Morgunblaðið - 03.02.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1987
39
Frá fundinum í Félagsheimili Húsavíkur.
Morgunblaðið/Bjami
Umræður um embættismenn ráðuneytis á Húsavíkurfundur menntamálaráðherra:
Sjálfskipaðir varðmenn
- sem hrekja menn út í horn og gæta þess að ráðherra fái ekki bréf og símtöl
„ ÞETTA er bara út í hött. Þeim
lýst bara ekki á að berja á mér
einum og hafa því teldð upp
árásir á mitt starfsfólk. Ég ber
ábyrgð á þessu og er maður til
að meta, hvað mitt fólk ber
fram. Ég treysti mínu fólki,“
sagði Sverrir Hermannsson
Sjónvarp
Akureyri
DAGSKRÁ Sjónvarps Akur-
eyrar í kvöld, þriðjudagskvöld,
er svohljóðandi:
Kl. 18.00 Eltingarleikur
(Chase). Bandarísk kvikmynd frá
CBS sjónvarpsstöðinni.
Ung stúlka flytur aftur heim
að Ioknu laganámi. Hún hyggst
nýta sér menntun sína og þjálfun
úr stórborginni. En ekki eru allir
eins ánægðir með að endurheimta
hana. Aðalhlutverk er leikið af
Jennifer O’Neill og Richard Fams-
worth.
Kl. 19.30 Teiknimynd. Glæfra-
músin.
Kl. 19.50 ÍNávígi.
Yfírheyrslu- og umræðuþáttur í
umsjón Páls Magnússonar. Í þess-
umjpætti mun Páll yfirhera Guðjón
B. Olafsson forstjóra Sambands
íslenskra samvinnufélaga.
Kl. 20.20 Klassapíur.
Kl. 20.45 Óvenjulegir hæfileikar
. Bandarísk bíómynd frá 1981 með
hinum vinsæla Chevy Chase t aðal-
hlutverki.
Flugstjóri verður fyrir því óláni,
þegar hann er á leið til vinnu, að
kjamorkuúrgangur frá vörubíl
slettist á hann. Við þetta vakna
með honum áður óþekktir hæfí-
leikar. Með hugarorkunni einni
getur hann komið ýmsu til leiðar.
Sambland af farsa og spennu-
mynd.
Kl. 22.15 íþróttir. Bandaríski
körfuboltinn (NBAA). Umsjónar-
maður er Heimir Karlsson.
Kl. 23.45 Dagskrárlok.
Ath.: Línumar tákna skil
ruglaðs og óruglaðs efnis, en fyrsti
liðurinn, kvikmyndin er rugluð.
menntamálaráðherra, er hann
var spurður, hvort hann ætlaði
að fara að tilmælum fjölda
ræðumanna á fundum ráðherr-
ans á Akureyri og Húsavík um
að athuga embættisfærslur und-
irmanna sinna í ráðuneytinu
sjálfu.
Það voru þungar ásakanir og
getsakir, sem komu fram á til-
greinda og ótilgreinda starfsmenn
menntamálaráðuneytisins í máli
ræðumanna á fundunum tveimur á
Akureyri og Húsavík. Morgunblaðið
hefur þegar gert grein fyrir umræð-
unum i Sjallanum á Akurevri en
hér fara á eftir nokkur ummæli
þriggja ræðumanna í Félagsheimili
Húsavíkur og svör ráðherra á fund-
inum.
Sigmar Ólafsson skólastjóri að
Hafralæk, Aðaldal sagði m.a., að
hann hefði ekki verið í neinum
minnsta vafa, fyrir sjálfan sig „priv-
at og persónulega", hvar meinið
lægi, en það væri í ráðuneytinu.
Og sagði síðan eftirfarandi sögu
af viðskiptum sínum við menn úr
ráðuneytinu:
„Ég átti fund með tveimur deild-
arstjórum í menntamálaráðuneyt-
inu. Annar þeirra er og var
ágætiskunningi minn. Hinn þekkti
ég ekki í sjón fyrir þennan fund.
Mér er ákaflega minnistætt þeg-
ar annar þessara manna í bókstaf-
legri merkingu hrakti mig út í hom
og sagði mér að hundskast norður
og sjá til þess að oddvitar sveitarfé-
laganna opnuðu skólana aftur,
annars myndi ég hafa verra af, —
og að hann sæi til þess, að ríkið
yfírtæki skólana og þá skyldi ég fá
að vita hvar Davíð keypti ölið.“
Hér greip ráðherra fram í og
spurði: Voru mennirnir að skemmta
sér?
