Morgunblaðið - 03.02.1987, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 03.02.1987, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1987 Eldur laus í hótelinu! Hvað á ég að gera? eftir Asmund J. Jóhannsson Utan úr heimi berast annað slag- ið fréttir af mannskæðum hótel- brunum, nú síðast á gamlársdag er einn mannskæðasti hótelbruni seinni ára varð á Puerto Rico. Þess- ar fréttir snerta okkur Islendinga lítið meira en aðrar slysa- og stríðsfréttir frá fjarlægum löndum þegar enginn landi okkar tengist þeim. Hótelbrunar eru miklu tíðari en ætla má af fjölmiðlafréttum hér heima. Þótt það fari ekki hátt hafa ábyrgir aðilar í ferðamálarekstri af þessu áhyggjur. Reynt hefur verið að kanna orsakir þessara óhappa og í samræmi við niðurstöður þeirra kannana hafa verið settar öryggis- reglur um búnað og byggingu hótela. Reglur þessar eru í meginat- riðum eins í flestum ef ekki öllum löndum. Alþjóðleg ferðamálasamtök hafa í sinni þjónustu fólk er ferðast landa á milli sem venjulegt ferðafólk. Hlutverk þess er að meta hvemig búið er að ferðafólki, þar með talið öryggismál hótela. Þegar lesið er yfir það sem birt hefur verið af þessum athugunum kemur í ljós, að þessi mál eru í mismunandi ástandi eftir löndum. Þau eru hvergi talin vera í fullkomnu lagi, en misjafnlega góð eftir löndum. Ástandið virðist versna eftir því sem ferðast er sunnar á jarðkringlunni, þó er það ekki algilt t.a.m. eru ísra- elar taldir í fremstu röð hvað öryggismál á hótelum varðar, einn- ig Ástralir og Nýsjálendingar. Þá mætti ætla að hótel sem prýddi sig mörgum stjömum hefði eldvamir sínar í góðu lagi, en því miður er eins með stjömumar og skírlífslit- inn sem kveðið er um í Grænlandsvísum Sigurðar Breið- fjörðs, að hann oft áþreifanlega svíkur. Ferðamaður sem kaupir nætur- gistingu á hóteli á að kreQast upplýsinga um hvort hótel það sem í boði er hafi sjálfvirkt eldviðvör- unarkerfí og annan búnað til tryggingar öryggi hótelgesta gagn- vart hugsanlegum eldsvoða. Ef svo er ekki þá ber að leita þangað sem slík trygging er fyrir hendi og það á að láta vita um ástæðu þess hvers vegna valið er á þann veg. Þá eiga ferðaskrifstofur að bindast samtök- um um að sniðganga þá hótelaðila sem ekki geta lagt fram vottorð viðkomandi bmnamálayfírvalda um að þeirra öryggismál séu í góðu lagi. Á þann hátt væri hægt að þoka þessum málum í betra horf. íslendingar ferðast mikið og fara víða. Sem betur fer hafa landar okkar ekki, svo vitað er, lent í alvar- legum hótelbrunum, en einhverjir hafa orðið fyrir þeim óþægindum að rýma hótel sitt skyndilega að nóttu vegna gmns um eld eða lítils- háttar íkviknunar. Til að vera viðbúinn því versta og draga þar með úr líkum á að verða fyrir íjör- tjóni sökum eldsvoða þar sem maður er ókunnur gestur, birtast hér á eftir nokkur ráð til að leggja á minnið og fara eftir þegar á hólm- inn er komið. Gott væri að klippa þau úr blaðinu og geyma og lesa þau síðan yfír rétt áður en farið er í ferðalag. 1. Við komu á hótel 1.1 Þegar pantað er hótelherbergi ætti að biðja um herbergi sem er ekki ofar en á 10. hæð og snúi að götu. Er það vegna þess að stiga- og körfubílar slökkviliða ná almennt ekki ofar en í 30 metra hæð og þeir þurfa nokkuð svigrúm til að athafna sig. Þá er útilokað að fara Ásmundur J. Jóhannsson með þá inn í þrönga bakgarða. En ef veggsvalir em við hvert herbergi þá er í lagi að vera ofar í húsinu og það þarf þá ekki að snúa að götu. 1.2 Þegar komið er inn í hótel- herbergi á gesturinn að láta það vera sitt fyrsta verk að kynna sér leiðbeiningar hótelsins sem fylgja herberginu m.a. um viðbrögð við eldi, hvernig eldboð er gefíð og hvar séu rýmingarleiðir út úr húsinu og hvar gestir eiga að safnast sam- an, þegar þeir koma út úr hótelinu eftir að rýming þess hefur verið fyrirskipuð. 1.3 Eftir að farangri hefur verið komið fyrir ætti að leita uppi alla neyðarútganga af hæðinni og gera sér góða grein fyrir staðsetningu þeirra. Gott ráð til að átta sig er að telja hurðimar frá eigin herbergi og að útgangi og leggja fjöldann á minnið, því að í myrkri og reyk gæti verið örðugt að sjá neyðarút- ganginn. 1.4 Athugið hvar bmnaboðar em staðsettir á hótelganginum og gerið ykkur grein fyrir hvernig á að nota þá. 2. Ef tilkynnt er um eld 2.1 Takið herbergislykilinn og stingið á ykkur persónuskilríkjum. Ef reykur er í herberginu, ekki standa upprétt. Beygið ykkur undir reykinn. Skríðið eftir gólf- inu ef þarf. Reykur og aðrar fötluð á einhvem hátt eigið að láta gestamóttöku hótelsins vita um fötlun ykkar og sjá svo um að her- bergi ykkar séu merkt sérstaklega. Það léttir störf slökkviliðsmanna. 