Morgunblaðið - 03.01.1987, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987
43
Ungur nemur, gamall temur. Þesslr fedgar voru hæstánægð-
ir með fslenzka flskinn, sem þeir fengu hjá Long John Silverá
í Chambersburg
Texti og myndir: HG
Úr elnum af veitlngastttðum
Eatrt Park keðjunnar
Tengslin milli framleiðenda
og markaðs eru mjög mikll-
væg. Forstjórar Coldwater
og SH, þeir Magnús Qústafs-
son og Friðrik Pálsson,
heimsótti einn af veitlnga-
stöðum Long John Silverá f
sumar og skáru f Ittkin f rá sór
niður í hæfilegt stykki til
matreiðslu.
Cod Fillets
Thomas Q. Kutchera starfar hjá helldsttlunni Emplre Flsh f Milwaukee og
selur meðal annars fslenzkan flsk. Hann seglr að ekkl só nóg að selja fisk,
heldur verðl að kenna fólki hvernig hægt sé að matreiða hann.
Feðgamir Stephen og Stephen Benyo
ýsuflök, sem veitingahúsin mat-
búa hvert eftir sínum aðferðum,
áhugi á sjávarréttum í kjölfar
aukins umtals um heilsusamlegt
fæði og fleiri þátta. Við notum
um 13 lestir af íslenzkum fiski
mánaðarlega, en við matbúum
hann sérstaklega sjálfir, kaupum
ekki tilbúna fiskrétti. Við erum
nú með nýjan matseðil, þar sem
enn meiri áherzla er lögð á
íslenzka fiskinn en áður,“ sagði
Ronald J. Champe, innkaupa-
stjóri veitingahúsakeðjunnar
Eat’n Park.
„Viðskiptin við Coldwater hafa
gengið vel fyrir sig, þjónustan er
góð, gæðin mikil og framboðið stöð-
ugt. Pólk vill vita hvaðan fískurinn,
sem það borðar, er og það er okkur
mikill hagur að því að geta sagt frá
því, að við séum með íslenzkan físk,
þann bezta fáanlega. Hins vegar
erum við mjög viðkvæmir fyrir
verði, þar sem við leggjum áherzlu
á þjónustu við fjölskyldur og milli-
stéttimar og því má góður réttur
ekki kosta meira en 200 til 240
krónur." sagði Ronald J. Champe.
enda er fjölbreytni í matreiðslu
fiskretta að aukast verulega og
fólk farið að draga úr neyzlu á
djúpsteiktum fiski í kjölfar um-
ræðu um heilsusamlega fæðu.
Auk þorsk og ýsu viljum við
gjarnan selja fleiri sérstakar
tergundir svo sem grálúðu og
lúðu, en af íslenzkum fiski seljum
við nú rúmlega 2 lestir á viku,“
sögðu feðgarnir Stephen Benyo,
eldri og yngri, en þeir eiga og
reka heildsöluna Pittsburg Se-
afood.
„ Við seljum aðallega íslenzkan
físk, einkum frá Coldwatwer, en í
hvert skipti, sem verðið hækkar,
töpum við viðskiptum. Sumir taka
verðhækkuninni, aðrir reyna að
pressa verðið niður. Þriðji hópurinn
reynir aðra seljendur, en helmingur-
inn af þeim kemur alltaf aftur. Það
gera gæði fisksins. Flestir eigendur
veitingahúsa vita af íslenzka fískin-
um, enda er Coldwater með eitt
bezta kynningar- og auglýsinga-
starfið af sambærilegum fyrirtækj-
um. Vinna síðustu ára er að byija
að borga sig og fískurinn er þekkt-
ur fyrir gæðin," sögðu þeir feðgar.
Carl Benson,
forstjóri King:
Notum
9 lestir af
ís lenzkum
fiski
á mánuði
„FRAMTÍÐ fisksölu í Banda-
ríkjunum er bjartari en
nokkurrar annarrar matvæla-
sölu. Fisksalan getur ekki
annað en aukizt, en það bygg-
ist á stöðugu framboði og
gæðum eins og hjá Coldwater.
Við erum með 17 veitingahús,
þar af 11, sem opin eru allan
sólarhringinn og seljum um
3.500 máltíðir á dag að meðal-
tali. Af þvi eru um 600 gerðar
úr fiski frá Coldwater og inn-
an við 200 af öðrum sjávar-
réttum. Við notum um 9 lestir
af íslenzkum fiski á mánuði,“
sagði Carl Benson, forstjóri
Carl Benson
I
veitingahúsakeðjunnar King í
Pittsburg.
„Við byijuðum á fiskiherferð-
inni fyrir 15 árum með fiskkvöldi
á föstudögum. Þá gátu menn
borðað af fiski eins og þeir gátu
fyrir 1,99 dali, 80 krónur. Að-
sóknin varð strax svo mikil að
föstudagskvöldin dugðu ekki og
við gerðum fímmtudag að físk-
degi líka. Nú liggur við að allir
dagar séu fiskdagar. Hins vegar
hefur orðið mikil breyting á því
hvemig fólk vill fá fískinn mat-
reiddan. Upphaflega var nær
eingöngu um djúpsteikingu að
ræða, en hún hefur stöðugt hop-
að. Við byijuðum til dæmis á
pönnusteiktum fiski fyrir 2 til 3
árum og sala á honum er orðin
jöfn dúpsteikingunni.
Við kaupum mest sérstök
flakastykki, sem við skerum nið-
ur og setjum eigin húð utan um,
en óskir viðskiptavina er mjög
mismunandi eftir svæðum. Þess
vegna er erfitt að kaupa tilbúna
fiskretti en við notum þá lítillega
í físksamlokur. Við byijuðum að
kaupa físk frá Coldwater fyrir
15 árum og kaupum núna nánast
allt frá þeim. Við erum aðeins
með þorskinn og Coldwater hefur
haldið stöðugum gæðum og jafnri
stærð fískstykkja, sem er okkur
mjög mikilvægt enda er fískurinn
mest seldi einstaki rétturinn hjá
okkur. Fyrir okkur skiptir stöð-
ugt framboð mestu, gæði koma
næst og þá verð og þjónusta. Það
þýðir ekki að eiga í þessum við-
skiptum, sé ekki hægt að treysta
á að það, sem maður hefur unnið
við að kynna á matseðlinum, sé
til þegar þess er þörf,“ sagði
Carl Benson.