Morgunblaðið - 17.02.1987, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
Landskeppni í eðlisfræði lokið:
Hef lært margt nýtt
nú síðustu vikurnar
- segir Gunnar Guðnason, sem varð hlutskarpastur í keppninni
Morgunblaðið/Þorkell
Gunnar Guðnason, sigurvegari í Landskeppni í eðlisfræði,
1986-86, og Viðar Ágústsson framkvæmdastjóri keppninnar. Til
marks um þyngd viðfangsefnanna í keppninni sagðist Viðar hafa
spreytt sig á dæmunum en orðið að láta í minni pokann fyrir
Gunnari.
GUNNNAR Guðnason, 19 ára
menntaskólanemi, varð hlut-
skarpastur í úrslitakeppni
Landskeppninnar i eðlisfræði,
1986-87, sem haldin var um
síðustu helgi. Átta keppendur
spreyttu sig í lokaáfanganum,
en fimmtíu og einn tók þátt í
undankeppni sem fór fram í
öllum framhaldsskólum landss-
ins á síðasta hausti.
„Það má fullyrða að þetta hafi
verið erfíð dæmi og miklu erfíðari
en ég hef komist í kynni við áð-
ur,“ sagði Gunnar í samtali við
Morgunblaðið. Gunnar sagði að
viðfangsefnin í keppninni væru
talsvert þyngri en viðfangsefni í
eðlisfræði eru allajafna í fram-
haldsskólum, en hann hefði aflað
sér viðbótarþekkingar, vegna þess
að honum þætti gaman á prófum
að nálgast viðfangsefnin frá öðr-
um hliðum en þeim sem kenndar
eru í skólanum.
Gunnar varð í öðru sæti í for-
keppninni, á eftir Davíð Aðal-
steinssyni, sem vann keppnina á
síðasta ári, og keppti þá meðal
annars á Olympíuleikunum í eðlis-
fræði. Núna varð Davíð að sætta
sig við annað sætið á eftir Gunn-
ari. Gunnar sagði að hann hefði
metið það svo í fyrra að hann
ætti ekkert erindi í keppnina. „Ég
hef verið að læra svo margt nýtt
nú síðustu vikur og mánuði, og
ef ég hefði kunnað það í forkeppn-
inni sem ég kann nú hefði ég
sjálfsagt fengið jafn mörg stig þá
og ég fékk í úrslitunum," sagði
Gunnar.
Faðir Gunnars, Guðni Sigurðs-
son, er kjameðlisfærðingur.
Gunnar sagðist þó ekki hafa hug
á að læra slíkt, og reiknaði frekar
með að leggja stund á rafmagns-
verkfræði eftir að hann lýkur
stúdentsprófí í vor.
Keppendumir átta í úrslita-
keppninni voru Gunnar Guðnason
frá MH, Davíð Aðalsteinsson frá
MK, Hjörtur Jónsson frá MA, Sig-
uijón Kristjánsson frá Fjölbraut í
Garðabæ, Hjörtur Kristjánsson
frá MA, Tryggvi Egilsson frá MA,
Geir Agnarsson frá MR og Garpur
Dagsson frá MH. Viðar Ágústsson
framkvæmdastjóri keppninnar
sagði að vonast væri til að íslend-
ingar gætu sent lið á Olympíuleik-
ana í eðlisfræði í sumar, eins og
gert hefur verið undanfarin þijú
ár, en ekki hefði enn fengist svar
frá menntamálaráðuneytinu varð-
andi umsókn um fararstyrk.
Ólympíuleikarnir í sumar verða
haldnir í bænum Jena í Austur-
Þýskalandi, og mega keppendur
ekki vera orðnir 20 ára þegar
keppnin hefst. Viðar sagði að fjór-
ir úr úrslitahópnum væm enn
innan aldursmarkanna^ þar af
bæði Gunnar og Davíð. Islending-
um hefur ekki gengið sem skyldi
á þeim Ólympíuleikum sem þeir
hafa tekið þátt í til þessa, og yfír-
leitt verið í neðstu sætunum.
