Morgunblaðið - 23.10.1986, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1986
Svipmyndir úr borginni/óiafur Ormsson
„Þú færð
kort í pósti“
Fyrsti vetrardagur er laugardag-
inn 25. október. Veðráttan þessa
dagana minnir á þann árstíma sem
nú fer í hönd. Hitastigið er rétt um
eða innan við frostmark og snjór í
fjalishlíðum. Það var fremur kulda-
legt í miðborginni, miðvikudags-
morguninn 15. október og gekk á
með hagléljum. Daglegt líf er að
færast í eðlilegt horf eftir leið-
togafundinn, helgina 10.—12.
október. Hér á Gunnarsbrautinni í
Norðurmýrinni var ungur maður í
ljósgulum hlífðarfötum, líklega
starfsmaður borgarinnar að tína
upp laufíð af tijánum í stóra plast-
poka og lét sig það engu skipta þó
gengi á með rigningarskúrum eða
hagléljum. í Pósthússtræti sé ég
hvar Eiður Guðnason, alþingismað-
ur, kom út úr Landsbankanum og
gekk yfir í Austurstræti. Alþingi
er tekið til starfa og í mörgu að
snúast hjá þingmönnum þessa
fyrstu daga þingsins. Upp úr klukk-
an níu að morgni var fólk á leið í
vinnu, búið að taka fram skjólfatn-
aðinn enda allra veðra von þegar
komið er framundir mánaðamót
október—nóvember.
Á móts við danska sendiráðið við
Hverfisgötu var Bragi fombókasali
á ferð með tösku í hendi, að sjá
nokkuð ánægður með lífíð og tilver-
una, enda líður nú senn að því að
fombókaverslunin opni í húsi sem
komið er eitthvað á áttræðisaldur-
inn og stendur við Vatnsstíg, á
milli Hverfísgötu og Laugavegs.
Það hafa farið fram gagngerar
breytingar á húsinu. Ókunnugir
kynnu að halda að þar stæði til að
opna tískuverslun eða hárgreiðslu-
stofu, nú eða nýjan kjúklingastað.
Ég opna eftir tíu daga, sagði
Bragi. Þú færð kort í pósti. Það
verður kaffí á könnunni á opnunar-
daginn og tertur og allir velunnarar
velkomnir, að fagna á nýjum stað
innan um nýjar og gamlar bækur.
Bragi gekk síðan in í fombókaversl-
un Egils Bjamasonar við Hverfís-
götuna. Hann sá áhugaverða bók í
glugga og setti á sig gleraugun.
Á homi Hverfísgötu og Klappar-
stígs í gömlu bárujámsklæddu
timburhúsi er fyrirtækið Kjölur sf.
með verslun og selur eldhúsinnrétt-
ingar, eldavélar, þvottavélar og
önnur heimilistæki. Þar er fram-,
kvæmdastjóri Ólafur H. Ólafsson.
Þar var boðið upp á kaffísopa. Við
nafni ræddum ekki um verslun og
viðskipti nema að litlu leyti, við
ræddum menningarmál. Fram-
kvæmdastjórinn fylgdist vel með á
þeim vettvangi og er áhugasamur
um framvindu bókmennta og mynd-
listar. Það var nóg að gera í verslun-
inni, síminn hringdi stöðugt og
viðskiptavinir að skoða vandaða
vöru sem fyrirtækið selur. Fram-
kvæmdastjórinn gaf sér þó tíma til
að spjalla um kaffíhúsastemmning-
una í borginni eða allt þar til
stórviðskipti voru að hefjast. Þá
kvaddi ég og þakkaði fyrir góða
stund þarna í versluninni.
Ofarlega við Hverfísgötuna,
gegnt „höfuðstöðvum kommúnism-
ans“ á íslandi, skrifstofuhúsnæði
Alþýðubandalagsins á Hverfísgötu
105, mætti ég góðum kunningja
sem var að koma úr banka við
Laugaveginn. Hann er með eigin
atvinnurekstur og félagi í leyni-
reglu. Ég tel að hann hafí talið mig
vera að hugleiða að sækja um inn-
göngu, sem er hreinn misskilningur.
Hann er sjálfur framarlega í regl-
unni. — Nú er tækifærið, sagði
hann. — Reyndu að útvega þér tvo
meðmælendur. Þá gengur þetta og
þú verður samþykktur á fyrsta
fundi á nýbyijuðum vetri. Félags-
skapinn mynda menn úr öllum
stéttum þjóðfélagsins, launþegar
ekki síður en atvinnurekendur.
— Já, en ég hef nú takmarkað-
ann áhuga á að gerast meðlimur,
sagði ég. — Hvaða vitleysa? Þetta
er góður félagsskapur, sagði mað-
urinn. — Hvað með félagsgjöldin?
Kostar það ekki tugi þúsunda að
vera í félagsskapnum? spurði ég.
