Morgunblaðið - 03.01.1987, Side 52

Morgunblaðið - 03.01.1987, Side 52
52 MO&GUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANUAR 1987 t Ást.kær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALLDÓR DAGBJARTSSON Ljósheimum 11, lést að heimili sinu að kvöidi gamlársdags. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna, Björg Áróra Hallgrímsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Faðir minn, GÍSLI GUÐJÓNSSON, Hlíð, Garðabæ, andaðist 31. desember. Kristinn Gíslason. t Móðurbróðir minn, JAKOB ÓLAFSSON frá Urriðavatni, andaðist á öldrunardeild Landspítalans 1. janúar. Oddný Pótursdóttir. t Systir mín, KRISTJANA MELLSTRÖM, lést í Stokkhólmi á gamlársdag. Fyrir hönd aðstandenda, Margrót Hallgrfmsson. t ANDRÉG. ÞORMAR, fyrrv. aðalgjaldkerl Landssíma íslands, lést í Borgarspítalanum þriðjudaginn 30. desember. Birgir Þormar, Gunnar Þormar. t Útför móður okkar, HELGU SIGVALDADÓTTUR frá Syðri-Á f Ólafsfirði, fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 5. janúar kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Jóhann Þórðarson, Björg Þórðardóttir, Helgi Þórðarson, Ólafur Þórðarson, Kormákur Bragason. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA LUISE MATTHÍASSON, verður jarðsungin frá Innri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn 3. janúar kl. 14.00. Anna Lfsa Ásgeirsdóttir, Walter Gunnlaugsson, Guðný V. Ásgeirsdóttir, Sverrir Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta Ijóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. Kveðjuorð: Svanur Rögnvalds- son bátsmaður Fæddur 14. desember 1929 Dáinn 25. desember 1986 Aðfangadagskvöld jóla er ekki aðeins kvöld friðar og fagnaðar, það er kvöld fjölskyldunnar, þá samein- ast fjölskyldur í friði og fagnaði. Oft er það svo að þegar fullorðið fólk er að lýsa bemsku- og æsku- árum sínum þá er það ótrúlega oft að aðfangadagskvöldið heima er því minnisstæðast. Slík er dýrð þessa kvölds. Hitt vill oft gleymast að sjómenn eru margir á hafí úti og beijast þá oft við válynd veður. Ég minnist þess t.d. að faðir minn átti fleiri aðfangadagskvöld á togurum á Halamiðum en heima hjá fjöl- skyldu sinni. Á seinni árum hefur þetta breyst hvað togara snertir en farmenn eru flestir á hafí úti í öllum veðrum, fjarri heimilum sínum og ástvinum. Á sl. aðfangadagskvöldi fundum við sem heima vorum ekki fýrir vondu veðri né vindum. En á jóla- dagsmorgun kom sú frétt að flutn- ingaskipið Suðurland hefði sokkið í Norðurhöfum. En ellefu manna skipshöfn hefði komist í björgunar- báta. Því miður átti þessi frétt eftir að verða dimmri, því aðeins fimm af ellefu lifðu þetta sjóslys af. Einn af þeim sem fórust þennan jóladag var æskuvinur minn, Svan- ur Rögnvaldsson. Við kynntumst strax á ungl- ingsárum, enda báðir Reykvíkingar og ég man eftir og er enn minnis- stætt að við unnum saman í frysti- húsi heilan vetur — þá komungir menn. Svanur var ákaflega eftir- minnilegur vinnufélagi — hann var allra manna kátastur í vinnu og jafnframt röskur verkmaður. Til- svör voru sérlega skemmtileg og hnyttin — vinátta okkar var góð en hann var svo skemmtilegur og orðheppinn í tilsvörum að á því sviði hafði ég ekkert í hann að gera. Hann var flestra