Morgunblaðið - 17.02.1987, Page 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
39. tbl. 75. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Sovétríkin:
Umsátri aflétt í Líbanon
Reuter
Þúsundir Palestínumanna flykktust í gær út úr Rashidiyeh-
flóttamannabúðunum nærri borginni Týrus í Suður-Líbanon.
Sveitir amal-shita afléttu þá umsátri um búðirnar annan daginn
í röð til þess að flóttafólkið gæti keypt matvæli og vistir. Að
sögn verslunareiganda í Týrus þrutu matvæli í borginni og
keypti sumt flóttafólkið fuglafóður til að koma í veg fyrir áfram-
haldandi sult. Þá bárust matvæli frá Sameinuðu þjóðunum til
tveggja búða í nágrenni borgarinnar. Um 30 fjölskyldur fengu
leyfi til að yfirgefa Bourj al-Barajneh búðirnar í útjaðri Beirút
og sýnir önnur myndin móður flýja búðirnar ásamt börnum
sínum. Á hinni myndinni virðir líbönsk kona fyrir sér rústir
heimilis síns í Beirút sem eyðilagðist er sveitum amal-shíta og
kommúnista laust saman.
Sjá nánar um ástandið í flóttamannabúðunum á bls. 27.
Friðarráðstefna í Moskvu:
Andrei Sakharov gagn-
rýnir mannréttíndabrot
Lýðræði í Sovétríkjunum forsenda afvopnunar
Moskvu, Reuter, AP.
ANDÓFSMAÐURINN Andrei
Sakharov hvatti ráðamenn til að
stuðla að þróun í lýðræðisátt inn-
an Sovétríkjanna er hann
ávarpaði fulltrúa á friðarráð-
stefnu, sem haldin var í Moskvu
um belgina. Sakharov gagnrýndi
ástand mannréttindamála og
sagði Sovétstjórnina ekki hafa
staðið undir vonum manna um
að andófsmönnum í röðum gyð-
inga yrði leyft að flytjast úr
landi.
Þremur gyðingum var haldið í
stofufangelsi á sunnudag og sagði
Tass-fréttastofan þetta hafa verið
gert til að fólkið gæti ekki „eitrað
andrúmsloft friðar og bræðalags“
sem einkenndi ráðstefnuna. Fólkið
hafði sent ráðstefnugestum
símskeyti til að mótmæla barsmíð-
um öryggissveita er andófsmenn
efndu til mótmæla í Moskvu á föstu-
dag. „Við viljum vekja athygli
ráðstefnugesta, og þeirra á meðal
Mikhails Gorbachev og Andreis
Sakharov, á þessum ómannúðlegu
viðbrögðum lögreglunnar," sagði í
skeytinu. Tæplega 1.300 sovéskir
og erlendir fulltrúar sátu ráðstefn-
una en henni lauk í gærkvöldi.
Sakharov ávarpaði lokaðan fund
vísindamanna á laugardag. Að sögn
vísindamanns frá Bretlandi, sem
ekki vildi láta nafns síns getið, lýsti
Sakharov þeirri skoðun sinni að
gagnkvæmt traust milli stórveld-
anna væri forsenda afvopnunar.
Fyrsta skrefíð í átt til aukins trausts
sagði hann vera aukin mannréttindi
og lýðræði í Sovétríkjunum. Sak-
harov mun hafa lýst yfir stuðningi
við viðleitni Mikhails Gorbachev
Sovétleiðtoga til að koma á endur-
bótum en gat þess jafnframt að
hann hefði orðið fyrir vonbrigðum
vegna mannréttindamála og kvaðst
einkum hafa áhyggjur af viðhorfí
ráðamanna til fararleyfa andófs-
manna.
Fréttaskýrendur telja að með
þessum orðum hafi Sakharov verið
að vísa til barsmíða öryggissveita
í Moskvu á föstudag og nýrrar lög-
gjafar um fararleyfi sem tekur
eingöngu til andófsmanna sem eiga
ættmenni erlendis og kemur því til
með að nýtast fáum.
Sjá nánar um friðarráðstefn-
una á bls. 27.
Iosif Begnn
situr enn
í fangelsi
Moskvu, AP, Reuter.
