Morgunblaðið - 03.02.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1987
Fulltrúaráð sjálf-
stæðisf élaganna í
Reykjavík:
Gengið frá
listanum
á fundi
í kvöld
FUNDUR Fulltrúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík verður
haldinn í kvöld, þar sem gengið
verður frá framboðslista flokks-
ins vegna komandi alþingiskosn-
inga. Kjörnefnd gerir tillögu
þess efnis að þau sem hlutu bind-
andi kosningu í prófkjöri flokks-
ins nú í haust, skipi sömu sæti
og þau hlutu, en þar er um 10
efstu sætin að ræða.
Sigurbjörn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæð-
isflokksins, mun skipa 11. sæti
listans, í stað Vilhjálms Egilssonar,
sem hlaut það sæti í prófkjörinu.
Kjörnefnd mun gera tillögu um
mörg ný nöfn í 11. til 36. sæti list-
ans og samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins verður enginn á
listanum, sem hafnaði neðar en í
10. sæti í prófkjöri flokksins.
Auðun Svavar Sigurðsson læknir
hefur sagt að hann og fleiri muni
leggja til að Ragnhildur Helgadótt-
ur verði ekki á framboðslista
flokksins, veiti hún ekki „skýr svör
um afstöðu sína til Borgarspítal-
ans“. Ragnhildur Helgadóttir
heilbrigðisráðherra var í gær spurð
álits á þessum orðum Auðuns Svav-
ars: „Málflutningur þessara manna
í þessu máli hefur nú verið slíkur,
að hann getur ekki talist málefna-
legur. Ég get varla ímyndað mér
að tillaga þessa efnis komi upp á
fundinum. Ég get tæpast tekið al-
varlega hótanir í minn garð, vegna
afstöðu minnar í máli, sem er ekki
einu sinni komið til kasta þings-
ins,“ sagði Ragnhildur og bætti við
að hún svaraði slíkum hótunum
ekki að öðru leyti. Hún kvaðst hafa
fengið upphringingu frá einum yfir-
lækni Borgarspítalans, sem hefði
greint henni frá því að enginn yfir-
lækna spítalans stæði að þessu, og
að vinnubrögð sem þessi væru þeim
algjörlega á móti skapi.
Fróði AR 33
Ljósm.Snorri Snorrason
Ég komst þá upp í lensportið og
reyndi að halda Ingólfi uppi og
okkur tókst að halda honum við
bátinn á meðan Einar losaði sig.
Við náðum handlegg Ingólfs inn-
fyrir og bandið sem ég var með í
höndunum vafðist utan um hand-
legginn á honum og þá hífðu þeir
okkur báða upp og Ingólfur komst
hálfur innfyrir en það var ekki nóg
svo að aftur var híft og þá tókst
þetta.
Það var jú dálítið vont að hífast
upp með Ingólfi en við vorum
flæktir saman og þetta var eina
ráðið. Það má segja að það hafi
verið kraftaverk að hann fór ekki
niður með netinu því það straukst
ar. „í fátinu tókum við ekki eithvað
rétt til netsins en Ingólfur náði að
hanga í netinu en ekki að festa sig
í því. Þá fórum við tveir útí og
reyndum að festa hann í netinu sem
tókst ekki og ekki heldur að láta
hann hanga í bjarghringnum. Eftir
þetta vorum við báðir orðnir nokk-
uð slappir og þá tóku þeir Helga
inn og ég gerði sem ég gat að
flækja Ingólf í netinu en hann rann
úr því en ég sjálfur festist í því á
löppunum og var hífður inn á gilsin-
um eins og kjötskrokkur. Á meðan
náðu hinir honum innfyrir.
Það var þama um líf og dauða
að tefla og alir á bátnum löðu sig
Það var um líf eða dauða að tef la
Selfossi.
SKIPVERJAR á Fróða ÁR 33 frá
Stokkseyri unnu það afrek í gær
að ná einum skipsfélaga sínum,
Ingólfi G. Vigfússyni, um borð
eftir að hann féll útbyrðis um
13 mílur norðvestur af Surtsey
í suðvestan sjó og miklum velt-
ingi.
Mikll veltingur og kuldi gerðu
að verkum að erfiðlega gekk að
ná Ingólfi um borð. Tveir skip-
veijar, Helgi Valur Einarsson 17
ára háseti og Einar Guðbjartsson,
stukku í sjóinn Ingólfí til aðstoðar
við að komast um borð aftur.
Helgi Valur sagðist hafa verið
sofandi og vaknað við það þegar
kallað var að Ingólfur væri farinn
fyrir borð. „Ég sá að Ingólfur var
ber að ofan í sjónum og klæddi
mig strax úr og var tilbúinn að
fara í sjóinn á eftir honum. Einar
stýrimaður undirbjó sig líka. Ég
batt um mig línu og hékk fyrst
utan á borðstokknum en Einar fór
strax ofaní og ég síðan á eftir. Við
reyndum að veija Markúsametið
utan um hendumar á honum en
hann var þá orðinn það máttfarinn
af kulda og gat lítið hjálpað til.
