Morgunblaðið - 27.09.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1986
15
meðaleyðslan er og hve langt er
hægt að komast á því bensíni sem
er á tankinum. Klukkan getur verið
skeiðklukka og á sama tíma er
hægt að sjá hitastigið úti eða inni.
Utvarp með sjálfvirkum stöðvaleit-
ara og segulbandi sér fyrir tónlist
eða töluðu máli og skilar um sex
hátalara. Sérstök þokuljós eru und-
ir stuðara að framan og á hurðar-
jöðrum innanverðum eru ljós til
aðvörunar þegar hurðir eru opnað-
ar. A hliðum eru svo öflugir hlífðar-
listar.
En, þetta er aðeins það sem sést.
Hitt er e.t.v. meira um vert sem
hulið er auganu og vinnur sín verk
án þess að vart verði að nokkuð sé
að gerast. Þar kemur tölvutæknin
mjög við sögu. Áður var minnst á
ABS-hemlana. Þeim er stjómað af
tölvu sem vinnur úr upplýsingum á
millisekúndum og gerir það þannig
að naumast er hægt að finna þegar
hemlunarátakinu er jafnað á hjólin.
Þá er vélin að verulegu leyti undir
tölvustjóm og er það til þess gert
að ná sem mestu afli út úr henni
með lágmarks bensíneyðslu. (Tölv-
an sýndi allt niður í 12 lítra á
hundraði á 200 km hraða!). T.d. er
lokað fyrir bensínstrejmii í vélina
hvenær sem hemlað er eða inngjöf
sleppt. Víðtækt viðvömnarkerfi
gerir störf tölvunnar sýnileg þegar
eitthvað fer úrskeiðis. Meðal þess
sem aðvörunarkerfið nær til er ef
hurð fellur ekki að stöfum, ef tank-
lok er opið, ef hemlaklossar (diskar
á öllum hjólum, hvað annað!) eru
slitnir og birtast upplýsingar sem
ljós í mælaborðinu.
Mælaborðið er vel sýnilegt og
gott að fylgjast með þeim upplýs-
ingum sem þar birtast, þótt þurfi
að kasta á það auga við hraðan
akstur.
5 gerðir véla
Scorpio er fáanlegur með fimm
gerðum véla, 1.8 OHC í CL- og
GL-gerðunum (90 hö.), einnig í
sömu gerðum 2.0 OHC (105 hö.)
sem valkostur eða 2.0 OHC EFI
(rafstýrð innspýting, 115 hö.), sú
vél er venjulega í Ghia-bílnum. 2.8
V6 EFI er síðan í 4x4-bflnum og
um leið valkostur í Ghia og var í
þeim sem ég prófaði. 2.8 vélin er
150 hö. Að auki er hægt að fá CL
og GL með 69 hestafla dieselvél.
Þannig er umhorfs innandyra í Scorpio Ghia. Vandaður frágangur og ríkuleg þægindi eru aðalsmerki
þessa bOs ásamt tæknOegri fuHkomnun.
Á þessum slóðum er eins og á
íslandi, fagurt um að litast og gott
að geta notið útsýnisins. Scorpio
býður upp á það úr öllum sætum
og þegar þægindin eru höfð í huga,
þá er þessi bfll aldeilis kjörinn til
þeirrar náttúruskoðunar sem svo
oft fer fram í gegnum bflgluggana.
Að lokum
Hraðakstursbflar eru frábrugðnir
þessum venjulegu vinnujálkum sem
við í daglegu tali köllum góða bfla
og eru það, þ.e. til síns brúks, sem
er að flytja okkur á þokkalega
þægilegan máta á milli staða. Mis-
munurinn er meiri en sýnilegur er
í fljótu bragði, þar er ekki einungis
um að ræða dýrari efni í klæðningu
eða stæl í útliti.
Ford Scorpio Ghia er gott dæmi
um bfl af því tagi sem uppfyllir
ströngustu kröfur um öryggi og
þægindi í akstri og er að auki búinn
ríkulega með munað. Tæknileg full-
komnun og vandaður frágangur eru
einkenni hans og skipa honum í
flokk þeirra útvöldu bfla sem ráða
við jafnt vinstri akrein þýskra hrað-
brauta sem þrönga sveitavegi með
hvað mestum sóma. Þrátt fyrir
kostina er Scorpio þó tiltölulega
„ódýr“ bfll, mundi líklega kosta á
bilinu 1200—1500 þús. kr. hér á
landi og þykir ekki mikið miðað við
aðra sambærilega bfla.
V6-vélin er afldijúg, aðeins 4000
snún. á mínútu skiluðu bflnum
áfram á 200 km hraða í toppgír.
Þar kom við sögu sjálfskipting með
læstum toppgír. Hann er þó ekki
fulllæstur, því að ef á þarf að halda
skiptir hann niður og voru við-
brögðin óaðfínnanleg þegar þess
þurfti með. En þrátt fyrir heil 150
hestöfl er helsti veikleiki Scorpio
samt fólginn í vélaraflinu, þ.e. þeg-
ar snöggrar hröðunar er þörf. Þá
var hann latur nokkuð eða eigum
við að segja að viðbrögðin hafi ve-
rið með hraða sem hæfir aðalborinni
tign?
í sveitinni
í þýsku sveitinni, nánar tiltekið
suður í Bæjaralandi, fóru vegið að
mjókka og reyndi þá á fleira en
hraðaksturshæfni bflsins. Ekið var
í gegnum bæi og upp um hæðir og
hóla þar sem sífellt þurfti að auka
og minnka hraðann á víxl, hemlam-
ir fengu að strita og fjaðrimar að
sýna alla sína kosti.
I bæjunum var einkar þægilegt
að hafa sjálfskiptinguna, hún er
ómissandi við slíkar aðstæður og
þegar læstur toppgír er að auki,
þá er jafnframt búið að yfirvinna
þann ókost sem sjálfskiptingum
fylgdi áður, að vera eyðsluaukandi
á langkeyrslu.
Scorpio nýtur sfn afbragðs vel á
þröngum og krókóttum sveitaveg-
um þar sem vel þarf að vera á verði
og bestur var hann ef flýtir var í
for. Þá fékk vélin notið sín í þrengsl-
unum og fjöðrun og hemlar unnu
óaðfinnanlega.
Ford Scorpio Ghia
Helstu tölur
Slagrúmmál cm*
Afl. hö/sn.mln.
Togkraftur Nm/sn.mín.
ViðbragfþO—100 km klst., sek.
Hámarkshraði km/klst.
Eyðsla (5 gíra beinsk.)
Iítrar/100 km
90 km/klst.
120 km/klst.
bæjarakstur
Lengd mm
Breidd mm
Hæð mm
Dekk
2.0 vél 2.8 vél
1993 2792
115/5500 150/5800
160/4000 219/3000
10,6 9,6
193 208
6,6 7,4
8,2 9,4
9,3 11,5
4669
1760
1392
185/70 VR14
Breiðholts
verður til
sýms
sunnudaginn 28. sept. 1986 kl. 14—17
Kirkjusmiðurinn Örn Erlendsson skýrir út og kynnir bygg-
ingaframkvæmdir. Kvenfélag Breiðhoits býður upp á
kaffiveitingar.
Styðjum
kirkju-
bygginguna
Ábyrgð hf. • Búnaðarbankinn Mjóddinni (
holtsútibú # Verzlunarbankinn Breiðholti
Allir
velkomnir
Iðnaðarbankinn # Landsbankinn Breið-