Morgunblaðið - 05.11.1986, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
O
43
Stokkfiskur;
Meiningin að endurgreiða Hjálp-
arstofnuninni með skreiðartöfium
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi frá Þorsteini Inga-
syni f.h. Stokkfisks:
„Síðari hluta árs 1983 hófst sam-
starf Hjálparstofnunar kirkjunnar
og Stokkfisks um framleiðslu á töfl-
um úr skreið til hjálparstarfs. Var
á þeim tíma álitið að skreiðartöflur
ættu mikla framtíð fyrir sér á þeim
vettvangi og að um verulegt magn
gæti verið að ræða.
Unnið var sleitulaust að málinu
þar til í janúar 1984, að framleiðsla
hófst. Stóð hún þar til í maí og
voru framleiddar um 560.000 töfl-
ur, eins og fram kemur í skýrslu
rannsóknamefndar. Greiddi Hjálp-
arstofnunin Stokkfiski kr. 945.
284,00 fyrir töflumar.
Beinn útlagður kostnaður fyrir-
tækisins við vömþróun og fram-
leiðslu var eftirfarandi:
Aðkeypt vinna og tæki
kr. 964.000,00
Vinna starfs-
manna og annar
rekstarkostnaður kr. 1.519.000,00
Samtals kr. 2.483.000,00
Þennan háa framleiðslukostnað
má rekja til byrjunarörðugleika og
að unnið var á vöktum þar eð talið
var nauðsynlegt að töflumar bær-
ust sem allra fyrst til Eþíópíu.
Auk þess lagði Stokkfískur til
hráefni til framleiðslunnar, alls um
16 tonn, þar eð sú gjafaskreið sem
Hjálparstofnun barst víða að reynd-
ist afar misjöfn að gæðum og var
fjarlægð að kröfu Ríkismats sjávar-
afurða.
Þær kr. 500.000,00, er Hjálpar-
stofnun greiddi Stokkfiski, mnnu
til greiðslu stofnkostnaðar og var
áformað að endurgreiða þetta fé
með skreiðartöflum við frekari við-
skipti. Af þeim varð því miður ekki
og varð að samkomulagi að upp-
hæðin stæði að sinni sem skuld
Stokkfisks við Hjálparstofnun, sak-
ir hins íjárhagslega tjóns, sem
Stokkfiskur varð fyrir í þessum við- ’
skiptum, þar til frekari athuganir
og viðræður hefðu farið fram um
frekari framleiðslu.
Þrátt fyrir að svo hafi til tekist
með þessa framleiðslu er það álit
okkar að þama hafi farið fram
merk vömþróun og að hún eigi eft-
ir að nýtast við hjálparstarf
komandi ára.“
Metsölublad á hverjum degi!
Mð sitja med vinum sinum a litlu veitinga- #
husi i midri tveggja kilometra langri skida-
brekku. sleikja solskinid og sötra bjor er
eitthvað þad besta sem ég hef upplifad. “ sagdi
eg vid sjálfan mig og akvad ad segja ekkert meira ^
í þessari auglysingu. Þad er hvort sem er aldrei
hægt ad lysa þvi i faum orðum hve stórkostlega
gaman er aó fara a skidi til bestu skidastada
Evropu.
IJrval bydur 2ja vikna sktöaferdir til urvals■
skíöastaöa i Austurriki og Frakklandi frá des
ember fram i apríl.
Badgastein: 20 12 UPPSELT. 31 1. 14 2. 28 2.
Verð fra kr. 29.707.-
Val Thorens og Avoriaz: 7 3. 21/3. 4/4.
Verö fra kr. 33.472.-
I áid myndabæklinga og greinargoöar upplýs-
ingar a skrifstofunni aöur en þiö fariö annaö.
Síminn er 26900.
FERÐASKRIFSTOFAN URVAL
Ferdaskrifstofan Úrval vid Austurvöll. Sími (91) 26900.