Morgunblaðið - 23.10.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1986
23
Tommy Lee Jones
á bláþræði
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Á BLÁÞRÆÐI (The Park is
Mine). Sýnd í Stjömubíói.
Stjörnugjöf: ★
Bandarísk. Leikstjóri Steven
Hilliard Stera. Handrit Lyle
Gorch. Kvikmyndataka Laszlo
George. Tónlist Tangerine
Dream. Helstu hlutverk
Tommy Lee Jones, Helen Sha-
ver, Yaphet Kotto og Lawrence
Dane.
York, sem vinur hans úr Víetnam
hafði lengi haft á prjónunum en
gat aldrei framkvæmt.
Og þar með erum við komin inn
í enn eina formúlumjmdina um
ofurmennið ósigrandi, stríðshetj-
una ljúfu sem engum vill neitt
gera en hann á bara engin önnur
úrræði til að vekja athygli á mál-
stað sínum. Óvinurinn eru spilltir
borgarstarfsmenn sem vilja hann
feigan en vinir hans er fólkið á
götunum enda talar hann máli
þess um fátækt og umkomuleysi
þeirra sem minna mega sín.
Tommy Lee Jones i myndinni Á bláþræði.
Vandamál bandarískra her-
manna sem þátt tóku í Víetnam-
stríðinu og hafa átt í erfiðleikum
með að laga sig að borgaralegu
lífi í Bandaríkjunum eftir stríðíð
er forvitnilegt og verðugt efni í
kvikmyndir. Ófáar myndir hafa
tekið á þessu máli en engin er
eins innantóm og metnaðarlaus
og myndin Á bláþræði (The Park
is Mine), sem sýnd er í Bíóhöllinni
með Tommy Lee Jones í aðal-
hlutverki.
Hermennimir frá Víetnam urðu
aldrei neinar hetjur. Bandaríkja-
menn vildu gleyma þeim sem fyrst
eins og stríðinu sjálfu og Mitch
(Tommy Lee Jones) er einn af
þessum gleymdu og forsmáðu.
Hann tollir hvergi í vinnu og er
eins og konan hans fyrrverandi
bendir honum réttilega á, alger
ónytjungur. Þá er best að gera
eitthvað í því hugsar Mitch og
leggur undir sig Miðgarð í New
Tommy Lee Jones er utangátta
og vandræðalegur eins og hann
kunni hálfpartinn ekki við að leika
þessa Rambógerð. Hann er svo
sannarlega betri leikari en þetta
auma hlutverk segir til um. Yap-
het Kotto leikur lögregluforingja
sem hefur samúð með Mitch, og
hann er eins og hann hafi aldrei
verið öðruvísi en í fýlu. Helen
Shaver leikur fréttamann sem
vingast við Mitch, og er kannski
sú eina sem finnur sig virkilega
í rullunni.
Þessi mynd er alls ekki gerð
til að vekja athygli á vandamálum
þeirra hermanna sem átt hafa í
erfíðleikum með að fínna sig aftur
í lífínu eftir Víetnam-stríðið, eða
ef svo er mistekst henni það herfí-
lega. Eina samúðin sem maður
hefur er með Tommy Lee Jones.
Getur hann virkilega ekki fundið
betri hlutverk en þetta?
VERTU MNN
EIGINN HERRA
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8. SÍMI 27500 — HAFNARSTRÆTI 3 SÍMI 20455
Ef þú kaupir myndlykil að Stöð 2
Þá færðu 5% AUKAAFSLÁTT af öllum
myndbandstækjum hjá okkur.
Tvær stöðvar verða ekkert vandamál
á þínu heimili með PHILIPS myndbandstæki.
Þú horfir á eina stöð en tekur upp af hinni.
Við erum mjög sveigjanlegir í samningum.
Athugaðu það.
Gæóakaffi sem