Morgunblaðið - 03.01.1987, Page 47

Morgunblaðið - 03.01.1987, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANUAR 1987 47 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson 1987- Spennandi ár I dag ætla ég að fjalla um árið framundan útfrá korti íslenska lýðveldsins, 17. júní 1944 kl. 14 á Þingvöllum. Eins og áður er ekki um at- burðaspá að ræða. Við skoðum þá orku sem birtist í kortinu á næsta ári, reynum að meta hæðir og lægðir, í því skyni að benda á jákvæða möguleika og vara við hætt- um. Bylting og nýsköpun Það sem helst er að gerast í kortinu á næsta ári er mót- staða Úranusar við Sól. Það táknar að miklar breytingar eru yfirvofandi eða bylting í íslensku þjóðfélagi og valda- kerfi. Nýir straumar leika um þjóðfélagið. Mikilvæg tíma- mót eru í kringum febrúar, maí og desember. AÖgát Það sem helst þarf að varast tengist í fyrsta lagi íslenskri menningu og þá ekki síst íslenskri tungu og í öðru lagi því, að auknum erlendum áhrifum fylgja jafnt slæmir siðir sem góðir. Um hið fyrr- nefnda hefur þegar verið mikið fjallað og verður ekki rætt nánar hér. Um síðara atriðið hefur minna verið flall- að og þá sérstaklega þann þátt sem tengist hryðjuverk- um. Úranus er m.a. táknrænn fyrir þá menn sem í krafti eigin sannfæringar svífast einskis, taka hvorki tillit til laga né tilfínninga annarra. Úranus gegnt Sól getur í versta tilviki táknað að hætta steðjar að æðstu mönnum þjóðarinnar sem og landinu sjálfu á næsta ári. Vonandi er að svo sé ekki en vissara er að vera við öllu búinn og byrgja brunninn áður en það er um seinan. JarÖhrœringar Þar sem Úranus er talinn tengjast jarðhræringum eru líkur á jarðskjálftum töluverð- ar, þó svo þurfí ekki að vera. Skjálftarnir geta fullt eins birst í mannlífínu. Valdatilfœrsla Þegar horft verður til baka er ég fullviss um að áranna 1987 og 1988 verður minnst sem ára mikilla hugarfars- og stjómarfarsbreytinga. Ég vil ganga svo langt að segja að gamla ísland sé að deyja og nýtt þjóðfélag tækni- og geimaldar að fæðast. Það þýðir m.a. upplausn gömlu valdablokkanna. Núverandi valdaaðilar fara að missa tök- in á uppfræðslu þjóðarinnar, nýir menn taka við og nýir siðir og nýr hugsunarháttur heldur innreið sína. Upplausn ogsköpun Þessu getur fylgt stefnuleysi og upplausn, en einnig frjóar og skapandi nýjungar. Fram- farasinnaðir einstaklihgar geta séð fram á ótalmörg tækifæri, enda eykst sveigj- anleiki þjóðfélagsins. Hvað tekur við er þó endanlega háð því hvemig til er sáð og hvem- ig á málum er haldið. Ef vel tekst til getum við skapað nýtt, fijálst og fijótt þjóð- félag. Ef aðgát er lítil stönd- um við frammi fyrir upplausn og siðleysi. Næsta ár er þvi bæði spennandi og varasamt. Það býður upp á skemmtilega möguleika en jafnframt vandasamt val. Nauðsynlegt er að landsmenn verði vel vakandi og fylgist með. Kosningar Þar sem Úranus, pláneta breytinga og róttækra bylt- inga, er sterk á kosningarári er nokkuð ömggt að kosning- ar í ár verði sögulegar, í kjölfarið fylgi ný stjóm og breytingar á (slensku flokka- kerfi. Frh. á morgun. X-9 GRETTIR / HV/ERMIG EiGUM VIE> AÐ, *KOMAST dJR P&S5ARI KLlPU? f E«i SKR'TlPf EIMMITT ÞEGAR ALLT S-þMlST VTiKI-AUST, þX 0ERST HjAuPlN / 1 ALL.T ER. _ CáOTT, PA EMPiRIMN < e(?