Morgunblaðið - 04.09.1986, Side 62

Morgunblaðið - 04.09.1986, Side 62
MORGT^^l^?Mlá'í8éXclu^f|rká^ÉÍSiflJ^5986M Víkverji skrifar Opinberir innheimtuaðilar hafa ýmsar aðferðir til að minna á sig. Nú í sumar hafa veitustofnanir Reykjavíkurborgar hvatt viðskipta- vini sína til að muna eftir gjalddög- um og átta sig á þeim aðgerðum, sem heimilaðar eru til að loka fyrir þjónustuna ef ekki er staðið í skil- um. Grandvar vinur Víkveija varð fyrir því á dögunum að fá bréf frá borgarfógetaembættinu með til- kynningu um það, að húseign hans yrði seid á uppboði eftir nokkrar vikur ef hann greiddi ekki rúmlega 500 króna skuld. Yrði uppboðið auglýst í Lögbirtingablaðinu eftir nánar tilgreindan frest o.s.frv. Þetta var fyrsta orðsendingin sem húseigandanum barst um að hann hefði ekki innt það af hendi sem honum bar. Þegar hann leitaði skýr- inga, kom í ljós, að það hafði dregist hjá honum vegna fjarvista að greiða fasteignagjöld og var hér um drátt- arvexti að ræða. Þótti honum þetta að vonum heldur harkaleg viðbrögð við ekki hærri upphæð og velti því fyrir sér, hvort ekki hefði verið unnt að fara aðra mildilégri og kostnaðarminni leið en þessa til að minna hann á að greiða þessa lágu fjárhæð. Þegar þetta bar á góma, skýrði annar vinur Víkveija frá því, að fýrir handvömm hefði greiðsla á símareikningi lent í undandrætti hjá sér. Fynrvaralaust hefði síma hans verið lokað. Hann áttaði sig ekki á því fyrr en eftir venjulegan skrif- stofutíma hjá Pósti og síma. Þar sem hann átti von á mikilvægum símtölum um kvöldið frá fólki, sem hann hafði beðið að hafa samband við sig, gerði hann tilraun til að fá lokuninni aflétt með því að tala við bilanaþjónustu símans. Þar var hon- um skýrt frá því að aðeins inn- heimtudeildin gæti gert það, eftir að greiðsla hefði verið innt af hendi. XXX Eins og áður sagði hafa veitu- stofnanir borgarinnar kynnt mönnum í auglýsingum, hvers þeir eiga von, ef þeir inna ekki greiðslur af hendi eftir að viðvörun hefur verið gefin. Póstur og sími hefur ekki uppi neina sérstaka tilburði til að minna þá viðskiptavini sína, sem gleyma að greiða afnotagjaldið, á það, að nú sé komið að lokun símans. Til slíkra ráðstafana er gripið án nokkurrar viðvörunar. Ættu þó að vera hæg heimatökin hjá stofnun, sem ræður yfir jafn fullkomnum boðkerfum og þessi að koma því á framfæri við þá, sem kaupa af henni þjónustu, að þeir séu að missa af henni. Miklu skiptir fyrir opinber einok- unarfyrirtæki eins og aðra þjón- ustuaðila, að þau komi fram við þá sem við þau þurfa að skipta af jafn mikilli liþurð og þeir verða að sýna, sem vilja halda í viðskipti í harðri samkeppni. XXX Af lokun síma geta hlotist vand- ræði og amstur. Dýrmætur tími fer oft til spillis. Menn þurfa að gera sér ferð á innheimtustað til að þeir séu öruggir um að greiðsl- an komist strax til skila og síminn sé opnaður á nýjan leik. Þeir fara þaðan með því hugarfari að vilja aldrei lenda í svipuðu stímabraki aftur. Hér er að lokum saga úr bandarísku riti um fyrirmyndar við- mót í garð viðskiptavinárins: Greiðsla fyrir vöru er innt af hendi með korti. Afgreiðslumaður- inn telur nauðsynlegt að hringja í miðstöð kortafyrirtækisins til að kanna, hvort greiðandinn njóti láns- trausts. Það tekur hann fjórar mínútur að fá samþykki miðstöðv- arinnar. Við svo búið afhendir hann viðskiptavinunum kortið aftur en tekur um leið 5 senta pening úr krús á afgreiðsluborðinu, afhendir korthafanum og segir: „Afsakið töfina. Þetta er ófyrirgefanlegt. Ég vona að þetta gerist ekki aftur. Okkur þykir mikils virði, að þér skiptið við okkur. Vonandi komið þér fljótt aftur." 0g höfundur bók- arinnar bætir við: Hann tryggði með þessu, að við munum skipta við hann til æviloka! „PU ERT STKlKAÐUR UT AF JOlAKOKrAL-lSTANUM Hávaði í Sundlaug Selljarnarness Sigurður Þór Guðjónsson skrifar: „Sundlaugar eru útivistar- svæði. Þangað kemur fólk til að hvílast eftir eril dagsins og njóta útilofts, vatns og sólar. Laugamar eru því sannkallaðar vinjar í eyðimörk borgarinnar. Nýlega var opnuð sundlaug á Seltjamamesi. Þar er flest „Aldraðir úr Langholtssöfnuði sem dvöldu að Ási í Hveragerði tíu daga í ágústmánuði, vilja biðja fyr- ir þakklæti til allra þeirra sem gerðu dvölina þar eins ánægjulega og raun varð. í dvölinni rifjuðust upp ýmsar gamlar vísur og stökur eins og oft vill verða við slík tækifæri. Þar á með ágætum en með einni mik- ilvægri undantekningu. Gjallar- homum hefur verið komið fyrir á laugarbökkunum og er í sífellu útvarpað úr þeim tónlist frá rás 2 og nú síðast nýju einkastöðinni Bylgjunni. Eins og kunnugt er flytja þessar stöðvar aðallega popp- tónlist og af einhveijum bygg- meðal var þessi byijun á kvæði: „Segðu mér söguna aftur, sög- una frá því í gær, um litlu stúlkuna ljúfu, með ljósu fléttumar tvær.“ Ef einhver kannast við fram- haldið af þessu kvæði eða kann það allt þá er hann beðinn að koma því á framfæri við Velvakanda." ingarlegum og hljómburðarleg- um ástæðum kemur alls engin tónlist úr þessum lúðmm heldur aðeins málmkenndur glymjandi svo stundum er varla vært í sundlauginni vegna hávaðans. Ég veit að fólk veigrar sér við að koma þar af þessum sök- um og er það undarleg stefna að fæla þannig í burtu við- skiptavini með óþarfa hávaða og glamri. Fólk kemur í sund- laugamar til að hressa sál og líkama og njóta hollrar útiveru í friði. Gjallarhom og rokk á að mínu mati alls ekki heima á slíkum stað. Ég vona að ráðamenn Sund- laugar Seltjamamess taki þessi tilmæli til greina og fjarlægi þennan friðarspilli." Segðu mér söguna aftur HÖGNI HREKKVÍSI © 1986 Universal Press Syndicate ast er... Með morgunkaf&nu . . að hengja út þvottmn. TM Refl. U.S. Pat. OtT.—all riflhts reserved © 1986 Los Angeles Times Syndicate Er það lögfræðingurinn. Mig langar að koma með smá viðbót við erfða- skrána mína! Já, drengir mínir. Ég segi bara gjörið svo vel og góða skemmtun!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.