Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
íslandsmyndir Mayers
Békmenntir
Erlendur Jónsson
ÍSLANDSMYNDIR MAYERS
1836. 298 bls. Umsj. Ásgeir S.
Björnsson. Bókaútg. Örn og Ör-
lygur hf. 1986.
Paul Gaimard kom hingað fyrst
1835 en síðan árið eftir og þá við
fjölmenni. í leiðangri hans var með-
al annarra málarinn Auguste
Mayer. Það eru myndir hans sem
hér koma fyrir sjónir í viðhafnar-
útgáfu. Með fylgir bókin Chants
Islandais — kvæði sem Hafnar-
íslendingar kváðu til heiðurs
Gaimard er hann kom til Kaup-
mannahafnar 1839. Var honum þá
haldið samsæti eins og gekk og
gerðist þegar heiðursmenn voru á
ferð. Minningin um samsæti þetta
lifir enn í ljóðlínum Jónasar: Þú
stóðst á tindi Heklu hám /oghorfð-
ir yfír landið fríða. í sama kvæði
standa líka orðin: Vísindin efla alla
dáð — sem Háskóli íslands hefur
gert að nokkurs konar einkunnar-
orðum.
Það var í sjálfu sér reynsla fyrir
íslendinga að kynnast útlendingum
sem komu ekki fram af derringi og
yfirlæti eins og títt var um danska
kaupmenn og embættismenn, þá
sem hingað voru sendir. Frakkar
gera sér, síst allra, mannamun eftir
stöðu og efnahag. Slíkur var líka
glæsibragurinn yfir frönsku þjóðlífi
á 19. öld að Frakkinn þurfti engan
að öfunda. Vísindi og listir stóðu
þá með hvað mestum blóma þar í
landi. Frakkland var upprennandi
heimsveldi eins og Stóra-Bretland.
Þáttur í hinni ósjálfráðu útþenslu
var að kanna heiminn. Fé til leið-
angra af því tagi sem Gaimard fór
hingað lá því nokkuð á lausu.
Að loknum leiðangri Gaimards
hingað til lands var síðan gefið út
í Frakklandi stórglæsilegt Islands-
rit. Segir umsjónarmaður þessarar
útgáfu að betur hafí ekki verið
gert síðan.
Það var skaði fyrir íslendinga
hversu lítil tengsl þeim auðnaðist
að hafa við Frakkland á 19. öld.
En Danir snobbuðu mjög fyrir
Frökkum þannig að frönsk áhrif
gátu borist hingað gegnum Kaup-
mannahöfn. Tómas Sæmundsson
hafði að sönnu dvalist í París og
gat því frætt aðra Fjölnismenn um
lífíð í þeirri borg borganna og and-
rúmsloft franskrar menningar á
heimaslóðum.
Myndir Mayers eru merkilegar
fyrir margra hluta sakir. Landslag-
ið er að vísu nokkuð ýkt, tæpast
sakir vankunnáttu: að stækka og
fegra var kækur á 19. öld. Fjöliin
urðu hærri, tindamir brattari,
sveitasælan blárri. Sama máli
gegndi um mannamyndir. Karlar
voru t.d. gerðir sætari en í raun-
veruleikanum, sléttari og fínni.
FYakkar voru á 19. öld forystu-
þjóð í læknavísindum. Gaimard var
læknir að mennt. Áhugi leiðangurs-
manna á þeirri grein birtist meðal
annars í því að málaðar voru mynd-
ir af íslenskum holdsveikisjúkling-
um. Ef dæma má af öðru myndefni
má ætla að útlit þeirra hafi verið
jafnvel enn sjúklegra en myndimar
sýna.
Mannvirki vom hér fá og smá.
Aðeins eitt af stórfljótum landsins
var þá brúað: Jökulsá á Dal. Fróð-
legt er að virða fyrir sér brúna hjá
Fossvöllum. Risamannvirki gat hún
talist á íslenskan mælikvarða þótt
lítið hefði farið fyrir henni í Evrópu
á Ijórða tug 19. aldar.
Með fyrirvara um rómantík þá
sem flestir fylgdu á tímum Mayers
verður ekki annað sagt en hann
hafí verið raunsær í vali myndefnis
og vinnubrögðum öllum. Eftirtekt-
arverð er t.d. mynd af kirkju og
kirkjugarði á Breiðabólsstað í
Fljótshlíð: Jarðarför stendur yfir.
Nánustu ættingjar þyrpast að op-
inni gröfínni. Fjær er smáhópur á
tali. Hundur stendur álengdar og
fylgist með. Presturinn, séra Tómas
Sæmundsson, ætlar að fara að
kasta rekunum.
Baðstofumyndimar í bókinni
bera líka með sér að F'rakkamir
hafa gert sér glögga grein fyrir
f\HEFURÐlfy
w
EFNIA AD SLEPPA
ÞESSU?
Gallabuxur og kakíbuxur
í öllum stæröum
á ótrúlega lágu veröi
vegna hagstæðra
magninnkaupa
elle
SKÓLAVÖRÐUSTlG 42
)KRÁS
TTTTTT^ T ^
1 1 1 t 1 1 1 1 11 1 X+TTT
m/i
SÍIX/II 67 10 20
rí, rafknúnum rúðum, rafknúnum læs-
ingum og öllum lúxusbúnaðí kostar nú aðeins 553
þúsund krónur. Aðrar gerðir kosta frá 474 þúsund
krónum. Þú gerir vart betrí bílakaup!
Opið laugardaga frá kl. 1—5
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23 sími 68 12 99
genglsskr. 6.2.87