Morgunblaðið - 05.11.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
23
Framsóknarmenn á Vestfjörðum:
Ennþá er von
á framboðum
að mati formanns kjördæmisráðs
SIGURÐUR VIGGÓSSON á Pat-
reksfirði, formaður kjördæmis-
ráðs Framsóknarflokksins á
Vestfjörðum telur að enn sé von
á nokkrum framboðum framsókn-
armanna í kjördæminu, vegna
skoðanakönnunar fyrir komandi
alþingiskosningar. Frestur til
þess að skila inn framboðum
rennur út nú á laugardag, þann
8. nóvember.
Þeir sem þegar hafa tilkynnt fram-
boð eru Ólafur Þ. Þórðarson alþingis-
Morgunblaðið/Bjami
íslensku stórmeistaramir sem taka þátt í mótinu. Taldir frá vinstri: Jón L. Arnason, Margeir Péturs-
son, Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartarson.
Alþjóðlegt skákmót í Reykjavík i febrúar:
Sterkasta skákmótið
hér á landi til þessa
maður, Gunnlaugur Finnsson
fyrrverandi alþingismaður, _ Pétur
Bjamason fræðslustjóri á Isafirði,
Magdalena Sigurðardóttir varaþing-
maður, Þórunn Guðmundsdóttir,
starfsmaður Framsóknarflokksins í
Reykjavík og Guðmundur Hagalíns-
son bóndi á Hrauni, Ingjaldssandi.
Skoðanakönnunin fer fram þann
6. og 7. desember næstkomandi. Sig-
urður sagðist eiga von á því að
a.m.k. þrír framsóknarmenn ættu
eftir að skila inn framboðum sínum,
áður en fresturinn rennur út á laug-
ardag, en hann vildi engu spá um
það hveijir það yrðu.
í tilefni af 20 ára afmæli IBM á íslandi hefur fyrirtækið ákveðið
að standa fyrir sterku skákmóti hér á landi í febrúar næstkomandi
í samvinnu við Skáksamband Islands. Fimm af tólf sterkustu skák-
mönnum heims taka þátt í mótinu, auk fjögurra íslenskra skákmanna
af yngri kynslóðinni, og Norðmannsins Shimen Agdestein. Verðlaun-
afé er samtals að upphæð 30 þúsund Bandaríkjadalir, sem jafngildir
um 1,2 milljónum íslenskra króna.
Mótið verður það langsterkasta,
sem hefur verið haldið hérlendis til
þessa. Það verður af 14. styrk-
leikagráðu, sem þýðir að meðal-
skákstigatala keppenda verður á
bilinu 2.576-2.600 stig. Samkvæmt
skrásetningu alþjóðaskáksam-
bandsins FIDE verða mót ekki
sterkari en af styrkleikagráðu 16.
Hæst ber að Garrí Kasparov,
núverandi heimsmeistari í skák er
væntanlegur hingað til lands til
þess að taka þátt í mótinu, ef svo
fer sem horfir, en endanleg stað-
festing á þáttöku hans hefur ennþá
ekki borist. Svars er vænst innan
tíðar. Ef Kasparov getur ekki tekið
þátt í mótinu, mun Ungveijinn
Lajos Portisch taka sæti hans. Aðr-
ir erlendir skákmeistarar verða
Viktor Korchnoi, landflótta Rússinn
sem nú býr í Sviss og hefur 2.650
skákstig, Jan Timman, Hollandi
2.620, Nigel Short, Englandi 2.615,
Ljubomir Ljubojevic, Júgóslavíu
2.600 og Simen Agdestein, Noregi
2.545.
íslensku stórmeistaramir sem
þátt taka í mótinu eru Helgi Ólafs-
son 2.560, Jóhann Hjartarson
2.525, Jón L. Árnason 2.510 og
Margeir Pétursson 2.510. Þess ber
að geta að þessi skákstig eru frá
því í júlí í sumar. Ný skákstig verða
reiknuð út í desember og gæti því
stigatala keppenda eitthvað átt eft-
ir að breytast.