hugljúfí á þessum vinnustað því hann hélt uppi fjöri og gerði alla kaffítíma eftirminni- lega og skemmtilega. Frá þessum tíma hélst á milli okkar órofa vin- átta, þótt samfundir væru ekki tíðir. Faðir Svans var Rögnvaldur Guð- brandsson — einn af þessum gull- tryggu Dagsbrúnarmönnum, ríkur af félagshyggju og réttlætiskennd og vann ósvikið að gengi Dags- brúnar og öllum velferðarmálum félagsins. Ef til vill hefur samstarf mitt og föður hans á þessum vett- vangi orðið til að auka vináttu okkar Svans. Móðir hans var Steinunn Bjamadóttir. Þau hjón bjuggu á Haðarstíg 15 hér í borg og þar ólst Svanur upp í hópi ijögurra systk- ina. Ofmælt væri að segja að Svanur hefði haft sama eldheita áhuga á verkalýðsmálum og faðir hans, en það fór ekki dult, neinum sem kynntist honum, að hann var einlægur verkalýðssinni. Svanur fór komungur að vinna og var aðeins sautján ára er hann fór fyrst á fískiskip. Hann var á fiskibátum, á togurum og öll hin síðari ár á farskipum. Það var aldr- ei mulið neitt undir þennan mann og hann fæddist ekki með silfur- skeið í munninum en hann hafði að vísu það veganesti sem er flestu öðm dýrmætara en það voru góðir foreldrar sem hann hlýtur að hafa átt sterkar og hlýjar minningar um. Móðir hans lést um 1950 en faðir hans fyrir einum 4—5 árum, háaldr- aður maður. Svanur gekk til allrar almennrar vinnu hress og glaður og dró hvergi af sér — en öðm frem- ur stundaði hann sjó. Gústav Sigvalda- son - Kveðjuorð -V?_ij_m ;'ií im 1 monnnBMBnnBHnnBBBaHi Dáinn 6. desember 1986 Gústi frændi, eins og hann heitir í mínum huga, var kvaddur á brott þann 6. þ.m. Ég er viss um að Gústi skilur eftir sig sterka minn- ingu hjá hverjum þeim er honum kynntist. Ég minnist hans fyrst er hann kom norður á sumrin að hon- um fylgdi alltaf hraði og ákefð. Hann var maður framkvæmdanna, lét sér ekki nægja að láta sig dreyma, þess ber glöggt vitni að ráðast í að byggja upp á Hrafna- björgum, fæðingarjörð sinni. Hann þótti oft á tíðum hijúfur á yfírborðinu eins og það fólk þykir sem er hreinskiptið og ákafasamt í verki, en hann hafði þá kosti til að bera sem ég met mest í fari hvers manns, sem voru hjálpsemi og umhyggja fyrir þeim sem eitt- hvað bjátaði á hjá. Þegar einhver þurfti á hjálp að halda var hann boðinn og búinn og ef hann vissi að einhver af hans fólki væri veikur eða á spítala þá var hann ekki langt undan. Sem dæmi þá dvaldi aldraður mágur hans á Reykjalundi í sumar og þá taldi Gústi það ekki eftir sér að heimsækja hann næstum á hveijum degi og stytta honum stundir við spjall um þeirra sameiginlegu áhugamál. Gústi fæddist þann 12. júlí I9ll að Hrafnabjörgum í Svínadal, A- Hún. og ólst þar upp. _ Hann kvæntist Ásu Pálsdóttur frá ísafírði og áttu þau þijú böm, Jónínu Guð- rúnu, Pál og Sigvalda. Hann varð búfræðingur frá Hól- um í Hjaltadal árið 1932 og var síðan í Samvinnuskólanum 1933—35. Upp frá því vann hann nær eingöngu við skrifstofustörf t.d. hjá heildverslun Jóns Loftsson- ar og hjá Ofnasmiðjunni. Frá l. janúar 1948 vann hann hjá Flug- málastjóm, fyrst sem aðalagjald- keri og síðan sem skrifstofu- og fjármálastjóri. Hann lét af störfum 1982, þá 70 ára. Sem aukastarf byggði hann upp og ræktaði á Hrafnabjörgum, keyrði oft