Morgunblaðið - 03.02.1987, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.02.1987, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1987 Kveðjuorð: Sr. EiríkurJ. Eiríks- son fv. prófastur Fæddur 22. júlí 1911 Dáinn ll.janúar 1987 Vökumaður, hvað líður nóttinni? Þegar síra Eiríkur J. Eiríksson flutti sína fögru áramótaræðu á nýjársdag í útvarpi með stálhljómi íslenskrar tungu, og fór snilldarlega með nokkur vers eftir Hallgrím Pétursson, þá barst oss til eyma rödd vökumannsins. Ævi hans er öll, rétt eftir ára- mót. Það er eins og lokið sé mikilli hljómkviðu. Lófatak síðast — síðan þögn um stund — og gengið úr hátíðasal til hversdagslegra daga. Séra Eiríkur lifði jól síðasta árs heill að sjá og umvafínn mörgum ástvinum sinnar stóru fyölskyldu, einnig gamlárskvöld — kvöld upp- gjörs og alvöru. Hann söng með sinni hljómsterku rödd í heimilisins hópi á sínu 75. gamlárskveldi. Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka. Nú gengin er sérhver þess gleði og þraut. Það gjörvallt er runnið á eilífðar braut. En minning þess víst skal þó vaka. En hvers er að minnast og hvað er það þá, sem helst skal í minningu geyma? Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá. það flest allt er horfið í gleymskunnar sji En miskunnsemd Guðs má ei gleyma. Sálmurinn heldur áfram sem heilsteypt listaverk,_ sem ekki á að rjúfa í kirlqusöng. Ég tek næst hið síðasta erindi. Ó gef þú oss Drottinn enn gleðilegt ár og góðar og blessaðar tíðir. Gef himneska dögg gegnum harmanna tár, gef himneskan frið fyrir lausnarans sár og eilífan unað um síðir. V.B. Þannig hafa endað öll ár, sem ég man á sorgblöndnum tónum kveðjunnar ásamt huggandi von og bæn. Síðan byrjar Matthías Jochums- son nýja árið á þeirri spumingu, sem allir spyrja með honum. Hvað boðar nýjárs blessuð sól, og hann svarar sjálfur: Hún boðar náttúrunnar jól. Hún flytur líf og líknar ráð Hún Ijómar heit af Drottins náð. Hér fer þá „í gegnum lífsins æðar allar sá ástargeisli Drottins", sem skín í gegnum þjóðsöng vom og alla sálma Matthíasar Jochums- sonar. Matthías heldur áfram með nýj- árssálminn, listaverkið, ei má það rjúfa í kirkjusöng. Ég tek hér næst það vers, sem fer hæst. Hann heyrir stormsins hörpuslátt. Hann heyrir bamsins andardrátt. Hann heyrir sínum himni frá hvert hjartaslag þitt jörðu á. Þetta segir skáldið áður en vísindamenn vorra daga horfðu á það frá himni jarðstjömu vorrar, hvemig hjarta geimfarans, sem fyrstur kom til tunglsins, titraði ofurlítið þegar það óafturkallanlega augnablik rann upp, er hann varð að sleppa geimferjunni og hann tengdi stjómklefa sinn við tungl- ferjuna, þegar hann var að koma inn í þann heim, sem annar geim- fari síðan sagði um, er hann var beðinn að lýsa útsýni tunglsins fyr- ir jarðarbúum, að hann gæti það ekki af því að sér væri ómögulegt að líkja útsýni á mánanum við neitt, sem hann hefði séð á jörð- unni. Þess vegna gæti hann engum jarðarbúa gert það skiljanlegt, hvemig það útsýni væri, sem hann sá þar. Þannig var það þá að vera stadd- ur á þeirri nágrannastjömu, sem skáld hefur kaliað „lampa nætur". Það útsýni hefur aldrei áður í nokkurs manns huga komið. Og samt er máninn jarðneskur heimur. Og fyrst menn hér á jörðu geta fylgst með hjartslætti geimfarans á tunglinu, hvað mun þá um sjálfan Drottin og hjörtu vor. Getur það verið ótrúlegt á vorri tækniöld að rétt sé lýst sambandi Drottins við oss, þegar hið Guðinn- blásna skáld vort segin