Morgunblaðið - 03.02.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1987
25
klæði, lök, ábreiður o.a.þ.h. sem
tiltækt er.
3.4 Slökkvið á öllum loftræstiviftum
í herbergi og á baði. Ef rofinn finnst
ekki, þá troðið blautum tuskum í
opin.
3.5 Bindið blautan klút fyrir vitin
og andið í gegnum hann.
3.6 Reynið að hindra að reykur
komist inn í herbergið með því að
troða blautum tuskum úr baðkarinu
í rifur meðfram hurðinni. Það besta
væri að hafa ávallt í farangri sínum
2 rúllur af heftiplástri 3—5 sm
breiðan og líma yfir allar rifur er
reykur kemst inn um.
3.7 Ef hurðir og veggir fara að
hitna svo að ekki er hægt að snerta
þá með góðu móti, ausið þá með
ísfötunni vatni úr baðkarinu á alla
heita fleti. Látið vatn renna við-
stöðulaust í baðkarið og leyfið því
að renna fram á gólf í herberginu
og bleyta vel í gólfteppinu.
3.8 Bijótið ekki gler í glugganum
nema í ítrustu nauðsyn þegar reyk-
ur og hiti fer að þrengja að. Reynið
að bijóta rúðuna eins ofarlega og
hægt er. Notið til þess fótinn á
standlampa herbergisins, eða annan
þungan hlut sem þægilegt er að
handfjatla.
3.9 Þegar hitinn í herberginu fer
að verða lítt bærilegur, bleytið þá
í fötum ykkar og bleytið rúmdýn-
umar og notið þær sem skjöld. Ef
fer að loga inni í herberginu, gerið
ykkur þá skýli úr dýnunum út við
glugga og niður við gólf. Reynið
að hafa vatn hjá ykkur til að bleyta
í kringum ykkur.
3.10 Orvæntið aldrei. Missið ekki
trúna á björgun. Látið ekki ofsa-
hræðslu ná tökum á ykkur.
Hugsið skýrt og gerið ykkur
grein fyrir hvað sé best að gera
næst í stöðunni með tilliti til
framhaldsins.
Fyrir um það bil tveimur árum
voru norrænir slökkviliðsmenn, aðr-
ir en íslenskir, á fundi í Svíþjóð.
Síðustu nótt þeirra á hótelinu kom
þar upp eldur í loftræstiklefa á einni
hæðinni nokkm eftir miðnætti. Eld-
urinn varð allmagnaður og áttu
margir gestir í erfiðleikum með að
bjarga sér.
í næsta herbergi við, þar sem
eldurinn kemur upp, var danskur
slökkviliðsmaður. Komst hann ekki
út. Var honum bjargað allvel á sig
komnum eftir meira en hálftíma
baráttu hans við að halda eldinum
frá sér í herberginu. En þegar hon-
um var bjargað logaði eftir hluti
herbergisins og hann var kominn í
skjól undir blautum rúmdýnum út
við glugga. Þakkaði hann björgun
sína því, að hann hafði farið eftir
flestum þeim 10 ráðum, sem skráð
eru hér að ofan. Það sem henti
hann getur alveg eins hent mig eða
þig. Verum viðbúin, þá eigum við
alla möguleika til að komast af.
Höfundur er tæknifræðingur og
starfarsem verkefnastjóri hjá
SlökkviliðiReykjavíkur, eldvam-
areftirliti.
Kísiliðjan hf. við Mývatn:
Hætta er a að
markaður tapist
- segir Róbert B. Agfnarsson framkvæmdastjóri
HÆTTA er á að Kísiliðjan hf.
við Mývatn tapi verulegum við-
skiptum vegna verkfalis undir-
manna á kaupskipum, samkvæmt
upplýsingum Róberts B. Agnars-
sonar framkvæmdastjóra
Kísiliðjunnar. Róbert segir að nú
þegar vanti kísilgúr frá verk-
smiðjunni á helstu samkeppnis-
markaði og að nú stefni í
óbætanlegt ijón fyrir fyrirtækið.
Árið 1985 var Klsiliðjunni afar
hagstætt, samkvæmt upplýsingum
Róberts. Þá varð met framleiðsla
hjá verksmiðjunni, eða 29.400 tonn,
og metsala, eða 27.700 tonn. Svo
til öll framleiðslan er flutt út, aðal-
lega til Evrópu. Vegna framleiðslu-
aukningar á kísilgúr og falls
dollarans jókst samkeppni frá
bandarískum framleiðendum á Evr-
ópumarkaði og minnknðí sala
Kísiliðjunnar hf. þá um 16%, eða
4.300 tonn frá árinu 1985. Á árinu
1987 átti að blása til nýrrar sóknar
á mörkuðunum og auka söluna á
ný. Kaupskipaverkfallið hefur hins
vegar sett strik í reikninginn því
kaupendur þurfa að nota kísilgúr
daglega í framleiðslu sína og verða
því að geta treyst á reglulega af-
hendingu kísilgúrs, bregðist hún
neyðast þeir til að snúa sér annað.
Róbert segir að samningamenn
í farmannadeilunni verði að gera
sér grein fyrir því að þeir séu ekki
í einkastyijöld. Hagur útflutnings-
greina sé lagður að veði í deilu
þeirra og þjóðarhagur um leið.
Samningamenn beri því mikla
ábyrgð og gera verði þá kröfu til
þeirra að samið verði strax þannig
írpVara tjóni verði forðað.
Eigendur
spariskírteina!
Með kaupum á einingabréfum
fáið þið hærri vexti_______________________
Einingabréf 1
• Ávöxtun nú 14%—15% umfram verðbólgu
• Sérfræðingar í verðbréfaviðskiptum fjárfesta að mestu leyti í verðtryggð-
um skuldabréfum, tryggðum með fasteignaveði.
Einingabréf 2
• Ávöxtun nú 10%—11 % umfram verðbólgu
• Sérfræðingar í verðbréfaviðskiptum fjárfesta eingöngu í Spariskírteinum
ríkissjóðs, bankatryggðum skuldabréfum og öðrum sambærilegum verð-
bréfum.
Einingabréf 3
• Nafnávöxtun nú 36% (raunvextir háðir verðbólgu)
• Bréfin hljóða á handhafa
• Sérfræðingar í verðbréfaviðskiptum fjárfesta í óverðtryggðum skulda-
bréfum, skammtímakröfum og öðrum verðbréfum sem gefa hæstu mögu-
legu ávöxtun.
Gerið samanburð á vöxtum einingabréfa og annarra sam-
bærilegra verðbréfa.
Einingabréf eru alltaf laus til útborgunar og
þau má kaupa fyrir hvaða upphæð sem er.
Útgefandi Hávöxtunarfélagið hf., söluaðili Kaupþing hf.
KAUPÞ/NG HF
Húsi verslunarinnar. sími 68 69 88
Einingabréf • Veróbréfasala • Fjárvarsla ■ Fasteignasala Rekstrarráógiof • Visbending