Morgunblaðið - 03.01.1987, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987
Bréf til barna og fullorðinna
Vasabrotsbækur um trúmál
■— ___■_k_ __ . . _ allri sköpun Guðs og ötlum börnum
crienaar oæKur ,____*,, __
Torfi Olafsson
Um Fount-bókaútgáfuna virðast
gilda sömu lögmál og önnur bóka-
forlög að ftjósemi þeirra eykst
þegar dregur að jólum. Þessi bóka-
útgáfa sendir okkur til umsagnar
þær vasabrotsbækur sínar sem um
trúmál fjalla og eru þær þessar:
Letters to Children eftir C.S.
Lewis, höfund Narnia-bókanna sem
nú eru að koma út á íslensku, ein
bók fyrir hver jól og er þriðja bókin
af sjö þegar komin í bókaverslanir.
Letters to Children er að verulegu
leyti tengd þeim bókaflokki því hún
er safn bréfa sem C.S. Lewis skrif-
aði börnum til að svara fyrirspum-
um þeirra og ræða málin við þau.
Og margar fyrirspumimar og þar
af leiðandi bréfin fjalla einmitt um
Namia-bækumar en einnig um
skólann (Lewis var mjög slappur í
reikningi), ritmennsku og dýr.
Spiritual Letters of Jean-
Pierre de Chaussade. Ensk þýðing
eftir Kitty Muggeridge. de
Chaussade var uppi á 17. öld, gekk
í prestaskóla og gerðist Jesúíti.
Hann var m.a. andlegur leiðtogi
systrareglunnar „The Nuns of the
Visitation" í Nantes og þessi bók
er einmitt safn bréfa sem hann
skrifaði systrunum,_ þeim til and-
legrar leiðsagnar. I þeim hvetur
hann systumar til að afneita sjálf-
um sér og beygja sig undir vilja
Guðs en hann hafnar þeirri skoðun
að einangrun í klaustri geti losað
fólk undan þjáningum og and-
streymi hins jarðneska lífs. Höfuð-
viðfangsefni bókarinnar eru hinn
innri friður, að bera krossinn og
fátækt í andanum.
Open to God eftir bróður Bem-
arð er skrifuð af anglíkönskum
Fransiskana og segir hann jöfnum
höndum frá andlegum hugmyndum
sínum og sögu hins heilaga Frans,
fyrirmyndar sinnar. Hann er, eins
og heilagur Frans, hugfanginn af
opu
hennar. I lok bókarinnar tekur hann
upp spuminguna gömlu sem lögð
var fyrir hl. Frans, samkvæmt sögu
hans: „Hvort er betra, Frans, að
þjóna Drottni eða þjóni hans?“ Og
Frans svarar: „Hvort vilt þú heldur
að ég geri, Drottinn?" Og það er
einmitt grunntónn bókarinnar, að
maðurinn leitist við að starfa sam-
kvæmt vilja Guðs en ekki sínum
eigin.
One Step Enough — saga um
ferð, eftir Peter Comwell, er saga
höfundar af andlegri för hans sjalfs.
Hann var ungur prestur við Maríu-
kirkju í Oxford og stóð framarlega
í röðum anglíkanskra presta en
áður en nokkum varði lagði hann
upp í sömu för og John Henry New-
man 140 árum áður og lýsti því
yfir að hann ætlaði að ganga í kaþ-
ólsku kirkjuna, sem hann og gerði.
Bókin er því sjálfsævisaga hans í
stuttu máli og mjög athyglisverð
fyrir þá sem stigið hafa sömu skref
og hann.
All Shall Be Well eftir Michael
Meegan er saga ungs manns frá
Liverpool sem leggur stund á heim-
speki og guðfræði en helgar sig
síðar alþjóðlegu hjálparstarfi fyrir
hungraða og þjáða í þriðja heimin-
um. Hann er nú framkvæmdastjóri
slíkra samtaka og býr meðal Ma-
asai-hirðingja í Rift Valley í Kenya.
I bókinni veltir hann fyrir sér
vandamálum hinna þjáðu, bróður-
kærleikanum og hinu einfalda lífi
náttúmbamanna sem hann um-
gengst og gætu kennt okkur svo
margt um samhjálp og einlæga vin-
áttu. Og vitundin um þjáningar og
undirokun tveggja þriðju hluta
mannkynsinis fær mjög á hann því
hann lítur á þá sem bræður sína
og systur.