Hann heyrir sfnum himni frá, hvert hjartaslag þitt jörðu i Oft hef ég orðið þess vör, að þetta fagra erindi er mörgum ung- um bömum mjög hjartfólgið. Svo skarpt, einfalt og skýrt er þessi háleita hugsun orðuð, að hún geng- ur beint til hjartans og vekur skilninginn, ellegar það gerist, sem kallað er Heilags anda upplýsing. En titrar ekki hjarta mannsins ofurlítið, jafnvel hins hugrakkasta geimfara, þegar sleppa skal geim- ferjunni og tengja stjómklefa sinn þeim vagni, sem flytur inn í nýjan himin á nýja jörð? Vonandi kemur sendiboði Guðs að sækja þann, sem deyr — og vandinn þá ekki eins mikill og hjá geimfaranum. Tístrengjuð gullharpa tveggja skálda fylgir oss enn í gegnum hver áramót, eftir hundrað ár frá því að nýja sálmabókin kom út 1886. Það þótti mikið og merki- legt, þegar Hallgrímssálmar höfðu lifað hjá þjóð vorri í tvö hundruð ár, og Matthías orti: „Atburð sé ég anda mínum nær“. Nú eru aldimar orðnar þijár. Og enn er Hallgrímur lesinn í útvarp hjá þessari þjóð. Valdimar Briem og Matthías hafa fylgt oss eina öld, glatt og hughreyst með sálmum sínum. Enn em sálmar þeirra jafnferskir eins og fyrst er þeir komu fram. Þeir lifa einnig næstu hundrað ár til ársins 2086—7, og enn í hundrað ár eins og Hallgrímur, ef íslenska þjóðin lifír, ef hún kann það tungu- mál áfram, sem Hallgrímur, Valdi- mar og Matthías ortu á. Ennþá eigum við menn svo máli fama að hægt væri, ef keppt er eftir því, að láta vora ungu kynslóð heyra hvað er íslenska og hvað er popp-íslenska, eða ensk-íslenska. Nú er sá íslands hlynur kvaddur, sem átti það tungutak er skólaæsk- an skyldi fá að heyra. Sú er tækni vors tíma að það er hægt. Séra Eiríkur J. Eiríksson var af þeirri kynslóð, sem las Mannkyns- sögu Þorleifs H. Bjamasonar. Þar vom ekki eingöngu nöfn og ártöl, eins og þetta væri símaskrá aftan úr fomeskju. Þar var sá gréinarmunur gerður á Pýþagórasi og Demosþenesi, að sagt var frá reikningslist þess fyrr- nefnda — en um Demosþenes, að hann hefði að upphafi verið fremur málstirður og veikróma. Hann gekk með sjó ungur maður og hrópaði í kapp við öldur hafsins, þar til mál hans heyrðist yfír brimgnýinn. Jafnvel hafði hann látið stein í munn sér að auka torveldi tungunn- ar. — Síðan náði rödd hans yfír mannfjölda á miklum útisvæðum — einnig of endilangan sal í stórhýsum Rómaborgar. Þannig náði framsögn fomskálda vorra of endilangan sal í konunga- höllum. Flest höfðu þau skáld sem farmenn lært að hrópa gegnum öld- ur hafs og veðurdyn. Mér kom stundum í hug, þegar ég hlustaði á séra Eirík flytja mál sitt, að hann hefði ef til vill ungur drengur lesið um Demosþenes — og Eyrbekkingurinn æft sig á brim- strönd, þar sem aldan dynur og aldan togar. Öldufaldamir hrynja. Um hann má segja: Mál hans rann sem ránarfall, rómurinn blíður, hár og snjall; gnóg var spekt og fræði fróð fólgin djúp í hyggjusjóð. Þannig lýsir M.J. fegurð íslenskr- ar tungu í munni orðsnillingsins. Næstu Ijóðlínur þessa erindis eiga hér ekki við. Þau völd, sem rætt er þar um, vom ekki vald séra Eiríks. Því síður að hann væri „vélaráðum slunginn höldur". Frá séra Eiríki hygg ég að þær Kveðjuorð: L. Winston Hannes son - kennari í nokkram orðum langar mig að minnast fyrrum enskukennara míns Winston Hannesson. Þessar línur era ekki skrifaðar í hlutverki neins fyrirmyndamem- anda, sem ég varla var. Kynni okkar náðu lítt út fyrir kennslustofuna. En fyrir að kynnast vel kennaranum og nokkuð persónunni Winston