sjáumst á sýningunni.
Laugardalshöll