Morgunblaðið - 05.11.1986, Page 50

Morgunblaðið - 05.11.1986, Page 50
50 MORGUNBLABIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986 Ast er... «--s- ... að láta draum- inn rætast. TM Reg. U.S. Pat Otf.—all rights reserved e 1986 U>s Angeles Tlmes Syndicate breytingar komið með nokkur blóm í stað þess að koma alltaf með gö- tótta sokka. HÖGNI HREKKVtSI E/NKASA/WTAL... 5INS SIN6 ■ -- L.ITLA HKAUN-. - KV/A0f?y6öJA.-5AN QUENTiN-'' Vandið málfarið betur Heiðraði Velvakandi. Ekki dreg ég það í efa, að þið Morgunblaðsmenn viljið hafa sem vandaðast málfar í blaði ykkar. Stundum bregður út af því, og mun það ekki síst vera hvað varðar að- sent efni. Ég var að rísla mér við að lesa auglýsingar í blaðinu frá sunnudeg- inum 26. okt. Ekki get ég að því gert, að mér fannst, að málfar aug- Sonur minn 11 ára ætlaði á landsleikinn við Austur-Þjóðverja sem var á miðvikudagskvöldið sem leið. Þegar hann kom að miðasöl- unni var honum sagt að uppselt væri fyrir böm en hann gæti feng- ið fullorðinsmiða. Hann hefði sjálf- sagt látið sig hafa það að kaupa sig inn sem fullorðinn en hann hafði ekki til þess peninga svo piltur varð lýsinganna þar væri með verra móti og það einkennilega var, hve margar þeirra voru með sama máls- farssjúkdóminn: STARF. Hér eru nokkur sýnishorn: Dæmi 1 Óskum eftir starfsmanni til starfa. Leitum að starfsmanni til framtíðarstarfa. Vinna fyrir alla starfsmenn félagsins. Umsóknar- eyðublöð hjá starfsmannaþjón- að snúa frá. En það sagði hann mér, þegar hann kom heim aftur vonsvikinn, að þama hefði komið fullorðin kona með ungan pilt og borguðu þau bæði fullorðinsmiða. Mig langar til að krefja þá, sem með þessi mál fóra, skýringa. S.G. ustu. (Sem sé, lítil auglýsing eftir manni, sex sinnum orðið STARF.) Dæmi 2 Vil ráða starfsfólk til starfa. Upplýsingar um störf þessi veitir starfsmannastjóri. (Fjóram sinn- um STARF.) Dæmi 3 Afgreiðslustörf í verslun. Vilj- um ráða starfsfólk til afgreiðslu- starfa. Upplýsingar um störf þessi veitir starfsmannastjóri. (Fimm sinnum STARF.) Spennandi starf. Vantar starfs- mann. Þarf að hafa reynslu í starfi. Starfið krefst... (Aðeins fjóram sinnum STARF.) Dæmi 5 Óskað eftir sölumanni. Starfið krefst... Þarf að hefja störf. Upplýsingar um fyrri störf. (Þrisv- ar STARF.) Dæmi 6 Óskað eftir framkvæmdastjóra. Óflugt sölustarf. Starfið felst í.. . og sölustarfi. Krefjandi starf, gott samstarfsfólk. Reynsla í starfi nauðsynleg. (Sex sinnum STARF.) Hér er ekki verið að spilla málinu með notkun erlendra orða; nei, sei sei nei. En varla getur þetta þótt góð íslenska, þótt íslenska sé. Klaufaskapur — staglstíll? Það vora nokkrar fleiri auglýs- ingar í þessu sama blaði með sama STARF-staglinu, en ég fer ekki lengra. Eins og sjá má á uppsetningunni era auglýsingamar ekki teknar upp í heild, STARF aðeins lauslega sett í samhengi við efnið. Slys? Ja, nú dámar mér, sagði hún móðir mín heitin, þegar gekk fram af henni. Mér leist ekki á í morg- un, þriðjud. 28. nóv., þegar ég fékk Moggann. A fjóram stöðum las ég að FORÐA SLYSI. Og ég var að hrósa ykkur fyrir málfar. — Hroða- legt! Nöldrari Hvenær verður uppselt fyrir börn í Laugardalshöllina? Eru einhver ákveðin stæði eða sæti ætluð þeim? Börnin að borga sem fullorðnir væru Víkverji skrifar Hringlið með fréttatíma sjón- varpsstöðvanna okkar tveggja er að verða dálítið kátbroslegt. Því verður þó vart á móti mælt að sök ríkissjónvarpsins í þessu efni er meiri en nýju stöðvarinnar. Forr- áðamenn Stöðvar 2 tóku þá ákvörð- un í upphafi að hafa sjónvarpstíma sinn hálfri klukkustund á