God’s Opportunities eftir John
Woolley fjallar fyrst og fremst um
kraftaverkin — tækifæri Guðs. Höf-
undurinn er þjónandi prestur í
anglíkönsku kirkjunni og hefur
skrifað allmargt bóka. Honum
finnst „spennandi" að fylgjast með
því sem gerist allt í kringum hann
því hann sér Guð gera kraftaverk
þar sem aðrir mundu ekki taka eft-
ir neinu heldur segja: „Það er bara
svona.“ Hann tekur dæmi jafnt úr
Biblíunni og samtímanum en bókin
er þó ekki safn kraftaverkasagna,
heldur fyrst og fremst umræða um
kraftaverkin í lífi mannanna, starf-
semi Guðs allt í kringum okkur.
Secrets eftir Ritu Snowden er
ljóðabók. Grunntónn hennar er að
sjálfsögðu kristilegur því það er
einmitt kristin trú sem hefur orðið
höfundinum hvati til að skrifa þær
mörgu bækur sem frá hennar hendi
hafa komið. Hún tilheyrir kirkju
meþódista og hefur skrifað bæði
fyrir börn og fullorðna, meðal ann-
ars bækur um bænina og sjálf hefur
hún samið margt bænabóka.
Nirfill bætir ráð sitt
Békmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Charles Dickens
JÓLADRAUMUR.
Reimleikasaga frá jólum.
Þorsteinn frá Hamri þýddi.
Myndir eftir Michael Foreman.
Forlagið 1986.
Jóladraumur Dickens er meðal
kunnari sagna sem tengjast jólum
og jólahaldi. Skáldsagan kom fyrst
út í desember 1843, hlaut þá strax
góðar undirtektir og er vinsæl enn
í dag. Ungir og gamlir lesa hana
sér til uppbyggingar og afþreyingar
og skemmtiiðnaður kvikmynda og
sjónvarps hefur nýtt hana eftir
megni.
Gamli þrjóturinn, Scrooge, hinn
dæmigerði nirfill, hefur löngum
verið táknmynd hins illa í mannssál-
inni. En Jóladraumur fjallar um það
hvemig honum snýst hugur og
verður þrátt fyrir allt góður maður.
Það eru andar sem birtast honum
í draumi sem leiða hann á rétta
braut, en bak við hugarfarsbreyt-
inguna stendur vofa Marleys,
fyrrum félaga hans. Marley hefur
ástundað sömu iðju og Scrooge í
lifanda lífí og er dæmdur til útskúf-
SIMAR 21150-21370
SOtUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
LOGM JOH ÞOROARSON HDL
Til sýnis og sölu m.a.:
Glæsilegar íbúðir með útsýni
2ja og 3ja herb. viö Blikahóla og Engjasel. Útsýni yfir borgina.
Steinhús á glæsilegum útsýnisstað
á sunnanverðu Seltjarnarnesi. Húsið er hæð og jaröhæö um 110x2
fm. Ennfremur góð rishæö 4 herb. og snyrting m.m. Húsiö getur ver-
ið meö 2-3 íb. Hentar einnig til margskonar annarra nota. Viðbygging
verkstæði um 70 fm fylgir. Rúmgóö eignarióð. Teikn. og uppl. á skrifst.
Skipti möguieg á góöri sérhæö 110-130 fm meö bílsk.
Hentar smið eða lagtækum
Járnklætt timburhús, hæö og ris á steyptum kjallara i gamla Austur-
bænum skammt frá Landsmiöjunni. Grflötur tæpir 50 fm. I húsinu er
rúmgóð 4ra-5 herb. íb. Endurnýjun er ekki iokið. Sanngjarnt verö.
Teikn. og myndir á skrifst.
Nokkur góð raðhús
M.a. í Seljahverfi, Fossvogi, Grafarvogi og á Seltjarnarnesi. Teikn. á
skrifst.
Raðhús helst við Unufell
óskast til kaups. Losun má dragast til mai-júní nk. Rétt elgn veröur
borguð út.
Fjársterkir kaupendur — skipti
Til kaups óskast 2ja herb. (b. á 1. hæð miðsvæðis í borginni. Skipti
möguleg á 4ra herb. íb. við Stórageröi.
Til kaups óskast 3ja herb. íb. miösvæðis í borginni. Skipti mögulel á
2ja herb. íb. á 3. hæö viö Safamýri.