verð ég ævinlega þakklátur. Er árin líða kann maður æ betur að meta og skilja hvaða kennarar sköraðu fram úr í menntaskóla. Hveijir ætíð með- höndluðu kjamann, en héldu hismínu víðs fjarri. Ég naut leiðsagnar Winston í síð- ásta enskuáfanga mínum á mála- sviði. Þar var viðfangsefnið Shakespeare sjálfur. Við að kynna okkur verk og orðsins æði þessa mesta skáldjöfurs allra tíma leynd- ist engum að Winston naut hverrar mínútu. Og nemendur um leið. Með leiftrandi gáfum, hreinskilni, rögg- semi, kímni og án vífilengja var flóknu og stórkostlegu efni miðlað beint til nemenda. Mig hefði langað að kynnast Winston enn betur. En slíkt er allt- af erfíðara í fjölmennum skóla. Með aðeins þriggja ára millibili era þau kvödd hinstu kveðju hjónin Jóhann S. Hannesson og Winston Hannesson, hverra beggja leiðsögn verður mér ógleymanleg. En kannski gat vart öðravísi farið, eins einlæg og samrýnd þau komu manni fyrir sjónir. Maðurinn telur sig máttugan á jörðu hér. En mót dauðanum er hann álíka máttugur og strá á miðj- um akri. Guð blessi minningu Winston Hannesson. Minning deyr aldrei. Ég votta Wincie og fjölskyldu hennar mína dýpstu samúð. Pétur VaJdimar, Gaulveijabæ. tillögur einar hafí komið, sem vóra göfugs manns ráð úr góðum sjóði hjartans. Ég minnist einnar ræðu séra Eiríks er margþætt var að vanda. Þar í vora þessi orð: „Vér eram óviðbúnir að taka krossinn hans á oss, að bera krossinn Krists." Þessi orð, þegar hann sagði þau, brenndu sig inn í huga minn. Löngu seinna vissi ég að þau hjón höfðu ung misst lítið bam. Og orð hennar seinna í öðra sam- bandi minntu mig á sorg þeirra, án þess hún nefndi það. — Hún sagði: Það er líka aðdragandi dauðans, sem oft er svo sár.“ Það voram við öll minnt á þessi síðustu jól ársins sem var að kveðja fyrir skemmstu. Tárvot jól hjá tveimur eyþjóðum, annars vegar á vora mannfæðarl- andi, hins vegar á Stóra-Bretlandi. Og áramótaskáldin vora tvö, þau þekktu líka „það hið blíða blandið stríðu". Þeir kvöddu báðir heimili sín ungir drengir, annar tíu ára, hinn ellefu ára gamall. Það era lífsreyndir menn og þó ungir, sem ortu ívitnaða áramóta- sálma. Þeir umvefya sorgir mann- anna blíðum tónum. „Hið mikla djúp, hið litla tár“. MJ. Og V.B.: „Gef himneska dögg gegnum harmanna tár.“ Gef himneskan frið fyrir Lausnarans sár, og cilífan unað um síðir“. Er hægt að bera fram fegri bæn fyrir sorgbitnum ástvinum? Getur það verið satt, sem bók- menntamaður sagði fyrir nokkram áram í blaði, að Matthías Jochums- son væri úreltur? Og listamaður sagði við mig, að Valdimar Briem væri gleymdur. Valdimar og Matthías geta hvorki verið úreltir né gleymdir á meðan íslensk tunga er til í þessu landi. Matthías segir það, sem hér á við: Aldrei er svo bjart yfir öðlingsmanni, að ekki geti syrt jafn sviplega og nú. Aldrei er svo svart yflr sorgar ranni að ekki geti birt fyrir eilifa trú. Séra Eiríkur var stundum í firðar sal, eins og hann væri oss fjær. Hann týndi samt aldrei bókaher- berginu sínu. En hann gerði það, sem enginn stór bókasafnarí hefur gert, svo ég viti. Hann gaf í lifanda lífi með Sigríði Kristínu eiginkonu sinni allt hið mikla, dýrmæta bókasafn. Eng- in bók undanskilin. Tveir menn sammála á jörðinni, þeim er allt mögulegt, segir Jesús sjálfur. A bak við þessa miklu gjöf stend- ur andlegur auður einn saman, einnig samheldni fyölskyldu, þar sem era tíu fullorðin böm og mörg tengdaböm. Séra Eiríkur hefði getað sagt með Stefáni Ólafssyni: Björt mey og hrein mér unni ein á ísa-köldu landi. Lengra nær þó samlíkingin ekki. Hann bar aldrei sárt mein fyrir þá silkirein, — og var aldrei sviptur því tryggðabandi. Séra Eiríkur, sem oft sat hljóður og hugsi, hann gat haldið heilu samkvæmin í glaðri stemmningu, síðan allt í einu komið öllum til að staldra við í djúpri alvöru, aftur léttari tónn, fróðleiks og sögu. Séra Eiríkur var: Þéttur á velli og þéttur í lund þrautgóður á raunastund. (Gr.T.) Augu hans virtust oft nær hulin af þykkum gleraugum, en þau gátu orðið mjög skýr og sterk og skyggn. — Þau lýstu miidrí alvöra og mann- viti. — Ef hann óttaðist að sverð sitt, sverð andans, hefði sært ein- hvem, þá átti hann lyfstein eða lífstein hins góða sverðs til græðslu. Séra Eiríkur, fyrram prófastur vor, átti nokkurra daga leið undir nýárs sól, „sem ljómar heit af Drott- ins náð“. Síðan bar þennan kalda skugga yfír húsið hans. En ég hugsa mér hann sjálfan hafa með Hallgrími Péturssyni séð aftur „blómstrið eina“, sem „lit og blöð niður lagði og fagnandi tekið við því aftur, með lífsins lit og fögra blöðum — og fengið að lifa ,jóla- gleði þá“, sem aldrei tekur enda“. V.B. Nú syrgja hann mörg böm með sinni móður og sínum bömum, einn- ig tengdaböm. — Mikill nemenda- fyöldi saknar vinar í stað. Bæði nemendur, sóknarbom, vin- ir, heimilismenn og líka ýmsir aðrir menn, sem gengu þar snöggvast um garð, þeir munu einnig minnast móðurhandar við hlið hins ástsæla höfðingja á Núpi og Þingvöllum, þar sem veganesti var veitt af gjöf- ulli, mjúkri móðurhönd til langrar fjallgöngu og lífsgöngu í tvennri merkingu. Hugleiðum þá, hvort þessi orð geti nokkra sinni orðið úrelt: „Aldr- ei er svo svart yfír sorgarranni, að ekki geti birt fyrir eilífa trú.“ Boðun trúar og fyrirbæn vora síðustu orð séra Eiríks. Það væri verðugt þeim, sem unna hugsjónum hans að stofna málþing í minningu hans, samtök til þess að æfa flutning íslenskrar tungu, að hún væri látin heyrast skýrt, hvert orð of endilangan sal. Þess er nú þörf. Séra Eiríkur sagði að manns- röddin væri svo dýrmæt gáfa, að við þá gáfu ætti hver maður að leggja ýtrustu rækt. „Eitt er það jafnan, sem mannar mann, einn munur, sem greinir annan og hann, orðlist hans eigin tungu." segir Einar Ben. Mál er komið til að samtök verði um það, að æfa skýra framsögn tungu vorrar. Einnig þarf að skera upp herör gegn því að útlendar glæpa- og lastamyndir séu sendar inn á hvert heimili á landinu til barna og ungl- inga á kvöldvöku. Þeim tíma, sem Guðs orð var áður haft um hönd á íslenskum heimilum. Hið gagn- stæða getur aldrei verið gott. Matthías sá hvemig „Rangár grundin glaða, er glóði móti sól, varð orpin ágengum, svörtum sandi. Hann með öðram stórskáldum vorum orti landið upp úr sandkvikunni og „hafísnauðum“. Hannes Hafstein kvað: „Öllum hafís er verri hjartans ís.“ Svo er um sandauðnir andans einnig. Leggjum samt ekki árar í bát; sandgræðsla er til. Segjum því með Matthíasi: Trú þú: Upp úr djúpi dauða Drottins rennur fagra hvel. Kveðja frá húsi mínu. R. B. Bls. Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- sfjórn blaðsins á 2. hæð i Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnar- stræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki era tekin til birtingar framort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta Ijóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar era birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.