Morgunblaðið - 03.02.1987, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1987
I
mMM
r^w^wTm
Ltí IJA ICllt
crnsom
GII1S4tMGT15
AUKIN SNERPA, BETRIAFKÖST
Ef þú sefur illa og ert úrillur ó morgnana, lœfur
umferðina fara í faugarnar á þér, óff erfiff með
að einbeita þér að verkefnum dagsins, skaltu
líta viðí Heilsuhúsinu. Við leiðum þig í
allan sannleikann um GinsdiMGtis
eilsuhúsið
Skólavörðustig 1 Simi: 22966 101 Reykjavík.
Ferming'arbörnin sem seldu fyrir jólin bækur frá bókaútgáfunni
Grund til styrktar öldrunarstarfi í Hólmavíkurprestakalli.
Hólmavík:
Höfðingleggjöf frá
Gísla Sigurbjörnssyni
Hólmavík.
í LOK nóvember á siðastliðnu
ári bárust fermingarbörnum í
Hólmavíkurprestakalli bækur
frá Bókaútgáfunni Grund. Bæk-
ur þessar voru sendar og gefnar
af Gísla Sigurbjörnssyni, til
styrktar öldrunarstarfi í presta-
kallinu.
Fermingarbömin gengu í hús á
Hólmavík, Drangsnesi og sveitun-
um þar í kring og seldu bækumar.
Var þeim mjög vel tekið. Fólk
keypti mikið af bókum og var ánægt
með kaupin.
Fermingarbömin fóm þá og
keyptu ýmis konar gjafir. Þeim var
pakkað inn og gjafimar færðar
öldruðum í Hólmavíkurprestakalli.
Nokkrir þeirra er fengu glaðning
frá fermingarbömunum á jólunum,
tjáðu fréttaritara að gaman hefði
verið að fá þessar gjafir frá ungling-
unum. Þeim hefði sýnst ungdómur-
inn hafa haft skemmtun af þessu
öllu saman. Unglingamir hefðu
komið með bros á vör til þeirra og
sagst vera reyna að gleðja aldraða
vegna hátíðarinnar stóm. Það hefði
þeim tekist og vildu aldraðir því
færa unglingunum þakkir svo og
vildu þeir koma á framfæri sérstök-
um þökkum til bókaútgáfunnar
Grundar fyrir hennar framlag. Þá
má jafnframt geta þess að Gísli
Sigurbjömsson gaf til Hólmavíkur-
kirkju þegar verið var að byggja
hana og þakka íbúar á Hólmavík
innilega fyrir þann velvilja sem Gísli
hefur sýnt kirkjunni þeirra. Jafn-
framt gaf Gísli sálmabækur til allra
kirkna í Húnavatns- og Stranda-
prófastsdæmi og var það höfðingleg
gjöf. Kom hún sér einkar vel fyrir
þær kirkjur sem hafa litlar tekjur
og geta rétt greitt fyrir rafmagn
og hita.
— Baldur Rafn.
Hólmavíkurkirkja.
Morgunblaðið/Baldur Rafn
POTTÞÉTTAR PERUR Á GÓÐU VERÐI
Halogen
Aðalljósapera 225 kr.
Aðalljósapera 65 kr.
Afturljósapera 23 kr.
Stefnuljósapera 23 kr.
Stöðuljósapera 22 kr.
Numeraljosapera 22 kr.
Bílaperumar frá Ringbera merkiö © sem þýöir aöþær uppfylla ýtrustu gæöakröfur E.B.E [TTlHFKI HF
Höfum ávallt f vrirliggiandi 90 gerðir af Ring bílaoerum. Heildsala—smásala. LOJ »^^0^1170-172 3^695500