1.5 Leggið ávallt frá ykkur herberg- islykilinn og persónuskilríki á náttborðið við hliðina á rúminu og munið eftir að taka þau með ykk- ur, þegar þið yfirgefið herbergið og lokið þá hurðinni á eftir ykkur. 1.6 Gætið að hvemig gluggar em opnaðir. 1.7 Þið sem emð heyrnarskert eða lofttegundir þjappast undir her- bergisloftið og þrýstast þaðan niður á við. Sæmilega hreint loft er lengi niður við gólf. 2.2 Ef hurðin fram á hótelganginn er heit eða reykur kemur undan henni opnið þá ekki hurðina. Ef allt virðist vera eðlilegt með hurðina opnið hana þá með gát og látið hana skýla ykkur þegar hún opn- ast. Ef þið teljið ganginn vera færan, flýtið ykkur að næsta neyð- arútgangi. 2.3. Notið aldrei lyftu eftir að merki um hættuástand hefur verið gefið. 2.4 Ef farið er út um næsta neyðar- útgang lokið þá hurðinni á eftir ykkur. Ef ekki er fært niður stig- ann, leitið þá í önnur stigahús sem em fær eða upp á þak. 3. Ef þið verðið að vera um kyrrt í herbergi ykkar, gerið þá eftirfarandi 3.1 Opnið gluggann ef enginn reyk- ur kemur upp með húshliðinni og hengið hvítt lak eða annað hvítt út um hann. Það er neyðarmerki til slökkviliðsins. 3.2 Fyllið baðkarið vatni. Hafið ísfötuna og mslakörfuna við hend- ina. 3.3 Bleytið í baðkarinu öll hand- Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Hluti fundarmanna á vel sóttum fundi Sambands garðyrkjubænda. Samband garðyrkjubænda: Kannaðir möguleikar á stofnun grænmetismarkaðar Selfotsi. SAMBAND garðyrkjubænda mun vinna að því á þessu ári að kanna möguleika á stofnun markaðar til sölu á grænmeti. ÁJyktun þess efnis var sam- þykkt á vel sóttum fundi sem sambandið hélt á Hótei Örk í Hveragerði fimmtudaginn 29. janúar. Stjóm Sambands garðyrkju- bænda boðaði til fundar um sölu og markaðsmál og þá einkum til þess að ræða hugmyndir um stofnun grænmetismarkaðar. Með nýjum lögum um fram- leiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum frá árinu 1985 var sala á grænmeti gefin frjáls. I fram- kvæmd hefur þetta orðið þannig að menn hafa selt grænmetið á misjöfnu verði. Sem dæmi má nefna að verð á gúrkum fór niður í 15 krónur kflóið á liðnu sumri. Hugmyndin um grænmetismark- að er fengin frá Danmörku og Hollandi þar sem markaðir eru sagðir hafa gefið góða raun. Talið er að markaður til dreifingar geti orðið til þess að verðlagning verði eðlileg og undirboð ekki eins al- lög geti keypt grænmeti á markaðnum til dreifingar til smá- söluaðila. Sölufélagið myndi síðan geta annast innflutning þegar íslensk framleiðsla væri ekki á boðstólum. „Við stöndum fyrir þessari umræðu um sölu og markaðsmál sem félag garðyrkjubænda," sagði Bjarni Helgason formaður Sambands garðyrkjubænda. „Lögin um framleiðslu, verðlagn- ingu og sölu á búvörum eru ný og við eigum eftir að laga okkur að þeim. Varðandi stofnun mark- aðar er það grundvallaratriði að allir garðyrkjubændur sjái sér hag í því að setja vörur sínar á þennan markað“. Á fundinum, sem var sóttur af rúmum helmingi félaga í Sam- bandi garðyrkjubænda, var samþykkt ályktun þess efnis að sambandið skipaði nefnd til að kanna stofnun grænmetismarkað- ar éða finna aðrar leiðir í sölu- og markaðsmálum sem bæti úr ófremdarástandi í sölumálum garðyrkjubænda. Hugmyndir komu fram á fund- inum um það að Framleiðsluráð landbúnaðarins veitti garðyrkju- bændum þá þjónustu að reikna út framleiðslukostnað á græn- meti. Bent var á að þetta hefði verið reynt áður en ekki tekist. I lok fundarins var samþykkt til- laga um að farið verði fram á þetta við Framleiðsluráð. Greinilegt var að fundarmenn voru áhyggjufullir yfir ástandi í sölumálum og sammála um að úrbóta væri þörf. „Ef við stöndum ekki saman verður gengið yfir okkur," sagði einn fundarmanna, „sundrungin kemur fram í lakari afkomu, við verðum að ná sam- stöðu." Sig. Jóns. Bjarni Helgason formaður Sambands garðyrkjubænda í ræðustól. geng. Heildsalar og stórmarkaðir geta á þessum markaði gengið að vörum frá framleiðendum og valið þar úr. Með þessu er hug- myndin að halda uppi gæðum og jafnara framboði. Á fundinum í Hveragerði töldu sumir fundarmanna að græn- metismarkaður kæmi til með að vinna gegn Sölufélagi garðyrkju- manna og að betra væri að styrkja það. Fylgjendur stofnunar mark- aðar benda á að Sölufélag garðyrkjumanna og önnur sölufé-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.