Landskeppni í eðlisfræði er
haldin af Félagi raungreinakenn-
ara og Eðlisfræðifélaginu.
Morgunblaðið hefur staðið straum
af kostnaði við keppnina, og lagði
til verðlaunafé til sigurvegarans,
15.000 krónur.
Morgunblaðið/Einar Falur
K.N.K. Biwatt orku- og svæðisþróunarráðherra Kenya, og Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra, undir-
rita bókun um frekara samstarf þjóðanna I orkumálum að viðstöddum embættismönnum og fulltrúum
fyrirtækja sem aðild eiga að samkomulaginu.
Kenya o g Island undirrita bókun um samstarf í orkumálum:
Stærsta áætlun Islendinga
um útflutning* á þekkingu
- segir Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra
ORKUMÁLARÁÐHERRA Kenya, K.N.K. Biwatt og Albert Guð-
mundsson iðnaðarráðherra, undirrituðu í gær sérstaka bókun
varðandi samstarf íslands og Kenya í orkumálum, þar sem meðal
annars var kveðið á um undirbúningsrannsóknir í Kenya sem Islend-
ingar munu annast, og er áætlaður kostnaður þeirra verkefna um
65 miljónir bandaríkjadala eða um 2,6 milljarðar íslenskra króna.
Nánari samningar um einstök verk-
efni sem íslendingar munu annast
í Kenya verða milli fyrirtækja á
íslandi og í Kenya, en aðilar að
samkomulaginu eru af íslands hálfu
Virkir hf., Órkustofnun, Orkint og
Jarðboranir ríkisins.
Albert Guðmundsson iðnaðarráð-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið að meginatriði bókunarinnar,
sem undirrituð var í í ráðherrabú-
staðnum við Suðurgötu í gær, væru
að stjómvöld landanna eru sam-
mála um að efla það samstarf sem
löndin hafa átt á sviði jarðvarma,
og hafa skilgreint verkefni þar sem
sala á íslenskri sérþekkingu kemur
til greina. Þetta ætti aðallega við
um hagnýtingu jarðvarma til raf-
orkuvinnslu, þar á meðal byggingu
raforkuvers, en hugsanleg væri
einnig samvinna á öðrum sviðum
þar sem jarðhitinn er notaður, t.d
við húshitun, byggingu sundlauga
og við ýmislegt annað sem kemur
inní framleiðslu á afurðum sem
Kenya hefur uppá á bjóða, til dæm-
is þurrkun á fiskimjöli, meðferð á
sykurreyr, kaffí og te. Einnig var,
að sögn Alberts, rætt um að Islend-
ingar aðstoðuðu Kenyabúa við
rafvæðingu sveita á svipaðann hátt
og gert hefur verið hér.
„Þetta er langstærsta áætlun um
útflutning á þekkingu sem íslend-
ingar hafa gert,“ sagði Albert
Guðmundsson. „Það er mjög víðtæk
samvinna sem verið var að undirbúa
hér sem hefur gríðarlega mikla
þýðingu fyrir okkar vísindamenn
og verkfræðinga. Aðeins kostnað-
urinn við undirbúningskannanir,
boranir og undirbúning að fram-
kvæmdum eru áætlaðar vera 65
milljónir dollara sem þýðir um 2,6
milljarðar íslenskra króna. Þessa
samvinnu verður síðan að semja
nánar um og það verður gert innan
fárra vikna með nýjum fundi í fram-
haldi af þessum. Þar verður ákveðið
nánar á hvaða sviðum verklegar
framkvæmdir geta hafíst nú næstu
mánuði," sagði Albert Guðmunds-
son.