Við reyndum að hífa hann á gilsin-
um en það tókst ekki, hann rann
úr netinu en Einar fór upp með
því. Við reyndum líka að setja hann
í bjarghringinn en hann lak úr
honum líka.
allan tímann við hann.
Það var all svakalega kalt í sjón-
um og maður varð fljótt dofinn en
maður hugsaði ekkert útí það. Það
eina sem vit var í þama var að
henda sér útí,“ sagði Helgi Valur
Einarsson háseti sem var í sínum
sjöunda túr á þessari vertíð.
Éinar Guðbjartsson stýrimaður var
ásamt Ingólfí og vélstjóranum við
að leggja netin þegar óhappið varð.
Þeir urðu strax varir við að hann
fór útí og kölluðu í skipstjórann
sem stöðvaði bátinn strax.
„Hann hékk á lunningunni og
við náðum ekki að koma honum
innfyrir. Þá hentum við til hans
spotta og síðan netinu", sagði Ein-
fram og unnu mikið þrekvirki.
Maður hugsaði um það eitt að ná
manninum um borð hvað sem það
kostaði. Það réði úrslitum í restina
að strákamir komu böndum á Ing-
ólf og það náðist að hífa hann
innfyrir," sagði Einar Guðbjöms-
son stýrimaður. Hann gat þess
einnig að atburður sem þessi
hnippti í menn að vera betur á
verði varðandi öryggisatriði og
þjálfun í réttum viðbrögðum þegar
eitthvað gerðist. Það væri aldrei
of vel gert í slíku efni og eftirá
sæju menn hvað hefði getað farið
betur en mest um vert hefði verið
að giftusamlega tókst til.
Sig. Jóns.
Steingrímur Hermannsson um Utvegsbankann:
Hlutafélag með þátttöku
Lands- og Búnaðarbanka
Kemur ekki til greina, að sögn Þorsteins Pálssonar
STEINGRÍMUR Hermannsson
forsætisráðherra telur að til
greina komi að stofnað verði
hlutafélag um Útvegsbankann
með einhverri aðild Landsbanka
og Búnaðarbanka, í stað þess að
Útvegsbanki og Búnaðarbanki
verði sameinaðir. Þorsteinn Páls-
son fjármálaráðherra segir að
þessi hugmynd framsóknar-
manna komi ekki til greina.
Forsætisráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að fram-
sóknarmenn hefðu enn þær
hugmyndir, að heppilegast væri að
sameina Búnaðarbanka og Útvegs-
Ríkissaksóknari:
Ekki krafist afkynjunar
RÍKISSAKSÓKNARI hefur
ákveðið að hafa ekki uppi kröfu
um afkynjun manns, sem
ákærður var á föstudag fyrir
kynferðisafbrot. Að áliti ríkis-
saksóknara eru hvorki efnisrök
„Víkjum ekki af réttri leið“:
Þorsteinn Páls-
son með almenna
slj órnmálafundi
Fyrsti fundurinn í Vestmannaeyjum á fimmtudag
Sjálfstæðisflokkurinn heldur á
næstunni fimm almenna stjórn-
málafundi með yfirskriftinni:
„Víkjum ekki af réttri leið“. Þor-
steinn Pálsson, formaður flokks-
ins, flytur ræðu á fundunum sem
nefnist: „í upphafi kosningabar-
áttunnar“.
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
sagði í gær að tilgangur fundanna
væri að koma á framfæri sjónarmið-
um flokksins og kynna hvað helst
hefði verið á döfinni í stjórnarsam-
starfinu. Þá yrði sagt frá því sem
Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að
leggja áherslu á í kosningabarátt-
unni og næstu stjóm.
Fyrsti fundurinn verður í Akóg-
es-húsinu í Vestmannaeyjum,
fimmtudaginn 5. febrúar kl. 21.
Miðvikudaginn 11. febrúarkl. 20.30
verður fundur í félagsheimilinu
Stapa í Ytri-Njarðvík, á Hótel
Ísafírði laugardaginn 14. febrúar
klukkan 13.30, í Valaskjálf, Egils-
stöðum, föstudaginn 20. febrúar
klukkan 20.30 og á Akureyri laug-
ardaginn 21. febrúar klukkan 16.
Eftir ræðu Þorsteins verða al-
mennar umræður. Fundimir eru
öllum opnir.
né lagarök til að krefjast af-
kynjunar mannsins.
