Morgunblaðið - 10.02.1987, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1987
k
,Mig ■e.r'cui -finnO- viá Um-
feréamiástöð'ina eftit- W. 3. "
♦
|
V
Með
morgunkaffínu
Guð sé oss næstur. Lifi ég
í tvíkvæni?
HÖGNI HREKKVÍSI
, pAO VAR. þeeSl MAKALAUSA KY/VINIGÁFA HANS
SE/M FyR&r HEILLAPI SOHJU.I"
Hestamenn munu brátt geta stundað íþrótt sína í skemmu mikilli sem verið er að reisa inn við Elliðaár.
Reiðhöll — paðreimur
í Morgunblaðinu 30. janúar ritar
Gísli Bjömsson grein um skemmu-
byggingu eina mikla sem hesta-
menn og fleiri aðilar eru að byggja,
hrossum og hestamönnum til skjóls
inn við Elliðaár.
Er hann ósáttur við það að stöku
menn séu að hafa í flimtingum orð-
ið „reiðhöll", sem húsi þessu hefur
verið gefið. Höll er orðið útþvælt í
málinu á síðustu árum sbr. Bænda-
höll, Fiskhöll, Bíóhöll, Kjöthöll,
Kauphöll o.s.frv.
Til er orðið paðreimur, sem tal-
ið er vera afbökun væringja á gríska
orðinu „hippodrome" og á að hafa
borist með þeim út hingað á sínum
tíma.
Mætti ekki taka þetta orð sem
nú er að týnast upp aftur og nota
það um byggingu þá, sem hesta-
menn eru að reisa við Elliðaár?
Lesandi
Upphaf þorrablóta
Góði Velvakandi.
Mig langar til að biðja þig um
að koma á framfæri athugasemd
varðandi það, sem sagt var í þættin-
um „I takt við tímann" í sjónvarpinu
21. janúar sl. um nútíma þorrablót.
Þar var sagt að á Austurlandi hefði
verið upphaf nútíma þorrablóta og
væru 30 ár síðan hið fyrsta var
haldið þar.
Nú vil ég upplýsa það að á þessu
ári er 41 ár síðan fyrsta þorrablótið
var haldið hér í Keflavík á vegum
Kvenfélags Keflavíkur og er það
skráð í bókum félagsins. Félagið
var stofnað árið 1943 eða 44. Eg
man það ekki nákværrlega, en frú
Guðný Asberg var aðalhvatamaður
að stofnun þess og var hún fyrsti
formaður þess og gegndi því starfi
í full 20 ár. Hún var einnig upphafs-
maður að þorrablótsskemmtunum
félagsins og hvatti jafnframt konur
til að klæðast íslenskum búningi á
þeim. Þessar skemmtanir kvenfé-
lagsins voru svo vinsælar um
áratuga skeið að miklu færri kom-
ust á þær en vildu. Á fyrstu
þorrablótsskemmtununum kom
hver maður með sinn sviðakjamma,
hangikjöt og annað sem etið er á
þorra, auk mataráhalda og margir
komu með mat sinn í trogum. 011
skemmtiatriði voru unnin af heima-
mönnum og frú Vigdís Jakobsdótt-
ir, móðir Gísla Alfreðssonar
þjóðleikhússtjóra, æfði og stjórnaði
söngkór kvenfélagsins um margra
ára skeið. Þetta voru frábærar
skemmtanir, sem aldrei gleymast
þeim sem nutu. Fjöldi mynda er til
af þessum hófum, bæði í vörzlu
kvenfélagsins og einstaklinga.
Kvenfélagið starfaði með miklum
blóma um áratuga skeið og starfar
enn og eiga hvatamenn að stofnun
þess og stofnendur þakkir skildar
ásamt öllum öðrum félagskonum,
fyrir mikil og margvísleg störf í
þágu bæjarfélagsins. Ég get ekki
lokið þessu án þess að minnast
aðeins meira á frú Guðnýju Ásberg.
Hún var höfðingi í lund og fram-
komu og hafði mikinn hug á að
halda þjóðlegum siðum og notaði
sjálf mikið íslenzka þjóðbúninginn.
Að lokum vil ég þakka þér fyrir
birtingu allra þeirra pistla sem þér
eru sendir til birtingar. Þar kennir
margra grasa eins og vera ber.