( U T KMuLCIVd EK-KI 5UFMA- r LJOSKA jUlíus lofapi mér KAUP. HÆ.KKUN ... OG ÚG t—S jvANN 5KRIF- 'SroFUKEPPNINA ( eiLLJAKP 4 !!!!!!!!!!!!!!!!!!!H!!!!!!!!!?”?n!!!!!!!!!!!!!!!l!f? FERDINAND YE5,MAAM, I LEFT MY LUNCH BOK ONITHE CUKB BT THE BLI5 STOP... 50ME0NE 5 PROBABLY FOUNP IT BY NOU) I JUST HOPE U)I40EVEK FOUNP IT APPRECIATE5 A 600P LUNCH... Já, kennari, ég gleymdi nestiskassanum minum á gangstéttinni hjá bið- stöðinni... Líklega er einhver búinn að finna hann núna. Ég vona bara að sá sem fann hann kunni að meta góðan hádegismat... Engir kleinuhringir!?! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Ef maður lítur aðeins á spil NS virðist sem hálfslemma í hjarta sé hinn prýðilegasti tvímenningssamningur, næst á eftir sjö laufum. Sex hjörtu vinn- ast í flestum tilfellum ef trompið liggur ekki verr en 4—2. En eins- og legan var riðu menn ekki feitu hrossi frá þeim samningi. Norður gefur; NS á hættu. Norður ♦ Á1085 V Á108 ♦ - + ÁKG876 Vestur Austur ♦ KG9732 ..... ♦ D64 ▼ - ♦ 765432 ♦ ÁK93 ♦ G854 ♦ D92 ♦ - Suður ♦ - VKDG9 ♦ D10762 ♦ 10543 Norður opnaði víðast hvar á einu laufí, hvort sem það var af Precision eða Vínartoga spunnið og einstaka hugdjarfír austurspilarar köstuðu sér inn á þremur hjörtum á tvistinn sjötta! Enda hætturnar hagstæðar, eins og einhver benti á. Spilarar í suðursætinu supu hveljur og dobluðu, en vestur, sem hafði hugsað sér gott til glóðarinnar að opna rólega á einum spaða, þurfti nú að flýja í þrjá spaða. Sú sögn setur norður í nokk- urn vanda. Einhver doblaði í þessari stöðu og þrufti að beij- ast um á hæl og hnakka til að taka spilið einn niður. Sem gaf AV ljómandi góða skor, og sann- ar kannski, að oft er gott að hindra á lélega liti. En á þeim borðum þar sem austur passaði laufopnun norð- urs þróuðust sagnir með öðrum hætti. Á einu borðinu gengu þær þannig: Vestur Norður Austur Sudur — 1 lauf Pass 1 hjarta 1 spaði 2 lauf 2 spaðar 3 spaðar 4 spaðar 6 hjörtu Dobl Pass . Pass Pass Vestur var svo furðu lostinn yfir sögnum að hann spilaði sof- andi út tígulás. Sagnhafí trompaði með ásnum, lagði niður laufás og var nokkuð ánægður þegar austur trompaði. En bölv- aði í sand og ösku næst þegar hann komst að og spilaði trompi. Spilið fór 1100 niður, en það reyndist ekki toppur í AV, því einhver hafði farið 1400 niður í sama samningi. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Þetta tvísýna endatafl kom upp á opnu móti í Cap d’Agde í Frakk- landi í ár í viðureign franska alþjóðameistarans Bachar Kou- atly og kólumbíska stórmeistar- ans Alonso Zapata, sem hafði svart og átti leik. Svartur er manni yfír og á 2 öflug fripeð á g- línunni, en hvítur á hins vegar hættulegar máthótanir, sem við fyrstu sýn virðast óveijandi. Zap- ata fann laglega vöm: 2 1 jl 4 Sfcli m± i & & A i m i 39. — Be7!! (Svarta staðan er hins vegar töpuð eftir 39. — Bh4, 40. Hxe8 - g2+, 41. Ke2!) 40. Bxe8+ — Kf6, 41. dxe7 — g2, 42. Ba4 - gl=D+, 43. Kd2 - Dcl og hvítur gafst upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.