Morgunblaðið - 03.02.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1987
Hið íslenska kennarafélag:
Atkvæðagreiðsla um verk-
fallsboðun í undirbúningi
FULLTRÍJARÁÐ Hins
íslenzka kennarafélags sam-
þykkti á fundi sl. föstudag'
að fela stjóm félagsins að
undirbúa þegar í stað alls-
heijaratkvæðagreiðslu um
boðun verkfalls sem hefjist
eigi síðar en 16. mars nk.
í ályktun er HÍK sendi frá sér
eftir fulltrúaráðsfundinn segir
meðal annars: „í þeim viðræðum
hefur komið fram að fulltrúar
ríkisvaldsins eru ekki tilbúnir til
neinna alvöruviðræðna og hafa
hafnað öllum meginatriðum í
kröfum félaganna. í ljósi þeirra
samninga sem undanfarið hafa
átt sér stað í þjóðfélaginu um
laun gegnir furðu að ríkisvaldið
skuli bjóða háskólamenntuðum
ríkisstarfsmönnum nánast
óbreytt kjör, en í síðasta tilboði
þess felst að lágmarkslaun
þeirra gætu hækkað úr 31.000
krónum í tæplega 34.500 krónur
ef önnur laun yrðu nánast
óbreytt. I þessu sambandi er
rétt að minna á nýgerða samn-
inga þar sem iðnaðarmönnum
voru tryggð 35.000 króna lág-
markslaun og bókagerðarmönn-
um enn hærri."
Valgeir Gestsson, formaður
Kennarasambands íslands, sagði
í samtali við Moigunblaðið að
samninganefnd KI óskaði eftir
frekari viðræðum við samninga-
nefnd ríkis áður en afstaða yrði
tekin um verkfallsboðun, en eins
og ný lög kveða á um þarf að
leita heimildar hjá félagsmönn-
um um verkfallsboðun með
allsheijaratkvæðagreiðslu. Hann
sagðist vænta þess að samninga-
nefndimar gætu fundað í
vikunni, en þær hafa hist einu
sinni áður til að ræða yfírvof-
andi kjarasamninga. „Við
gerðum grein fyrir okkar kröfum
og þeir reifuðu sín sjónarmið,
en raunverulegar viðræður hafa
ekki átt sér stað ennþá.
Við leggjum gífurlega áherslu
á hækkun lágmarkslauna. Kenn-
ari, sem kemur út á vinnumark-
aðinn úr Kennaraháskólanum
eftir þriggja ára háskólanám fær
32.800 kr. í laun. Við teljum að
45.000 króna lágmarkslaun
kennara séu ekki fjarri lagi til
að verða sambærileg við launa-
kjör annarra hópa,“ sagði
Valgeir.
Gautur í Garði.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra:
„Myndi fagna því ef Gaut-
ur yrði áfram í Garði“
STEINGRÍMUR Hermannsson
forsætisráðherra segist munu
leggja fyrir ríkisstjómina í dag
bréf frá hreppsnefnd Gerða-
hrepps, þar sem þeim tilmælum
er beint til ríkisstjórnarinnar að
hún beiti sér fyrir því að togar-
inn Gautur verði áfram gerður
út frá Garði. Segist forsætisráð-
herra mundu fagna því ef það
reyndist mögulegt að halda tog-
aranum í Garði.
„Ef að eigandi skipsins, í þessu
tilviki Útgarður hf. vill selja skipið,
þá hefur ríkið ekki möguleika til
þess nema óbeint, að hafa áhrif þar
á,“ sagði Steingrímur, „en ég myndi
fagna því ef það reyndist mögulegt
að halda togaranum í Garði.“
„Ég er tilbúinn til þess að vinna
með heimamönnumí Garðinum, að
því að halda þessum togara þar,
eða að fá nýjan,“ sagði Steingfim-
ur, „en það er dálítið seint í þessu
tilviki, þar sem búið er að undirrita
samning um sölu á honum."
VEÐURHORFUR IDAG:
YFIRLIT á hádegi í gmr. Við strönd Grænlands, vestur af Snaefells-
nesi, er 973 millibara djúp lægð sem þokast norðaustur. Yfir
sunnanveröum Austfjörðum er önnur iægð, 980 millibara djúp, á
leið norður.
SPÁ: Vestan- og suðvestanátt, víðast kaldi eða stinningskaldi (5-6
vindstig). Él um vestanvert landið og á annesjum fyrir norðan en
víða léttskýjað á austur- og suðausturlandi. Undir kvöld veröur
heldur vaxandi sunnan- og suðaustanátt með slyddu eða rigningu
suðvestanlands. Heldur hlýnandi veöur.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
MIÐVIKUDAGUR og FIMMTUDAGUR: Suðlæg eöa suðvestlæg
átt og hiti á bilinu 2 til 5 stig. Rigning eða súld lengst af sunnan-
lands og vestan en úrkomulítið norðaustanlands. Skammt út af
Vestfjörðum má búast við norðaustanátt og snjókomu.
TAKN:
Heiðskírt
á Léttskýjað
■&> Hálfskýjað
A
m Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
•*•*■*
* * * * Snjókoma
* * *
•JO Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
V Él
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
CO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri hltl 2 veður snjóól
Reykjavík -1 úrk. fgr.
Bergen 4 léttskýjafi
Helslnki 1 súld
Jan Maysn 0 þoka
Kaupmannah. -1 þokumóða
Narsaareauaq -16 helfiskfrt
Nuuk -20 snjókoma
Osló -7 þokumófia
Stokkhólmur 0 skýjafi
Þórshöfn 7 alskýjað
Algarve 16 skýjað
Amsterdam 0 mistur
Aþena 11 skýjað
Barcelona 13 þokumóða
Berifn -6 mistur
Chicago —3 léttskýjafi
Glasgow E iágþokubl.
