Morgunblaðið - 05.11.1986, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1986
53
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
Karate
æfa allir
saman
— litið inná innanfélagsmót
hjá Stjörnunni f Garðabæ
Innanfélagsmót karatedeildar
Stjörnunnar í Garðabæ var haldið
26. október síðastliðinn. Greini-
lega sást á móti þessu að ungl-
ingastarfið í karate í Garðabæn-
um er með miklum ágætum því
fjölmennustu flokkar þessa móts
voru flokkar barna og unglinga.
í karatedeild Stjörnunnar eru
um 80 félagar og eins og tíðkast
í karate æfa allir aldursflokkar og
' bæði kyn saman en þetta skapar
sérstaklega skemmtilegt and-
rúmsloft á æfingum að sögn þeirra
sem stunda íþróttina. Þetta leiðir
stundum til þess að foreldrar
: krakka sem æfa rekast inná æfing-
ar með þeim og fá bakteríuna.
Stjörnumönnunum hefur þó geng-
ið erfiðlega að fá stelpur til að æfa
karate „þær virðast flykkjast í fim-
leika," sagði Hannes Hilmarsson
formaður deildarinnar.
Byrjendur í Stjörnunni æfa
tvisvar í viku en lengra komnir æfa
þrisvar í viku. Yngstu meðlimir fé-
lagsins eru 7 ára en í Mekka
karateíþróttarinnar Japan byrja
krakkar að æfa 4 ára. Allir aldurs-
flokkar tóku að sjálfsögðu þátt í
innanfélagsmótinu en þar var
keppt í kata og kumite. Kata eru
skylduæfingar en kumite er frjáls
bardagi.
Á mótinu í Garðabæ var gaman
að sjá hve mikla ögun og einbeit-
ingu ungu karatekapparnir höfðu
tileinkað sér en þessa eiginleika
er nauðsynlegt að hafa á valdi sínu
í karate sem og öðrum bardögum
lífsins.
MorgunblaðiðA/IP
MorgunblaðiðA/IP
• Gísli Helgason sýnir hór hvers hann er megnugur, hann verst vel höggum andstæðingsins og skapar
sér færi til sóknar um leið.
Sýndi honum brögð og hann
hljóp skíthræddur í burtu
ÍVAR Helgason sýndi það og
sannaði á innanfélagsmóti kar-
atedeildar Stjörnunnar að hann
er baráttumaður eins og þeir
gerast bestir. ívar setti alltaf uppí
sig eitthvert plaststykki áður en
• ívar Helgason ræðst hér tll atlögu
hann lagði í bardaga og var hann
spurður út í þetta plaststykki.
„Þetta er plastgómur eins og
boxarar nota, ef það er kýlt framan
í mann er maður öruggari með
plastgóminn," svaraði hann. Góm-
inn góða keypti pabbi hans fyrir
hann í Danmörku. ívar var ekki
alveg öruggur á hve lengi hann
hefði æft en það er eitthvað í kring-
um eitt eða eitt og hálft ár. Honum
fannst fortíðin ekki skipta máli því
hann stefndi á að ná svarta beltinu
í framtíðinni en það taldi hann að
ívar með góminn góða
gæti tekið um 10 ár.
ívar fékk bronsverðlaun í kumite
en gekk að eigin sögn illa í kata.
Kumite vekur líka meiri áhuga hjá
honum. „Maður lærir að verja sig
í kumite, ef einhverjir stærri strák-
ar eru að abbast uppá mann þá
er maður öruggari ef maður hefur
lært kumite. Einu sinni ætlaði stór
strákur að lemja mig í skólanum.
Ég sýndi honum nokkur brögð og
hann hljóp skíthræddur í burtu,"
sagði ívar ekki óánægður.
Morgunblaðiö/VIP
• í karate getur augnablikseinbeitingarleysl kostað mann sigur og því er nauðsynlegt fyrir þessa tvo
og aðra karatekappa að vera sífellt vel á verði