Með beztu þökk fyrir birtinguna.
Hallbera Pálsdóttir
80% hækkun?
Þ.G. skrifar: Undanfarin ár hef nú þegar nýja gjaldskráin kom
ég sent frænda mínum, sem býr út 1. febrúar, þá hafði þetta
í Noregi, dagblöð, hálfsmánaðar- hækkað í kr. 131.00, sem ég held
lega og hefur þetta verið 1.000 að sé um 80% hækkun. Það væri
gramma sending og það hefur fróðlegt að fá skýringu á þessu
kostað 72.00 kr. í flugpósti. En frá póstþjónustunni.
Víkverji skrifar
Sovézki píanistinn Dmitri Alexe-
ev heillaði áheyrendur á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitarinnar
sl. fimmtudagskvöld og aftur á tón-
leikum Tónlistarfélagsins á laugar-
dag. Uppselt var á báða tónleikana,
sem þýðir að um 1800 manns hafa
sótt hljómleika hans. Á sama tíma
hefur ljóðasöngvarinn Andreas
Schmidt sungið tvívegis fyrir fullu
húsi í Gamla bíói. Loks er uppselt
á Aidu hjá Islenzku óperunni fram
í marz!
Þessi mikla aðsókn að tónleikum
og sýningum, þar sem sígild tónlist
er á boðstólum er til marks um að
fleira dregur fólk að en poppið.
Raunar er spuming, þegar öllu er
á botninn hvolft, hvort áheyrendur
að sígildri tónlist eru kannski fleiri
en þeir, sem vilja hlusta á poppið.
Því fer fjarri að þessir tónleikar séu
fyrst og fremst sóttir af miðaldra
og eldra fólki. Þvert á móti vekur
það athygli, hvað mikið er af kom-
ungu fólki á tónleikum t.d. Sinfóní-
unnar.
Þeir, sem standa fyrir því, að
velflestar útvarpsstöðvar landsins
halda upp stöðugum útsendingum
á hávaðasömu poppi ættu að huga
að þessu. Það skyldi þó aldrei vera,
að þeir geti aukið hlustun á stöðv-
arnar með því að flytja meira af
klassískri tónlist?!
XXX
En svo að Víkverji víki eitt and-
artak að annars konar tónlist(!)
þá er það vel þess virði að fara í
Blómasal Loftleiðahótelsins þessa
dagana og hlusta á Sif Ragnhild-
ardóttur flytja nokkur af þekktustu
lögum þýzku leikkonunnar Marlene
Dietrich. Sif tekst vel að endur-
vekja andblæ þessa löngu liðna
tíma. Hið eina, sem setja má út á
þessa dagskrá er að hún er helzt
til stutt. Þá vakti það athygli áheyr-
enda þá kvöldstund, sem Víkveiji
hlýddi á söngkonuna, að aukalag,
sem hún söng var endurtekning á
einu þeirra laga, sem er á hinni
föstu dagskrá hennar. Hefur hún
ekki æft fleiri lög?
Það er orðið nánast ómögulegt
að finna bílastæði í miðbænum
og ef að það tekst er það orðið
býsna dýrt spaug. Víkveiji minnist
þess, að er hann var á ferð í New
York fyrir nokkmm ámm, var hon-
um sagt, að íbúar þeirrar borgar
ættu yfirleitt ekki bíl, vegna þess,
að það væri svo dýrt að geyma þá
í borginni. Þannig kostaði bílastæði
í bílageymslu, sem vörður var við
um 4000 dali á mánuði! Að vísu
kostar ekki 160 þúsund að geyma
bíl í miðbænum- en: hálfur dagur
á þaki Tollstöðvarinnar kostar 100
krónur eða 500 krónur á viku eða
2000 krónur á mánuði eða 24 þús-
und krónur á árí. Þeir sem geyma
bílinn sinn þar heilan dag árið um
kring borga fyrir þá þjónustu um
48 þúsund krónur á ári. Klukkutím-
inn í stöðumælum kostar nú 30
krónur eða 240 krónur á dag eða
1200 krónur á viku. Stöðumæla-
sektin er komin upp í 300 krónur
í hvert skipti. Þetta em ekki lítil
útgjöld fyrir þá sök eina að koma
akandi á bíl til vinnu sinnar í mið-
bænum.