Morgunblaðið - 03.01.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987
39
V estmannaeyjar:
Utsvarið áfram 10,2%.
V estmannaeyjum.
BÆJARYFIRVÖLD I Vest-
mannaeyjum hafa ákveðið að
álagningarprósentutala útsvara
fyrir þetta ár verði óbreytt frá
fyrra ári, eða 10,2%. Um þetta
varð samstaða í bæjarstjórn.
Fasteignagjöld verða innheimt
án álags en meirihluti bæjar-
stjórnar hafði samþykkt að nýta
heimild til 25% álags á fasteigna-
gjöldin. Frá þessu var síðan
horfið vegna tillmæla ríkisstjórn-
arinnar.
Samstaða varð einnig innan bæj-
arstjórnararinnar að hækka gjald-
skrár hitaveitu, rafveitu og
vatnsveitu um 10% frá og með ný-
liðnum áramótum. Talin var þörf á
meiri hækkun en vegna tilmæla
ríkisstjórnarinnar var sæst á þessa
hækkun. Ekki hafa verið teknar
ákvarðanir um gjaldskrárbreyting-
ar annara þjónustustofnana bæjar-
ins.
- hkj.
Metsölublad á hverjum degi!
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 20.30. Stig
Östlund frá Sviþjóð talar og
syngur.
1927-1987
60ára
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir
Ferðafélagsins
Sunnudaginn 4. janúar — kl.
13.00 — veröur gengið frá Óttar-
stöðum að Lónakoti. Ekið verður
til Straumsvíkurog gengið þaðan.
Þetta er létt gönguferö á lág-
lendi. Verð 300.
Brottför frá Umferðarmiöstöö-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bíl.
Fritt fyrir börn i fylgd fullorðinna.
Ath.: Skíðagönguferð sunnudag-
inn 11. janúar. Nánar auglýst
siðar.
Ferðafélag islands.
Krossinn
Aui'ibii'kku L’ kópavoRÍ
Almenn unglingasamkoma í
kvöld kl. 20.30.
Allir velkomnir.
í íslensku og erlendum málum.
Sigurður Skúlason magister,
Hrannarstig 3, sími 12526.
Vélavörð vantar strax
á 75 tonna linubát frá Vestfjörð-
um. Upplýsingar í sima 94-3348.
Dyrasímaþjónusta
Gestur rafvirkjam. — S. 19637.
Gódan daginn!
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Auglýsing frá
ríkisskattstjóra
um skilafresti launaskýrslna o.fl. gagna sam-
kvæmt 92. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt
og eignaskatt.
Samkvæmt lokamálsgrein 93. gr. nefndra
laga hefur skilfrestur eftirtalinna gagna, sem
skila ber á árinu 1987 vegna greiðslna á
árinu 1986, verið ákveðinn sem hér segir:
I. Til og með 20. janúar 1987:
1. Launaframtal ásamt launamiðum.
2. Hlutafjármiðar ásamt samtalnings-
blaði.
3. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtaln-
ingsblaði.
4. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt sam-
talningsblaði.
II. Til og með 20. febrúar 1987:
1. Afurða- og innstæðumiðar ásamt
samtalningsblaði.
2. Sjávarafurðamiðar ásamt samtaln-
ingsblaði.
III. Til og með síðasta skiladegi skatt-
framtala 1987, sbr. 1.-4. mgr. 93. gr.
nefndra laga:
Greiðslumiðar yfir hvers konar greiðslu
fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteign-
um og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2.
tl. C-liðar 7. gr. sömu laga. (Athygli skal
vakin á því að helmingur greiddrar leigu
fyrir íbúðarhúsnæði til eigin nota vegna
tekjuársins er til frádráttar í reit 70 á
skattframtali skv. 3. tl. E-liðar 30. gr.
nefndra laga enda séu upplýsingar gefn-
ar á fullnægjandi hátt á umræddum
greiðslumiðum).
Reykjavík 1. janúar 1987,
ríkisskattsjóri.
Atvinnuhúsnæði
800-1200 fm húsnæði til íþróttaiðkunar ósk-
ast til leigu.
Vinsamlegast sendið tilboð til auglýsinga-
deildar Mbl. fyrir 10. janúar ’87 merkt: „H —
236“.
I húsnædi í boöi
Kennsluhúsnæði til leigu
Bakhúsið Amtmannsstígur 2 ertil leigu strax.
Mjög hentugt fyrir föndur eða kennslu.
Upplýsingar í síma 12371.
Lagerhúsnæði til leigu
Til leigu 390 fm lagerhúsnæði íVatnagörðum
26. Mjög góð staðsetning við Sundahöfnina.
Lofthæð í þessu húsnæði er 6-7 metrar.
