Morgunblaðið - 05.11.1986, Side 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
249. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandaríkín:
Verður enska gerð
að opinberu máli?
Washington, AP.
BANDARISKIR kjósendur völdu sér í gær ekki aðeins þingmenn
og rikisstjóra, heldur tóku þeir einnig afstöðu til fjöldamargra ann-
arra mála. Voru þau rúmlega 200 talsins, m.a. hvort leyfa skuli
marijúanaræktun og hvort enskan skuli gerð að opinberu máli.
„Hér fylgjumst við af áhuga með
því, sem gerist í Kaliforníu, það
mun ráða framhaldinu," sagði Gro-
ver Robinson, öldungadeildarþing-
maður fyrir Florida, en hann er
hvatamaður þess, að enska verði
lögleidd sem opinbert mál í ríkinu.
Um það var einnig kosið í Kali-
forníu þar sem spænska og raunar
flestar þjóðtungur í heimi eru talað-
ar auk enskunnar. John Sajo, sem
fékk því framgengt í Oregon, að
fólk fengi að kjósa um hvort leyfa
skyldi maríjúanaræktun til eigin
nota, sagðist hafa unnið mikinn sig-
ur með því að fá málið tekið fyrir.
I skoðanakönnunum blaða kom þó
fram, að 74% kjósenda voru andvíg
tillögunni.
I sumum ríkjum var kosið um
lægri skatta og í öðrum um strang-
ari lög um umhverfismál en alls
voru málaflokkamir, sem um var
Danskir póstmenn:
Á námskeið í
hundasálfræði
Viborg, AP.
PÓSTMENN í Viborg eða Vé-
björgum á Jótlandi verða brátt
sendir á námskeið i hundasál-
fræði. Á það að hjálpa þeim við
að forðast hundsbitin að sögn
danska ríkisútvarpsins.
Á þessu ári hafa 15 póstmenn í
borginni orðið að leita læknis vegna
hundsbits en í dönsku læknablaði
kom nýlega fram, að jafnvel lítilfjör-
legt bit gæti valdið alvarlegri sýkingu
í mönnum. 325 póstmenn munu
sækja námskeiðið þar sem þeir verða
leiddir í allan sannleika um tilfínn-
ingalíf og sálarkima hundanna.
kosið 226. Af öðrum málum má
nefna, að í Kalifomíu var lagt til,
að allir, sem sýktir eru af alnæmi,
skyldu kvíaðir af frá öðru fólki; í
Massachusetts og Nebraska var
kosið um hvort skylda bæri bílbelta-
notkun; í Idaho var spurt um hvort
réttur manna til atvinnu skyldi
ákveðinn með lögum og í Kansas
vildu sumir leyfa matsölustöðum
að selja fólki áfengi í glasatali en
það hefur verið bannað.
Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, lagði hart að sér í kosningabaráttunni enda úrslitin ákaflega mikil-
væg fyrir hann. Hér er hann staddur í Las Vegas með samflokksmanni sínum, Jim Santini, sem bauð
sig fram sem öldungadeildarþingmaður fyrir Nevada. AP/Símamynd
Kosningarnar í Bandaríkjunum í gær:
Mikilvægar fyrir völd
Reagans sem forseta
Washington, AP.
ENGAR tölur höföu borist úr
kosningunum í Bandaríkjunum
þegar Morgunblaðið fór í prent-
un í nótt enda kjörstöðum á
austurströndinni ekki lokað fyrr
en eftir miðnætti að fsl. tíma og
öðrum síðar. Líklegt þótti, að
mjög mjótt yrði á mununum en
demókratar gerðu sér þó vonir
um að vinna öldungadeildina af
repúblikönum. Ef þeim hefur
tekist það er það mikið áfall fyr-
ir Reagan forseta.
í kosningunum var tekist á um
öll 435 sætin í fulltrúadeildinni og
34 sæti af 100 í öldungadeildinni.