undan hefðbundnum fréttatíma ríkissjón- varpsins. A þeim bæ var hins vegar talin hætta á að þar með fækkaði áhorfendum að fréttatíma ríkissjón- varpsins og því ákveðið að færa fréttatímann fram á sama tíma og Stöð 2 hafði helgað sér. í vestræn- um heimi kallast slíkt “counter- programing" eða gagndagskrár- svöran og var býsna algeng hér á áram áður en á síðari áram hafa stóra sjónvarpsstöð’varinnar verið æ meira að hverfa frá slíkri dag- skrárstefnu, því að hún þykir ekki hafa borið þann ávöxt sem menn væntu. Það hefur hins vegar komið í ljós að ákvörðun ríkissjónvarpsins um að færa fram sjónvarpstímann hef- ur mælst mjög misjafnlega fyrir og gagnrýnisraddir verið háværar. Stöð 2 hefur þegar brugðist við á þann hátt að færa sjónvarpstíma sinn aftur til kl. 8 og nú virðist hið sama ætla að verða uppi á teningn- um hjá fréttastofu ríkissjónvarps- ins. Slíkt hringl verður hins vegar ,að teljast afar vafasamt og lítt traustvekjandi. Forráðamenn fréttastofu ríkissjónvarpsins hafa tekið ákvörðun og þeir eiga að hafa þann manndóm í sér að standa við þá ákvörðun. xxx Nú er skýrslan um Hjálparstofn- un kirkjunnar komin fram og með lestri hennar ætti almenningur að fá svör við öllum þeim spurning- um sem vöknuðu vegna skrifa um meðferð stofnunarinnar á fjármun- um þeim er safnað er meðal fólks hér á landi til hjálpar bágstöddum í hinum vanþróuðu ríkjum. Það er ástæða til að bera lof á þá menn sem stóðu að þessari athugun. Skýrslan er afdráttarlaus, hvergi reynt að draga fjöður yfir þau at- riði sem nefndarmenn telja mis- farist í íjármálastjórn stofnunarinn- ar en jafnframt sýnir skýrslan svo ekki verður um villst að meginhluti þess flármagns sem Hjálparstofn- unin safnar, fer rétta boðleið til þeirra verkefna sem er grandvöllur- inn fyrir þessari starfsemi. Því má segja að með skýrslunni sé þetta mál meira og minna tæmt og það er því rétt ákvörðun stjómar Hjálp- arstofnunar að birta hana í heild. Stofnuninni ætti nú að gefast tóm til að endurmeta starfsemi sína, kippa í liðinn því sem aflaga hefur farið og endurvinna þá velvild sem hún hefur notið meðal þjóðarinnar um árabil. xxx Víkveiji varð fyrir vísi að menn- ingaráfalli á dögunum. Hann átti þess kost ásamt fleiri löndum að fjúga um hálfan hnöttinn með flugfélagi sem heiti Cathay Pacific og hefur aðsetur í Hong Kong. Flugvélin var að vfsu Jumbo-breið- þota en ferðast á venjulegum ferðamannaklassa. Engu að síður var vel rúmt um farþegana og þjón- ustan slíkt að við landamir, margir hverjir vel ferðavanir, höfðum ekki kynnst öðra eins. Þegar hins vegar lent var í London var farið beinustu leið um borð í Boeing 727-þotu Flugleiða áleiðis heim. Og hvílík viðbrigði! I samanburði við fyrri farkost var sem við væram komnir um borð í gripaflutningavél. Þijár sætaraðir vora hvora megin gangs- ins og þrengslin slík að útilokað var td. að reyna að stytta sér stundir við lestur breskra dagblaða í stærra brotinu. Eins og títt er um íslend- inga á heimleið voru margir vel birgir af handfarangri og það reyndist meiriháttar höfuðverkur að koma honum fyrir. Það var því kannski ekki að undra þó að einn samferðamaður orðaði þetta sem svo að honum liði eins og sardínu í dós frá K. Jónssyni á Akureyri. XXX Smá línubrengl varð í Víkvetja- pistli í gær þar sem var rætt um tengsl ræðismannsins Anthony Hardy í Hong Kong og Islands. Þau era tilkomin vegna þess að fyrir- tæki það sem hann starfaði hjá áður er umboðsaðili Flugleiða og CARGOLUX - en það nafn féll nið- ur í pistlinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.