Morgunblaðið - 03.02.1987, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.02.1987, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1987 Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík 120 ára Stofnað 3. febrúar 1867 eftirJón Böðvarsson Á 200 ára afmæli Reykjavíkur- borgar söfnuðust saman 60—70 þúsund Islendingar hvaðanæva af landinu. Mannþröng var samfelld frá Iðnskólahúsi upp á Arnarhóls- bi-ún. Yfir gnæfði stytta af Ingólfi Arnarsyni. I sólskini þess dags varð atburðurinn þjóðhátíð enda er höf- uðborgarskynjun landsmanna einkum bundin kvosinni milli áður- nefndra mannvirkja sem bæði eru minnisvarðar um starfsemi Iðnað- armannafélagsins í Reykjavík. í kaupstaðarsögu Reykjavíkur eru aldimar tvær næsta ólíkar. Á hinni fyrri var atvinnu- og menning- arlíf fáskrúðugt í smákaupstað þeim. Á aldarafmælinu voru íbúar Reykjavíkur innan við 2.000 en landsmenn allir tæplega 70.000 — álíka margir og afmælisgestir 18. ágúst 1986. En síðari öldin einkenn- ist af svo örum umskiptum að minjar frá hinni fyrri eru fáar og fyrirferðarsmáar. Sé að hugað bein- ist athygli helst að gömlum húsum, síður að menningar- og félagslífi og er það að vonum því að fá íslensk félög geta rakið rætur sínar til 19. aldar og engin lengra aftur. Elst og merkust teljast Hið íslenska biblíufélag og Hið íslenska bókmenntafélag. Bæði hafa frá öndverðu starfað á landsvísu og Reykjavík verður ekki miðstöð hins síðarnefnda fyrr en eftir síðustu aldamót. Ég hygg að Iðnaðar- mannaféiagið í Reykjavík sé elsta félag sem enn er við lýði og ein- skorðað hefur starfsemi við höfuð- borgarsvæðið. Saga þess samvefst gömlum húsum og þræðir iiggja allt til innréttingatímans þegar Reykjavíkurkaupstaður varð til vegna iðnrekstrarhugsjóna Skúla Magnússonar. Ekki stóð Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík styrkum fótum í fyrstu. Stofnfélagar voru 31 en 15 töldust félagsmenri röskum áratug síðar. Ekki urðu þeir 100 talsins fyrr en skömmu fyrir fertugsafmælið og fá munu þau ár þegar tala skuldlausra félaga hefur hærri verið en 300. — Á 120 ára æviskeiði Iðnaðarmanna- félagsins í Reykjavík hafa þær stundir komið að því hefur vart verið líf hugað vegna fámennis. Því vekur furðu hve afrekssaga félags- iris er glæst og áhrif þess víðtæk. Upphaflega var því ætlað „að styrkja samheldni meðal handiðn- aðarmanna, efla framfarir í inn- lendum iðnaði og styðja að gagnlegum og þjóðlegum fyrirtækj- um“ en varð aldrei að stéttarfélagi. Aðalviðfangsefni þess hafa ávallt verið menningarmál af ýmsu tagi. Ekki verður atburðasaga rakin hér — aðeins fáum svipmyndum á loft brugðið. í upphafi greinar var minnst á Iðnskólann gamla og Ingólfsstyttu. Vart leikur vafi á að höggmynd Einars Jónssonar á Arnarhóli setur tignarsvip á höfuðborgina. Frumgerð hennar birtist í dönsk- um blöðum 1906. Ekki hafði lista- maðurinn efni á að fullvinna verkið enda kostnaður talinn nema 175 kýrverðum en varð miklu meiri. Ríkisþing Dana heyktist á að gefa íslendingum styttuna