Morgunblaðið - 17.02.1987, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
FULLBUNAR SKRUFULOFTPJOPPUR
GERÐ GA
Allar nánari upplýsingar gefur
QJ_LANDSSMIÐJAN HF.
^^SOLVHÓLSGOíU 13 - REYKJAVÍK
f SÍMI (91) 20680
VERSLUN: ÁRMÚLA 23
FLUGLEIÐIR ^
Aðalfundur Flugleiða hf.
verður haldinn föstudaginn 20. mars 1987 í Krist-
alsal Hótel Loftleiða og hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta fé-
lagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins, tiHaga um út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi,
skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en
7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á aðal-
skrifstofu félagsins Reykjavíkurflugvelli, frá og með 12.
mars nk. frá kl. 09.00 til 17.00.
Afhendingu atkvæðaseðla lýkur á hádegi fundardags.
Stjórn Flugleiða hf.
ávallt fyrirliggjandi
1 fasa og 3 fasa
0,5 hö — 50 hö
Poiilseti
Suðurlandsbraut 10. S. 686499.
Síldarsöltunarstúlkur í „Síldin kemur og síldin fer“: Margrét Halldórsdóttir, Geirþrúður Pálsdóttir
og Sigríður Harðardóttir.
Léttleikisíldar-
áranna síðari
og fólki sem tekur þátt í því eða
tengist með einhveijum hætti.
Þetta getur verið á kostnað per-
sónusköpunar því að hættan er
fólgin í því að ætla sér að koma
mörgu að í staðinn fyrir að tak-
marka sig við einstök atvik sem
gata þó speglað alla söguna.
Eins og svo oft vill verða í leik-
ritum af þessu tagi er lögð rækt
við fáeinar persónur, en hinar
hverfa að mestu í skuggann. Þetta
kemur ekki svo mikið að sök í
Síldin kemur og síldin fer því að
verkið er samið að því er virðist
hand'a áhugaleikurum. Furðu
margar persónur öðlast líf í verk-
inu þótt nokkrar séu dálítið
utangátta.
Leikritið er með söngvum, texti
þeirra víða hnyttilegur og sunginn
við þekkt dægurlög.
Meðal áberandi persóna er Lilli,
sídrukkinn og bijóstumkennan-
legur á köflum, en fær sína
uppreisn í lokin og gæti orðið
mektarmaður ef síldin hyrfí ekki.
Þorkell Bjömsson leikur Lilla af
lífi og sál áhugaleikarans. Það er
meira um góðan áhugaleik:
Margrét Halldórsdóttir er
Jökla, stúlka sem kemur úr fjalla-
byggð á síldarplanið til að vinna
sér inn peninga og ná sér í afla-
skipstjóra fyrir mann. Margrét
leikur þetta hlutverk röggsam-
lega.
Jóhannes Einarsson, Sprengur
verkstjóri, er hinn verkstjóraleg-
asti í hlutverki sínu og skopgerir
persónuna ágætlega. Sama er að
segja um Svavar Jónsson, Berg-
mund sfldarkóng, en minna reynir
á leikhæfileika hans því að síldar-
kóngurinn er í daufgerðara lagi
frá hendi höfunda.
Sigríður Harðardóttir og Geir-
þrúður Pálsdóttir leika farandsölt-
unarstúlkumar Huldu og Villu og
eru eins og sniðnar fyrir þessi
hlutverk, skila þeim trúverðug-
lega.
Meðal annarra áhugaleikara
má nefna Jón Fr. Benónýsson í
hlutverki málarans sem reynist
bjargvættur þyrstra manna þegar
áfengisútsölunni er lokað; Herdísi
Birgisdóttur í hlutverki talsíma-
konu sem er aðalfréttamiðill
staðarins; Hrefnu Jónsdóttur í
hlutverki síldarsöltunarstúlkunn-
ar Sigþóru og Ingimund Jónsson
í hlutverki hins flámælta hrossa-
bónda sem spáir fyrir um hvarf
sfldarstofnsins og er rödd höfund-
anna í leiknum. Síðast en ekki
síst skal frægan telja Sigurð
Hallmarsson sem fyrir löngu er
búinn að vinna sér þann þegnrétt
að vera meðal fremstu áhugaleik-
ara landsins. Sigurður leikur
yfirvaldið og fer mjög laglega með
það hlutverk.
