Morgunblaðið - 05.11.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
31
Framboðsmál stjórnmálaflokkanna óðum að skýrast:
Flestir framboðslistar munu
liggja fyrir í þessum mánuði
STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR eru flestir komnir vel á veg með
að ganga frá framboðslistum fyrir alþingiskosningarnar næsta
vor. Sjálfstæðismenn hafa lokið við að raða mönnum á lista í
öllum kjördæmum nema á Vesturlandi. Framsóknarmenn hafa
gengið frá listum í þrem kjördæmum og Bandalag jafnaðar-
manna hefur stillt upp lista í Reykjaneskjördæmi. Þó ekki hafi
verið gengið frá öðrum framboðslistum verða þeir flestir tilbún-
ir innan mánaðar. Hér á eftir verður farið yfir hvar og hvenær
þeir flokkar sem eiga fulltrúa á Alþingi ganga frá þeim framboðs-
listum sem eftir eru.
Alþýðuflokkur
Alþýðuflokkurinn hefur ákveð-
ið prófkjörsdaga í flestum kjör-
dæmum nema í Reykjavík og
Austurlandi. Enn hefur ekki verið
ákveðið með hvaða hætti prófkjör
í þessum kjördæmum fara fram.
í Reykjavík er það á valdi fulltrúa-
ráðs flokksins að ákveða fyrir-
komulag og á vegum ráðsins
starfar nú framboðsnefnd sem á
að athuga hvaða fyrirkomulag sé
best. Sú nefnd skilar niðurstöðum
til stjórnar fulltrúaráðsins sem
aftur leggur tillögur fyrir fulltrúa-
ráð.
í lögum flokksins er gert ráð
fyrir að fram fari prófkjör í öllum
kjördæmum. I Reykjavík er reikn-
að með að skipan þriggja efstu
sætanna verði þannig að Jón Sig-
urðsson forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar skipi efsta sætið, Jóhanna
Sigurðardóttir alþinginsmaður 2.
sætið og Jón Baldvin Hannibals-
son formaður Alþýðuflokksins það
þriðja. Niðurstaða um fýrirkomu-
lag prófkjörsins liggur væntan-
lega fyrir í þessari viku og búist
er við að prófkjörið fari fram í
november.
I þremur kjördæmum verða
prófkjör hjá Alþýðuflokknum un
næstu helgi, 8.-9 nóvember, á
Reykjanesi, Norðurlandi vestra og
Suðurlandi. í Reykjanesi eru 8 i
framboði, Árni Hjörleifsson, Elín
Hjartardóttir, Gretar Mar Jóns-
son, Guðmundur Oddsson, Karl
Steinar Guðnason, Kjartan Jó-
hannsson og Kjartan Sigtryggs-
son. I Norðurlandi vestra er
einungis kosið um efsta sætið.
Þar eru í framboði Birgir Dýrfjörð
og Jón Sæmundur Siguijónsson.
Á Suðurlandi eru 7 í framboði,
Elín A. Artúrsdóttir, Eyjólfur Sig-
urðsson, Gu'ðlaugur Tryggvi
Karlsson, Kristján Jónsson,
Magnús Magnússon, Steingrímur
Ingvarsson og Þorlákur Helgason.
Ákveðið hefur verið að halda
prófkjör í vesturlandskjördæmi
23. nóvember en framboðsfrestur
er ekki liðinn. Þar er Eiður Guðna-
son talinn öruggur með þingsæti
sitt. Á Vestfjörðurm verður próf-
kjör síðast í nóvember og þar
verður kosið um tvö sæti. Tveir
eru í framboði, Karvel Pálmason
og Sighvatur Björgvinsson. Enn
hefur ekki verið ákveðið hvenær
prófkjör fer fram í Norðurlandi
eystra en það verður í síðasta lagi
í lok janúar. Búist er við að Ámi
Gunnarsson ritstjóri verði einn í
framboði um efsta sæti en Kol-
brún Jónsdóttir fyrrverandi BJ
mað’ur ætlar að bjóða sig fram í
annað sætið.
