Morgunblaðið - 10.02.1987, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987
spurt og svarad
I Lesendaþjónusta MORGUN)BLAÐSlNS I
HÉR á eftir fara spurningar
sem lesendur Morgunblaðsins
hafa beint til þáttarins Spurt
og svarað um skattamál, og
svör við þeim sem leitað hefiu*
verið lyá embætti ríkisskatt-
stjóra.
Skattframtali verður
aðskila
Skattgreiðandi spyr:
Ég er einn af um 800 mönnum
sem ekki hefur fengið á hreint
skattauppgjör frá í fyrra en vegna
einhverra deilna endurskoðenda
og skattyfírvalda um skil á fram-
tölum var áætlað á mig á síðasta
ári. Má búast við slíku áfram og
á ég að fara telja fram núna þeg-
ar síðasta framtal er ekki komið
á hreint?
Svar:
Framtalsskyldum aðilum ber
að skila skattframtali í lögboðnum
framtalsfresti.
Það hefur ekki áhrif á skila-
skyldu skattframtals þó framtelj-
andi eigi óafgreitt mál hjá
skattyfírvöldum vegna framtals
fyrra árs.
Vaxtafrádrátt má
ekki færa milli ára
Húsbyggjandi spyr:
Má færa ónýttan vaxtafrádrátt
milli ára vegna húsbyggingar?
Svar:
Nei.
Jens Kjartansson spyr:
Ég hef búið erlendis síðustu
fjögur ár en er nú fluttur heim.
Eg hafði nýlokið við að byggja
mér íbúð þegar ég fór út en þar
sem ekki er hægt að nýta vaxta-
frádrátt þegar búið er erlendis
hefur hann fallið ómerkur. Því
spyr ég hvort þessi uppsafnaði
vaxtakostnaður er frádráttarbær
nú þegar ég er fluttur heim aftur?
Svar:
Nei, það er ekki heimilt að
flytja ónýttan vaxtagjaldafrádrátt
milli ára.
Þeir sem láta af
störfum fá afslátt
Eftirlaunaþegi spyr:
a) Gildir niðurfelling skatta
vegna starfsloka bæði fyrir
tekjuskatt og útsvar?
b) Mega menn halda áfram
launaðri vinnu eftir starfslok?
c) Þegar ' staðgreiðslukerfí
skatta kemst á, verður endur-
greitt vegna starfsloka fyrir
síðustu 12 mánuði eða fellur
frádrátturinn niður?
Svar:
a) Þeir sem láta af störfum vegna
aldurs eiga rétt á sérstökum
frádrætti frá tekjum sínum,
er þeir hafa aflað sér síðustu
12 mánuði fyrir starfslok. Þeir
skulu fylla út sérstakt eyðu-
blað „Yfírlýsing og greinar-
gerð R3.08_“ vegna þessa
frádráttar. Á því eyðublaði,
sem og í leiðbeiningum ríkis-
skattstjóra á bls. 14, eru
nánari skýringar og leiðbein-
ingar við útfyllingu þessa
eyðublaðs. Frádráttarflárhæð-
in færist í reit 36. Þessi liður
kemur til frádráttar bæði frá
tekjum til útsvars og tekjum
til tekjuskatts.
b) Framangreindur frádráttur
er vegna þeirra sem láta af
aðalstarfí sínu vegna aldurs.
Ríkisskattstjóri vill vekja at-
hygli á því að ekki er um að
ræða sjálfkrafa rétt á þessum
frádrætti til handa þeim sem
náð hafa 55 ára aldri, heldur
gildir þetta aðeins fyrir þá sem
láta af starfí vegna aldurs eða
sú breyting verði á aðalstarfi
skattþegns að jafna megi til
starfsloka hans. Ljóst er þó
að heimila verður mönnum
þennan frádrátt, þótt þeir hafí
einhveijar launatekjur eftir að
þeir láta af sínu aðalstarfi.
c) Að svo stöddu er ekki hægt
að svara þessari spumingu.
Námsfrádráttur
færisttil maka
Sigurður Gestsson spyr:
Ef maki er tekjulaus og við nám
í öldungadeild fæ ég að nota
námsfrádráttinn? Ef svo er, hvort
færist hann á framtalseyðublaðið
hjá mér eða maka?
Svar:
Já, í þessu tilviki yfírfærist
námsfrádráttur tekjulausa mak-
ans til hins makans.
Framtalseyðublaðið ber að fylla
út eins og form þess segir til um,
þ.e. tekjur og frádrátt hjá hvoru
hjóna.
Frádráttur sem ekki nýtist hjá
öðrum makanum millifærist til
hins makans og gerist sú milli-
færsla við útreikning og álagn-
ingu gjalda.
MiUifærsla á maka
Halldór spyr:
Miðað við að annað hjóna hafí
háar tekjur en hitt mjög lágar,
hvað má færa mikið yfír á það
sem hefur lágu tekjumar og hveij-
ar em reglumar í því sambandi,
þ.e. kemur það til lækkunar tekj-
um í efsta skattþrepi eða mið-
þrepinu?