Til kaups óskast 5-6 herb. sérhæð eöa 6 herb. ib. í lyftuhúsi. Skipti
möguleg á úrvals sérhæö í Hlíöunum.
Til kaups óskast einbhús, ekki stórt, eöa raöhús viö Hraunbæ eöa í
Ártúnsholti. Skipti möguleg á 5 herb. ágætri íb. í Árbæjarhverfi.
2ja-3ja herb. íbúð
má vera Irtil óskast til kaups i gamla bænum eða nágrenni. Rétt eign
veröur borguð út.
Bestu nýársóskir
til viðskiptamanna okkar og annarra landsmanna með þökk fyrir liðiö ár.
Opið í dag frá kl. 11.00
til kl. 16.00 siðdegis.
ALMENNA
FASTEI6HASALAH
LAUGAVEG118 SIMAR 21150 - 21370
unar og kvala. Nú vill hann koma
félaga sínum til hjálpar áður en það
er um seinan.
Þegar fyrsti andinn kemur til
Scrooge er nirfillinn fullur ótta og
kvíða. En hann er betur búinn und-
ir heimsókn hinna andanna tveggja
því að þá vill hann bæta ráð sitt.
Allra síst vill hann að óhugnanleg
draumsýn þar sem hann fær að líta
sitt eigið lík rætist. Hann vill ekki
deyja hataður og fyrirlitinn af öllum
mönnum.
Jóladraumur er ævintýri og um
ieið litrík mynd þess Lundúnalífs
sem Dickens þekkti svo vel. Honum
var einkar lagið að draga fram
mannlega mynd, þjóðfélagslegt
óréttlæti. En hann kunni líka að slá
á strengi gleðinnar, gera lífið að
hátíð þegar honum sýndist svo. í
Jóladraumi kynnumst við svartri
hlið og bjartri, en mest um vert er
Charles Dickens
að fá að ganga á vit frásagnargleð-
innar. Dickens skrifar í formála:
„I þessari litlu reimleikabók hef
ég reynt að vekja upp anda hug-
myndar, sem ekki á að valda
lesendum mínum sárindum út í
sjálfa sig, aðra, árstíðina eða mig.
Megi hann ganga ljósum logum um
hýbýli þeirra án þess að nokkum
fysi að kveða hann niður.“
Jóladraumur er myndskreyttur
af Michael Forman. Þetta eru teikn-
ingar í ákaflega breskum anda,
litmyndirnar mun eftirtektarverð-
ari, en teikningamar koma fremur
dauflega út. Prentáferð þeirra hjá
Odda er ekki í æskilegu samræmi.
Letur er á nokkmm stöðum sært
og spillir það heildarsvip jafn
merkrar bókar.
Þorsteinn frá Hamri hefur getið
sér gott orð fyrir þýðingar klass-
ískra verka, ekki síst reimleika-
sagna, og bregst ekki að þessu sinni
frekar en endranær. Jóladraumur
er á vönduðu máli og það mál er
um leið lipurt og þjált svo að skáld-
sagan er hinn æskilegasti lestur
fyrir böm og unglinga og vitanlega
fullorðna líka.
Útgáfa Alþingisbóka
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
ALÞINGISBÆKUR ÍSLANDS.
XVI. 669 bls. Sögufélag.
Reykjavík, 1986.
Útgáfa þessarar stóru bókar
sýnir annars vegar hverju þraut-
seigjan og þolinmæðin fær
áorkað; hins vegar hveijar hindr-
anir eru í vegi þess að gefa svona
rit út, yfirhöfuð. Gunnar Sveins-
son, umsjónarmaður útgáfunnar,
segir meðal annars í formála:
»Nú lætur nærri, að farið sé
að grilla í útgáfulok Alþingisbóka
íslands, enda tími til kominn, þar
eð liðið er nú á áttunda áratug,
síðan fyrsta bindið kom út,
1912-1914.«
Síðar
Gunnar:
í formálanum
segir
»Bindi þetta átti upphaflega
að vera fyrr á ferðinni en raun
hefur á orðið. Hið sama má segja
um tvö næstu bindi á undan. En
í rúman áratug er líkt og álög
hafi hvílt á útgáfu þessari. Hlaup
úr einni prentsmiðju í aðra hafa
fremur seinkað verkinu en flýtt
því, sem til var þó ætlazt. Útgef-
andi gegnir fullu starfi og hefur
því orðið að grípa stopular stund-
ir að loknum vinnudegi og um
helgar.«
Þetta segir umsjónarmaður út-
gáfunnar. Þolinmæðin er því
lofsverðari ef haft er í huga að
þjónustustarf af því tagi, sem hér
hefur verið innt af hendi, er sjald-
an metið eða launað að verðleik-
um. Menn fletta upp í löngum
nafnaskrám án þess að hugleiða
hvílík vinna það er sem liggur á
bak við eina slíka skrá. Og fátt
mun að sinni vekja minni athygli
í bókaútgáfunni en þessi tæplega
sjö hundruð blaðsíðna bók.
