Morgunblaðið - 04.09.1986, Page 51

Morgunblaðið - 04.09.1986, Page 51
MÓRGÚNBLÁÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTÉMBER 1986 51 Álitsgerð þingflokks Alþýðuflokksins: Hafnar einhliða yfirlýsing*u um kjarnorkuvopnalaust svæði Fulltrúi Alþýðuflokksins í þingmannanefnd um kjarnorku- vopnalaust svæði á Norðurlönd- unum, Karl Steinar Guðnason, kynnti Anker Jörgensen, for- manni nefndarinnar, álitsgerð þingflokks Alþýðuflokksins um málið eftir fund nefndarinnar í Kaupmannahöfn 26. ágúst sl. Álitsgerðin birtist hér í heild: I. Eftir stríð hafa Norðurlönd verið sammála um að velja ólíkar leiðir tii að tryggja öryggi sitt og sjálf- stæði. Svíþjóð og Finnland eru utan bandalaga, en treysta á eigin vamir. Noregur, Danmörk og ísland hafa ekki treyst sér til að fara þessa leið. Þessi lönd eru fullgildir aðilar að sameiginlegu öryggis- og vam- arkerfi iýðræðisríkjanna. Þetta öryggiskerfi hefur reynst vel í 40 ár í okkar heimshluta. Bæði fyrir Norðurlöndin og V- Evrópu í heild. Vamarbandalag lýðræðisríkj- anna byggir á þeirri forsendu, að um sameiginlegt vamarsvæði sé að ræða. Yfirburðir Sovétríkjanna á sviði venjulegra vopna valda því, að öryggi V-Evrópu hefur í allt of miklum mæli byggst á fælingar- mætti K-vopna, með hótun um beitingu þeirra, ef til stríðs kemur. Þetta er veiki punkturinn í vam- arstrategíu Atlantshafsbandalags- ins, bæði hemaðarlega og pólitískt. Vilji ríki V-Evrópu afsala sér K-vopnum er hinn kosturinn, að óbreyttum aðstæðum, sá að stór- auka vamarviðbúnað með venjuleg- um vopnum. Þyki það flárhagslega og pólitískt ófysiiegt er aðeins ein leið eftin Að ná gagnkvæmu samkomu- lagi, er taki til Evrópu allrar, um allsheijar afvopnun, ijarlægingu og eyðileggingu K-vopna, fækkun og samdrátt heija og þá hugsanlega í kjölfarið um afvopnuð landsvæði milli bandalaganna. n. Ágreiningur virðist vera uppi um það, hvemig eigi að ná þessum markmiðum. Almenningur hefur orðið fyrir miklum vonbrigðum með seinagang og árangursleysi í af- vopnunarviðræðum stórveldanna. Pólitlskt gætir mikillar óþolinmæði. Þess vegna koma upp hugmyndir um, að einstök ríki eigi að taka frumkvæðið, taka sig út úr banda- lögum og ná sérsamningum um takmörkuð svæði. Hugmyndin um Norðurlönd sem K-vopnalaust svæði, sem byggir á „tryggingum" annars hvors eða beggja stórveldanna, um að sam- komulagið verði virt, er af þessu tagi. Frumkvæðið að þessari hugmynd kemur frá Sovétríkjunum. Það er auðvitað í samræmi við megin- markmið sovéskrar utanríkisstefnu, sem er að rjúfa samstöðu lýðræð- isríkjanna, og sérstaklega vamar- samstarf V-Evrópu og Banda- ríkjanna. Það sem er hagkvæmt, út frá sovéskum markmiðum, er að öðru jöfnu ekki endilega í samræmi við öryggishagsmuni lýðræðisríkjanna, og sérstaklega vamarsamstarf V- Evrópu og Bandaríkjanna. Það sem er hagkvæmt, út frá sovéskum markmiðum, er að öðru jöfnu ekki endilega í samræmi við öryggishagsmuni lýðræðisríkjanna. Varnarsamstarf lýðræðisríkj- anna eftir stríðið, sem gefið hefur svo góða raun, byggir á mörgum forsendum. Þær eru sögulegar, pólitískar og hemaðarlegar. Ein forsendan er sú, að ekkert þessara ríkja getur séð öryggis- hagsmunum sínum, gagnvart Sovétríkjunum, borgið á eigin spýt- ur. Við erum þess vegna allir háðir hver öðrum. Einhliða aðgerðir eins ríkis eða nokkurra í hóp geta haft mjög nei- kvæð áhrif á