Morgunblaðið - 10.02.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987
23
Eigendur hins nýja skips, þeir Unnþór Halldórsson og Guðmundur Gissur AR-6. Morgunbiaðið/JG
Baldursson, ásamt eiginkonum sínum.
Nýtt fiskiskip á Akranesi
Akranesi.
NÝJU og glæsilegu fiskiskipi,
Gissuri ÁR-6, var hleypt af stokk-
unum hjá skipasmíðastöð Þor-
geirs og Ellerts hf. á Akranesi
föstudaginn 30. janúar. Skipið
er eitt hinna svokölluðu
raðsmíðaverkefna skipasmíða-
stöðvarinnar og er eigandi þess
Ljósvík hf. i Þorlákshöfn, en eig-
endur þess eru tveir ungir menn,
þeir Unnþór Halldórsson og Guð-
mundur Baldursson, sem áður
hafa gert út skip með sama
nafni. Það var eiginkona Unn-
þórs, Kristín Þórarinsdóttir, sem
gaf skipinu nafn við viðhöfn sem
fram fór við skipshlið.
Skipið, sem er eins og áður sagði
eitt hinna svokölluðu raðsmíða-
skipa, er 300 rúmlestir, mesta lengd
42,40 m, breidd 8,10 m og dýpt
að efra þilfari 6,25 m. Það er byggt
sem skuttogskip til úthafsrækju-
veiða með aðstöðu til vinnslu og
frystingar á aflanum um borð. íbúð-
ir eru fyrir 15 menn í eins og
tveggja manna klefum.
Aðalvél er 990 hestafla, Bergen
diesel-gerð fyrir brennslu á svart-
olíu. Vélin er tengd Volda niður-
færslugír og skiptiskrúfu í
skrúfuhring. Á gímum em tvö
aflúttök með Stamford-rafölum
sem samtals geta framleitt 610
kva. Ennfremur em í skipinu tvær
ljósavélasamstæður; Gummins 190
kva og Caterpillar 375 kva.
Stýri er af gerðinni Becker. Allar
vindur em frá Rapp-Hydema, tog-
vindur em með autotroll-búnaði.
Frystibúnadður er allur frá A/S
Henry Söby Köleteknik, afköst 22
tonn af rækju á sólarhring í tveim-
ur láréttum plötufrystum og einum
lausfrystiklefa.
Rækjuvinnslubúnaður er að hluta
til frá Camitech A/S en að öðm
leyti smíðaðar hjá Þorgeir og Ellert
hf. Vogir em frá Marel hf.
í skipinu em fullkomin fiskileit-
ar- og siglingatæki svo sem; Fumno
litaratsjá með litaferðrita (plotter),
Fumno gervihnattaloran, Ánschutz
gyro-áttaviti og sjálfstýring,
Taiyo-veðurkortamóttakari, Sail-
or-talstöðvar, Koden-miðunarstöðv-
ar, Fumono-litadýptarmælir,
Atlas-djúpsjávarfísksjá, Scanmar-
og Furano-aflamælar.
- J.G.
Kaup á sumum vörum
álwarðast af því sem
stendur á botninum.
Viðbit með fjölómettaðri fitu á stöðugt
vaxandi gengi að fagna vegna þess að
fjölmargir telja harða fitu lítt holla.
AKRABLÓMI hefur hærra hlutfall af
fjölómettuðum jurtaolíum en almennt gerist
í viðbiti - þess vegna færðu hann mjúkan úr
ísskápnum beint á brauðið - í steikinguna,
baksturinn og matseldina.
Kynntu þér hvað stendur á botni öskjunnar
um hlutfall harðrar og fjölómettaðrar fitu.
Hiklaus kaup þeirra
sem hugsa um
hollustuna -og verðið.
Aðalvinningur
að verðmæti
Stór
Þróttar
í Glæsibæ í
kvöld kl.
19.30.
Greiðslukortaþjónusta
Næg
bílastæði
Síðast voru vinningar
að verðmæti
,290 þús.