Morgunblaðið - 03.01.1987, Síða 64

Morgunblaðið - 03.01.1987, Síða 64
Fróðleikur og skemmtun fyrirháa semlága! Handjám- uð og fang- elsuð í Chicago og send heim V egabréf sáritun ekki fullnægjandi TVÍTUG kona frá Keflavík, Harpa Högnadóttir, var handtekin í vinnu hjá verzlun Islenzks markaðar í Chicago daginn fyrir gamlársdag, flutt handjárnuð I fargelsi og haldið þar í sólarhring. Hún kom heim til íslands á f'*'hýársdag og var henni gefin upp sú ástæða, að hún hefði ekki fullnægjandi vega- bréfsáritun, en önnur íslenzk kona með sams konar vega- bréfsáritun var látin óáreitt. Harpa fór til Chicago um miðj- an september og starfaði þar hjá íslenskum markaði, Icemart. Þá hafði hún fengið áritun hjá bandaríska sendiráðinu til sex ^mánaða. en bandaríska lögregl- :in sagði henni, að sú áritun dygði henni ekki til að starfa í Bandaríkjunum, þar sem til þess þyrfti sérstaka áritun. „Þetta mál er á misskilningi byggt,“ sagði Ófeigur Hjaltested, yfír- maður íslenzks markaðar. „Sú sem hefur starfað sem fram- kvæmdastjóri hjá Islenzkum markaði í Chicago er íslenzk og hefur sömu áritun og þessi starfsstúlka. Það mun hins vegar vera í lagi, þar sem litið er svo á að hún reki íslenzkt fyrirtæki og vinni því ekki hjá bandarísku. Þegar starfsstúlkan fór út þá ^skildist okkur að það sama ætti við um hana. Hún fer út aftur þegar áritun hennar er komin í lag og við ætlum líka að ganga í það að fá öruggari áritun fyrir framkvæmdastjórann okkar svo hún eigi ekki það sama á hættu.“ Sjá „Óskemmtileg reynsla..." á bls. 4. Morgunblaðið/BB. Harpa Högnadóttir LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Morgunbladið/Kr. Ben. Sjómannaverkfall Verkfall sjómanna hefur nú lamað sjósókn frá verstöðvum landsins. Nær öll skip og bátar eru því í höfn og þessi mynd frá Grindvík táknræn fyrir stöðuna i höfnum landsins. Vestmannaeyjar: 16pólskir skipasmiðir ráðnir að Skipalyftunni Vestmannaeyjum. SKIPALYFTAN hf. í Vestmanna- eyjum hefur fengið atvinnuleyfi fyrir 16 pólska skipasmiði og eru þeir væntanlegir til starfa hjá fyrirtækinu 9. janúar nk. Menn- irnir eru ráðnir til 6 mánaða og með mögulegri framlengingu starfstímans. Skipalyftan réð til sín í marsmán- uði á síðasta ári 12 Pólveija sem störfuðu í Eyjum í átta mánuði við góðan orðstír. Gunnlaugur Axelsson framkvæmdastjóri Skipalyftunnar sagði í samtali við Morgunblaðið að reynsla þeirra af hinum pólsku skipasmiðum væri mjög góð og hafi þeir reynst góð viðbót við heima- mennina. „Við erum búnir að auglýsa mikið og lengi eftir mönnum en þeir hafa engir fengist hér innanlands. Við höfum átt gott samband við North- em Shipyard skipasmíðastöðina í Gdansk í Póllandi og með þeirra aðstoð höfum við ráðið Pólveijana ti) okkar," sagði Gunnlaugur Axels- son. Hann sagði að það væru ekki sömu mennimir sem kæmu nú og störfuðu hjá þeim og í fyrra nema hvað sami yfirverkstjórinn kæm: aftur. Gunnlaugur sagði að mjög gott útlit væri með verkefni allt þetta ár og til þess að geta sinnt þeim hefði verið nauðsynlegt að ráða pólsku skipasmiðina til starfa. — hkj. Sjómenn og útvegsmenn: Stefnt að lausn kjara- deilunnar um helgina Ágreiningur um einstök mál lagður til hliðar á meðan á gamlársdag orðið 22% hærra en verð á olíu í birgðum hér. NOKKUR bjartsýni ríkir nú á, að samkomulag náist í kjaradeilu útvegsmanna og sjómanna, en verkfall sjómanna hófst um áramót- in. Sjómenn hafa nú samþykkt að setjast að samningaborðinu án þess að krefjast þess, að meintir verkfallsbrjótar sigli skipum sínum inn áður en