Hann bað Sigmar síðan, — er
hann kvaðst eigi vita um það en
að hann hefði tekið þetta virkilega
hátíðlega, — að segja sér, hverjir
þetta hefðu verið. Sigmar brást við
á þá lund, að segjast mundu tjá
ráðherra það síðar undir fjögur
augu.
Sigmar lauk máli sínu á því að
ítreka þá bjargföstu skoðun sína
að meinið sé að fínna í ráðuneytinu
sjálfu, eins og hann orðaði það.
Hann sagði ennfremur: „Það er eins
og raunar ráðherrann staðfesti
sjálfur í ýmsum orðum sínum, sem
hann lét falla á fundi á Hótel KEA,
en hann sat ég með fræðsluyfírvöld-
Sigmar Ólafsson
skólastjóri, Hafra-
læk
Arngrímur Geirs-
son, Mývatnssveit
Stefán Skaftason,
Aðaldal
um í kjördæminu, að til dæmis
væru kílómetrar á milli skrifstofa
þar.“
Amgrimur Geirsson úr Mývatns-
sveit gerði að umtalsefni bréf sem
send hefðu verið ráðuneytinu og
engin svör borist við og kvaðst
gruna, að að minnsta kosti hluti
af þessum vanda lægi í mennta-
málaráðuneytinu sjálfu. Hann
kvaðst persónulega hafa verið vitni
að árangurslausum tilraunum yfír-
manns síns, Þráins Þórissonar
formanns fræðsluráðs, til að ná
símasambandi við ráðherra, að
hann hefði þurft að leysa hann af
á meðan við kennslu. Amgrímur
sagði síðan: „Það blandaðist engum
hugur um, sem fylgdist með tilraun-
um Þráins Þórissonar til að ná
sambandi við ráðherra, að í ráðu-
neytinu em sjálfskipaðir varðmenn,
sem sýnilega telja það sitt hlutverk
að koma í veg fyrir að hyski utan
af landi geti ónáðað ráðherra í ann-
ars nauðsynlegum störfum. Ég
sagði sjálfskipuðum því ég á eftir
að sjá það, að Sverrir Hermannsson
lýsti því yfír hér, að það sé að hans
skipan, að bréfum sé ekki svarað
og símtölum ekki sinnt."
Stefán Skaftason frá Aðaldal
sagði í upphafí máls síns að honum
litist best á þá hugmynd mennta-
málaráðherra að færa sem mest af
völdum heim í héruð. Ef hann kæmi
því í framkvæmd strax á þessum
vetri að færa embætti fræðslustjóra
undir stjómir sveitarfélaganna hlyti
það að leysa vandann, sem þeir
stæðu frammi fyrir í dag. Þeir
gætu með því endurráðið Sturlu,.
án afskipta ráðuneytisins.
í framhaldi af því gerði hann
ráðuneytið að sérstöku umræðuefni
og kvaðst telja, að þar væri að leita
hluta af vandamálinu og sagðist
hann treysta því að Sverrir tæki
þar til höndum. Stefán bar fram
nokkrar skriflegar spumingar til
ráðherrans og var ein þeirra svo-
hljóðandi: Af hveiju neitar skrif-
stofustjóri fjármáladeildar
menntamálaráðuneytisins, Örlygur
Geirsson að koma til fundar við
rekstraraðila Hafralækjarskóla til
viðræðna um rekstrarvanda skól-
ans, en það kvað hann að Örlygur
hefði gert á sl. hausti, þrátt fyrir
ítrekuð tilmæli, eins og hann orðaði
það.
Menntamálaráðherra svaraði
sérsaklega spumingu Stefáns
Skaftasonar varðandi Örly Geirsson
svofellt: „Þið hefðuð átt að láta
mig vita um þetta því ég hefði rek-
ið hann — samstundis (mikið klapp
fundarmanna) til ykkar til við-
ræðna. Eg hefði gert það um leið
og ég hefði fengið að vita það.
Fyrst hefði ég mælst til að hann
færi og síðan hefði ég fyrirskipað."
' "jr,
Éísmbs. ysm
Morgunbladið/Guðmundur Svansson
Snjórinn heilsaði
Fats Domino
Flugvöllurinn hér á Akureyri var mokaður í fyrsta
sinn á þessu ári í gær og tafðist þotan, sem bar
Fats Domino til Akureyrar, nokkuð vegna þessar-
ar fyrstu snjókomu vetrarins. Fats Domino hélt
sína fyrstu hljómleika í Sjallanum í gærkvöldi.