Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987
9
Jólatrés-
skemmtun
í Valsheimilinu í dag kl. 3.00.
Jólasveinar koma í heimsókn.
Valskonur fjölmeiinum með blessuð
börnin.
Bátasmiðja Guðmundar, sem framleiðir
„Sóma“-bátana, hefur flutt starfsemi sína
að Eyrartröð 13, Hvaleyrarholti, Hafnar-
firði, símar 50818 og 651088. ^
______SMIÐJA^
GUfíMUNDAR
3 LINAN
Verð frá kr.
596.000
Sjón er sögu ríkari.
Skoðið glæsivagnana frá BMW.
5 LÍNAN
Verð frá kr.
678.000
Nýi sýningasalurinn er opinn í dag,
laugardag, frá kl. 1—5.
MIÐAÐ VIÐ GENGI DM 20.6672 í JANÚAR.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUOURLANDSBRAUT 20,
sími686633
Hvað boðar nýjárs blessuð sól?
Dagblöðin horfðu um öxl ti! liðins árs og fram á veg til hins
nýja í forystugreinum um áramótin. Staksteinar glugga lítillega
í hugskot höfunda þessara forustugreina hér og nú.
í brennidepli
heimsins
Forystugrein Tímans
fjallar um góðærið,
kjarasáttina, 200 ára af-
mæli Reykjavíkurborg-
ar, sveitarstjórnarkosn-
ingar 1986, leiðtogafund
Reagans og Gorbatsjovs
í Reykjavík og slysfarir
hér á landi. Orðrétt segir
blaðið:
„Enda þótt fyrirvari
[leiðtogajfundarins hafi
verið mjög skammur
tókst framkvæmd hans i
alla staði vel og varð ís-
lendingum til mikils
sóma.
fsland var í brenni-
depli heimsins meðan á
fundum þeirra stóð og
fylgdi þeim mikil land-
kynning sem vonandi
verður landi og þjóð til
góða.
Enda þótt árið sem er
að líða hafi verið gjöfult,
hafa íslendingar einnig
fært miklar fórnir. A
árinu hefur látist af slys-
förum 71 íslendingur
sem er 20 mönnum fleira
en á síðasta ári. Oryggis-
mál sjómanna verður að
lagfæra nú þegar og
sömuleiðis þarf að stór-
bæta umferðarmenningu
okkar. Stöndum saman í
slyasvömum á nýju ári.“
„Sovézk til-
boð“
í áramótaleiðara Þjóð-
viljans, sem fjallar meðal
annars um friðarhorfur,
segir m.a.:
„En ekki er öll nótt úti
enn. Mönnum ber saman
um að sú alvara fylgi
sovézkum tilboðum um
afvopnun, að Sovétmenn
hafí raunverulega efna-
hagslega og pólitiska
þörf fyrir róttækt sam-
komulag. Menn sjá að
Reagan-stjómin vill ekki
gefa það upp á bátinn
að ná verulegu forskoti
yfir Sovétmenn á sviði
nýrra vopnakerfa - en
andstaða við þá stefnu
er veruleg í Bandaríkjim-
um sjálfum og forseti
mun koma á eftir Reag-
an. Við þessar aðstæður
er æskilegt og rétt, að
íslendingar fylgist sem
bezt með hveiju frum-
kvæði til samstillingar
krafta smærri ríkja til
áhrifa á framvindu af-
vopnunarumræðu og
taki undir þau - en á liðn-
um misserum hefur orðið
smánarlegur misbrestur
á að ísland legði sitt lóð
á vogarskáiar, þegar
menn áttu þess kost.“
Ar merkilegra
tíðinda
Dagblaðið Vísir segir
m.a. i forystugrein:
„ ... Miklu skiptir, að
tímamótasamningar
vom gerðir í febrúar.
Þar tóku aðilar vinnu-
markaðarins frumkvæð-
ið og fengu ríkisstjómina
tíl að vera með. Verð-
bólgan hjaðnaði mikið á
þessu ári, sem einnig
markar timamót.
Lífskjörin bötnuðu yfir-
leitt og kaupmáttur
tekna heimilanna óx. Við
komumst á þessu ári í
stórum dráttum úr öldu-
dal siðustu ára. Þvi
verður þetta að teljast
merkilegt ár og gott ár
í sögu þjóðarinnar. Marg-
ir sátu eftir, þótt flestír
bættu kjör sin. í siðari
kjarasamningum ársins
fyrir skömmu var reynt
að bæta fyrst og fremst
hag hinna lægstlaunuðu.
Ef það tekst, eins og von-
ir standa til, mun ársins
enn verða getíð sem árs
merkilegra tiðinda og þvi
að lengi vom hinir lægst-
launuðu skildir eftír".
Mannlegra
samfélag
Alþýðublaðið sagði í
forystugrein:
„Árið, sem nú ér að
liða, hefur að mörgu Ieyti
verið merkilegt í sögu
islenzku þjóðarinnar.
