Morgunblaðið - 05.11.1986, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
Islenskir- krakkar kyrnia
vetrartískuna í Evrópu
Eru fyrirsætur í tískutímariti
sem dreift er um alla Evrópu
Á ÞESSU hausti kom út í Hollandi tímaritið „Fashion Magazine“,
tískutímarit fyrir ungu kynslóðina þar sem alls konar vetrarfatnað-
ur er kynntur. Það er sérstakt við þetta tískurit, að fyrirsætumar
eru allar íslenskar, islenskir unglingar, og fóru myndatökur fram
í maí í vor. Auk þeirra var þá unnið að gerð níu myndbanda sem
hvort tveggja verða notuð til að kynna ísland í hollenska og þýska
sjónvarpinu og tíl að sýna í verslunum, sem selja fatnað fyrír ungl-
inga. „Fashion Magazine" kemur út í tveimur miUjónum eintaka og
hefur veríð dreift um alla Evrópu ásamt myndböndunum.
Framleiðandi „Fashion Maga-
zine“, hollenski listhönnuðurinn
Martie Dekkers, hefur sent Morg-
unblaðinu lítið tilskrif um komu sína
hingað til lands í vor og kynni sín
af krökkunum og öðru fólki.
Dekkers kom fyrst til íslands í
apríl til að fínna hentuga staði fyr-
ir myndatökur, velja fyrirsætur og
ganga frá öðrum undirbúningi og
kom svo aftur í maí. Segist hann
ekki hafa í annan tíma orðið jafn
hissa og þá á því að þegar hann
kom á hótelið ásamt fylgdarliði sínu
hefðu beðið hans þar 50 krakkar
ásamt foreldrum sínum. Vandaðist
nú málið því erfítt var að velja og
segist Dekkers búast við, að marg-
ir hafí snúið aftur dálítið vonsviknir.
Á veitingastaðnum „Broadway"
sá Dekkers til krakka sem sýndu
jassballett og varð svo hrifínn af,
Hollenski listhönnuðurinn Martie
Dekkers.
FASHION MAGAZINE
iii m mm niiiáiiin
T® AanOHTSKSBSSWEáR
Eitt augiýsingaspjaldanna.
Forsíða tímarítsins „Fashion Magazine“.
að hann fékk þá til liðs við sig.
Koma þeir fram á myndböndunum
og segist hann enn ekki skilja
hvernig þeir fóru að því að dansa
í fjallaskóm á hijúfu hrauninu.
Dekkers segist hafa kynnst
mörgum í Reykjavík og harma það
mest að geta ekki sjálfur þakkað
öllum vinum sínum og þeim sem
greiddu götu hans. Auk þess hreifst
hann af borginni og landinu og
langar til að koma hingað aftur.
„Mig langar til að koma aftur til
Reykjavíkur og hitta allt fólkið.
Ferðin í vor tókst einstaklega vel
og það væsti svo sannarlega ekki
um okkur í þessu yndislega landi,“
sagði Dekkers að lokum í bréfí sínu.
Sj ónvarpsauglýsingar:
Bókaútgef endur
mótmæla aukaálagi
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi frá Félagi
íslenzkra bókaútgefenda:
„Stjóm Félags ísl. bókaútgef-
enda hefur sent Markúsi Emi
Antonssyni, útvarpsstjóra, mótmæli
vegna tímabundinnar hækkunar á
auglýsingaverði sjónvarps. Eftirfar-
andi samþykkt var gerð á stjómar-
fundi í Félagi ísl. bókaútgefenda
27. okt. sL eftir að rætt hafði verið
um 25% hækkun sjónvarpsauglýs-
inga í nóvember og desember nk.
Auglýsingastjóri Ríkisútvarpsins
hefur staðfest, að í nóvember og
desember 1986 verði auglýsinga-
taxti sjónvarpsins með 15% álagi
miðað við 1. janúar 1987.
„Stjóm Félags ísl. bókaútgef-
enda mótmælir harðlega þeirri
ákvörðun Ríkisútvarpsins að leggja
sérstakt aukaálag á sjónvarpsaug-
lýsingar, sem birtast eiga í nóvem-
ber- og desembermánuði nk. Þar
með er vegið að þeim aðilum sem
þurfa einkum að kynna framleiðslu-
vörur sínar á þessum árstíma.
Er það stefna Ríkisútvarpsins að
láta þá sem þurfa að auglýsa á
sérstökum tímum ársins gjalda þess
með tímabundinni hækkun á aug-
lýsingaverði sjónvarps?"
y raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar |
Félag sjálfstæðismanna
í Langholti
Aðalfundur félagsins veröur haldinn fimmtudaginn 13. nóv. nk. kl.
20.30. Nánar auglýst síðar. Stjórnin.
Aðalfundur Týs
Aðalfundur Týs, félags ungra sjálfstæðismanna i Kópavogi, veröur
haldinn miðvikudaginn 5. nóvember nk. kl. 20.00.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Úrslit kosninga.
Ingimundur Magnússon rekstrarráðgjafi verður með framsögu-
eríndi.
3. Önnur mál.
Félagar mætið tímanlega. Stjórnin
Almennur félagsfundur
Hvatar
%
Hvöt, félag sjálfstæöiskvenna i Reykjavík
heldur almennan félagsfund i kjallarasal
Valhallarfimmtudaginn 6. nóv. nk. kl. 12.00.
Dagskrá:
1. Kosning uppstillingarnefndar fyrir aðal-
fund félagsins 18. nóv. nk.
2. Gestur fundarins verður Sólveig Péturs-
dóttir lögfræðingur.
Léttur hádegisveröur verður á boðstólum.
Sjálfstæðiskonur fjölmennið og takið með
ykkur gesti.
Stjórnin.
Landsmálafélagið Vörður
— Félagsfundur
Landsmálafélagiö Vöröur heldur almennan félagsfund miövikudaginn
5. nóvember 1986 kl. 20.30 i sjálfstæöishúsinu Valhöll.
Dagskrá:
1. Kosning þriggja manna uppstillingarnefndar vegna aöalfundar.
2. Þorsteinn Pálsson formaöur Sjálfstæðisflokksins fjallar um stjórn-
málaviðhorf í þingbyrjun.
3. Önnur mál.
Stjórn Varðar.
Kópavogur — Happdrætti
Vinsamlegast gerið skil á heimsendum happdrættismiðum i haust-
happdrætti Sjálfstæðisflokksins. Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins
Hamraborg 1, er opin alla virka daga frá kl. 17.00-19.00, simi 40708.
Sjáifstæðisféiögin i Kópavogi.
Vestfjarðakjördæmi
Fundur verður haldinn i kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins i Vest-
fjarðakjördæmi laugardaginn 22. nóvember nk. Fundurinn hefst kl.
13.30 á Hótel (safirði 5. hæð.
Fundarefni:
Ákvörðun um framboðslista Sjálfstæðisflokksins i Vestfjarðakjör-
dæmi við næstu alþingiskosningar.
Stjórn kjördæmisráðs.
Keflavík
Aðalfundur Heimis FUS verður haldinn 5. nóvember nk. í Sjálfstæðis-
húsinu Keflavík og hefst kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Félagar fjölmenniö. Stjórnin.