Morgunblaðið - 23.10.1986, Side 20

Morgunblaðið - 23.10.1986, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1986 Á ráðstefnu Landssamtakanna Þroskahjálpar á Hótel Loftleið- um sl. helgi kynntu Bjarni Kristjánsson og Friðrik Sig- urðsson niðurstöður úr skýrslu- gerð, sem þeir hafa unnið fyrir samtökin. Þeir hafa kannað vistunarmál fatlaðra, fé, sem runnið hefur til framkvæmda og gert spá um framtíðarþörf í vistunarmálum. Samkvæmt athugun þeirra miðað við mannfjöldaspá og fleira þarf að lágmarki fjórtán til tutt- ugu og tvö ný vistiými á ári, fram Frá ráðstefnunni á Hótel Loftleiðum Ný sjónarmið í vistun- armálum þroskaheftra koma í áætlaðri vistunarþörf árið 2000 miðast eingöngu við þann fjölda, sem þarfnast vistunar og býr nú í heimahúsum. Ef hins vegar væri tekin sú stefna að fækka stórlega, eða leggja niður með öllu, stórar sólarhringsstofn- anir, eins og gert hefur verið sums staðar erlendis, yrði þörfin, að sjálfsögðu, miklu meiri.“ Rætt við Bjarna Kristjánsson og Friðrik Sigurðsson um niðurstöður úr skýrslugerð, sem þeir hafa unnið fyrir Landssamtökin Þroskahjálp til aldamóta, til að hægt sé að koma þroskaheftu fólki í hús- næði, sem mæti þörfum hvers og eins. Síðustu tólf ár hafa að jafn- aði bæst við rúmlega fimm rými á ári. Á síðustu sex árum hafa þó mun fleiri bæst við en á árun- um þar á undan. í skýrslunni segir einnig; „Vart þarf að fara í graf- götur með að mest mun aukningin á næstu árum verða í vistun full- orðinna. Líklegt má telja að mikill fjöldi þeirra bama og ungmenna 20 ára og yngri sem nú dvelja í heimahúsum muni sækjast eftir vistun á næstu árum, þá uppkom- ið fólk. Eins er ljóst að eftirspum eftir vistun í sambýlum og öðrum fámennum einingum verður ríkjandi í framtíðinni. Um það bera biðlistar svæðisstjóma og þróun í nágrannalöndum glöggt vitni." í skýrslunni kemur fram að á hinum ýmsu stofnunum fyrir þroskahefta em nú mun færri böm, 15 ára og yngri, en var fyr- ir tólf ámm. Þetta stafar m.a. af hugmyndafræði (normaliseringu), sem byggir á að fatlaðir skuli búa við sem eðlilegust lífsskilyrði og þar af leiðandi skuli fötluð böm, eins og önnur böm, búa í foreldra- húsum. Bamaörorka er metin sem ákveðið hlutfall af örorkulífeyri. Árið 1973 var örorkuiífeyririnn tæp 65% af heildarörorkubótum fullorðinna, en árið 1985 var lífeyririnn orðinn aðeins 40%. Þessi þróun veldur því að fötluð böm fá miklu minni bætur nú en áður. Það er mun dýrara að ffam- færa fatlað bam en ófatlað og því hefur framfærslubyrði þeirra Qölskyldna, sem hafa innan sinna vébanda fötluð böm, aukist til muna.. Samkvæmt skýrslunni em fé- lagsleg útgjöld lægst á ísiandi af Norðurlöndum og þannig hefur það verið lengi. Það hlutfall fé- lagslegra útgjalda, sem á íslandi er svo varið til þjónustu við aldr- aða og öryrkja er þó langlægst. Friðrik Sigurðsson í samtali, sem blaðamaður Morgunblaðsins átti við Friðrik Bjarni Kristjánsson Friðrik Sigurðsson Sigurðsson, sagði hann: „Ég dreg þá ályktun af þessari könnun að stór hluti mikið fatlaðra bama og ungmenna búi nú í heimahúsum og það er afleiðing af ákveðinni umræðu og viðhorfsbreytingu sem orðið hefur á síðustu ámm og kennd hefur verið við „normal- iseringu". Það er hins vegar ljóst að mikill fyöldi þessara bama mun á næstu ámm, sem uppkomið fólk, sækjast eftir vistun, enda er það einnig hluti af „normaliseringu" að fotluð ungmenni geti flutst úr foreldrahúsum eins og aðrir. Tengsl bamaörorkubóta við örorkulífeyrisbætur em mjög vafasöm þar sem að á undan- gengnum ámm hafa innbyrðis hlutföll mjög breyst milli örorku- lífeyris, annars vegar, og tekju- tryggingar hins vegar, örorkulíf- eyrinum og þar með bamaörorkubótunum í óhag. Ef bamaörorkubætur hafa verið hugsaðar til að mæta umfram- kostnaði vegna fatlaðra bama væri nær að tengja þær við hluti eins og framfærsluvísitölu. Ég vil undirstrika að þær tölur sem fram Bjarni Kristjánsson Bjami Kristjánsson sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins: „Landssamtökin Þroska- hjálp hefur í umræðu undanfar- inna ára greint á um hversu mikil aukning hafi orðið á framlögum ríkisins til framkvæmda í þágu fatlaðra og eins hver hafi orðið aukning á útgjöldum ríkisins vegna annarrar þjónustu við fatl- aða. Þama hefur staðið fullyrðing gegn fullyrðingu. Eftir að hafa gert þessa skýrslu er okkur ljóst að á tímabilinu frá 1980-1986 hefur framkvæmdafé í þágu fatl- aðra farið mjög minnkandi að undanskildum fyrstu þremur árum tímabilsins, þá jókst það. Ástæðan fyrir þessari minnkun er sú að stjómvöld hafa ekki, þrátt fyrir ákvæði í lögum, treyst sér til að standa við verðtryggð fram- lög til málaflokksins. Af þessu leiðir að raungildi fjárveitingar- innar hefur minnkað mjög. Sem dæmi má nefna að árið 1986 er 80 milljónum króna varið til fram- kvæmda á móti 190 milljónum króna árið 1982, en frá þeim tíma hafa framlögin hraðminnkað. Þá hefur athugun einnig leitt í ljós að kostnaður ríkisins vegna þjónustu við fatlaða hefur ekki aukist í þeim mæli, sem gjaman hefur verið fram haldið. Svo viðist sem kostnaður ríkisins hafi tæp- lega tvöfaldast á þessu árabili. Þótt það sé vissulega aukning má benda á það að á áratugnum 1970-80 var nánast engin önnur þjónusta við þroskahefta fyrir .hendi en sú sem fólst í dag- eða sólarhringsvistun." Þeir Bjami og Friðrik sögðu ennfremur að þeir hefðu ráðist í þessa skýrslugerð vegna þess að þeir telja að Landssamtökunum Þroskahjálp sé nauðsyn að afla sér sjálf þeirra gagna, sem að notum mega koma í baráttu fyrir breyttri stöðu skjólstæðinga sam- takanna til hins betra. Þeir telja að nokkuð hafi á því borið á und- anfömum ámm að heimildir hafi skort og því hafi opinber umræða oft einkennst af staðhæfíngu gegn staðhæfingu án þess að rök hafí verið lögð til grundvallar. Breyti þessi skýrsla því, telja þeir að tilganginum með gerð hennar hafi verið náð og umræðan geti þá hugsanlega orðið málefnalegri. GSG

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.