Feneyjar 3 þokumóða
Frankfurt -2 skýjað
Hamborg 0 mistur
las Palmas 21 hétfskýjað
London 7 mlstur
Los Angeles 9 þokumóða
Lúxemborg -3 mistur
Madrfd 10 alskýjað
Malaga 16 alskýjað
Mallorca 16 skýjað
Mlaml 18 akýjað
Montreal -7 snjókoma 1
NewYork 1 þokumóöa
Parfs 1 skýjað
Róm 10 heiðskfrt
Vfn -6 mlstur
Washlngton 3 skýjað
Winnipeg -9 snjókoma
Ahrif áburðarverðshækkunar:
Búvörur hækka um 0,6—0,9%
BÚVÖRUVERÐ mun hækka um
0,6—0,9% vegna hækkunar á út-
söluverði áburðar til bænda ef
farið verður að óskum stjórnar
Áburðarverksmiðjunnar í Gufu-
nesi um 7% hækkun.
Tillaga verksmiðjunnar er nú til
athugunar í landbúnaðarráðuneyt-
inu. 7% hækkun áburðarverðs leiðir
til þess að áburður vísitölubúsins
verður 15—17 þúsund krónum dýr-
ari en hann er nú. Áburðurinn vegur
mismikið eftir því hvort um er að
ræða sauðfjárbú eða kúabú, en
áhrifín á verð búvaranna til bænda
er á bilinu 0,6—0,9%.
Varnarliðið kaupir íslenskar land-
búnaðarafurðir:
Sex fyrirtæki
annast söluna
BANDARÍSKI sjóherinn mun
kaupa 94,5 tonn af kjöti og 45
tonn af eggjum af íslenskum
framleiðendum á næstu tólf mán-
uðum fyrir vamarliðið á Kefla-
víkurflugvelli, samkvæmt
samkomulagi sem fulltrúar hers-
ins gerðu við íslensk stórnvöld
um helgina. Stjórnvöld hér munu
fela þeim sex fyrirtækjum sem
hafa aflað sér leyfa bandariskra
stjómvalda, að framkvæma
samninginn.
Kjötið sem keypt verður fyrir
vamarliðið jafngildir 40 tonnum af
nautakjöti, 50 tonnum af kjúkling-
um og 4,5 tonnum af svínakjöti. Á
síðastliðnu ári notaði vamarliðið
222 tonn af nautakjöti, 71 tonn af
kjúklingum og 59 tonn af svína-
kjöti auk 10 tonna af íslensku
lambakjöti. Miðað er við að viðskipt-
in hefjist í mars, en samkomulagið
er háð staðfestingu bandarískra
stjómvalda. Þá er samkomulag um
að viðskiptin verði endurskoðuð að
loknu þessu 12 mánaða tímabili.
Framleiðendur munu fá fullt verð
fyrir afurðir sínar, þannig að út-
flutningsbætur verða ekki greiddar
út á kjötið. Framleiðendur fá endur-
greitt allt fóðurgjald af því kjam-
fóðri sem þarf til framleiðslunnar
og gjöld til sjóða landbúnaðarins
verða felld niður, þannig að sölu-
verð búvaranna til vamarliðsins
verður heldur lægra en heildsölu-
verð innanlands.
Guðmundur Sigþórsson, skrif-
stofustjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu, sagði í gær að þetta væri
byijun á viðskiptum sem gætu au-
kist í framtíðinni þegar vamarliðs-
menn kynntust þeim góðu
landbúnaðarvörum sem hér væm
framleiddar. Þá væri fyrirhugað að
auglýsa þessar vömr sérstaklega
til að stuðla að sölu þeirra.
Guðmundur sagði að þau fyrir-
tæki sem hefðu viðurkenningu
bandarískra stjómvalda myndu
taka að sér að framkvæma samn-
inginn. Alifuglasláturhúsin ísfugl í
Mosfeilssveit og Dímon á Hellu
annast kjúklingasöluna, Vallá á
Kjalarnesi, Holtabúið á Rangárvöll-
um og ísegg í Kópavogi selja eggin
og Sláturfélag Suðurlands mun sjá
um sölu nautakjötsins. Þá er fyrir-
hugað að Sláturfélagið selji það
svínakjöt sem samið hefur verið um
þegar það hefur fengið viðurkenn-
ingu á svínasláturhúsi.
Varðandi lambakjötið sagði Guð-
mundur að eftirspumin væri ein-
faldlega ekki meiri en fram kemur
hér að ofan og ekki raunhæft að
gera sér vonir um mikla aukningu
á sölu lambakjötsins. Nær væri að
leggja áherslu á sölu þess kjöts sem
fólkið væri vant að borða.
Alfreð Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Hreiðurs hf., sem
rekur alifuglasláturhúsin ísfugl og
Dímon, sagði að sala á kjúklingum
á Keflavíkurflugvöll væri ekkert
stórmál fyrir þessi fyrirtæki, en
verkefnið væri spennandi. Gaman
yrði að sjá hvemig bandarískir
neytendur tælgu vöru þeirra. Hann
sagðist ekki vera S nokkmm vafa
um að gæði íslensku framleiðslunn-
ar væru ekki lakari en á þeirri
amerísku og ekkert að óttast í því
efni. Hins vegar ættu menn eftir
að læra á markaðinn, kynna sér
hvemig fólkið vildi fá vömna til-
reidda.