Morgunblaðið - 23.10.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1986
7
Hausthappdrætti Sjálfstæðisflokksins:
I fyrsta skipti
hægft að greiða með
greiðslukortum
í BYRJUN október var að vanda hleypt af stokkunum hausthapp-
drætti Sjálfstæðisflokksins. t samtali blaðsins við Kjartan
Gunnarsson framkvæmdastjóra kom fram að miðar hefðu verið
sendir út í byrjun október til flokksbundinna sjálfstæðismanna
um land allt og fjölmargra annarra stuðningsmanna flokksins.
I bréfí frá formanni, varafor-
manni og framkvæmdastjóra
flokksins, sem fylgir með happ-
drættismiðunum segir m.a.:
„Við sjálfstæðismenn háðum í
vor kosningabaráttu vegna sveit-
arstjómarkosninga. Niðurstaða
kosninganna var í flestum tilvik-
um vel viðunandi fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn og víða afar góð.
Glæsilegan árangur flokksins í
Reykjavík ber auðvitað hæst.
A næstu mánuðum munum við
undirbúa alþingiskosningar. í
þeim kosningum mun flokkurinn
leggja verk sín í ríkisstjóminni
undir dóm kjósenda.
Við teljum að sjálfstæðismenn
eigi að geta litið með nokkurri
bjartsýni til þeirra kosninga. Ár-
angur af stefnu okkar í kjara- og
efnahagsmálum er nú að koma í
ljós. Stöðugleiki er í efnahagslíf-
inu, atvinna er nóg og kaupmáttur
er vaxandi. Til þess að tryggja
að þessi árangur glatist ekki er
nauðsynlegt að vegur Sjálfstæðis-
flokksins í komandi alþingiskosn-
ingum verði sem allra bestur.
I flokksstarfínu þurfum við því
á næstu vikum og mánuðum að
fylkja liði okkar og undirbúa með
sóknarhug starfíð næstu mánuði.
Að kosningum nýloknum og í
aðdraganda annarra kosninga er
ijárhagur Sjálfstæðisflokksins
erfíður. Aðeins sameinað átak
flokksmanna og stuðningsmanna
getur treyst Qárhag flokksins og
þar með átakamátt hans.
Við skomm á þig að leggja
okkur lið í því efni, nú eins og svo
oft áður.“
Að sögn Kjartans Gunnarsson-
ar framkvæmdastjóra eru vinn-
ingar í happdrættinu að þessu sinni
17, samtals að verðmæti kr. 1.575.
000,00, allt húsbúnaðarvinningar.
Kjartan sagðist vilja hvetja þá
sem fengið hefðu senda miða til
að gera skil sem allra fyrst. Mjög
margir hafa fengið senda gírós-
eðla, þannig að auðvelt er að gera
upp miðana. í Reylq'avík er skrif-
stofu happdrættisins í Valhöll,
Háaleitisbraut 1.
Þá sagðist Kjartan vilja vekja
sérstaka athygli kaupenda happ-
drættismiða á því að hjá aðalskrif-
stofu happdrættisins í Reykjavík
er nú hægt að greiða miðana með
greiðslukortum bæði Visa og
Eurocard. Bæði er hægt að greiða
með greiðslukorti í gegnum síma
og með þvi að koma á skrifstof-
una.
Námskeiðaáætlun
Grunnnámskeið 27. okt. PC stýrikerfi 1 (DOS) 13. nóv.
PC stýrikerfi 1 (DOS) 28. okt. Lotus123 17.-19. nóv.
Word ritvinnslukerfi 29.- -31.okt. NÝTT!!!
Ópusfjárhagsbókhald 3. nóv. S/36IBM fjárhagsbókhald 21. nóv.
Ópus viðskiptamannabókhald 4. nóv. NÝTT!!!
Ópus birgðir+nótuútskrift 5. nóv. S/36 Frum vskm./afgr.kerfi 25.-26. nóv.
Ópus innflutningskerfi 6. nóv. Grunnnámskeið 27. nóv.
Word Perfect ritv.kerfi 10.- -11. nóv. PC stýrikerfi 1 (DOS) 28. nóv.
S/36 stýrikerfi 12. nóv.
Námskeiðin eru haldin í húsnæði okkar á Nýbýlavegi 16, Kópavogi.
Kennt er 6 klst. á dag, frá 9 til 12 og 13 til 16. Þátttakendum
er boðinn hádegisverður í mötuneyti okkar.
Allar nánari upplýsingar eru veittar
í síma 641222 i jl l igísli j. johnsen
HAUSTHAPPDRÆTTI
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Aöeins dregiö ur seldum miðum!
ij n
\ \ \
VERÖMÆTI VINNINGA ALLSKR. 1.575.(XX)
DREGIÐ 10. NÓVEMBER 1986
„Og svo kom sólin upp“
Forlagið gefur út viðtalsbók við
íslenska alkóhólista
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur
gefið út bókina „Og svo kom
sólin upp“ eftir Jónas Jónasson,
rithöfund og sjónvarpsmann.
Hún hefur að geyma frásagnir
íslenskra alkóhólista og aðstand-
enda þeirra.
Þau sem segja sögur úr lífí sínu
eru Anna Þorgrímsdóttir og Ragn-
heiður Guðnadóttir, sem báðar
gegna ábyrgðarstöðum á vettvangi
SAÁ, læknamir Þórarinn Tyrfíngs-
son og Guðbrandur Kjartansson,
íþróttakappinn Gunnar Huseby,
Þórunn H. Felixdóttir kennari, Þrá-
inn Bertelsson ritstjóri, séra Halldór
Gröndal, Jóhanna Birgisdóttir
blaðamaður, Tómas Agnar Tómas-
son iðnrekandi, Tómas Andrés
Tómasson veitingamaður, Helga
Bjömsdóttir kennari og tónlistar-
mennimir Ólafur Gaukur, Pálmi
Gunnarsson og Sigfús Halldórsson.
Loks segir Jóhannes Bergsveinsson
læknir frá starfí sínu í þágu
íslenskra alkóhólista.
í upphafí bókarinar segir Jónas
Jónasson m.a.: „Hér getur að lesa
af fólki sem Barðist og sigraði. Það
lifði í myrkri, vonleysi veikinda og
einsemdar, það lifði í 6tta...Og svo
kom sólin uþp. Þar sem er vilji, þar
er von. Leitaðu ekki langt yfír
skammt að friði. Það em til þekkt-
Jónas Jónasson rithöfundur og
útvarpsmaður hefur tekið viðtöl
við íslenska alkóhólista og að-
standendur þeírra. Viðtölin er
að finna í bókinni „Og svo kom
sólin upp.“
ar leiðir. Það góða fólk sem kom
til að segja frá í þessap bók sannar
það. Ég virði hugrekki þess og
drengskap."
Bókin er 202 blaðsíður og er
prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf.
Margrét Helgadóttir hannaði kápu
bókarinnar.
Grínmyndin semhvar-
vetna hefur slegid í
gegn. Kemurá
myndbandaleigur
27. október.
3SLENSXUR
TEXTI
Heildsöludreifing
Síöumúla 23. S: 686250/ÖS80S0.
I