Morgunblaðið - 23.10.1986, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 23.10.1986, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1986 49 BEATRICE MOONEY BERST FYRIR HEIMSFRIÐI ALLT AÐ VINNA OG ENGU AÐ TAPA Beatrice Mooney heitir hún og stendur allt í einu inni á gólfi á rit- stjórn Morgunblaðsins eftir að allur hamagangurinn í kringum leiðtogana Reagan og Gorbachev er afstaðinn, með hatt úr portúg- ölsku fiskigami á höfði. Það er leiðtogafundurinn sem hana hingað til lands eins og svo marga aðra, en hún seg- ist hafa slegið tvær flugur í einu höggi og heimsótt nokkra íslenská vini í leiðinni. Ég kom hingað vegna leið- togafundarins, bjóst satt að segja við að heimssögulegir viðburðir gerðust hér og við þyrftum ekki framar að kjamorkustríð, gætum snúið okkur að því að leysa efnahags- vanda heimsins." Hún segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með fundinn og velt fyrir sér hvað hægt væri að gera. „I morgun datt mér í hug að stofna nokkurs konar heimsstjóm, Global Govemment. Stjómin yrði mynduð úr samtökum fólks hvaðanæva úr heiminum, sem vildi búa við frið í heiminum, heimurinn er svo lítill að við verðum að læra að varðveita hann og í stefnuskrá okkar yrði lögð áhersla á góða heilsu í stað eyðileggingar eins og nú er. Það er oft talað um mikilvægi heilsuvemdar, bólusetningar gegn rauðum hundum er smávægilegt heilbrigðisvandamál miðað við hryðjuverk og afleiðingar styrjalda. Hún vitnar í Eisenhower forseta og segir að hann hafi talið að það kæmi að því að friðarþörf fólks yrði svo sterk að ríkisstjómir neyddust til að beygja sig eða víkja til hlið- ar. „Mig langar að vita hvort fleiri séu á sömu skoðun og ég, við höfum allt að vinna og engu að tapa og ég vil biðja áhugasama að skrifa mér. Póstfangið er: P.O. Box 6, Lakeland, MN 55043, Bandaríkjunum. Beatrice Mooney, hjúkrunar fræðingur frá Banda- ríkjunum. Morgunblaðið/Árni Sœberg Divine að skemmta íslendingum í Evrópu um sl. helgi BANDARÍSKI söngvarinn og leikarinn Divine skemmti í veitingahúsinu Evrópu um síðustu helgi, fimmtudag, föstu- dag og laugardag. Divine er nokkuð óvenjulegur ásýndum, 150 kg. karlmaður, sem fram kemur sem kvenmaður á skemmtunum sínum. Divine kom til íslands í fyrsta skipti nú, en hann hefur farið víða á sl. fimm árum með þessa sömu dagskrá. Auk þess að koma fram á tónleikum, hefur Divine leikið í kvikmyndum og kannast e.t.v. ein- hveijir við hann af hvíta tjaldinu. JESPER BUKKAÐUR Félagi hans markaði spor í andlit Olsens Eins og knattspymuáhuga- mönnum mun kunnugt kom til áfloga á æfíngu breska liðsins Manchester United í síðustu viku og fór Daninn Jesper Olsen illa út úr þeirri viðureign. „Já, Remi sló mig í framan og það var ekkert slys!" Það var félagi hans Remi Moses, sem réðist á hann og veitti honum a.m.k tvö þung högg, með þeim Jesper sárreiður og samansaum- aður. afleiðingum að Jesper lyppaðist nið- ur og þurfti að fara á sjúkrahús. Þar vom saumuð i hann ellefu spor, en eins og sjá má er Jesper hreint ekki glæsilegur eftir. „Maðurinn er fífl og ég hef ekk- ert annað um hann að segja. Hann getur ekki sætt sig við að vera ekki jafngóður og ég og þá slær hann frá sér. Þetta var ekkert slys eins og sumir hafa sagt. Ekki sló maðurinn mig tvisvar fyrir slysni?" Jesper hefur lýst því yfír að hann vilji fara frá Manchester hið allra fyrsta og hafa heyrst raddir um að hann fari e.t.v. til þýska liðsins Borussia Mönchengladbach. Fram- kvæmdastjóri Manchester, Ron Atkinson, hefur þó þvertekið fyrir það. COSPER /oo9/ ©PIB COSPER - Nú vil ég fá einn úr salnum upp á sviðið. VETRARKÁPUR OG JAKKAR Ný sending af vetrarkápum, jökkum og kvöldkjólum Dalakofinn, Linnetsstíg 1, Hafnarfirði, sími 54295. Samsviðstækni Maharishi Mahesh yogi Einstaklingsfriður er grunn- eining heimsfriðar. Kynnið ykkur málið á almennum kynningarfundi í Odda (Fé- lagsvísindahúsi Háskól- ans), stofu 201, í kvöld (fimmtudagskvöld), kl. MAHARISHI MAHESH YOGI 20.30. Alþjóða íhugunarfélagið — íslandsdeild, sími 99-4178. Ættfræðinámskeið í lok október hefjast ættfræðinámskeið á vegum Ættfræðiþjónustunnar. Leiðbeint verður um ætt- fræðileg vinnubrögð, heimildir, gildi þeirra og meðferð, gerð ættartölu og niðjatals, uppsetningu o.fl. Unnið verður með frumheimildir um ættir þátttakenda. Námskeiðin standa í 8 vikur. Ættfræðiþjónustan — Ættfræðiútgáfan Sími 27101 alla daga og kvöld. RICARDO'S JA2ZMEN Danska jasshljómsveitin . Ricardos ásamt Halricks og Gullý Hönnu leika í kvöld Opið frá kl. 20-01 Hótel Borg — Hfandi staður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.