Morgunblaðið - 04.09.1986, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986
33
Kína:
Treglega tekið í
tillögur Gorbachevs
Peking, AP.
DENG Xiaoping, einn helsti leið-
togi Kína, sagði á miðvikudag
að Mikhail Gorbachev, leiðtogi
Sovétríkjanna, hefði ekki brydd-
að upp á neinu nýju í tillögum
sinum, sem ætlaðar voru til
bættrar sambúðar ríkjanna.
Þetta kom fram í viðræðum
Dengs við Yoshikatsu Takeiri, for-
mann stærsta stjómarandstciðu-
flokks Japan, Komeito, en hann er
í heimsókn í Kína. Gorbachev kynnti
þessar tillögur í ræðu í Vladivostok
fyrir skömmu.
Deng sagði að það sem helst
stæði í veginum væri stuðningur
Sovétmanna við innrás Víetnama í
Kambódíu, innrás Rauða hersins í
Afganistan og síðast en ekki síst
herstyrkur Sovétmanna á landa-
mæmm ríkjanna, sem væri langt
umfram það sem eðlilegt mætti
telja.
Ekki skortir kímnigáfuna í Noregi:
Hringdi í hlaupa-
drottningu og þótt-
ist vera konungur
FVá Jan Erik Laure, fréttaritara
ÓÞEKKTUR maður lék norsku
hlaupadrottninguna Ingrid
Kristiansen og ekki síst fjöl-
miðla grátt um síðustu helgi.
Ungfrú Kristiansen sigraði í
10.000 metra hlaupi á Evrópu-
mótinu í Stuttgart. í miðri
sigurvímunni hringdi til hennar
maður, sem sagðist vera Ólafur
Noregskonungur, og óskaði
henni til hamingju með árang-
urinn. Norskir fjölmiðlar álitu
símtalið frá konungnum mikil
tíðindi og gerðu því ítarlega
skil. Nú hefur Ólafur Noregs-
konungur gert kunnugt að
hann hafi aldrei hringt í norsku
hlaupakonuna.
Nokkmm mínútum eftir að
Ingrid Kristiansen tók við gull-
verðlaununum á laugardaginn
hringdi maður á íþróttaleikvang-
inn í Stuttgart og sagðist vera
aðstoðarmaður Ólafs konungs.
Hann bað um samtal við formann
norska fijálsíþróttasambandsins.
Formaðurinn, Hans B. Skaset að
nafni, rauk í símann og fékk þau
skilaboð frá „aðstoðarmanninum"
að hann yrði að ná í Ingrid Krist-
iansen því Ólafur konungur myndi
hringja til hennar eftir 20 mínút-
ur.
Ungfrú Kristiansen og forráða-
menn norska fijálsíþróttasam-
bandsins biðu í ofvæni við símann
og loks kom að því að hann
hringdi. „Aðstoðarmaðurinn"
Ólafur Noregskonungur.
ræddi fyrst drykklanga stund við
hlaupadrottninguna en gaf henni
loks samband við „konunginn".
Að afloknu samtalinu var
Ingrid Kristiansen í sjöunda himni
og sagði blaðamönnum að venju-
lega léti Ólafur konungur nægja
að senda norskum afreksmönnum
símskeyti en í þetta skipti hefði
honum þótt ástaeða til að hringja.
Blaðamönnunum þótti þetta sér-
staklega alþýðlegt af konunginum
og slógu fréttinni hressilega upp
á mánudaginn.
Skömmu síðar barst tilkynning
frá konungshöllinni þess efnis að
Ólafur konungur hefði aldrei sleg-
ið á þráðinn til norsku afrekskon-
unnar.
í Mál þetta hefur að sjálfsögðu
vakið mikla athygli og vilja menn
ólmir vita hver það er sem býr
yfir svo sérkennilegri kímnigáfu.
Eisenhower ásamt Montgomery, hershöfðingja.
það verk hafði honum einmitt verið verulega um markmið bandamanna
falið. Þessi deila, sem enn hefur og hve trúr Eisenhower var þeim,“
ekki verið útkljáð, stendur raun- skrifar David.
Við kennum þér alla almenna
dansa, bæði samkvæmisdansa
og gömlu dansana.
Bamadansar fyrir yngstu
kynslóðina.
Byrjenda- og framhaldsflokkar.
Innritun fer fram dagana
1.—11. september
kl. 10-19 í símum
40020 og 46776.
Kennsluönnin er 15 vikur, kennsla hefst 1 lTséþtember og önninni
lýkur með jólaballi. Til að tryggja góða kennslu er fjöldi nemenia^ *
í hverjum hópi takmarkaður. ,
FID - Betri kennsla - betri arangur.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
Auðbrekku 17, Kópavogi. Símar 40020 og 46776.
1
Sex eininga Salix hillusamstæða frá VIÐJU á kr. 23.800,-
Hvít með bláum eða rauðum skúffum og skápahurðum.
20% UTBORQUM
12 MÁMAÐA qreiðslukjör
HUSGAGNAVERSLUNIN
VIÐJA
Smiðjuvegi 2 Kópavogi
simi 44444
Þar sem
góðu kaupin
gerast