og ákvað þá Iðnaðarmannafélagið á almennum fundi í septembermánuði sama ár að standa straum af kostnaði. Löng og torsótt reyndist leið að marki en höggmyndina færði félagið nkis- stjórn Islands að gjöf 24. febrúar 1924 við hátíðlega athöfn. Tillögu- flytjandi, Jón Halldórsson trésmið- ur, afhjúpaði styttuna en vígslu- ræðu flutti hinn styrki brautryðjandi, Knud Ziemsen, verk- fræðingur og borgarstjóri. Þá voru tæpir tveir áratugir liðnir síðan fé- lagið lauk við að reisa Iðnskólann við Lækjargötu. Vart hafa margir sem í mannþyrpingu stóðu 18. ágúst 1986 hugleitt að umhverfis stóðu reisnarlegir minnisvarðar um farsæl störf Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík sem umgjörð hátíðar- sviðs — og fáir vita lengur að keðjan haglega sem borgarstjóri ber við hátíðleg tækifæri er gjöf frá sama félagi. Afskipti af iðnfræðslumálum er sjálfsagt sá þáttur í starfi Iðnaðar- mannafélagsins sem alrnenningur þekkir best. Félagið hóf þá fræðslu 1869 — tveim árum eftir stofnun þess — og hafði af henni allan veg og vanda áratugum saman. Fleiri komu til skjala er fram liðu stundir en stoðum má renna undir þá stað- hæfingu að félagið hafi sinnt stefnumótun í iðnfræðslumálum í tæpa öld — frá stofnun uns núgild- andi fræðslulög voru samþykkt 1966. Einnig reisti það á eigin kostnað iðnskólahús við Lækjar- götu sem áður segir og hafði forgöngu um byggingu stórhýsis á Skólavörðuholti þar sem Iðnskólinn í Reykjavík hefur aðsetur. Reykjavíkurborg og ríkissjóður eiga nú hús þessi en dijúg mun eignarað- ild félagsins í Húsi iðnaðarins við Hallveigarstíg. Fróðlegt væri að ræða um og reyna að meta áhrif þeirra fimm iðnsýninga sem félagið hélt á árabil- inu 1883—1949 en ekki verður þess freistað hér. Ég minni á að félagið hélt myndlistarsýningu 1977 þar sem eingöngu voru sýnd verk eftir íslenska iðnaðarmenn — og merka sýningu list- og nytjamuna úr tré Ljósmynd/Ljósmyndastofa Þóris Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík er 120 ára í dag. Fyrsti formaður félagsins var Einar Þórðarson, prentari. Alls hafa verið 20 formenn í félaginu. Myndin er af núverandi stjórn og skemmtinefnd félags- ins. Sitjandi við borðið frá vinstri; Sigríður Bjarnadóttir, hárgreiðslumeistari, gjaldkeri, Siguroddur Magnússon, rafverktaki, ritari, Gissur Símonarson, húsasmíðameistari, formaður, Benóný Kristjánsson, pípulagningameistari, vararitari, og Helgi Hallgrímsson, húsgagnaarkitekt, varaformaður. Standandi f.v.: Guðmundur J. Kristjánsson, veggfóðrarameistari, formaður skemmtinefndar, Ólafur Jónsson, mál- arameistari, varamaður í stjórn og Orn Guðmundsson, veggfóðrarameistari, í skemmtinefnd. VERSLUNIN HÆTTIR, ALLAR VORUR MEÐ MIKLUM AFSLÆTTI. STENDUR AÐEINS í ÖRFÁA DAGA. NÚ SELJUM VIÐ FULLT AF NÝLEGUM VÖRUM Á VERKSMIÐJUVERÐI PRÁ GEFJUN. ALLT Á AÐ SELJAST. HERRARÍKI, GLÆSIBÆ ÞAKKAR VIÐSKIPTAVINUM SÍNUM FYRIR VIÐSKIPTIN Á LIÐNUM ÁRUM. // mmÞ InfelF ilKlnl IN i\m\\ GLÆSIBÆ S:34350
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.