Sjaldan eða aldrei á
síðustu áratugum hefur
efnalegt misréttí orðið
eins auðsætt og á þessu
ári. Velferðarkerfíð hef-
ur átt mjög undir högg
að sækja, og þrátt fyrir
mesta góðæri og mestu
þjóðartekjur í sögunni,
hefur hallað undan fætí
hjá hinum efnaminni, en
auðurinn hrannast upp i
hirzlum fjármagnseig-
enda...
íslendingum er það
einnig lifsnauðsynlegt,
að stefnt verði að þvi að
skapa mannlegra sam-
félag, draga úr vinnu-
þrælkun, huga betur að
umhverfismálum og að
þess verði gætt, að sókn-
in eftir auknum hagvextí
verði ekki á kostnað
hinnar eiginlegu lifsham-
ingju, samhjálpar og
jafnréttis...“
Tiltíðinda
dregnr
Norðanblaðið Dagur
sagði i forystugrein:
„Ríkisstjómin nýttí hin
hagstæðu ytri skilyrði til
margra góðra verka. í
febrúar var gengið frá
kjarsamningum milli
ASÍ, VSÍ og VMSS og var
þar um tímamótasamn-
inga að ræða. Ríkis-
stjómin áttí stóran þátt
i að þeir samningar tók-
ust og skuldbatt sig tíl
að ábyrgjast nokkra
veigamikla þættí samn-
inganna, s.s. að halda
niðri verði á opinberri
þjónustu...
Um áramót bendir
flest til þess að komandi
ár verði okkur hagstætt
og ástæða er tíl bjart-
sýni. Arið mun efíaust
verða viðburðaríkt og
fullyrða má að til tiðinda
dragi á stjómmálasvið-
inu enda em kosningar
i nánd."
Vegagerðin
krafin um
24 milljónir
í skaðabætur
HAGVIRKI hf. krefst 24 milljóna
í skaðabætur af vegagerð ríkis-
ins vegna lagningar 19 km vegar
á Laxárdalsheiði. Upphaflega til-
boð Hagvirkis hf. var tæpar 5
milljónir en kostnaðaráætlun
vegagerðarinnar hljóðaði upp á
rúmar 10 milljónir.
Að sögn Jóhanns G. Bergþórs-
sonar forstjóra Hagvirkis voru
þegar í upphafi gerðar athugasemd-
ir við útboðsgögnin og bent á að
þau væru ekki fullnægjandi. „Við
unnum síðan verkið sem að raun-
kostnaði er um 22 milljónir," sagði
Jóhann. „Veginum var lýst sem
venjulegum heiðarvegi en var það
alls ekki. Það alvarlegasta er að
samkvæmt upplýsingum stjórnanda
okkar á verkinu, vissu bæði vega-
gerðarmenn og bændur á staðnum
hvernig málum var háttað en þess
er hvergi getið í útboðslýsingum.
Verkinu lauk haustið 1985 og
krafa um skaðabætur var lögð fram
um síðustu áramót. Þá var leitað
eftir mati verkfræðistofunnar Mat
sf. en tillögu þeirra var hafnað af
Hagvirki. Jóhann sagðist búast við
að málið færi annaðhvort í gerðar-
dóm eða að leitað yrði sátta.
T^íúamazhaðuzinn
— • . M I— ^ # V
%^-tattisyötu 12-18
Opið laugardag 10-5
Subaru 4x4 st. 1985
35 þ.km. Grásans. Gullfallegur vagn. Bein-
skiptur. Verð 520 þús.
Suzuki Fox 410 1984
Rauöur, ekinn 25 þ.km. Yfirbyggður Pick-
up. Ath.: Skipti koma til greina. Verð 550
þús.
Mazda 323 Saloon (1.5) 1984
Sjálfs. m/aflstýri. Ekinn aðeins 24 þ.km. 2
dekkjagangar á felgum. Verð 340 þús.
Nissan Cherry 83
40 þ.km. Rauður. V. 240 þ.
Toyota Tercel 1987
Nýr bíll 4x4. verð 560 þús.
Gullsans. Ekinn 7 þ.km. 5 gíra. 2 gangar
af dekkjum. Verð 370 þús.
Daihatsu Charade 84
27 þ.km. 5 dyra V. 250 þ.
Mazda 323 1.5 83
37 þ.km. 5 gíra. v. 275 þ.
Citroen axel 86
hvitur, 13 þ.km. v. 240 þ.
Escort 1100 86
18 þ.km. V. 395 þ.
Mazda 929 station 84
49 þ.km. Toppbíll. V. 450 þ.
Daihatsu Charade Turbo 87
ó þ.km. Einn með öllu. V. 440 þ.
Ford Sierra 1.6 85
30 þ.km., 5 dyra. V. 485 þ.
10-20 mán. greiðslukjör:
Toyota Cressida 78
Góður bíll. V. 165 þ.
Mazda 323 1300 82
Grásans., 3 dyra. V. 215 þ.
A.M.C. Concord 2 dyra 78
78 þ.km. sjálfsk. m/öllu. V. 175 þ.
Mazda 626 (1.6) 80
Ekinn 59 þ.km. V. 175 þ.
Datsun Diesil 77
Uþþt. vél o.fl. V. 115 þ.