hagsmuni annarra. Aðildin að sameiginlegu öryggis- kerfi veitir ekki aðeins rétt, heldur leggur líka skyldur á herðar. Fmmskyldan er sú, að ijúfa ekki þetta sameiginlega öryggiskerfi með einhliða aðgerðum, án undan- gengins samráðs við bandaiags- þjóðimar. Og án þess að vita nákvæmlega hvað komi í staðinn. Einhliða aðgerðir, sem raska þessu öryggiskerfi, samrýmast einfald- lega ekki þeim skyldum, sem bandalagsþjóðimar hafa sameigin- lega tekið á sig. ra. Þess vegna er nú tímabært, áður en lengra er haldið umra^ðum um K-vopnalaust svæði á Norðurlönd- um, milli þjóðþinga og ríkisstjóma, að bandalagsríkin þijú, Noregur, Danmörk og ísland, taki þessi mál sameiginlega til umræðu á sam- starfsvettvangi Atlantshafsbanda- lagsins. Ef við sættum okkur ekki við óbreytta vamarstefnu bandalagsins ber okkur skyida til að reyna fyrst til þrautar að fá henni breytt, í samstarfi og samráði við banda- lagsþjóðimar. Okkur ber skylda til að kanna, hvaða afleiðingar einhliða aðgerðir af okkar hálfu hafa, að þeirra mati, á öryggishagsmuni annarra ríkja innan bandalagsins. í þessu felst ekkert afsal á póli: tískum sjálfsákvörðunarrétti. í þessu felst ekki að ríkin líti á sig sem peð í stórveldatafli. í þessu felst aðeins viðurkenning á de facto samstarfsnauðsyn bandalagsþjóð- anna. Og vilji til að standa við skuldbindingar um heiðarleg og sjálfsögð vinnubrögð milli banda- lagsríkja. IV. Sérstaða íslendinga í öryggis- málum er mikil. Hún markast af legu iandsins, hemaðarlegu mikil- vægi, vamarleysi þjóðarinnar sjálfr- ar. Þessar aðstæður valda því að íslendingar treysta sér ekki til að byggja öryggi sitt á hlutleysi og voninni um að það verði virt. Þess vegna á hugmyndin um sameiginlegt öryggiskerfi lýðræð- isríkjanna djúpan hljómgrunn meðal fslendinga. Þess vegna er það ekki í sam- ræmi við íslenska öryggishagsmuni að standa að einhliða aðgerðum, sem raska ríkjandi öryggisjafnvægi og auka spennu. Þannig erum við algjörlega sam- mála yfirlýsingu af hálfu norsku ríkisstjómarinnar, þar sem segir: „Det má væra klart at det ikke er aktuelt med norsk medvirkn- ing til et isolert og et separat zone-arrangement mellom de Nordiske land og Sovet-Union- en.“ Þess vegna var það forsendan fyrir ályktun Alþingis um kjama- vopnalaust svæði frá 23. maí 1985, að svæðið er skilgreint landfræði- lega sem Norður-Evrópa, allt frá Grænlandi til Úralfjalla og tekur til K-vopna Jafnt á landi, í lofti sem og á hafinu eða í því“. Af þessu getur augljóslega ekki orðið nema til komi samkomulags- vilji beggja hemaðarbandalaga I þessum heimshluta. Þetta þýðir að Sovétríkin, sem em eina ríkið í okkar heimshluta, sem beinir kjam- orkuvopnum gegn Norðurlöndum, verði að vinna það til að fjarlægja K-vopn úr Eystrasalti og frá Kólaskaga. Og að Vesturveldin gerðu slíkt hið sama; að fjarlægja K-vopn af meginlandi Evropu og umferð K-kafbáta í Norður- Atlantshafinu. Svo stórpólitískar breytingar á skipan öiyggismála í Evrópu gerast ekki með einhliða yfirlýsingum, heldur sem niðurstaða gagn- kvæmra samninga. V. - Norðurlönd em eins óg allir vita K-vopnalaus. - Það hefur enga hemaðarlega merkingu, að þau lýsi yfir svo aug- ljósum hlut. - Slík einhliða yfirlýsing dugar ekki til að fjarlægja K-vopnahótun, sem beint er gegn Norðurlöndum. - Einhliða „trygging" Sovétríkj- anna, um að virða K-vopnaleysi slíks