Bindi þetta tekur til áranna
1781-1790, það er að segja næst
síðasta áratugar hins gamla Al-
þingis. Sá, sem réð því helst að
það var lagt niður áratug síðar,
var af einhveijum kallaður morð-
ingi Alþingis. En var ekki þing
þetta að lognast út af hvort eð
var?
Svo vill til að þetta bindi nær
yfir þann kapítula íslandssögunn-
ar sem einna erfiðastur varð:
Skaftárelda og móðuharðindi.
Alþing 18. aldar, sem oft var
kallað Öxarárþing, átti nauðalítið
skylt við Alþing hið foma á Þing-
velli — eða að hinu leytinu
þjóðþing nútímans. Þetta var
dómstóll; og ekki einu sinni hæsti-
réttur heldur áfrýjunarréttur
aðeins og lafði þarna af gömlum
vana. Enda er yfirskrift bókarinn-
ar fyrir hvert ár: Lög’-þingis
bókin, innihaldandi það, sem
gjörðist og framfór fyrir lög-
þingis-réttinum.
Rækilega má minnast þess,
þegar bók þessi er lesin, að íslend-
ingar lutu danskri stjóm. Þama
em heilu gemingamir á dönsku.
Og það fór vaxandi. Ekki er ég
svo vel að mér í 18. aldar dönsku
að ég treysti mér að dæma um
hversu vel er með það mál farið.
En íslenskan er ömurleg þar sem
hún er notuð. Þó þama ættu að
heita lærðir menn að verki er
sýnt að kunnátta í móðurmálinu
hefur verið í lágmarki, og virðing-
in fyrir því sýnu minni. Kansellís-
tíllinn er enn í tísku, stofnanamál
þeirra tíma. Dönsku- og latínu-
slettur þykja ómissandi. Smá-
dæmi um stíl og orðalag:
»Sýslumaður Magnús Gíslason
declareraði appell til æðri réttar
vegna madame Þorbjargar
Bjamadóttur frá þeim þann 21.
hujus afsagða lögþingis réttar
dómi í Galtardalstungu málinu,
begjörði processen beskrifaðan og
lagði í réttinn 1 rdl. banco.« (Sá,
er þessar línur ritar, hafði sem
unglingur fávíslegt gaman af að
lesa þetta hrognamál.)
Þeir, sem gera lítið úr málvönd-
un, mættu vita hvað þeir hefðu
nú ef Fjölnismenn og aðrir slíkir
hefðu ekkert aðhafst. íslenskan
væri þessu lík. Eða öllu verri!
Þegar þing er haldið 1784 var
liðið ár frá upphafi Skaftárelda.
Þess sér stað í upphafi bókunar:
»Hr. amtmaðurinn auglýsti sín
forföll frá fyrri að geta komizt
hingað á lögþingið í ár vegna
þess dæmalausa hesta-hruns í
Norðurlandi á síðastliðnum vetri
(hvað og so mikið sem tilvitist sé
að kalla jafnt yfir það heila land),
þar hr. amtmaðurinn af öllum
sínum hestum ei hafí behaldið
eftir lifandi utan tveimur . . .«
Lítið er þama eftir af reisn
þeirri og fomaldar frægð sem
Jónas lýsti í ísland, farsældafrón.
Þótt honum og fleiri þætti illt til
að hugsa að Alþing yrði endur-
reist í Reykjavík, hrafnaþing
kolsvart á holti, gat það vart orð-
ið ömurlegra en þetta Öxarárþing
á þess síðustu ámm.
í heild lýsir bók þessi vanda
þjóðar sem er í háska stödd, ekki
aðeins efnahagslega heldur líka
stjómarfarslega og menningar-
lega; ef ekki hreint að segja
sálarlega!