Morgunblaðið - 03.02.1987, Qupperneq 27
27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1987
Morgunblaðið/Bjami
Hluti hópsins sem heldur til Nepal í lok mars næstkomandi.
Nokkrir íslendingar klífa fjöll í Nepal:
Verða með sextíu burð-
armenn til aðstoðar
NOKKRIR meðlimir úr íslenska
Alpaklúbbnum leggja upp í leið-
ang^ur til Nepal þann 20. mars
næstkomandi. Aætlað er að leið-
angurinn taki rúma tvo mánuði,
og er megin tilgangfur ferðarinn-
ar að klífa fjallið Gangapurna,
sem er 7.455 metra hátt.
Þetta er fyrsti íslenski fjallaleið-
angurinn til Himalayafjalla og
hefur kunnur breskur fjallagarpur,
Doug Scott, fallist á að verða vernd-
ari leiðangursins. Leiðangursstjóri
verður Guðmundur Pétursson,
læknir. Auk hans eru fimm aðrir
einstakiingar sem hyggjast ráðast
til uppgöngu á hið tæplega 7.500
metra háa fjall.
Fjallið er í Annapurna-fjallgarð-
inum, en hæsta fjallið þar er
Annapurna 1 sem er 10. hæsta fjall
í heimi. Annapurna-svæðið er ekki
einungis þekkt af háum fjöllum,
heldur er það einnig rómað fyrir
náttúrufegurð og fjölbreytt
mannlíf. Sjö daga ganga er að rót-
um fjallsins Gangapurna frá þorp-
inu Pokhara, þaðan sem lagt verður
upp í hinn eiginlega íjallaleiðangur.
Til að flytja birgðir og vistir að fjall-
inu hyggjast leiðangursmenn ráða
um 60 burðarmenn. Sá farangur
sem leiðangursmenn taka með sér
héðan af landinu vegur á að giska
hálft tonn, og hafa leiðangursmenn
hlotið mikilsverðan stuðning frá
Amarflugi.
Auk þess að klífa Gangapurna,
Fjallið Gangapura í Himalayafjöllum sem leiðangursmenn hyggjast
klífa.
er ætlunin að fara á einn, eða fleiri
lægri tinda til að aðlagast þynnra
lofti. Á toppi Gangapurna er ein-
ungis rúmur þriðjungur þess súr-
efnis sem er við sjávarmál.
Aðalbúðir hópsins verða í um
4.000 metra hæð, þar sem reikna
má með þokkalegum hita á daginn,
en kulda á nóttunni. Þó gæti verið
allra veðra von, en að sögn leiðang-
ursmanna er vel hugsanlegt að um
20 stiga frost verði á íjallinu sjálfu.
Frá aðalbúðunum er um tveggja
daga gangur að rótum fjallsins.
Mismunandi leiðir hafa verið
farnar upp fjallið og er þetta í þriðja
skipti sem sú leið sem hópurinn
hefur valið er farin. Fjallið var fyrst
klifið af hópi Þjóðveija árið 1965.
Aðrir leiðangrar hafa orðið að snúa
frá, og dæmi eru til þess að slys
hafi orðið á mönnum á fjallinu.
Þau fimm sem munu væntanlega
reyna að kífa Gangapuma hafa öll
talsverða reynslu í fjallaklifri. Leið-
angursmenn hafa meðal annars
klifið fjöll í Noregi, Bretlandi, Alpa-
fjöllum, Argentínu og Perú. Hæst
hafa þau öll klifið árið 1985 er þau
klifu hæsta fjall Perú, Huascaran,
sem er 6768 metra hátt. Frásögn
af þeim leiðangri birtist í Lesbók
Morgunblaðsins á sínum tíma.
Þrír leiðangursmanna eru alvanir
fjallaleiðsögumenn hérlendis og
sögðust þeir binda þeir miklar von-
ir við þá þjálfun og reynslu sem
þessi leiðangur gæfi þeim.
Vestmannaeyjar:
Rausnarlegur
fjárstuðningur til
bj ör gunar s veita
Vestmannaeyjum.
STJÓRNARMENN í Bátaábyrgðarfélagi Vestmannaeyja
komu saman til fundar þann 26. janúar síðastliðinn, er rétt
125 ár voru liðin frá stofnun félagsins. Þetta var 1094. bók-
aði stjórnarfundur félagsins frá upphafi, en allar fundargerð-
ir félagsins og reikningar hafa varðveist frá fyrsta degi.
í tilefni afmælisins ákvað
stjórnin að veita tveimur björgun-
arsveitum í Eyjum umtalsverðan
fjárstuðning. Björgunarfélag
Vestmannaeyja og Hjálparsveit
skáta í Eyjum hlutu hvort um sig
125 þúsund krónur og veittu for-
ráðamenn þeirra fénu viðtöku á
afmælisfundinum. Magnús Þor-
steinsson, sveitarforingi Hjálpar-
sveitar skáta, og Heimir
Sigurbjörnsson, formaður Björg-
unarfélagsins, þökkuðu Báta-
ábyrgðarfélaginu þessa höfðing-
legu gjöf sem þeir sögðu að kæmi
í góðar þarfir og myndi nýtast
til eflingar á þeirra starfi.
Bátaábyrgðarfélagið hefur lát-
ið útbúa veglegt borðdagatal þar
sem getið er ýmissa merkilegra
atburða sem tengjast útvegi og
sögu Vestmannaeyja. Að öðru
leyti mun félagið minnast þessara
merku tímamóta síðar á árinu,
er næsti aðalfundur félagsins
verður haldinn.
-hkj.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Ánægðir fulltrúar Hjálparsveitar skáta og Björgunarfélags Vest-
mannaeyja eftir að hafa móttekið rausnarlegar peningagjafir. F.v:
Grímur Guðnason, Heimir Sigurbjömsson, Eyþór Þórðarson, Sigurð-
ur Þ. Jónsson og Magnús Þorsteinsson.
mEimíMTAu
er hægt aft breyta innheimtuað-
ferðinni. Eftir það verða áskrift-
argjöidin skuldfærð á
vidkomandi greiðslukortareikn-
ing mánaðarlega.
SÍMINN ER
691140
691141
2h9rgnwt>Tat>iti
m AUGL ÝSINGA TÍMI
MEÐ TVÖFALDRI HLUSTUN
Frá 5. febrúar veröa rás-1
og rás-2 samtengdar fyrir
lesnar auglýsingar kl. 10.00
og 1 6.00.
Símar auglýsingadeilda
eru 22274 og 68751 1.
RAS-l+RAS-2
RÍKISÚJVARPIÐ
ÚTVARP ALLRA LANDSMANNA