í september sl. ritaði Svala
Thorlacius hrl. grein í Morgun-
blaðið, þar sem hún rakti afbrota-
feril mannsins, en Svala er
lögmaður drengs sem varð fyrir
kynferðislegri áreitni hans. í grein
sinni sagði Svala að hún mundi
óska eftir því að ríkissaksóknari
hefði uppi þá kröfu að manninum
yrði gert að gangast undir afkynj-
unaraðgerð. Heimild til slíkrar
aðgerðar er að finna í lögum
16/1938, en þar segir: „Afkynjun
skal því aðeins leyfa, að gild rök
liggi til þess, að óeðlilegar kyn-
hvatir viðkomanda séu líklegar til
að leiða til kynferðisglæpa eða
annarra hættulegra óbótaverka,
enda verði ekki úr bætt á annan
hátt.“
Svala Thorlacius sagði í gær
að hún hefði skrifað þessa blaða-
grein í þeim tilgangi að vekja fólk
til umhugsunar um þessi mál og
það hefði tekist. „Ég er mjög
ánægð með undirtektir almenn-
ings, en það kemur mér á óvart
að ríkissaksóknari skuli ekki nýta
sér þá refsiheimild sem fyrir hendi
er,“ sagði Svala. „Mér var ljóst
að þetta mál væri mjög umdeilt
meðal lögfræðinga, en þykir mjög
miður að ekki skuli vera látið
reyna á þetta fyrir dómstólum."
banka í einum ríkisbanka. Þeir
hefðu hins vegar fjölmargar at-
hugasemdir fram að færa við þá
hugmynd að stofna hlutafélag um
þann banka. „Það er ýmislegt sem
við teljum að þyrfti að athuga nán-
ar, ef fara ætti þá leið,“ sagði
Steingrímur, „en við lögðum til á
fundinum með ráðherrum Sjálf-
stæðisflokksins í morgun, að farin
yrði eins konar millileið í þessu
máli. Við teljum að stofna mætti
hlutafélag um Útvegsbankann, með
einhverri aðild Búnaðarbankans og
Landsbankans. Með því yrði reynt
að samræma bankakerfið, og hægt
yrði að heimila að allur hlutur ríkis-
ins í þeim banka yrði selt.“
Steingrímur sagði í þessu sam-
bandi að jafnvel væri hægt að
heimila að erlendur aðili ætti ein-
hvern hlut að bankanum. „Mér
finnst þetta vera nokkuð góð hug-
mynd,“ sagði Steingrímur, „en hún
virðist ekki fá hljómgrunn í röðum
sjálfstæðismanna."
Þorsteinn Pálsson Ijármálaráð-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að þessi hugmynd
framsóknarmanna kæmi ekki til
greina í hans augum. „Við bíðum
enn eftir því að fá að vita hver af-
staða framsóknarmanna er ' til
þeirrar iillögu viðskiptaráðherra,
sem við í þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins samþykktum að fara fyrir
hálfum mánuði," sagði Þorsteinn.
Óformleg skoðanakönnun fór
fram á þingflokksfundi Framsókn-
arflokksins í gær um afstöðu
þingmanna til sameiningarmála
bankanna, að sögn Steingríms Her-
mannssonar, en hann vildi ekki
upplýsa hver niðurstaðan hefði orð-
ið. Hann sagði einungis að ekki
yrði hægt að taka endanlega ák-
vörðun í þessu máli á ríkisstjómar-
fundi í dag, því ráðherrar
Framsóknarflokksins myndu þurfa
að leggja málið fyrir þingflokkinn
á nýjan leik.
Leiðrétting frá Eyjólfi Konráð Jónssyni:
„Atlantshafsbandalag-
ið mikilvægasta banda-
lag íslandssögnnnar“
fjarri sanni“, sagði Eyjólfur Konráð
í samtali við Morgunblaðið. „Atl-
antshafsbandalagið er það banda-
lag sem íslendingum er og hefur
verið mikilvægast allra þeirra al-
þjóðasamtaka sem við höfum verið
þátttakendur í. Og ekki aðeins höf-
um við verið þáttakendur í þessu
bandalagi heldur höfum við einnig
átt drjúgan þátt í að það varð það
sem það er, skjöldur lýðfrelsis í
heiminum. Atlantshafsbandalagið
er því íslenskt að hluta til jafnframt
því að vera alþjóðleg samtök," sagði
Eyjólfur Konráð Jónsson.
EYJÓLFUR Konráð Jónsson, al-
þingismaður og formaður ut-
anrikismálanefndar Alþingis,
hefur óskað eftir að taka fram,
vegna fréttar á baksíðu Morgun-
blaðsins siðastliðinn föstudag, að
hann hafi aldrei talað um Atl-
antshafsbandalagið sem „erlent
hemaðarbandalag", eins og gef-
ið er í skyn í fréttinni.
„í umræddri frétt Morgunblaðs-
ins telur blaðið sig hafa það eftir
áreiðanlegum heimildum að ég hafi
nefnt Atlantshafsbandalagið „er-
lént hernaðarbandalag", sem er