Morgunblaðið - 23.10.1986, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.10.1986, Blaðsíða 24
24______ Umferðin MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1986 Umferðarfræðsla í Hólminum Morgunblaðið/Ámi Helgason Stykkishólmi. Lögreglan í Stykkishólmi heimsótti yngstu börnin í Grunnskólanum á dögunum tii að kenna þeim umferðarreg’lurnar og afhenda endurskinsmerki. Eftir að Eðvarð Árnason yfirlögregluþjónn hafi farið yfir umferðarreglumar í skólanum fór hann með börnunum að aðalgötu bæjarins og æfði þar það sem hann hafði kennt þeim. Fréttaritari tók myndina þegar einn bekkurinn gekk yfir götuna í lögreglufylgd og að sjálfsögðu litu allir vel til beggja hliða. Slysum fækkar en eignatjón eykst SLYSUM með meiðslum fer fækkandi, en umferðaróhöppum með eignatjóni fjölgaði til muna í september. Þetta kemur fram í skýrslu Umferðarráðs fyrir septembermán- uð, en skýrsla þessi er unnin eftir lögregluskýrslum. Þar kemur einn- ig fram að 57 slys með meiðslum urðu í síðasta mánuði, en á sama tíma í fyrra voru þau 11 færri. Það sem af er þessu ári hafa orðið 384 slys með meiðslum, en í fyrra var sambærileg tala 465 og munar þar 81 slysi. Það er hins vegar athygli- vert að umferðaróhöppum með eignatjóni einungis fjölgaði til muna í september. í 646 tilfellum varð einungis eignatjón á ökutækjum, en í sama mánuði í fyrra voru tilfell- in 92 færri, eða 554. Samkvæmt skýrslu Umferðarráðs munar hér mest um þá slysaöldu sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið fyrri hluta septembermánaðar. Vegfna þessa hvetur Umferðarráð ökumenn til að aka bflum sínum með ljósum og gangandi vegfarendur til þess að nota endurskinsmerki. Morgunblaðið/Þorkell Þau sem sýna „Leikslok í Smyrnu“. Standandi frá vinstri: Valgeir, Hjálmar, Hilmar Örn, Gréta Ösp, Ingrid, Þórdís, Ólafía Hrönn, Guðrún Sigríður, Ólafur Örn, Haljdór, Þórarinn og Stefán Sturla. í stólnum situr Kristín Jóhannesdóttir. hvað æðra en hversdagsleikinn. Og við reynum að gera þetta að skemmtilegum draumi.“ Léikarar Nemendaleikhússins eru nemendur á fjórða og síðasta ári LÍ, Halldór Bjömsson, Hjálmar Hjálmarsson, Ingrid Jónsdóttir, Ól- afía Hrönn Jónsdóttir, Stefán Sturla Sigurjónsson, Valgeir Skagfjörð, Þórarinn Eyfjörð og Þórdís Arn- ljótsdóttir. I vetur munu þau setja upp þijú leikrit. Þegar er ákveðið að næsta verkefni verði „Þrettánda- kvöld" eftir William Shakespeare, en lokaverkefni vetrarins hefur ekki verið valið. Tveir gestaleikarar taka þátt í „Leikslok í Smymu", Jón Gunnars- son og Kristbjörg Kjeld. Leikmynd gerir Guðrún Sigríður Haraldsdótt- ir, lýsingu annast hún ásamt Ólafi Emi Thoroddsen. Hilmar Öm Hilm- arsson hljóðskreytir verkið. Nemendur á 1. ári skólans sjá um tæknivinnu og aðstoð á sýningum. Sýnt er í Lindarbæ. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Hópur fólks safnaðist saman við Landakotskirkju á laugardag þegar kveikt var fyrsta sinni á Ijós- kösturum sem lýsa upp kirkjuna. LANDAKOTSKIRKJA er nú flóðlýst og var kveikt á ljós- kösturum á lóð kirkjunnar fyrsta sinni á laugardag. Flóðlýsingin markar lok við- gerða á kirkjunni sem staðið hafa yfir að undanfömu. Gert var við kirkjuna að utan vegna skemmda Landakotskirkja flóðlýst í steypunni og einnig var gert við kirkjutum að innan og lagaðir gluggar. Alls mun viðgerðin hafa kostað 4-5 milljónir króna, en féð fékkst með söfnun