IBM á íslandi stendur straum af
öllum kostnaði við mótið, en
íslenska skáksambandið sér um
framkvæmdina og rennur allur að-
gangseyrir til þess. 1. verðlaun
verða 10 þúsund Bandaríkjadalir,
2. verðlaun 6 þúsund dalir og 3.
verlaun 4 þúsund dalir. Þá verða
samtals tíu þúsund dalir greiddir
fyrir unnar skákir og verður upp-
hæðinni deilt jafnt á milli þeirra
skáka sem vinnast. Það er því hag-
ur hvers skákmanns að vinna sem
flestar skákir.
Á blaðamannafundi, sem IBM á
íslandi og Skáksambandið boðuðu
til þar sem fyrirhugað mót var
kynnt, sagði Gunnar M. Hansson,
forstjóri IBM, að Islendingum hefði
orðið einna mest ágengt í skáklist-
inni og fjöldi ungra skákmanna
hefði á undanförnum árið borið
hróður landsins um víða veröld. Því
hefði fyrirtækið ákveðið að minnast
tuttugu ára afmælis síns með þess-
um hætti og væri það von forráða-
manna þess að mótið yrði til þess
Gunnar M. Hansson, forstjóri IBM á íslandi afhendir Þráni Guð-
mundssyni merki alþjóðlega skákmótsins, sem haldið verður í
febrúar.
að efla enn frekar skákáhuga í
landinu, jafnframt því sem það yrði
hinum ungu íslensku stórmeistur-
unum, sem allir væru í mikilli
framför, dýrmæt reynsla.
Þráinn Guðmundsson, forseti
Skáksambandsins, þakkaði IBM
fyrir rausnarskapinn. Hann sagði
að það hefði þótt í mikið ráðist
þegar Reykjavíkurskákmótin hófu
göngu sína árið 1964. Framan af
hefðu þau mót verið haldin á
tveggja ára fresti, en eftir 1980
hefðu komið upp raddir um að halda
þyrfti skákmót hér árlega og hefði
Skáksambandið unnið að því að
gera þann draum að veruleika. Nú
hefðu mót verið haldinn á hveiju
ári frá árinu 1984 og vonandi yrði
það raunin í framtíðinni að sterk
alþjóðleg skákmót yrðu haldin hér-
lendis árlega.
„IBM Iceland Super Chess To-
urnament ’87“, eins og mótið er
nefnt, hefst 19. febrúar og lýkur
þann 1. mars.
* *
Borgarráð:
Greinagerð
um opnunar-
tíma verslana
Á fundi borgarráðs í gær var
lögð fram greinagerð Gunnars
Eydal skrifstofustjóra borgar-
stjórnar um opnunartíma
verslana í borginni og lögð
fram umsögn flugráðs um
þotuflug á Reykjavíkurflug-
velli. Samþykkt var að stöðva
töku kvikmyndar um fikniefni
en ágreiningur varð um hækk-
un dagvistargjalda og skipu-
lags skilmála við Skúlagötu og
verða þau mál tekin upp á
næsta borgarstjómarfundi.
í greinagerð um opnunartíma
verslana sem, lögð var fram í
borgarráði, er fjallað um ýmsa
möguleika á opnunartíma versl-
ana og þeir bomir saman. Engar
ákvarðanir voru teknar en grein-
argerðinni dreift til fundarmanna.
Umsögn flugráðs um þotuflug á
Reykjavíkurflugvelli er til komin
vegna tillögu frá Albert Guð-
mundssyni frá því í janúar sl. um
að þotuflug um völlinn takmarkist
við neyðartilfelli en verði annars
bannað.
Lögð var fram greinargerð
undirbúningsnefndar að kvik-
mynd um flkniefni, sem hafín er
kvikmyndun á, á vegum borgar-
innar. Borgarráð samþykkti að
stöðva gerð myndarinnar á meðan
kostnaðarhliðin er athuguð nánar.
LIU þingar í
Skipstjórar á Isafírði
ætla að semja heima
ísafirði.