samningaviðræður hefjast. Er það gert að ósk ríkissátta- semjara og hafa ágreiningsatriði um framkvæmd verkfallsins verið Iögð til hliðar meðan reynt verður um helgina að ná samkomulagi um kjaraatriðin. Akvörðun fulltrúa fiskvinnslunnar í yfimefnd Verð- lagsráðs sjávarútvegsins um að fallast á hækkun fiskverðs um 8% í stað 6% er talin greiða fyrir lausn mála, en sú ákvörðun eykur útgjöld fiskvinnslunnar um nálægt 200 milljónir króna. í gær voru 74 fiskiskip á sjó, þar af 50 togarar og togskip. Sjómenn telja um 30 togara hafa haldið til veiða með ólögmætum hætti. í samtölum Morgunblaðsins við Fulltrúar sjómanna telja 8% fulltrúa fískvinnslunnar í blaðinu í hækkun fískverðs mikilvægan þátt Nokkrar deilur hafa risið milli útgerðarmanna og sjómanna vegna veiðiferða skipa, sem hófust milli jóla og áramóta. Samkvæmt gild- andi samningum er skipum heimilt að halda til veiða á þessum tíma séu þau að físka til sölu erlendis. Hins vegar er ágreiningur um það hvort nauðsynlegt sé að skipin hafí pantað löndunardag áður en verk- fall er boðað. Ennfremur kom upp ágreiningur á Vestijörðum um lög- mæti boðunar verkfalls Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunnar og ágreiningur reis líka á Aust- fjörðum, en þar voru þijú skip að veiðum eftir klukkan fjögur á gaml- ársdag. í flestum tilfellum hafa deiluaðilar ákveðið að láta ágrein- ing um einstök mál liggja milli hluta meðan samningalota helgarinnar stendur yfír. Sáttafímdur sjómanna og útgerð- armanna hófst hjá sáttasemjara klukkan 13 í gær og stóð fram eft- ir kvöldi. Eiginlegar samningavið- ræður hefjast væntanlega í dag og verður þá líklega haldið áfram til sunnudagskvölds eða þar til sam- komulag hefur náðst. Sjá samtöl og frásagnir á bls. 26 og 27. dag kemur fram sú skoðun þeirra, að þeir hafi samþykkt hærra fisk- verð, en þeir voru áður búnir að ná samkomulagi um, til að greiða fyrir lausn kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna. Fulltrúar deiluaðila hafí óskað þess, að ákvörðun um 6% hækkun verðsins yrði endur- skoðuð í því augnamiði og það hafí fulltrúar fískvinnslunnar samþykkt. Þeir telja lar.gt sjómannaverkfall geta haft óbætanlegar afleiðingar á mörkuðum okkar erlendis og að minna fari af físki í frystingu en ella. Þeir segjast ennfremur illa sviknir náist samkomulag ekki um helgina. til lausnar deilunni enda færi hún útgerð meiri tekjur en hún eigi kröf- ur á miðað við stöðu hennar. Þessi hækkun dugi þó ekki til að tekjur sjómanna haldi í við hækkun kaup- taxta verkafólks í landi. Mismuninn verði að sækja með því að kostnað- arhlutdeildin verði felld niður í ljósi lækkunar verðs á olíu. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, segir sjómenn hafa fengið sambærilegar hækkanir og land- verkafólk með fískverðsákvörðun- inni og auk þess hafi þeir notið góðærisins 1986 engu síður en út- gerðin. Jafnframt bendir Kristján á það, að verð á olíu í Rotterdam var Gjald fyrir sjón- varp, útvarp og síma hækkar um 10% GJALDSKRÁ fyrir símaþjónustu hækkar um 10% frá og með ára- mótum. Þá hefur afnotagjald útvarps og sjónvarps verið hækk- að um sama hundraðshluta. Nú er gjald fyrir sjálfvirkan síma 585 krónur á ársfjórðungi og hvert teljaraskref 1 króna og 32 aurar. Stofngjald fyrir númer í miðstöð og línu verður framvegis 5.000 krónur. Gjald fyrir afnot af útvarpi og sjónvarpi verður 1.680 krónur en var 1.525 krónur fyrir hækkunina. Gjaldaseðlar munu berast notend- um á næstu dögum. Sjá fréttir bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.