Morgunblaðið - 23.10.1986, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1986
+ Móöir mín, tengdamóðir og systir, FRÚ AMELÍA FANNEY TRYGGVADÓTTIR, Múlavegi 4, Seyðisfirðl, sem andaðist í Borgarspítalanum 15. þ.m. verður jarðsungin frá nýju kapellunni í Fossvogi, föstudaginn 24. október. Ragnar Gfsli Danfelsson, Jóna Sæmundsdóttir, Aðalsteinn Tryggvason, Þuríður T. Möller, Geir T ryggvason.
+ Móðir mín, GUÐRÚN SNJÓLFSDÓTTIR, Hagatúni 2, Höfn, Hornafirði, verður jarðsungin frá Hafnarkirkju laugardaginn 25. október kl. 14.00. Sigurbjörg Ragnarsdóttir.
+ Móðir okkar, SIGRÍÐUR KRISTINSDÓTTIR frá Hellissandi, sfðast Bröttukinn 27, verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 24. október kl. 13.30. Petrea Finnbogadóttir og Krlstjana Finnbogadóttir.
+ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, JÓN EIRÍKSSON, fyrrverandi hreppstjóri, Skeiðháholti verður jarðsunginn frá Ólafsvallakirkju laugardaginn 25. október kl. 13.30. Bílferö verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11.30. Jóhanna Ólafsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
+ Faðir okkar og tengdafaðir, EINAR SIGMUNDSSON, fyrrverandi bóndi f Kleppi og Gróf, Reykholtsdal, verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju laugardaginn 25. október kl. 14.00. Þórður Einarsson, Bergný Jóhannsdóttir, Jón E. Einarsson, Hugrún Guðjónsdóttir, Sigrún Einarsdóttir, Bjarni Guðráðsson.
+ Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÁSGEIRS ÁSGRÍMSSONAR, Hraunbraut 36, Kópavogi, fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 24. október nk. kl. 13. 30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á hjálpar- og björgunar- sveitir. Guðbjörg Gfsladóttir, Hulda Björg Asgeirsdóttir, Anna Karen Asgeirsdóttir, Jón Steinar Jónsson, Asa Guðbjörg Asgeirsdóttir, Ruth Asgeirsdóttir og barnabörn.
+ Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför STEFANÍU VALDIMARSDÓTTUR, Múla, Biskupstungum. Egill Geirsson, Geir, Anna Sigrfður, Guðbjörg, Jónfna Margrót, Páll Haukur, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og jarðarför dóttur okkar og systur, SIGNÝJAR TRYGGVADÓTTUR. Jóna Ólafsdóttir, Tryggvi Pétursson, Ólafur Tryggvason, Erla Tryggvadóttir.
Sigríður Gísla-
dóttir - Minning
Fædd 26. desember 1913
Dáin 16. október 1986
Þegar eldra fólk deyr, er oft sagt
að það sé hvfldinni fegið, og best
sé að það fái að fara meðan heilsan
er enn sæmileg. Víst er það rétt,
en samt er það svo að hver mann-
eskja, ung eða gömul, hefur sína
sérstöku nálægð og hlýju sem
hverfur þeim nánustu við dauðann
og því er söknuðurinn sár, hversu
mörg sem árin eru. Sigríður Gísla-
dóttir var gædd þeirri mannlegu
hlýju, sem gerir lífið snauðara okk-
ur sem eftir lifum, nú þegar hún
er öll. Huggunin er sú, að við sem
kynntumst henni, erum ríkari en
ella og getum reynt að heiðra þá
eiginleika sem hún bjó yfir.
Mér er minnisstætt síðsumar-
kvöld í Hrauntungunni fyrir all-
mörgum árum. Farið var að rökkva
þó enn væri sæmilega ratljóst úti.
Við sátum í stofunni og ég spurði
hvort við ættum ekki að draga fyr-
ir og kveikja ljós. „Nei, Óli minn,“
svaraði hún, „við skulum lejrfa
dagsbirtunni að njóta sín meðan
hún enn lifir.“ Og við sátum í rökkr-
inu þangað til nær aldimmt var
orðið. Mér þótti þetta hálf sérvisku-
legt, allt að því kjánalegt, en skildi
seinna að þetta var táknrænt fyrir
dýrmætan þátt í skapgerð Sigríðar.
Hún sá jákvæðar hliðar í hveijum
hlut og hverri manneskju meðan
stætt var á og neitaði að viður-
kenna hin myrkari öfl mannskepn-
unnar.
Þessi einlæga trú á hið góða er
sá eiginleiki sem nú hverfur okkur
með Sigríði, en við sem eftir sitjum
skyldum hafa í heiðri á okkar svart-
nættislegu raunsæistímum.
Ég þakka samveruna. Hvfli hún
í friði.
Ólafur Sigurðsson
Kær vinkona okkar hjóna, Sigríð-
ur Gísladóttir, Hrauntungu 29,
Kópavogi, er látin.
Þrátt fyrir að mér var vel kunn-
ugt um þann alvarlega hjartasjúk-
dóm, sem hún hafði átt við að stríða
nokkur undanfarin ár og hafði
gengist undir uppskurð við á þessu
ári, og þrátt fyrir að hún hafði sagt
mér að henni þætti sér hraka, þrátt
fyrir allt þetta kom mér andlát
hennar hastarlega á óvart.
Sigríður var Sunnlendingur að
ætt og uppruna, afkomandi merkra
embættismanna í báðar ættir.
