Morgunblaðið - 03.02.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1987
41
Áhugahópur um byggingxt náttúrufræðihúss:
Nýtt náttúrufræðihús
AÐ TILSTUÐLAN Hins íslenska náttúrufræðifélags hefur undanfar-
in 2 ár starfað hópur áhug'amanna um byggingu náttúrufræðihúss.
Hópurinn telur knýjandi þörf á því að vekja áhuga og umræðu um
náttúrufræði og minnir á að þjóðin byggir tilveru sína með einum
eða öðrum hætti á náttúru landsins og hafsins umhverfis. Því er
mikilvægt að skilja og virða náttúruna og gæði hennar. Ennfremur
að kynna náttúru næstu grannlanda og annarra svæða og lögmál
er almennt ríkja í lifandi og dauðri náttúru.
Oflug starfsemi myndarlegs náttúrufræðihúss verður þungamiðja
náttúrufræðslu og sífelld uppspretta ánægju og nýrra uppgötvana.
Morgunblaðid/Sigurður Jónsson
Hyrnunum pakkað í Mjólkurbúi Flóamanna. Ólafur Kristbjörnsson
og Guðmundur Birnir Sigurgeirsson mjólkurfræðingur við pökkunar-
vélina.
Kaffitjómahyrnan er lítil og meðfærileg með kaffibollanum.
Kaffirjómi í smáhym-
um kominn á markað
Ný framleiðsla hjá Mjólkurbúi Flóamanna
Selfossi.
Hvernig á náttúru-
fræðihús að starfa?
I Náttúrufræðihúsinu verður
nútímalegt náttúrufræðisafn. Safnið
á að höfða til allra: einstaklinga og
fjölskyldna; kennara og nemenda;
náttúrufræðinga og áhugamanna;
ferðamanna og leiðsögumanna;
þeirra sem nýta landið og náttúru-
verndarmanna.
I náttúrufræðihúsinu verða sýn-
ingar í langan tíma og skamman.
Áhersla verður lögð á að hafa sýn-
ingarnar lifandi og nota m.a. ýmsa
muni úr náttúrunni, myndir, hljóð,
hnitmiðaða texta, tölvur og mynd-
bönd. Kostir nýrrar upplýsingatækni
og fræðandi leiktækja verða nýttir.
Safnverðir með fjölbreytilega
menntun og reynslu setja upp sýn-
ingar í samvinnu við aðra sérfróða
menn, leiðbeina gestum og svara
spurningum þeirra.
Auk eigin sýninga mun náttúru-
fræðihúsið fá ýmsa aðila til að
„opna“ starfsemi sína fýrir almenn-
ingi („opið hús“ víðs vegar um
landið). Þá verða einnig skoðunar-
ferðir, farandsýningar og ýmislegt
áhugavert fræðsluefni verður gefíð
út. Gera má ráð fyrir fræðslufund-
um, aðstoð við áhugamenn, sam-
starfi við skóla um verkefnagerð,
nemendasýningum jafnt í skólum
sem í náttúrufræðihúsinu og þangað
munu fjölmiðlar sækja fréttaefni.
Slíkt náttúrufræðihús heimsækja
menn ekki aðeins einu sinni, heldur
aftur og aftur. Það verður í sífelldri
endumýjun og því raunverulegur
vettvangur nýrra og náinna kynna
fólks af landinu og náttúrunni. Það
verður fjölsóttur og skemmtilegur
staður, iðandi af lífi.
Náttúrufræðihúsið mun styðja og
efla starfsemi náttúrugripasafna og
náttúrufræðistofa um land allt og
njótajafnframt góðs af þeim. Þessar
stofnanir fengju farandsýningar frá
náttúrufræðihúsinu og margs konar
aðstð við að kynna náttúru eigin
svæða.
Kynning á náttúru ís-
lands og almennri
náttúrufræði
Undanfarin 2 ár hefur áhugahóp-
urinn staðið fýrir ýmiss konar
kynningum á náttúrunni í borginni
og nágrenni hennar í samvinnu við
fjölmarga náttúrufræðinga, áhuga-
menn og ýmsar stofnanir. Nú hefur
hópurinn fengið fastan samastað
fyrir kynningar í anddyri Háskóla-
bíós. Þá er í undirbúningi „opið hús“
víðs vegar um landið.
Markmið áhugahópsins er einkum
þetta þrennt:
* þrýsta á að hafist verði handa um
byggingu náttúrufræðihúss;
* auka fræðslu fyrir almenning
meðan beðið er eftir að húsið rísi:
* afla reynslu sem mun nýtast við
að skipuleggja starfsemi hússins.
Sótt hefur verið um lóð fyrir nátt-
úrufræðihús. Reykjavíkurborg hefur
nú gefið vilyrði fyrir ágætri lóð und-
ir slíkt hús í Vatnsmýrinni. Málinu
hefur verið haldið vakandi með
kynningarstarfsemi hópsins og
fréttaflutningi.
I ársbytjun 1987 eru náttúru-
fræðikynningar sem hópurinn hefur
gengist fyrir þegar orðnar á þriðja
tug. Þeir sem notið hafa fræðslunn-
ar skipta tugum þúsunda og þrátt
fyrir frumstæða aðstöðu hefur feng-
ist ómetanleg reynsla í kynningar-
starfsemi af þessu tagi.
Jafnvel þótt allt gangi eins og
best verður á kosið er ljóst að nokk-
ur tími mun líða þar til starfsemi í
nýju náttúrufræðihúsi getur hafist.
Áhugahópurinn mun því starfa
áfram.
Frá áhugahópi um bygg-
ingu náttúrufræðihúss.
KAFFIRJÓMI í 10 millilítra smá-
hyrnum er kominn á markað.
Rjómanum sem er G-vara er pakk-
að í Mjólkurbúi Flóamanna á
Selfossi og er ein þeirra nýjunga
í G-vöruframleiðslu sem unnið er
að í búinu. Það er Mjólkursamsal-
an i Reykjavik sem er dreifingar-
aðili vörunnar.
Kaffitjóminn er í hentugum um-
búðum fyrir veitingastaði, flugvélar
og aðra aðila sem þjónusta ferða-
menn. Smápökkun á kaffnjóma er
hollustuatriði líkt og pökkun sykur-
molum og nýtist betur á þennan
hátt auk þess sem kaffnjómahyman
er meðfærileg, passar vel á undir-
skálina með bollanum. Hymumar
em opnaðar með því að rífa pappírs-
flipa ofan af gati sem ijómanum er
síðan hellt út um.
Mjólkurbú Flóamanna fékk til
landsins sérstaka vél í þetta verkefni
að pakka ijómanum. Vélin hentar
vel íslehska markaðnum sem er mun
smærri en gerist erlendis.
Kaffiijómann í smáhymunun má
geyma utan kælis í nokkra mánuði
og er hann því hentugur til heimilis-
nota á ferðalögum og við ýmis
tækifæri. Hymumar verða boðnar
til sölu í verslunum í öskjum sem í
eru 10 pokar, hver með 10 femum.
Veitingastaðir geta fengið stórar
pakkningar með 400 hynum í kassa.
Sig.Jóns.
Við fögnum
hækkandi sól
og bregðum á leik með
20%
staðgreiðsluafslætti af öllum vörum.
Notaðu tækifærið —
Gerðu kjarakaup í
KDSTAIBODA
________/ _______.
Bankastræti 10, símar 13122 og- 621812.
f