hjá ríki og bæ, fyrirtækjum, bönkum og almenn- ingi. Enn á eftir að mála tum og glugga að innan þar sem bíða verður þess að steypan þomi að fullu. Kastarar þeir sem lýsa upp kirkjuna eru keyptir fyrir hluta af söfnunarfénu, en Reykjavíkur- borg leggur til rafmagnið sem fer til lýsingarinnar. Ljósin kvikna á sama tíma og götuljós. Landa- kotskirkja var vígð árið 1929 og er því 57 ára. Frumsýnir fyrsta leikrit vetrarins NEMENDALEIKHÚS Leiklistar- skóla íslands frumsýnir fyrsta verkefni sitt á þessum vetri í kvöld, leikrit þýska höfundarins Horst Laube, „Leikslok í Smyrnu.“ Að sögn Kristínar Jo- hannesdóttur, leikstjóra, byggir leikritið á samnefndu verki ítalska höfundarins Carlo Gol- doni, sem uppi var á 18. öld. Söguþráðurinn er þó mikið breyttur, persónusköpun og leikstíll færður til nútímalegs horfs. Sögusvið leikritsins er Feneyjar. Aðalpersónan er Laska greifí, fag- urkeri sem telur óperuna æðsta form lista. Honum gremst hinsveg- ar mjög hvemig verk tónskáldanna afskræmast í meðförum söngvara, og ákveður að hefna listagyðjunn- ar. Fær Laska til liðs við sig Tyrkja, dulbýr hann sem auðugan feneysk- an kaupmanna, og með klækja- brögðum sínum draga þeir söngvara á tálar. Áður en yfir lýkur snúast vopnin þó í höndum þeirra félaga. Kristín sagði að leikritið væri harmleikur og gamanleikur í senn. „Kjaminn í verkinu er umljöllun um listina - hvemig tengsl eru milli fólks og listarinnar. Það er dæmi- saga um hvað gerist þegar hugmyndafræði fer að ráða ferð- inni, en ekki listin sem sköpunar- máti. Öðmm þræði fjallar leikritið um drauma okkar, drauma um eitt- Lánasjóður íslenskra námsmanna: Fyrsta áfanga haust- úthlutunar lokið - Breytingar á opnunartíma afgreiðslu BREYTINGAR hafa verið gerðar á opnunartíma afgreiðslu Lána- sjóðs íslenskra námsmanna. Afgreiðslan verður lokuð á mánudögum og föstudögum en opnunartiminn lengdur á fimmtudögum og verður þá opið til klukkan 18.00 Að sögn Hrafns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra sjóðsins, hefur úthlutun gengið mjög vel i haust og hefur um 85% lána verið úthlut- að. Fyrsta áfanga haustúthlutunar væri nú Iokið og vegna tölvuvæð- ingar hefði afgreiðsla verið um þremur vikum fyrr á ferðinni en áður. Breytingarnar á opnunartíma afgreiðslunnar væri því til hagræð- ingar fyrir starfsmenn sjóðsins. Námsmenn geta, jafnt þá daga sem afgreiðslan er lokuð og aðra daga, komið í afgreiðsluna og náð í eyðublöð, skilað fylgiskjölum og skuldabréfum og fengið almennar upplýsingar á upplýsingatöflu Lánasjóðsins. Ekki verða breyting- ar á viðtalstímum og símaþjónustu. 45 milljónir í Þj óðarbókhlöðu í FRUMVARPI til fjárlaga er gert ráð fyrir að 45 milljónir króna renni til Þjóðarbókhlöð- unnar a næsta ári. Eignar- skattsauki sem lagður var á sl. vor, og átti að renna til bygg- ingarinnar, nemur hinsvegar 87 milljónum króna samkvæmt frumvarpinu. Að sögn Geirs H. Haarde, aðstoðarmanns fjár- málaráðherra, mun allt þetta fé renna til Þjóðarbókhlöðunn- ar, þótt siðar verði. „Sú áfangaskipting sem gert er ráð fyrir í framkvæmdaáætlun Þjóðarbókhlöðunnar olli því að ekki þótti rétt að veija meiri pen- ingum til byggingarinnar í ár“ sagði Geir. „Við ætlum ekki að svíkja bókhlöðuna um þessa pen- inga, þeir verða geymdir á sér- stökum reikningi og munu renna til byggingarinnar síðar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.