Fleiri mætti auðvitað nefna því
að ekki virðist skortur á leikglöðu
fólki á Húsavík.
Síldin kemur og sfldin fer eins
og hún birtist áhorfendum í Bæj-
arbíói í Hafnarfírði er löng sýning
og hefði að ósekju mátt stytta
töluvert. Það er mál leikstjórans,
Rúnars Guðbrandssonar, sem
raunar hefur unnið gott verk með
sýningunni, náð ýmsu fram sem
í höndum viðvanings hefði getað
fallið dautt til jarðar. Líklega hef-
ur leikstjórinn talið að sýningin
mætti vera löng, óþarfí væri að
sníða henni þröngan stakk af því
að um áhugaleiksýningu væri að
ræða. Það er staðreynd að menn
hafa meiri þolinmæði til að horfa
á langar leiksýningar úti á landi
þar sem allir þekkja alla og gam-
an er að sjá nágrannann eða
vinnufélagann í glímu við Þalíu.
Það er kostur við Sfldin kemur
og sfldin fer að atriði eru stutt.
Og þrátt fyrir að fátt komi á óvart
í verkinu eru í því fyndin tilsvör
og nokkur hugkvæmni í leikfléttu-
gerð sem gera það að kjömu
verkefni fyrir áhugaleikfélög.
Þegar á allt er litið tókst vel til
og er Leikfélagi Húsavíkur þökk-
uð koman suður.
BETRI
ÁRANGUR MEÐ
ATLAS COPCO
Öruggur búnaöur fyrir:
1. Mannvirkjagerö
2. Verktakastarfsemi
3. Þungaðiönaö
4. Léttan iðnað
ATLAS COPCO er stærsti framleiðandi í heimi á loftþjöppum
og tækjabúnaði fyrir þrýstiloft. Fyrirtækið þekkir hvernig
minnka má framleiðslukostnað með notkun á loft- og gas-
þjöppum, þurrkurum, sium, kælum, iðnaðarverkfærum og
tækjum til yfirborðsmeðhöndlunar.
Fyrirtæki með framleiðslu er ■■■■■■■
JttlasCopcc tryggir Þér bætta arðsemi og JUlasCopcc
góða þjónustu.
(rompton porkinson
rafmótorar
LEIKLIST
Jóhann Hjálmarsson
Leikfélag Húsavíkur:
Síldin kemur og sildin fer.
Höfundar: Iðunn og Kristín
Steinsdætur.
Leikstjóri: Rúnar Guðbrands-
son.
Leikmynd og búningar: Rúnar
Guðbrandsson.
Ljós og tækni: Jón Arnkelsson
og Bert Jonker.
Leiktjaldamálun: Sigurður
Hallmarsson.
Það eru ekki sfldarárin gömlu
sem þær Iðunn og Kristín Steins-
dætur lýsa í Síldin kemur og
sildin fer heldur síldarár sjöunda
áratugar, 1961-1966, og sviðið
er heimabær þeirra, Seyðisfjörð-
ur, þótt svipuð ævintýri og í
leikritinu gætu hafa gerst á fleiri
stöðum á landinu.
Sfldarævintýri hafa menn talað
um og vissulega er síldin ævintýri
því að ekki er hægt að reiða sig
á hana. Hún kemur einn daginn
og færir björg í bú og svo hverfur
hún og þá hrynur allt. Þær systur
lýsa hruninu á Seyðisfírði 1967
þegar engin sfld kom: „Hrunið
byijaði í raun nokkru áður, þótt
menn neituðu að horfast í augu
við það. En semsagt, ævintýrinu
var lokið og menn pökkuðu saman
því nýtilega og skildu eftir rusl
og drasl og staðinn í raun eftir í
rústum því ekki var gengið frá
nokkrum hlut.“
Meðan ævintýrið stóð sem hæst
var stemmningin góð á sfldarplön-
unum að mati þeirra systra, en í
landlegum gat skapast ógnvæn-
iegt ástand. Leikritið sem er
gamanleikur fæst þó einkum við
að draga upp mynd hins skoplega
og í því er mikil kátína og létt-
leiki yfír mannlífinu.
í Sfldin kemur og sfldin fer er
stefnt að því að gefa sem §öl-
breytilegasta mynd af ævintýri
Afköst 73-377 l/s
Vinnuþrýstingur 8-20
M I
Dar