— Tugi þúsunda? Nei. Það eru
litlar tólf þúsund krónur á ári. Það
er ekki mikið meira en afnotagjald-
ið fyrir útvarp og sjónvarp. Þú þarft
að láta sauma á þig kjólföt. Það
er svolítil kostnaður í kringum það.
Ég veit um ágætan klæðskera í
reglunni sem tekur það að sér fyrir
lítinn aur, sagði msiðurinn.
Þannig ræddi hann við mig um
þennan félagsskap um stund eða
þar til kunningi minn sannfærðist
um það að ég hefði engan áhuga á
að gerast félagi í reglunni og þvi
síður að klæðast kjólfötum.
í Svipmyndagrein á liðnu sumri
var frásögn af tveim frændum og
ferð þeirra í kvikmyndahús. Sá eldri
er verktaki á sextugs aldri en sá
yngri sem er rétt rúmlega fertugur
vinnur á verkstæði í Ármúla eða
Síðumúla. Þeir hafa varla haft sam-
band síðan þeir fóru í Austurbæjar-
bíó í vor að sjá myndina „Elskhugar
Maríu“. Nýlega hittust þeir fyrir
framan Sundlaug Vesturbæjar.
Fengu sér að borða í hádeginu í
veitingahúsinu Hauk í homi. Sá
eldri var með frímerkjasafnið sitt
með sér í möppu. Þeir safna báðir
frímerkjum og bera oft saman bæk-
ur sínar. Eftir máltíð ganga þeir
um Hagamelinn með sólina í fang-
ið. Þá snýr sá eldri sér að þeim
yngri og spyr;
— Eigum við ekki synda, frændi?
— Synda? spyr sá }mgri undrandi.
— Já, í Sundlaug Vesturbæjar,
frændi.
Það kom eitthvert hik á þann
yngri. Þeir gengu yfir á Hofsvalla-
götuna og þá segir sá yngri allt í
einu:
— Ég held ég láti nægja að þvo
mér um lappimar í handlauginni
heima.
— Jæja, frændi, eins og þú vilt,
segir sá eldri.
Sá yngri var í loðskinnsfóðruðum
ullarfrakka í góða veðrinu, sólskini
og eitthvað í kringum tíu stiga hita.
— Viltu ekki fara úr ullarfrakk-
anum, frændi? Á ég ekki að halda
á honum fyrir þig? spyr sá eldri.
Er þér nokkuð kalt? spyr hann.
— Nei, nei. Ég vil vera í frakkan-
um.
— Hvar fékkstu þennan öndvegis
frakka, frændi?
— Ég tók hann í misgripum, svár-
ar sá yngri.
— Já, ég sé að hann er nokkuð
síður. Hann er of stór á þig, frændi.
— Já, hann var í fatahenginu þar
sem ég kem stundum og fæ mér
neðan í því. Ég ætla einmitt að
skila honum á Hótel Borg á morg-
un. Ulpan mín er örugglega þar í
fatahenginu, svaraði sá yngri og
svo kom Hagavagninn og þeir héldu
með honum áleiðis niður í mið-
borgina...
RIWINNSLUKERFIÐ
w< 3 RI 3
Ritvinnsla er nú fastur liður í störfum á flestum skrif-
stofum. fíitvinnslukerfið WOfíD er eitt öfiugasta og
mest notaða ritvinnslukerfið hérlendis. Auk hefð-
bundinna ritvinnsluaðgerða býður Word m.a. upp á
samruna skjala ,,merging“, stafsetningarleiðréttingar
og fjölbreyttar útlitsgerðir sama skjals, ,,style sheet".
Tilgangur þessa námskeiðs er tvíþættur. Annars veg-
ar að þjálfa þátttakendur I notkun ritvinnslukerfisins
WOfíD en einnig að kenna uppsetningu skjala og
bréfa, með sérstöku tilliti til þeirra möguleika sem
Word býður uppá.
Efni:
— Helstu skipanir kerfisins
— íslenskir staðlar
— Æfingar
— Helstu skipanir stýrikerfis
Námskeiðið er ætlað öllum
notendum IBM einkatölva
eða samhæfðra véla.
Leiðbeinandi er fíagna Sigurðardóttir Guðjohnsen,
ritvinnslukennari. Auk þess að hafa kennt notkun
fjölda ritvinnslukerfa hefur fíagna mikla reynslu sem
ritari.
Tími: 3.-6. nóvember, kl. 13.30—17.30.
Stjórnunarfélag
islands
Ánanaustum 15 • Sími: 621066
Blaðburóarfólk
óskast!
AUSTURBÆR
Óðinsgata
KÓPAVOGUR
Hrauntunga 31-117
Hlíðarvegur 1-29 o.fl.
Hlíðarvegur 30-57
Viötalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
5 Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til við-
! tals í Valhöll Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá
I kl. 10—12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrir-
J spurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum
0 boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa.
^ Laugardaginn 25. október verða til viðtals Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson formaður skipulagsnefndar og Þór-
^ unn Gestsdóttir í stjórn umhverfismálaráðs og í
h samstarfsnefnd um ferðamál.