Morgunblaðið - 17.02.1987, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
21
Afþreying og leikgleði
LEIKLIST
Jóhann Hjálmarsson
Leikfélag Hafnarfjarðar:
Halló, litla þjóð
eftir Magneu J. Matthiasdóttur
og Benóný Ægisson.
Tónlist: Jón Steinþórsson og
Hörður Bragason.
Dansar: Dagný Emma Magnús-
dóttir.
Leikmynd: Hrafnkell Sigurðs-
son.
Búningar. Alda Sigurðardóttir.
Lýsing: Egill Ingibergsson.
Leikstjóri: Andrés Sigurvins-
son.
Aðstoðarleikstjóri: Jakob
Bjarnar Grétarsson.
Söngleikurinn, Halló litla þjóð
er skopgerð samfélagsmynd, eins
konar farsi og revía í senn. Efni
er rýrt, en bætt upp með söngvum
og leikrænu fjöri.
Áhorfendur fá að kynnast fjöl-
skyldulífi hjá ráðherranum
Heinreki Hans Thorvaldsen og
konu hans, Þórdísi Harefoed Jens-
en. Einnig er litið inn í fangelsi
til ungra afbrotamanna. Hvernig
ráðherrafjölskyldan og afbrota-
mennimir tengjast er lýst í leikrit-
inu, en þungamiðjan er kosningar,
þar sem Flokkurinn okkar vinnur
mikinn sigur. Heinrekur ráðherra
er þá ekki lengur í framboði af
Ráðherrafrúna leikur Vilborg
Gunnarsdóttir.
óviðráðanlegum ástæðum, en
tengdasonur hans, afbrotamaður-
inn Daníel Jóakimsson, er í
fararbroddi.
Efnistök höfunda hafa á köflum
í sér ádeilubrodd, en fáránleikinn
yfirgnæfír. Skot í ýmsar áttir eru
fremur máttlítil, enda held ég að
áhorfendur muni fyrst og fremst
líta á leikinn sem gaman, að vísu
dálítið grátt á köflum, einkum
þegar magnaðir eru upp draugar.
Söngtextar voru smellnir, þeir
sem ég heyrði og lögin áheyrileg.
Það var galli að textamir áttu það
til að drukkna í tónlistinni, hún
var óþarflega hávaðasöm.
Það var ekki síst leikgleðin sem
gerði Halló, litla þjóð að afþrey-
ingu sem er ekki verri en hver
önnur. Ég hefði óskað þess að
leikaramir fengju að spreyta sig
á betri texta en boðið var upp á,
glíma við átakameiri leikfléttu.
Andrési Sigurvinssyni leikstjóra
tókst að lyfta sýningunni með
þeim hætti að í heild sinni var
hún ekki bara áhugamannaleik-
sýning. Athygli vakti hve fáir
hnökrar voru á framsögn leikaja
og sáralítill viðvaningsbragur. Ég
nefni vemlega góðan leik þeirra
Þórhalls-Gunnarssonar, Atla Geirs
Grétarssonar og Davíðs Þórs
Jónssonar í hlutverkum hinna
ungu afbrotamanna. Vilborg
Gunnarsdóttir lék ráðherrafrúna
á eftirtektarverðan hátt og naut
sín vel í söngatriðum. Sama er
að segja um ráðherradótturina
sem Vigdís Gunnarsdóttir lék
einkar skemmtilega. Guðný Dóra
Gestsdóttir vakti athygli sem
Gullbrá Jámann. Hallur Helgason
náði einnig að sýna inn í hugskot
jámanns ráðherrans sem einnig
er elskhugi frúarinnar. Ráðherr-
ann sjálfan með langa nafnið lék
Lárus Vilhiálmsson og er ekki
öfundsverður af að túlka aðra eins
fígúm sem ekki er maður heldur
Ráðherra (Lárusi Vilhjálmssyni) mikið niðri fyrir.
klisja. En Láms lék á kraftmikinn
hátt og náði greinilega til áhorf-
enda þrátt fyrir útjaskaða per-
sónugerð frá hendi höfunda.
Þögult hlutverk, brennivínsþamb-
andi og vindlareykjandi peysu-
fataklædd móðir ráðherrans, var
í ömggum höndum Katrínar Þor-
láksdóttur. Nærvera móðurinnar
benti ekki til þess að höfundar
verksins líti á eldri kynslóðina sem
fyrirmynd. Þeir em líklega ekki
haldnir neinni aldamótarómantík.
Fleiri leikara mætti vitanlega
nefna, því fleiri létu að sér kveða
en upptalningin vitnar um. Meðal
þeirra vom Gísli Guðlaugsson og
Jóhanna Sigríður Kristmunds-
dóttir.
Leikmynd og búningar vom hin
þokkafyllstu verk og ýmis tækni-
leg atriði sýningarinnar vom vel
unnin. Það sem fyrst og fremst
kætti áhorfendur í Bæjarbíói var
að kynnast verki sem þó nokkur
metnaður var lagður í varðandi
flutning og það sem hægt var að
gera við ekki betri aðstæður.
Frammistaða leikaranna er að
mínu mati nokkur áfangi fyrir
Leikfélag Hafnarfjarðar.
SUMARAÆTLUN 1987
dxn.
A.
mmt
APRÍL
APRÍL
MAÍ
. - 'V
ÁGÚST
ÁGÚST
ÁGUST
OKTÓBER
OKTÓBER
OKTÓBER
SEPTEMBER
SEPTEMBER
SEPTEMBER
Benidorm sumaráætlunin 1987 er komin. Pantaðu tímanlega því s.l.
sumar komust færri með en vildu á Hvítu ströndina á Spáni. Benidorm
býður upp á góða gistingu, frábæra matsölu og skemmtistaði. Aðstaða
til íþróttaiðkunar er einstök, skemmtigarðar og tívolí af bestu gerð.
Auðvitað er Iíka hægt að njóta lífsins í ró og næði á ströndinni og fara
í skoðunarferðir um nágrennið með fararstjórum Ferðamiðstöðvar-
innar. Benidorm er einn sólríkasti staðurrnn á suðurströnd Spánar,
það mælast 306 sólardagar á ári.
Páskaferð — 2 vikur 15. apríl — Verð frá kr. 27.200.-
Pantaðu strax, dagsetningarnar á brottfarardögunum eru hér í auglýs-
ingunni. Við lánum þér myndband um Benidorm endurgjaldslaust.
m
FERÐA
__■ ■
CeHÍsdZ
MIÐSTOÐIN Tuutee
AÐALSTRÆTI 9 - REYKJAVÍK - S. 2 8 1 3 3