Koma þar ýmis þjóðkunn nöfn við
sögu, þó að hér verði ekki gerð frek-
ari grein fyrir því. Hún var fædd á
Stóra-Hrauni í Ámessýslu, 1913,
dóttir Kristínar ísleifsdóttur og séra
Gísla Skúlasonar. Hún ólst upp á
heimili foreldra sinna ásamt Skúla
albróður sínum, síðar lyQafræðingi,
sem lést ungur maður. Heimilið var
ijölmennt. Frú Kristín var, þegar
hún giftist séra Gfsla, ekkja eftir
Ólaf Helgason, sem hafði verið
prestur á Stóra-Hrauni, og rak þar
einnig á heimili sínu skóla fyrir
+
Við viljum þakka innilega öllum vinum og vandamönnum sem
sýndu okkur samúð og vinsemd við andlát og útför móður okk-
ar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SUMARLÍNAR GESTSDÓTTUR,
frá Raufarhöfn.
Rósbjörg Þorfinnsdóttir,
Bergljót Þorfinnsdóttir,
Björn Ólafur Þorfinnsson, Fjóla Helgadóttir,
Eggert Þorfinnsson, Kristfn Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Við þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og jaröarför
móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
RAGNHEIÐAR ÓLAFSDÓTTUR,
Boðaslóð 26,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og læknum við Sjúkrahús
Vestmannaeyja fyrir frábæra umönnun og hlýju.
Fyrir hönd aöstandenda.
Erla Eirfksdóttir.
+
Hjartanlegar þakkir færum viö öllum þeim sem hafa auðsýnt okk-
ur samúð og hlýhug viö andlát og útför móður okkar, tengdamóð-
ur, ömmu og langömmu,
ÚRSÚLU GUÐMUNDSDÓTTIR,
frð EfriTelg,
Akranesl.
Guðmundur Þór SigurbjörnssonKristbjörg Viihjálmsdóttir,
Sigrfður Jóna Sigurbjörnsdóttir,
Ragnheiður Ásgrfmsdóttir, Steinar Hagalfnsson,
Ásta Ásgrfmsdóttir, Sigurður Jónsson,
Sigrfður Fjóla Ásgrfmsdóttir, Óskar Hervarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför fööur okk-
ar, bróður og afa,
ÁSMUNDAR ÁSGEIRSSONAR,
skákmeistara,
Háteigsvegi 4.
Ása Ásmundsdóttir,
Ásgeir Ásmundsson,
systur, barnabörn
og barnabarnabörn.
mállaust og málhalt fólk. Sú starf-
semi hélt áfram eftir hans dag,
a.m.k. um skeið, en var þá flutt til
Reykjavíkur. Bömin frá fyrra
hjónabandi frú Kristínar voru 5 og
öll ennþá til heimilis á Stóra-Hrauni
þegar Sigríður átti þar sína bam-
æsku. Það er, að ég held, óhætt
að segja að Sigríður hafi ekki ein-
ungis alist upp í skjóli foreldra
sinna, heldur einnig f skjóli hins
stóra hóps hálfsystkina sinna. Mér
er sérstaklega kunnugt um hve rík
þessi samstaða og samkennd var
milli systranna þriggja, þeirra Kar-
itasar, sem var elst, gift Helga
Guðmundssyni, sem lengst var
bankastjóri Útvegsbankans, Þór-
hildar, sem var ógift, lengst af
forstöðukona bamaheimilanna
Tjamarborgar og síðan Laufás-
borgar, og Sigríðar, sem var
vemlega yngri en þær, svo sem
fram hefur komið.
Ég minnist móður Sigríðar, frú
Kristínar, sem aldraðrar konu, eftir
að hún fluttist til Reykjavíkur, —
hafði misst menn sína báða og tvo
syni. Andlit hennar var rúnum rist,
en blik augna hennar var sterkt og
brosið ennþá geislandi. Þessi gamla
kona var gædd sterkum þokka,
blönduðum styrkleika og mildi.
Sumt gamalt fólk felur í ásjónu
sinni bókfell kynslóðanna. Frú
Kristín ísleifsdóttir var þeirrar
gerðar. Sigríður mótaðist af og
naut alla tíð þess menningar- og
mannúðaranda, sem ríkjandi var á
æskuheimili hennar. Hún sat ekki
í mörg ár á skólabekk, en fór á
unglingsárum til Spánar til Karitas-
ar systur sinnar og eiginmanns
hennar. Helgi var þá verslunarfull-
trúi í Barcelona vegna hinnar miklu
fisksölusambanda sem ísland hafði
við Spán á þeim árum. Á heimili
Karitasar og Helga dvaldi einnig
Þórhildur og vann á skrifstofunni
hjá mági sínum.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis-
og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er
við greinum á ritstjórn blaðsins
á 2. bæð í Aðalstræti 6,
Reykjavik og á skrifstofu blaðs-
ins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með góð-
um fyrirvara. Þannig verður grein,
sem birtast á í miðvikudagsblaði
að berast síðdegis á mánudegi og
hliðstætt er með greinar aðra
daga.
I minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort Ijóð um
hinn látna. Leyfilegt er að birta
ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi
og skal þá höfundar getið. Sama
gildir ef sálmur er birtur. Megin-
regla er sú, að minningargreinar
birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gild-
ir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða
eldra. Hins vegar eru birtar af-
mælisfréttir með mynd í dagbók
um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að
handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu linubili.