Auk þess voru kosnir ríkisstjórar í
36 ríkjum. Demókratar hafa ráðið
fulltrúadeildinni en repúblikanar
öldungadeildinni, höfðu 53 þing-
menn á móti 47 demókrata og
þurftu þeir síðamefndu því aðeins
að vinna fjögur þingsæti til að ná
meirihluta í deildinni.
Reagan, forseti, tók mikinn þátt
í kosningunum og fór um landið
þvert og endilangt til að hvetja fólk
til að kjósa frambjóðendur Repú-
blikanaflokksins. Átti hann mikið
undir því, að repúblikönum tækist
að halda öldungadeildinni því að
annars fær hann engum málum
framgengt nema þeim, sem demó-
krötum þóknast.
Sovétmenn óttast
Stinger-flaugamar
- segja Bandaríkjamenn sækjast eft-
ir hernaöarlegri lausn í Afganistan
Vínarráðstefnan hafin
AP/S!mamynd
Vínarráðstefnan um öryggi og samvinnu í Evrópu
hófst í gær en hún er þriðja framhaldsráðstefna
Helsinkifundarins árið 1975. Verður þar kannað
hvemig þjóðimar 35, sem undirrituðu Helsinki-
sáttmálann. hafa staðið við ákvæði hans, m.a. um
mannréttindamál. Fulltrúar íslands við setningu ráð-
stefnunnar vom þeir Matthías Á. Mathiesen,
utanríkisráðherra, Benedikt Gröndal, sendiherra, og
Hreinn Loftsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra.
Sjá fréttir af Vínarráðstefnunni á bls. 25.
Moskvu, Islamabad, AP.
ÓNEFNDUR talsmaður sovéska
varnarmálaráðuneytisins fór í
gær hörðum orðum um Banda-
ríkjamenn og gagnrýndi þá fyrir
að hafa látið skæruliðum í Afg-
anistan í té Stinger-loftvarna-
flaugar. Sagði hann, að nú væri
erfiðara en áður að semja um
friðsamlega lausn á átökunum í
landinu. Benda þessi ummæli til,
að eldflaugarnar hafi nú þegar
valdið Sovétmönnum miklu tjóni.
Halda sumir sérfræðingar því
fram, að þær kunni að breyta
gangi styijaldarinnar verulega.
„Þessi ákvörðun, sem tekin er
þrátt fyrir friðarvilja Sovétmanna
og heimköllun sex herdeilda, sýnir,
að Bandaríkjamenn sækjast eftir
hemaðarlegri lausn á vandamálum
Afgana," sagði ónefndur talsmaður
sovéska vamarmálaráðuneytisins í
viðtali við Tass-fréttastofuna. Sov-
étstjómin kallaði fyrir skömmu
heim frá Afganistan sex herdeildir,
8000 hermenn, en vestrænir sér-
fræðingar segja, að það skipti engu
því að enn séu í landinu 110.000
sovéskir hermenn.
Fjölmiðlar á Vesturlöndum
skýrðu frá því um helgina, að
skæruliðar í Afganistan væru
komnir með bandarískar Stinger-
eldflaugar, sem em afar fullkomnar
og næstum ógjömingur að forðast
þær. Fréttir frá Afganistan að und-
anförnu benda líka til, að Sovét-
menn hafi orðið fyrir gífurlegu
flugvélatjóni, misst fjöldann allan
af fallbyssuþyrlum og orrustuþot-
Bretland:
íhaldsflokk-
urinn með
forystuna
London, AP.
í FYRSTA sinn í næstum eitt ár
nýtur íhaldsflokkur Margaret
Thatcher mests fylgis meðal
breskra kjósenda.
í skoðanakönnun, sem birt var í
gær, kemur fram, að íhaldsflokkur-
inn hefur 4% forystu, og virðist sem
það hafí haft lítil eða engin áhrif,
að Jeffrey Archer, varaformaður
flokksins, mátti segja af sér vegna
afskipta sinna af vændiskonu. Nú
styðja 40% íhaldsflokkinn, 36%
Verkamannaflokkinn og 21% Kosn-
ingabandalagið.