Svar:
Ef tekjuskattsstofn annars
hjóna er lægri en kr. 412.200
hækkar 18% skattþrep hjá hinum
makanum um þá upphæð sem
skortir á að tekjuskattsstofn fyrr-
greinda makans nái kr. 412.200.
Millifærð hækkun á lægsta skatt-
þrepi má þó ekki nema hærri
íjárhæð en kr. 206.100. Næsta
skattþrep, þ.e. 28,5%, lækkar um
sömu fjárhæð og 18% skattþrepið
hækkar um.
Færsla á hluta-
bréfaarði
Björn Jóhannsson spyr:
Hvar og hjá hvom hjóna á að
færa:
a) hlutabréfakaup í atvinnu-
rekstri?
b) arð af hlutabréfum í atvinnu-
rekstri?
c) hækkun á hlutabréfum, til
dæmis vegna útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa?
Svar:
Gera skal grein fyrir hluta-
bréfakaupum á bls. 4 á framtali
undir liðnum greinargerð um
eignabreytingar.
Hjá hjónum teljast eignir fram
sameiginlega á 1. síðu framtals.
Hlutabréfaeign færist undir lið
E4. Arður tilgreinist þar sérstak-
lega enn fremur skattfijáls
jöfnunarhlutabréf og hlutafé í
árslok. Arður færist í reit 75 á
4. sfðu framtals. Með arði skal
telja skattskylda úthlutun jöfnun-
arhlutabréfa á árinu 1986. Til
frádráttar er heimilt að færa að
hámarki 10% af nafnverði, þó
ekki hærri Ijárhæð en kr. 57.375
hjá einhleypingi og kr. 114.750
hjá hjónum. Þessi frádráttur fær-
ist í reit 82 á 4. síðu framtals.
Framteljendum, sem kunna að
eiga rétt á frádrætti vegna kaupa
á hlutabréfum í félögum sem upp-
fylla skilyrði laga nr. 9/1984, ber
að útfylla eyðublað merkt R3.10
og láta það fylgja skattframtali.
Frádráttur þessi færist í reit 83
á framtali og kemur til frádráttar
tekjum sem færast í teknalið T
14 á framtali. Mismunur á lið T
17 á framtalinu færist hjá því
hjóna sem hefur hærri hreinar
tekjur, sbr. lið T 9 á skattfram-
talseyðublaðinu.
Varðandi nánari útskýringar
vísast í leiðbeiningar ríkisskatt-
stjóra, bls. 5 og bls. 8. Ennfremur
útskýringar sem koma fram á
bakhlið eyðublaðs R3.10.
/iGLinGn/KóLinn
Aður auglýst hafsiglinganám-
skeið hefst 16. febrúar. Örfá
sæti iaus. Inntökuskilyrði 30
tonna próf.
Kennsla í meðferð seglbáta og notkun
siglingatækja, sem fer fram um borð
í skútu skólans, hefst 1. júní. Innritun
er hafin. Upplýsingar og innritun í síma
31092.
Siglingaskólinn,
meðlimur í Alþjóðasigl-
ingasambandi siglingaskóla
FISKIDÆLUR
SL0GDÆLUR
• FLYGT dælir auð-
veldlega vökva
blönduðum fiskúr-
gangi og slógi.
• FLYGT hefur inn-
byggðan hníf sem
sker í sundur fiskúr-
ganginn.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Kópavogur:
Sambýli fyrir
aldraða opnað
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Fjölmennl var við opnun sambýlis fyrir aldraða að Skjólbraut 1A i
Kópavogi síðstliðinn föstudag. Með sambýlinu er gerð tilraun til að
mæta þörfum þeirra sem erfitt eiga með að búa einir og þarfnast
að auki einhverrar þjónustu. Að sögn Braga Guðbrandssonar félags-
málastjóra Kópavog er stefnt að opnun fleiri heimila gefist þessi
tilraun vel.
Sambýli aldraða að Skjólbraut 1A í Kópavogi.
Byrjendanámskeið í notkun
MACINTOSH
MACINTOSH-tölvan markar tímamót í
tölvuhönnun. Á námskeiðinu er farið
rækilega í þá möguleika sem tölvan býð-
ur uppá.
Dagskrá:
*
*
*
*
Macintosh, stórkostleg framför í tölvuhönnun.
Grundvallaratriði í notkun Macintosh.
Kynning á eftirfarandi hugbúnaði: Leiflbeinandi:
Ritkerfið Macpaint.
Ritkerfið Macwrite.
Ritkerfið Word.
Töflureiknirinn Multiplan.
Ýmis forrit á Macintosh.
Umræður og fyrirspurnir.
Ath.: Ný Macintosh-handbók fylgir með nám-
skeiðsgögnum.
Tími: 14. og 15. febrúar kl. 9—17.
Innritun í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28, Reykjavík.
mÐsimsimu
er hægt ad breyta innheimtuað-
ferðinni. Eftir þaö veröa áskri
argjoldin sku
viökomandi greiðslukortareikn-
ing manaöarlega
SÍMINNER
691140
691141