Morgunblaðið - 27.09.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.09.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1986 5 Yfirmannaskipti hjá varnarliðinu: McVadon tekur við af Edwin Anderson ERIC A. McVadon, flotaforingi, tekur í næsta mánuði við starfi yfirmanns varaarliðsins á Keflavikurflugvelli af Edwin K. Anderson, flotaforingja, sem hverfur til starfa i flotastöðinni í Norfolk. McVadon hefur áður dvalið hér á landi á vegum vamarliðsins. Hann var yfirmaður flotadeildarinnar í Keflavík og jafnframt formaður vamarmálanefndar að hálfu Banda- Eric A. McVadon, hinn nýi yfir- maður varnarliðsins, er til hægri á þessari mynd. Hún var tekin i ágúst 1984 þegar hann lét af starfi hjá flotadeild varnarliðsins og George T. Lloyd tók við. ríkjamanna frá því í júlí 1982 og fram í september 1984. Eric McVadon á að baki langan feril í bandaríska flotanum. Hann lauk B.A.-prófi í fyrirtækjastjóm frá Tulane-háskóla og M.S.-prófi í alþjóðamálum frá George Was- hington háskóla. Hann hefur einnig lokið prófum frá skólum Banda- ríkjahers og lagt stund á íslenska tungu. Tveir öku- menn bifhjóla slasaðir TVEIR ökumenn bifhjóla slösuð- ust í umferðinni í gær og á fimmtudag. Fyrra slysið varð á fimmtudags- kvöld, skömmu fyrir miðnætti. Bifreið sem ók eftir Pósthússtræti ók í veg fyrir bifhjól sem kom eftir Hafnarstræti. Við áreksturinn handleggsbrotnaði ökumaður bif- hjólsins. Um hádegið í gær varð bifhjól fyrir bifreið við Höfðabakka. Var ökumaður bifhjólsins að prófa hjól kunningja síns og mun hafa verið réttindalaus. Ók hann um á bif- reiðastæði við Höfðabakka 9 og skall á aðvífandi bifreið. Hann meiddist á fæti og er talinn ökkla- brotinn. A svipuðum tíma og slysið við Höfðabakka varð skullu saman bif- reiðar á mótum Skógarhlíðar og Flugvallarvegar. Bifreið sem ók af Flugvallarvegi inn á Skógarhlíð fór í veg fyrir bifreið sem ók niður Skógarhlíðina. Ökumaður þeirrar bifreiðar reyndi að afstýra árekstri og sveigði til hægri, en skall þá utan í steyptum kanti á veginum. Við það valt bifreið hans, en slys á mönnum voru lítil. Sjálfstæðisfólk Hef opnað kosningaskrifstofu í Sigtúni 7, þar sem ég og samstarfsmenn mínir starfa að kjöri mínu í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík þann 18. október nk. Kosningastjóri er Sigurjón Ásbjörnsson og verður skrifstofan opin frá kl. 9—22 alla daga til kjördags. Verið velkomin. Símar: 68 76 65 og 68 73 90. Eyjólfur Konráð Jónsson |§f Bp Á n Hörku ] Ið ’ rm Þessir starfsmenn Gísla J. Johnsen sf hafa selt og þjóna nú fleiri PC-tölvum en nokkur annar einstakur aðili hér á landi MEÐAL VIÐSKIPTAVINA ÞEIRRA ERU: Háskóli íslands, Morgunblaðið, Kennaraháskóli íslands, Dagblaðið, Samvinnuskólinn, Frjálst framtak, Garðaskóli Fjölnir, Innkaupastofnun ríkisins, Eimskip, Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Skeljungur, Skýrsluv. ríkisins og Reykjavíkurb. Olís, Þjóðleikhúsið, Olíufélagið, Leikfélag Reykjavíkur, Samvinnutryggingar, Búnaðarbankinn, Tryggingamiðstöðin, Landsbanki íslands, Verkmenntaskólinn Akureyri, Samvinnubankinn, Akureyrarbær, Útvegsbankinn, Kópavogsbær. Hyggur þú á tölvukaup? Veldu þá traustan samstarfsaðila með reynslu á sínu sviði OOD GISLI J. JOHNSEN Nýbýlavegi 16. Sími 641222. Glerárgötu 20 Akureyri. Sími 96-25004 \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.