Á Austurlandi hefur ekkert
verið ákveðið um fyrirkomulag
prófkjörs. Þar hefur Guðmundur
Einarsson alþingismaður ákveðið
að bjóða sig fram í 1. sætið, og
hugmyndir vom um að kjördæm-
isráð skipaði í önnur sæti listans,
en samkvæmt lögum flokksins er
slíkt í raun ólögmætt.
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið notar ýmist
forval eða þá að kjömefndir raða
á lista. í Reykjavík verður forval
29.-30. nóvember sem bundið er
við flokksmenn. Framboðsfrestur-
inn rennur út á fimmtudag.
Svavar Gestsson formaður flokks-
ins hefur lýst því yfir að hann
bjóði sig fram í Reykjavík þó hann
hafi verið orðaður við framboð á
Vestfjörðum. Guðrún Helgadóttir
alþingismaður hefur einnig ákveð-
ið framboð.og sama mun einnig
vera með Ólaf Ragnar Grímsson,
þó fast hafi verið sótt að honum
að bjóða sig fram í Reykjanesi.
Ásmundur Stefánsson forseti ASI
hefur einnig lýst yfir að hann
ætli að taka þátt í forvalinu. Þar
að auki hafa verið nefnd nöfn
Þrastar Ólafssonar framkvæmda-
stjóra Dagsbrúnar, og Össurar
Skarphéðinssonar ritstjóra.
Á Vesturlandi er kjörnefnd að
störfum sem velja mun listann,
nema hún geri tillögu um að fram
fari forval. Á Vestfjörðum fór
fyrri umferð forvals fram um
síðustu helgi og er ekki vitað hver
úrslit urðu þar sem ekki hefur
verið safnað saman gögnum.
Síðari umferðin verður um mán-
aðamótin. Á Norðurlandi vestra
er kjörnefnd að störfum en á
Norðurlandi eystra verður forval
í tveim umferðum. Ekki er ljóst
hvenær það fer fram þar sem
lengja varð framboðsfrest vegna
lítillar þátttöku
Á Austurlandi er fyrri umferð
forvals lokið og síðari umferð
verður um næstu mánaðamót. Þar
hefur Helgi Seljan ákveðið að
gefa ekki kost á sér. Svo er einn-
ig með Garðar Sigurðsson á
Suðurlandi en þar fer fram forval
í einni umferð um næstu mánaða-
mót. Búist er við að Margrét
Frímannsdóttir á Stokkseyri skipi
efsta sæti listans þar.
Á Reykjanesi er að störfum
undirbúningsnefnd sem var skip-
uð á kjördæmisþingi fyrir rúmri
viku og á hún að skila af sér til
kjördæmisþings sem verður haldið
um næstu helgi um það hvaða
tilhögun verður höfð með skipun
á framboðslista Alþýðubandalags-
ins.
Framsóknarflokkur
Framsoknarflokkurinn heldur
prófkjör í Reykjavík dagana
29.-30. nóvember og rennur fram-
boðsfrestur út í dag. Haraldur
Ólafsson alþingismaður og Finnur
Ingólfsson aðstoðarmaður sjávar-
útvegsráðherra hafa báðir gefíð
kost á sér í 1. sætið, Ragnheiður
Ásta Pétursdóttir hefur gefið kost
á sér í annað sætið og Helgi S.
Guðmundsson í það þriðja. Skorað
hefur verið á Guðmund G. Þórar-
insson að gefa kost á sér í 1. sætið
Á Vesturlandi fór prófkjör út
um þúfur þar sem aðeins komu
fram tvö framboð frá alþingis-
mönnunum Alexander Stefáns-
syni og Davíð Aðalsteinssyni. Þá
var skipuð uppstillingamefnd sem
enn er að störfum.
Á Vestfjörðum verður prófkjör
6.-7. desember og hafa fimm þeg-
ar gefið kost á sér, Gunnlaugur
Finnsson, Ólafur Þórðarson, Pétur
Bjamason , Sigurður Viggósson
og Þórunn Guðmundardóttir.
