Morgunblaðið - 03.01.1987, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987
37
Áramótin róleg
AKUREYRINGAR héldu áramót-
in mjög- friðsamlega að sögn
lögregluvarðstjóra.
Ólvun var nokkur á nýársnótt en
engin vandræði. Lítið hefur verið
um árekstra það sem af er árinu,
og sagði varðstjóri, sem blaðamaður
ræddi við, tíma til kominn að menn
hægðu á í þeim efnum - því á ný-
liðnu ári voru hvorki fleiri né færri
en 810 árekstrar bókaðir hjá lög-
reglunni. Sagði hann það mun
meira en árið 1985.
Alfadans- o g brenna
á Þórsvellinum
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Þór heldur
sína árlegu álfabrennu næstkom-
andi þriðjudagskvöld, á þrett-
ándanum, á félagssvæði sínu í
Glerárhverfi.
Álfakóngur og drottning mæta á
staðinn með hirð sína, púka, tröll
og fleira. Álfadans verður stiginn
undir stjóm Sigvalda Þorgilssonar.
Páll Jóhannesson söngvari syng-
ur nokkur álfalög, jólasveinar koma
í heimsókn og gefa börnunum
Blöndu, Óli appelsína verður líka á
staðnum og síðast en ekki síst
mætir Bjössi bolla eins og í fyrra,
syngur fyrir bömin og grínast.
I lokin verður svo Hjálparsveit
Skáta með flugeldasýningu eins og
undanfarin ár.
Athöfnin á Þórsvellinum hefst
kl. 20.00 á þriðjudagskvöld. Að-
gangur verður 250 krónur.
“Pældíði“
sýnt í Dyn-
heimum
í kvöld
LEIKKLÚBBURINN Saga sýnir
leikritið „Pældíáí“ í 4. skipti í
Dynheimum í kvöld. Sýningin
hefst kl. 20.30. 5. sýning verksins
verður svo fimmtudaginn 8. jan-
úar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrtmsson
Viðbúinn, tilbúinn, nú!
Á milli jóla og nýárs fór fram
fyrri viðureign KA og Þórs í
Akureyrarmóti meistaraflokks
í handknattleik. KA menn sigr-
uðu 25:22 í baráttuleik, en Þór
hafði yfir, 11:10, i leikliléi. Eins
og jafnan þegar þessi lið mæt-
ast var ekkert gefið eftir. Á
myndinni er ekki annað að sjá
en andstæðingarnir tveir séu
að leggja af stað í spretthlaup
- viðbúinn, tilbúinn, nú! Svo er
þó ekki - Eggert Tryggvason
úr KA, til vinstri, er að leggja
af stað í vörnina eftir að Her-
mann Karlsson markvörður
Þórs, til hægri, hafði varið frá
honum úr horninu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrimsson
Nýársbarnið á Akureyri flýtti sér íheiminn
FYRSTI Akureyringurinn sem
fæddist á nýbyijuðu ári var
meybarn og kom það i heiminn
klukkan 9.40 að morgni nýárs-
dags. Ekki var annað að sjá en
móður og barni heilsaðist hið
besta þegar blaðamaður heim-
sótti þau í gærmorgun. For-
eldrar nýársbarnsins eru
Eyrún Hermannsdóttir og Kol-
beinn Hjálmarsson og er þetta
þriðja dóttir þeirra. Barnið vó
4260 grömm og mældist 52
sentímetrar þegar það kom í
heiminn.
Ljósmæðumar Margrét Þór-
hallsdóttir og Freydís Laxdal tóku
á móti nýársbaminu og læknamir
Jónas Franklin og Emil Sigurðs-
son aðstoðarlæknir komu einnig
við sögu.
Það er óhætt að segja að nýárs-
bami þeirra Eyrúnar og Kolbeins
hafi legið á í heiminn því það var
fætt aðeins tíu mínútum eftir að
móirin kom á fæðingardeildina.
„Ég vaknaði klukkan 9, var kom-
in hingað upp eftir klukkan hálf
tíu og átti' tíu mínútum síðar,“
sagði Eyrún í gær, og Margrét
Þórhallsdóttir ljósmóðir bætti við:
„Það var varla meira en svo að
hún næði upp í rúm áður en hún
átti!“
Slökkvilið Akureyrar:
71 brunaútkall
á árinu 1986
Á ÁRINU 1986 var 71 brunaút-
kall hjá Slökkviliði Akureyrar,
en en voru 82 árið áður. Af þessu
71 útkalli voru 3 utanbæjar.
Mestu eldsvoðarnir voru að Sól-
bergi Svalbarðsströnd og Fjólu-
götu 2, en þar lést kona í
brunanum.
Sjúkraútköll voru 977 á árinu
1986, þar af 130 utanbæjar, en
voru 1050, þar af 172 utanbæjar,
árið áður. Af þessum 977 útköllum
vom 185 bráðatilfelli.
í samantekt frá slökkviliðsstjór-
anum á Akureyri kemur fram að
flest útköll voru í maí, 9, en 8 út-
köll vom í apríl, júní, ágúst og
september. Síðan vom 7 í desemb-
er, 6 í október og marz, 5 í
nóvember, 4 í janúar og 2 í febrú-
ar. Athygli vekur að ekkert útkall
var allan júlímánuð.
Útköll án elds vom alls 49. Þar
af vom 23 æfíngar, í 17 tilvikum
lék gmnur á að um eld væri að
ræða, 5 sinnum var um bilun brana-
boða að ræða og þrisvar var
Slökkviliðið narrað á árinu. Einu
sinni var um fýrirbyggjandi aðgerð
að ræða.
Utköll vegna elds vom flest að
íbúðarhúsum, 13. 11 útköll vom
vegna elds í msli, sinu eða mosa
og 8 sinnum vegna elds í ökutæki.
Um upptök eldsvoða segir í
skýrslu slökkviliðsstjóra að 13 sinn-
um hafi þau verið vegna starf-
rækslu, 7 sinnum var íkveikja orsök
elds, 6 sinnum leikur bama með
eld, 6 sinnum vegna þess að óvar-
lega var farið með eld og 6 sinnum
var ekki vitað um orsakir.