SOVÉSKI andófsmaðurinn Iosif
Begun situr enn í fangelsi að
sögn eiginkonu hans. Georgy
Arbatov, sem á sæti í miðstjórn
sovéska kommúnistaflokksins,
sagði í sjónvarpsviðtali, sem sýnt
var í Bandaríkjunum á sunnudag,
að Begun hefði verið sleppt úr
haldi.
Eiginkona Beguns, Inna, kvaðst í
gær hafa hringt í innanríkisráðu-
neytið sovéska og fengið þau svör
að maður hennar væri enn innan
múra Chistopol-fangelsisins um
800 kílómetra austur af Moskvu eri
þar afplánar hann sjö ára fangelsis-
dóm fyrir and-sovéskan áróður.
Kvaðst hún hafa fengið þessar
fréttir frá háttsettum embættis-
manni í ráðuneytinu. Hún sagðist
hafa tjáð viðkomandi embættis-
manni frá ummælum Arbatovs og
hefði hann komið af fjöllum. Boris,
sonur Iosifs Begun, sagði embættis-
mann í innanríkisráðuneytinu hafa
hringt gær í Chistopol-fangelsið og
verið sagt að ráðamönnum þar
hefðu ekki borist fyrirskipanir um
að sleppa Begun.
Georgy Arbatov sagði í þætti sem
bandaríska sjónvarpsstöðin CBS
sendi frá Moskvu á sunnudag að
Begun hefði verið sleppt fyrr um
daginn.
Sjá nánar um Iosif Begun á
bls. 29.
Grikkland:
Milljónir manna
leggja niður störf
Aþenu, AP.
RÚMLEGA tvær milljónir manna
lögðu niður vinnu í gær í Grikk-
landi til að mótmæla aðhaldsað-
gerðum ríkisstjórnarinnar og
krefjast hærri launa.
Þetta eru víðtækustu verkföll þar
í landi frá því sósíalistastjóm
Andreas Papandreou komst til
valda fýrir rúmum fímm árum.
Stjómin neitaði í gær að verða
við kröfum verkfallsmanna og
ítrekaði talsmaður hennar fyrri yfír-
lýsingar ráðamanna um að aðhalds-
aðgerðir væru forsenda stöðugleika
í efnahagsmálum.
Kúbanskir hernaðar-
Reuter
Andrei Sakharov ræðir við gesti á friðarrástefnunni í Moskvu í gær.
ráðgjafar til Nicaragua
Los Angeles, Reuter, AP.
KÚBUSTJÓRN hefur sent nokk-
ur hundruð hernaðarráðgjafa til
aðstoðar stjórn sandinista í Nic-
aragua, að því er sagði í dag-
blaðinu Los Ajigeles Times í
gær. Blaðið sagði þetta koma
fram í nýrri skýrslu bandaríska
utanríkisráðuneytisins. Banda-
ríkjastjórn segir 2.500 kúbanska
hernaðarráðgjafa hafa verið fyr-
ir í landinu.
Samkvæmt skýrslunni hófu
Kúbumennirnir að streyma til Nic-
aragua í desember á síðasta ári.
Kúbönskum hernaðarráðgjöfum
þar hefur ekki fjölgað hin síðustu
ár en talið er að aukinn stuðningur
við sandinistastjómina haldist í
hendur við 100 milljóna dollara
aðstoð Bandaríkjastjórnar við
contra-skæruliða í Nicaragua.
Kúbumenn og stjómvöld í Nic-
aragua hafa átt nána samvinnu frá
því sandinistar komust til valda þar
árið 1979. George Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
síðustu viku að fyrstu kúbönsku
hemaðarráðgjafarnir hefðu komið
til Nicaragua daginn eftir að
sandinistar tóku völdin í landinu.
Sandinistar hafa sagt 800 kúb-
anska ráðgjafa vera í landinu en
stjóm Ronalds Reagan Bandan'kja-
forseta segir þá vera 2.500. Auk
hernaðarráðgjafanna starfa fjöl-
margir Kúbumenn sem kennarar
og tæknilegir ráðgjafar í Nic-
aragua.
Kúbumennimir fljúga sovéskum
þyrlum af gerðinni MI 24 og hafa
contra-skæruliðar átt erfítt með að
vetjast árásum þeirra, að sögn Los
Angeles Times. Þá hafa Kúbumenn
annast þjálfun hersveita sandinista
og skipulagt hemaðaraðgerðir
þeirra gegn skæruliðum.