K.N.K. Biwatt sagði við Morgun-
blaðið, eftir undirritun bókunarinn-
ar, að Kenyabúar vildu með þessu
styrkja samvinnu þá milli landanna
sem þegar væri fyrir hendi og sagði
Biwatt að Ingi Þorsteinsson aðal-
ræðismaður Islands í Kenya og
Albert Guðmundsson iðnaðarráð-
herra hefðu unnið ötullega að því
máli af íslands hálfu. „Við eigum
svipaðar orkulindir, og því meira
sem við vinnum saman á því sviði,
því betra. Að auki er ísland Iítið
land og það er stundum betra að
eiga samvinnu við smáþjóðir. Þær
sýna slíku meiri áhuga; þegar unn-
ið er með stærri þjóðum vilja
smærri atriði stundum gleymast,
þótt slík smáatriði séu oft mikil-
væg. Við höfum hagnast af sam-
starfínu við íslendinga því við
höfum séð hvemig hægt er að nýta
varmaorku, m.a. til að þurrka mat-
væli og til lækninga. Ég er því
ánægður með þetta samkomulag
og tel það grundvöll meiri og betri
samvinnu milli íslands og Kenya
um ókomin ár.“
Karvel Pálmason:
„Menn þurfa að
vera samstíga“
„MENN áttuðu sig á því að þeir
þurfa að vera samstíga. Eftir
fund kjördæmisráðsins er ég
vonbetri um að okkur takist að
ná tveimur mönnum á þing,“
sagði Karvel Pálmason fyrsti
maður á lista Alþýðuflokksins í
Vestfjarðakjördæmi. Listi
flokksins var samþykktur ein-
róma á fundi kjördæmisráðs um
helgina og tók Sighvatur Björg-
vinsson annað sæti hans. „Við
kepptum báðir að því að ná
fyrsta sætinu og vorum kapps-
fullir eins og vera ber. Um
listann hafa náðst fullar sættir,“
sagði Karvel.
Aðspurður um þær deilur sem
urðu um úrslit prófkjörsins fyrir
áramót sagði Karvel að jafnaðar-
stefnan hefði orðið ofan á. Staða
flokksins væri góð, í höfuðvígi hans
Vestfjörðum. „Það er rétt að ég
sagði það að ég hefði vikið hefði
ég orðið í öðru sæti. Hinsvegar er
það alfarið mitt mál og mín skoð-
un, þannig að Sighvatur réði því
hvað hann gerði," sagði Karvel.
Listinn hefur ekki verið birtur i
heild sinni þar sem ekki hefur náðst
til allra sem kjördæmisráðið óskar
eftir að sitji á honum. Auk nafna
þeirra Karvels og Sighvats var
kunngert að Bjöm Gíslason bygg-
ingameistari taki þriðja sæti listans.
Námskeið sjálfstæðis-
kvenna um skattamál
ODDVITAR sjálfstæðiskvenna
í Reykjaneskjördæmi sóttu um
helgina námskeið um skatta-,
lífeyris og tryggingamál. Að
sögn Salome Þorkelsdóttur al-
þingismanns er hér um að ræða
lið í undirbúningi kosningabar-
áttunnar. „Við lögðum áherslu
á sérstöðu kvenna og heima-
vinnandi húsmæðra í skatta-
málum og varðandi lífeyris-
greiðslur og voru málin kynnt
frá fræðilegu sjónarmiði. Nám-
skeiðið var fjölsótt og umræður
líflegar," sagði Salome.
Frummælendur á námskeiðinu
vom dr. Sigurður B. Stefánsson
sem talaði um skattamál, Bjami
Þórðarsson sem Qallaði um lífeyr-
issjóðamál og Hilmar Björgvins-
son sem ræddi um tryggingabæt-
ur. Þáttakendur voru konur af
framboðslista, í sveitastjómum og
trúnaðarstörfum á vegum flokks-
ins. Námskeið um aðra mála-
flokka munu fylgja í kjölfarið að
sögn Salome.