AÐALFUNDUR Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgj-
unnar var haldinn á ísafirði mánudaginn 27. október sl.
Á fundinum var ákveðið að segja
upp gildandi samningum við út-
vegsmenn, svo þeir verði lausir um
áramót.
Jafnframt var ákveðið að félagið
semdi við Útvegsmannafélag Vest-
flarða en tæki ekki þátt í heildar-
kjarasamningum undir stjórn
aðalsamninganefndar í Reykjavík,
eins og síðast.
Stjórn félagsins var endurkjörin,
en í henni eiga sæti Gísli Skarphéð-
insson, formaður, Hermann Skúla-
son, ritari, og Grétar Þórðarson,
gjaldkeri.
Aðalfundurinn sendi frá sér eftir-
farandi ályktun um stjórnun fisk-
veiða:
Aðalfundur Skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Bylgjunnar á
ísafirði lýsir yfir andstöðu sinni við
framkomnar hygmyndir um að
framlengja núgildandi lög um
stjómun fiskveiða til ársins 1990.
Bendir fundurinn á, að kvóta-
kerfið var á sínum tíma samþykkt
sem algjört neyðarúrræði, þegar
þorskstofninn var í mikilli lægð, og
aðeins var leyft að veiða 200 þús.
lestir. Þar sem leyfilegur hámarks-
afli er nú mun hærri, eða um 350
þús. lestir, og fer að líkindum hækk-
andi, er ljóst að neyðarráðstafanir
eiga ekki lengur við.
Algjör uppstokkun á stjórn fisk-
veiðanna er orðin bráðnauðsynleg,
því kvótakerfið er ekki sú lausn sem
hægt er að hlíta til frambúðar.
Sífellt minnkandi hlutdeild Vest-
firðinga í bolfiskaflanum undir-
strikar nauðsyn þess að hverfa frá
núverandi stefnu.
Fundurinn vísar til áður fram-
kominna tillagna Vestfirðinga um
endurbætt sóknardagakerfi sem
leið út úr ógöngum kvótakerfisins.
— Úlfar
AÐALFUNDUR LIU hefst í Vest-
mannaeyjum í dag, miðvikudag
með setningu Kristjáns Ragnars-
sonar, formanns stjórnar LIÚ og
ávarpi Halldórs Asgrímssonar,
sjávarútvegsráðherra. AIIs verða
á annað hundrað manns í Eyjum
í tengslum við fundinn.
Helztu dagskráratriði fundarins
verða: Ástand helztu nytjastofna
við Island, flutningsmaður Jakob
Jakobsson, forstjóri Hafrannsókna-
stofnunar; Hagur Sjávarútvegs,
Gamalíel Sveinsson, forstöðumaður
þjóðhagsreikninga hjá Þjóðhags-
stofnun; Vátryggingar fiskiskipa
og áhafna, Gunnar Felixson, að-
stoðarforstjóri; Endurnýjun og
úrelding fiskiskipaflotans, Svavar
Ármannsson, aðstoðarforstjóri og
Framtíð _ Ríkismats sjávarafurða,
Halldór Árnason, fiskmatsstjóri. Að
auki munu fundarmenn skoða sig
um í Eyjum og heimsækja ýmis
fyrirtæki. Fundinum lýkur síðdegis
á föstudag.
Auk þessa verður fjallað um
margvíslega málaflokka á fundin-
um svo sem fyrirhugaðan olíuskatt
stjórnvalda, mismunandi þorskafla-
hámark í sóknarmarki eftir lands-
hlutum, útflutning á ferskum fiski
og hækkandi verð á unnum fiska-
furðum.
Leiðrétting
I FRÉTT um niðurstöður skoð-
anakönnunar Sjálfstæðisflokks-
ins á Suðurlandi í gær misritaðist
heildarfjöldi atkvæða eins fram-
bjóðandans.
í fréttinni stóð að Eggert Hauk-
dal hefði fengið alls 270 atkvæði,
en heildatkvæðatala hans var 208
atkvæði. Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á mistökunum.