svæðis, er ekki nóg. Afgönum reyndist ekkert hald í „tryggingu" Sovétstjómarinnar gegn beitingu vopnavalds frá því í desember 1978, sem var forsenda „vináttusamn- ings" þjóðanna. - Fjarlæging skammdrægra K- vopna, sem beint er að Norðurlönd- um, er ekki nóg. - Staðsetning K-vopna er ekki aðalatriðið heldur fjöldi þeirra, langdrægni og eyðileggingarmátt- ur. - Vandamálin við eftirlit stórveld- anna með K-vopnalausu svæði em ekki leyst. - Skerðing á pólitísku fullveldi, sem gæti hlotist af pólitískum þrýstingi og hótunum stórveldisins í austri gagnvart Norðurlöndum, er óaðlaðandi framtíðarsýn. Norrænt samstarf: FINNINN Peter Molander hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri „Nor<yobb“, atvinnumiðlunar ungs fólks á Norðurlöndum. Hann tekur við stjómartaumun- um á skrifstofu stofnunarinnar í Kaupmannahöfn 1. október næstkomandi og er ráðinn til ársloka 1987. Starfsemi Nordjobb í sumar gekk mjög vel, að því er segir í fréttatil- kynningu frá Kaupmannahafnar- skrifstofunni, og fóru nær 800 norræn ungmenni á aldrinum 18-26 ára til sumarstarfa á hinum Norð- urlöndunum. - Neikvæð áhrif slíkrar einhliða yfirlýsingar á samningsstöðu lýð- ræðisríkjanna um gagnkvæma afvopnun eru óæskileg. VI. Til að draga saman: • Hugsanlegar einhliða aðgerðir ríkisstjóma á Norðurlöndum um Norðurlönd sem K-vopnalaust svæði geta haft neikvæð áhrif á öryggi Islands. T.d. getur það þýtt fjölgun K-vopna í kafbátum á Atl- antshafi. • Við höfum því hagsmuna að gæta að taka þátt í umræðunni um hugsanlegt K-vopnalaust svæði í N-Evrópu. • Skv. okkar hugmyndum verður slíkt K-vopnalaust svæði að ná landfræðilega yfir miklu stærra svæði en Norðurlönd ein. • Það felur í sér nauðsyn gagn- kvæmra samninga beggja vamar- bandalaga um útfærslu slíkrar hugmyndar. • Við treystum okkur ekki til að vera aðilar að einhliða yfirlýs- ingu, sem nær aðeins til Norður- landanna fimm, og byggir aðeins á sovéskum tryggingum. • Við teijum að ræða eigi þessa hugmynd i breiðara evrópsku og pólitísku samhengi. • Við teljum að NATO-ríkjunum þremur beri skylda til, áður en lengra er haldið, að taka þetta mál upp til ítarlegrar umræðu við bandalagsþjóðimar, innan NATO. • Við vekjum athygli á, að málið er stórpólitískt í eðli sínu. Við teljum því óframkvæmanlegt að setja upp sameiginlega embættismannanefnd fimm ríkisstjóma til þess að fjalla um mál, sem er hápólitískt og á að vera í höndum stjórnmála- manna. •Fagleg rannsókn á vegum utan- ríkis- og vamarmálaráðuneyta landanna á ótal vandamálum óleystum, sem upp munu koma við framkvæmd K-vopnalauss svæðis í Norður-Evrópu, er hins vegar af hinu góða. í yfirstjóm Nordjobb em fulltrú- ar norrænu ráðherranefndarinnar, atvinnulífsins á Norðurlöndum og norrænu félaganna. Dagleg stjóm er í höndum fimm „Nordjobb-ráð- gjafa“, sem em fulltrúar norrænu félaganna á Norðurlöridunum fimm. Alls sóttu 82 Norðurlandabúar um stöðu framkvæmdastjóra Nordjobb, sem var auglýst á öllum Norðurlöndum. Stjómin varð sam- mála um að ráða Peter Molander, sem til þessa hefur verið bæjararki- tekt í Sibbo í Finnlandi. Nýr framkvæmda- stjóri Nordjobb SUMRI I HALLARl BREYTISH OPNUNAR IKEA! ■ 1. september verður verslunin opin írá klukkan 10.00 til 18.30 mánudaga til íöstudaga og á lauaardöaum verður opið frá Mukkan 10.00 til 16.00. Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.