norður, stundum um hveija helgi og dvaldi þar í öllum sínum fríum í mörg ár. Hann hafði svo sterka tilfinningu fyrir sinni gömlu sveit að slíkt er með ágætum. Slíkur athafnamaður skilur eftir sig spor hvar sem hann kemui- og sjónarsviptir er að, þá er hann hverfur. Ég er þess fullviss að Gústi frændi hefur fengið ný verkefni í nýjum heimkynnum og nýtur þar sinna kosta. Ég bið Guð að vera með hans ástvinum nú og_ ævinlega. Ásdís Hallgríms Fram eftir aldri var Svanur fé- lagi í Dagsbrún, þótt sjómennska væri aðalstarfið — sennilega hefur faðir hans skrifað hann þar inn strax er hann varð 16 ára. Ein- hveiju sinni þegar ég var ekki við, lét hann færa sig yfír í Sjómannafé- lagið — ég hefði aldrei sleppt honum. Árið 1960 giftist hann eftirlif- andi konu sinni, Fríðu Gústafsdótt- ur, þann 26. dag desembermánaðar. Þau áttu saman ijögur böm og þau eru Sjöfn, 27 ára gift Emi Óskars- syni og eiga þau tvö böm, Gústaf, 24 ára, Rúnar Guðjón, 17 ára og Jóhanna, 14 ára. Fyrir hjónaband eignaðist Svanur eina dóttur, Stein- unni, sem gift er Gunnari Bjama- syni og eiga þau þijú böm. Alltaf var kært á milli Steinunnar og hjón- anna Svans og Fríðu. Hefur Stein- unn, móðir hennar og fósturfaðir reynst Fríðu ákaflega vel í sorg hennar og erfíðleikum. Sorgin hefur knúið dyra víðar en hjá Fríðu og bömum í þessari fjöl- skyldu. Faðir hennar, Gústaf Gestsson, er orðinn 81 árs. Hann á tvær dætur, Ásgerði Þóm og Fríðu, og þær em honum ákaflega kærar og tengdasynir hans vom honum það Iíka. Sl. haust féll eiginmaður Ásgerðar Þóm, Sturla Jóhannesson frá Sturlu-Reykjum í Borgarfírði frá og var hans sárt saknað. Og nú fellur hinn tengdasonurinn frá, Svanur, en síðustu árin var Gústaf að mestu í heimili hjá þeim Svani og Fríðu. Stundum hafði ég samband við þessi ágætu hjón, en allt of sjaldan. Þau vom hvort öðm ákaflega kær. Fyrir ekki löngu síðan hitti ég Svan og sagði: „Þú ert alltaf til sjós, ferðu nú ekki að koma í land og koma í Dagsbrún aftur?“ „Ætli maður þrauki þetta ekki út til sex- tugs — em ekki komin lög þar sem sjómenn fá fullar lífeyrissjóðs- greiðslur sextugir?" Við skiptumst á einhveijum gamanyrðum og kvöddumst síðan með handabandi. Svan sá ég ekki meir. Kannske var hann kíminn á svip er hann sagði þetta, því hann hafði aldrei fengið í hendur peninga nema þá sem hann hafði unnið fyrir með erfíði og svita. Jóladagurinn síðasti er mér ekki aðeins minnisstæður fyrir þau hörmulegu tíðindi er þá bárust, en enn þá sárari er ég frétti að þessi æskuvinur minn væri meðal þeirra látnu. Hann var jarðsettur í gær, föstudaginn 2. janúar, frá Bústaða- kirkju. Á slíkum stundum em öll orð til lítils, því Svanur verður ekki grátinn úr Helju. Hans er sárt saknað af fjölda vina og ættingja. En konu hans og bömum sem eiga um sár- ast að binda votta ég samúð mína og bið þeim allrar blessunar á þeim tímum sem í hönd fara. Það er umhugsunarefni, hvort ekki sé hægt að gera einhveijar öflugri ráðstafanir til að hindra, betur en nú er, að atburðir eins og áttu sér stað síðasta jóladag endur- taki sig ekki á jafn átakanlegan hátt og þá áttu sér stað, þegar Svanur Rögnvaldsson lét lífíð ásamt félögum sínum í Norðurhöfum. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.