Á Norðurlandi vestra hefur far-
ið fram könnun meðal flokks-
manna hveija þeir vilji helst á lista
og fengu alþingismennimir Páll
Pétursson og Stefán Guðmunds-
son flestar tilnefningar asamt
Sveini Sverrissyni, en gengið
verður fra'listanum á kjördæmis-
þingi 22.-3. nóvember. Á Norður-
landi eystra, Austurlandi og
Suðurlandi hefur framboðslistinn
verið ákveðinn.
Á Reykjanesi verður listinn
ákveðinn 22. nóvember en þar er
efsta sætið frátekið handa
Steingrími Hermannssyni forsæt-
isráðherra sem flutti sig þangað
frá Vestfjörðum. Fjórir hafa boðið
sig fram í 2. sætið, Jóhánn Ein-
varðsson, Inga Þyrí Kjartansdótt-
ir, Níels Ámi Lund og Elín
Jóhannsdóttir.
Sjálfstæðisflokkur
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
gengið frá framboðum sínum í
öllum kjördæmum nema Vestur-
landskjördæmi. Þar mun kjör-
dæmaráð ásamt kjömum
fulltrúum velja á listann á kjör-
dæmisráðsfundi 8. nóvember á
þann hátt að greidd verða at-
kvæði um frambjóðendur í fyrri
umferð og í seinni umferð verður
valið úr þeim 10 sem flest at-
kvæði fengu í fyrri umferðinni.
Þetta er sama fyrirkomulag og
haft var t.d. á Reykjanesi.
Kvennalistinn
Kvennalistinn hefur ákveðið að
bjóða fram í að minnsta kosti
þremur kjördæmum, Reykjavík,
Reykjanesi og Vesturlandi og er
verið að undirbúa framboð í fleiri
kjördæmum. Ekki hefur enn verið
ákveðið með hvaða hætti skipað
verður á framboðslista Kvenna-
listans en það verður rætt á
landsfundi flokksins sem haldinn
verður um næstu helgi.
GSH.
I
t
Morgunblaðið/Ævar Guðmundsson
Leikendur í Deleríum Búbónis ásamt leikstjóra.
Leikfélag Ólafsvíkur
sýnir Deleríum Búbónis
Ólafsvik.
UNDANFARNAR vikur hafa
staðið yfir æfingar á gaman-
leiknum Delereíum Búbónis eftir
Jónas og Jón Múla Árnasyni hjá
Leikfélagi Ólafsvíkur.
Verkið var fyrst sýnt fyrir um
það bil 30 árum og er enn í fullu
gildi sem bráðskemmtilegur gam-
anleikur. Leikendur eru alls 9.
Undirleik annast Ronald W. Tumer
og leikstjóri er Carmen Bontich.
Verkið var frumsýnt laugardaginn
1. nóvember í samkomuhúsi Ól-
afsvíkur og önnur sýning var
daginn eftir.
B.G.
Síldarafl-
inn orðinn
11.000 lestír
37 BÁTAR eru nú byijaðir á
síldveiðum og á miðvikudag
höfðu 35 þeirra aflað samtals
um 11.000 lesta. Síðustu 7
daga voru 30 bátar með sam-
tals 4.360 lestir. 90 bátar hafa
leyfi til síldveiða á yfirstand-
andi vertíð.
Sfldveiðamar hafa að mestu
verið stundaðar á Mjóafírði og
Seyðisfírði, en sfldin þar er bæði
stór og feit. Lítið er farið að ganga
á kvóta einstakra báta. Tveir
munu þó búnir og aðrir tveir byij-
aðir að veiða upp í kvóta annarra.
Veiðamar hafa gengið fremur
hægt um þessar mundir vegna
óvissu um saltsíldarsölu til Sov-
étrflqanna.
69-11-00
Auglýsingar 22480
Afgreiðsla 83033
Electrolux 0] Electrolux ffi Electrolux
Electroulux
BW-uppþvottavélar
lánað til allt að h
11 mánaða með
IEURC
KREPIT samningi
Til
handhafa
Hljóðlát vél í hæsta gæðaflokki
Góð kjör — Gott verð
m
Electrolux
©
Vörumarkaðurínn hf.
jEiðistorgi 11 -sími 622200