Morgunblaðið - 27.09.1986, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.09.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1986 27 AriK. Runólfsson — Minning Fæddur 3. desember 1894 Dáinn 22. september 1986 Ari Kristinn Runólfsson fæddist í Efrihreppi í Skorradal, en þar hófu þau búskap foreldrar hans Runólfur Arason og kona hans, Ingibjörg Pétursdóttir. Frá Efri- hreppi flutti hann svo með foreldr- um sínum að Hálsum í Skorradal og ólst þar upp með 9 systkinum og er hann sá sjötti þeirra sem fer á braut. Þau hjón Runólfur og Ingi- björg brutust úr sárri fátækt í að verða bjargálna. Runólfur breytti býli sfnu úr koti í þokkalega bú- jörð. Þar naut hann bama sinna er þau uxu úr grasi. Ari fór snemma að vinna fyrir sér því ekki gat jörðin látið þennan stóra bamahóp hafa nóg að starfa. Hann var vinnumaður á nokkrum stöðum og hvar sem hann var vann þessi duglegi hægláti maður hug og hjarta þeirra sem hann starfaði hjá eða með. Mörg ár var ann vinnu- maður á Oddhóli á Rangárvöltum. Eftir að hann flutti aftur í sína heimabyggð átti hann í mörg ár heima hjá Engilbert bróður sínum á Vatnsenda, vann þá mikið við brúarsmíði og vegagerð á summm meðan þrek og heilsa entist. Síðustu ár ævinnar var hann á dvalar- heimili aldraðra í Borgarnesi við frábæra umhyggju starfsfólks og vinsældir þeirra sem með honum vom. Þegar ámm fjölgar og mennirn- ir, sem maður umgengst verða fleiri og fleiri og hverfa síðan einn af öðmm, rifjast upp minningarnar misbjartar. Það verður samt svo að þegar ég þakka nafna mínum og frænda gömul og góð kynni, þá er þar allt bjart. Þakka honum þegar hann kom í heimsókn að Syðstu- fossum, og þegar hann var þar stundum við störf. Minnist hvað honum vannst allt vel hvað sem hann gerði, og hve allt var vel gert. Þá verður að síðustu þakkað fyrir samveruna. Nú síðari árin sáumst við sjaldnar en skyldi. En það var mín sök. Ari kvæntist ekki né átti börn. Það em því aðeins frændur, vinir og samstarfsmenn sem kveðja hann og þakka samveruna. Og þær em margar kveðjumar sem þannig fylgja honum guðs um geim. Ari Gíslason liaust laukár -loföiú um litrikt voy IIHnWHH’W Erum nú að setjafram mesta úrval | haustlauka sem nokkurn tima hefur sést á í slandi. Gífurlegt úrval af Túliponum, ^ŒS"harógemm ___I smalaukum, sem reynst hafa vel .. ' vegnategstaeðra innkaupa tekst I okkur aö b%a ótrúlega Isrt verð a | þessum vörum a magntilboöi. Magntilboð: 1 ■ 50 slk. Túlípanar. EinWir (rauðir og gulir), 2QQ,- tvílitir og blandaöir.399 2- 25 stk. Páskaliljur.............. QQQ 3- 35 stk. lágir og Ijölaerir Túlípanar QCtfí 4- 100 stk. blandaðir laukar í öshu. Fagmenn á staðnum alla daga mllli M. 1 og 6 , Ibllémciff! Qróöurhúsinu við Sigtún: Simar 36770-686340 Hjartanlegar þakkir flyt ég öllum sem glöddu mig á áttrœðisafmceli mínu þann 20. september sl. og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Dagbjört Jónsdóttir, Akralandi 3. f Blaóburóarfólk \ óskast! AUSTURBÆR Grettisgata 2-36 o.fl. KARL K. KARLSSON & CO. Skúlatúni 4, 105 R., S. 20350 — 20351.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.