Kjörið fyrir hilluvæðingu.
Daníel Ólafsson hf.,
Vatnagörðum 28,
sími 686600.
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu er ca 120 fm skrifstofuhúsnæði á
góðum stað við Laugaveg. Nafn og síma-
númer óskast lagt inn á auglýsingadeild
Mbl. merkt: „S- 12705“ fyrir 10. janúar.
Auglýsing frá ríkisskattstjóra
Vísitala
jöfnunarhlutabréfa
Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1.
mgr. 9. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt
og eignaskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað
út vísitölu almennrar verðhækkunar í sam-
bandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu
1987 og er þá miðað við að vísitala 1. jan-
úar 1979 sé 100.
1. janúar 1980 vísitala 156
1. janúar 1981 vísitala 247
1. janúar 1982 vísitala 351
1. janúar 1983 vísitala 557
1. janúar 1984 vísitala 953
1. janúar 1985 vísitala 1109
1. janúar 1986 vísitala 1527
1. janúar 1987 vísitala 1761
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars
vegar miða við vísitölu frá 1. janúar 1979
eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun
hlutafélags eða innborgunar hlutafjár eftir
þann tíma, en hins vegar við vísitölu 1. janú-
ar þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa
er ákveðin.
Reykjavík 2. janúar 1987,
ríkisskattstjóri.
Nauðungaruppboð
á m/s Helguvík ÁR 20, þingl. eign Fells hf., fer fram á eigninni sjálfri
eftir kröfum Jóns Ólafssonar hrl. og Búnaðarbanka islands miöviku-
daginn 7. janúar 1987 kl. 15.00.
Sýslumaður Árnessýslu.
Nauðungaruppboð
Eftirtaldar fasteignir verða seldar á opinberu uppboði sem hefst kl.
14.00 þriöjudaginn 6. janúar á skrifstofu sýslunnar að Hnúkabyggð
33, Biönduósi:
Hafnarbraut 7, Hvammstanga, eigandi Mjöl hf. Búland 1, Hvamm-
stanga, eigandi Vólamiðstöðin hf. Melavegur 16, Hvammstanga,
eigandi Magnús Aðalsteinsson. Hlíðarvegur 25, Hvammstanga, eig-
andi Ólafur Jónsson. Hólabraut 9, Blönduósi, eigandi Sigurjón Már
Pétursson. Bankastræti 14, Skagaströnd, eigandi Eðvarð Ingvason.
Hólabraut 29, Skagaströnd, eigandi Guðný Björnsdóttir. Húseignin
Sólbakki, Skagaströnd, eigandi Marías Bjarni Viggósson. Andrósar-
hús, Skagaströnd, eigandi Hallbjöm Hjartarsson hf.
Uppboðunum verður svo fram haldiö á eignunum sjálfum eftir nán-
ari ákvörðun uppboðsréttar.
Skrífstofu, Húnavatnssýslu, 31. des. 1986.
fundir — mannfagnaöir |
Þrettándagleði Sinawik
verður haldin í Súlnasal Hótel Sögu sunnu-
daginn 4. janúar kl. 3.00.
Stjórnin.
Bókhald og endurskoðun
Skattskil, launamiðar, ráðgjöf.
Sigfinnur Sigurðsson hagfræðingur,
sími 621697 og 686326.
Áramótaspilakvöld Varðar
Landsmálafélagið Vörður heldur áramótaspilakvöld sitt sunnudaginn
4. janúar í Súlnasal Hótel Sögu. Húsið opnað kl. 20.00. Glæsilegir
vinningar, þ. á m. flugferð, bækur og matarkarfa. Þorsteinn Pálsson
formaöur Sjálfstæðisflokksins flytur ávarp. Spilakort afhent viö inn-
ganginn — mætið tímanlega.
Landsmálafélagið Vörður.
Jólagleði
sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík
Sjálfstæðisfélögin i Reykjavik boða til jólafagnaðar I sjálfstæðis-
húsinu Valhöll laugardaginn 3. janúar nk. kl. 15.00.
Brúðubíllinn með Gústa, ömmu og Lilla mætir á staðinn, jólasveinar
koma í heimsókn, planóleikur og söngur, einnig mætir Davíð Odds-
son borgarstjóri og rifjar upp eitthvaö jólalegt. Kaffi, gos og kökur.
Kynnir veröur María E. Ingvadóttir formaður Hvatar.
Sjálfstæðismenn eru hvattir til þess að fjölmenna á þessa fjölskyldu-
skemmtun.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavlk.