Morgunblaðið - 23.10.1986, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1986
Rannsóknastofa Háskólans í veirufræði:
Fósturskemmdir af völdum
rauðra hunda heyra sögunni til
Fræðslu-
fundur um
sálgæslu
LAUGARDAGINN 25. október
verður fræðslufundur um sál-
gæslu í Safnaðarheimili Laug-
arneskirkju kl. 14.15—17.00.
Leiðbeinendur verða tveir
norskir sérfræðingar. Prestur-
inn Per Arne Dahl, sem um
þessar mundir er forstöðumað-
ur stofnunar sem nefnist Instit-
utt for Sjelesorg. Hinn
leiðbeinandinn er Svein Idsö
geðlæknir, en hann er einn af
yfirlæknum Modum Bads Ner-
vesanatorium. Hann mun tala
um depurð og kvíða en prestur-
inn fjallar um það hvernig
sálgæslan mætir margbreyti-
leik lífsins.
Öllum er heimil þátttaka, þó sér-
staklega sé höfðað til þeirra sem
starfa við mannleg samskipti hvers
konar.
VJterkurog
k J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
fllgtgttnfrfnfttft
MEÐAL verkefna Rannsóknar-
stofu Háskólans undanfarin ár
er svonefnt rauðuhundaverk-
efni, en með því hefur verið
stefnt að því að koma í veg fyr-
ir fósturskemmdir af völdum
rauðra hunda. Mótefnamæling-
ar hafa farið fram i svotil öllum
konum á barneignaaldri og þær
konur bólusettar sem eru mót-
efnalausar.
Að sögn Margrétar Guðnadótt-
ur forstöðumanns rannsóknar-
stofu Háskólans í veirufræði hefur
þetta verkefni verið í gangi í 12
ár. „Tveim árum fyrr, sumarið ’72
byrjuðu íslenskir læknanemar að
kanna ónæmisástand kvenna í 13
læknishéruðum" segir Margrét.
„Þeir rannsökuðu 1400 konur og
komust að því að ónæmisástand í
þéttbýli var svipað og þekkist víða
erlendis, en verra í dreifbýlinu, þar
voru fleiri mótefnalausar. Þegar
við byrjuðum að vinna á Landspít-
alanum fór líffræðingur í B.S.
námi í það verkefni að athuga
ónæmi þeirra kvenna sem ófrískar
voru það árið. Þriðja verkefnið
hófum við svo ’76 en það fólst í
því að athuga hvemig ónæmi
væri í skólastúlkum í 12 ára bekk
í Reykjavík. Að því loknu var far-
ið að bólusetja þær mótefnalausu,
skólastúlkumar og mótefnalausar
konur að loknum bamsburði. 1978
skall svo yfir rauðuhundafaraldur
og við höfðum samband við borg-
arlækni og landlækni og hvöttum
konur til að koma í mæðraskoðun
sem allra fyrst í mælingu gegn
rauðum hundum. Á þessu eina
ári, frá miðju sumri ’78 fram á
mitt sumar ’79 vom 5.126 konur
ófrískar sem við rannsökuðum.
Við gerðum 14.709 rannsóknir á
þessum hópi til að greina hveijar
hefðu sýkst á meðgöngutímanum.
156 konur höfðu sýkst, 93 fóm í
fóstureyðingu eftir að sjúkdómur-
inn hafði verið greindur nákvæm-
iega, en alls vom gerðar 104
fóstureyðingar af völdum þessa
faraldurs. Þetta var gífurlegt
vinnuálag á okkur, unnið á kvöld-
in og um helgar við þær lélegu
aðstæður sem við höfum búið við
á rannsóknarstofunni og þegar
faraldurinn var genginn yfír hét-
um við að gera þetta ekki aftur.
Við fómm því til landlæknis og
báðum hann liðsinnis að leita uppi
allar konur sem vom ómældar.
Samvinnuverkefni var því sett upp
með landlækni í tvö ár, frá miðju
sumri ’79 til miðs sumars ’81,
hópur læknanema var sendur út á
land til að mæla þær konur sem
verst var að ná í, en það vom um
7 þúsund konur. Þá tóku heilsu-
gæslustöðvamar við, læknar,
mæðravemd og fleiri, þannig að
við náðum í um 20 þúsund konur,
af þeim sem ekki höfðu komið
fram áður í rannsóknum okkar.
Höfum náð til vel-
flestra kvenna á
barneignaaldri
í dag höfum við mælt 56.415
konur og stúlkur fæddar á ámnum
’36 til ’73 eða gert um 105 þús-
und mælingar. í heild er þessi
hópur um 58 þúsund, svo segja
má að við höfum náð til velflestra
kvenna á bameignaraldri, þær
konur sem ekki hafa verið mældar
hafa verið boðaðar, en ekki komið
og em því eini áhættuhópurinn
sem eftir er. Um 6 þúsund konur
hafa verið bólusettar í þessum
hópi, hinar hafa verið með móteftii
gegn rauðum hundum."
Margrét var spurð hvort þetta
verkefni ætti sér hliðstæðu í ná-
grannalöndunum.
„Það er búið að öfunda okkur
heilmikið af þessu. Erlendis hafa
verið notaðar aðrar aðferðir við
að koma í veg fyrir fósturskemmd-
ir vegna rauðra hunda, 12 ára
árgangurinn hefur t.d. verið
sprautaður án mælinga. Eina
landið sem hefur verið með svipað
verkefni og við er Skotland, en
það hefur ekki gengið jafn vel að
* i/ •/
m
KENWOOD
UMBOÐSMENN KENWOÖD UM LAND ALLT:
JL-HÚSIÐ, Hringbraut 121, Reykjavík
RAFHA HF., Austurveri, Reykjavík
RAFÞJÓNUSTA SIGURD., Skagabraut 6, Akranesi
HUSPRÝÐI, Borgarnesi
HUSIÐ, Stykkishólmi
VERSLUN EINARS STEFÁNSSONAR, Búðardal
KAUPFÉLAG SAURBÆINGA, Skriðulandl, Dalasýslu
PÓLLINN HF., ísafirði
VERSLUN EINARS GUÐFINNSSONAR, Bolungarvík
VERSLUN SIGURÐAR PÁLMASONAR, Hvammstanga
KAUPFÉLAG HÚNVETNINGA, Blönduósi
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA, Sauðárkróki
RAFSJÁ HF., Sauðárkróki
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA, Akureyri
GRÍMUR OG ÁRNI, Húsavík
VERSLUN SVEINS GUÐMUNDSSONAR, Egilsstöðum
ENNCO SF., Neskaupstað
MOSFELL, Hellu
KAUPFÉLAG ÁRNESINGA, Selfossi
RADÍÓ- OG SJÓNVARPSÞJÓNUSTAN, Selfossi
KJARNI, Vestmannaeyjum
RAFVÖRUR, Þorlákshöfn
VERSLUNIN BÁRA, Grindavík
STAPAFELL HF., Keflavík
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD_
m fEl [hIhekiahf
n 11 [ ^ laugavegi 170 • 172 Sími 695550
r
Úr sýningu íslenska dansflokksins.
Islenskí dansflokk-
urinn sýnir í
Kaupmannahöfn
ÍSLENSKI dansflokkurinn held-
ur í dag til Kaupmannahafnar,
en þar verður haldið evrópskt
leiklistarþing og hátíð um helg-
ina, þar sem dansflokknum hefur
verið boðið að sýna baUettana
Stöðuga Ferðalanga eftir Ed
Wubbe.
Vegagerð ríkisins:
17% af þjóð-
vegnm lands-
ins nú lagðir
bundnu slitlagi
ALLS voru lagðir 279 km af
bundnu slitlagi á þjóðvegi lands-
ins í sumar og er það rúmlega
3% af heildar þjóðvegakerfinu,
sem er um 8.500 km.
Af svokölluðum stofnbrautum,
sem eru aðalvegir, voru 1.243 km
lagðir bundnu slitlagi í sumar og
af þjóðbrautum, sem eru hliðar-
brautir, voru 179 km lagðir bundnu
slitlagi. Eftir sumarið er því 17%
af þjóðvegakerfí landsins nú lagt
bundnu slitlagi, eða alls 1.422 km.
Þessi ballettsýning, sem frum-
sýnd var í Þjóðleikhúsinu síðastliðið
vor, var kölluð „stórsigur" íslenska
dansflokksins. Dansar Eds Wubber
eru nútímalegir, en byggðir á
klassískum grunni. Dansamir þrír
heita „Fjarlægðir", „Tvístígandi
sinnaskipti" og „Annað ferðalag".
Tónlistin er úr ýmsum áttum og
eftir Arvo Part og John McDowell.
Heidi de Raad og Sigurjón Jóhanns-
son hönnuðu búninga en Armenio,
Marcel AJberts og Hep von Delft
hönnuðu leikmyndir, Ánii Baldvins-
son sá um lýsinguna og stjómendur
uppfærslunnar vom Ton Wiggers
og Ed Wubbe.
Þeir sem dansa í sýningunni era:
Birgitte Heide, Guðrún Pálsdóttir,
Helga Bemhard, Ingibjörg Páls-
dóttir, Helena Jóhannsdóttir, Katrín
Hall, Sigrún Guðmundsdóttir,
Patrick Dadey, Norio Mamiya, Öm
Guðmundsson, Ásta Henriksdóttir,
Guðmunda Jóhannesdóttir, Lára
Stefánsdóttir, ólafía Bjamleifsdótt-
ir og Ásdís Magnúsdóttir, sem
nýkomin er heim frá Hollandi, þar
sem hún var gestadansari í af-
mælissýningu dansflokksins Intro-
dans um síðustu helgi.