Morgunblaðið - 17.02.1987, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
29
Bretland:
Eiturbrenna
Um helgina brenndu mexíkönsk yfirvöld 800 kg af kókaíni og
ópíuvalmúa skammt fyrir utan Mexíkóborg. Fjöldi hermanna stóð
vörð meðan eitrið varð eldi að bráð. Brennan er liður í herferð
stjórnvalda gegn eiturlyfjum.
Gera Bretar samkomulag
um lausn Terry Waite?
Ákveðið að styrkja stjórnmálasam-
band Bretlands við Syrland til að
tryggja frelsi Terry Waite
Saint Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
BRETAR hafa ákveðið að
styrkja stjórnmálasamband
sitt við Sýrland til að reyna
að tryggja frelsi Terry Waite,
að því er breska sunnudags-
blaðið Observer segir.
Bretar rufu stjórnmálasam-
band við Sýrland á síðasta ári,
þegar sannað þótti, að sendiráð
landsins hefði átt hlut að tilraun
til að sprengja þotu frá ísraelska
flugfélaginu E1 A1 í loft upp á
Heathrow-flugvelli.
Þegar stjórnmálasambandið
var rofið, urðu nokkrir sendi-
ráðsstarfsmanna Sýrlendinga
eftir í sendiráði Líbanons í Lund-
únum til að gæta hagsmuna
lands síns. í Damascus urðu
nokkrir breskir sendiráðsstarfs-
menn eftir í sendiráði Ástralíu.
Nú hefur utanríkisráðuneytið
í Lundúnum staðfest, að það
hafí heimilað hærra settum
sendiráðsstarfsmanni að fara
fyrir Sýrlendingum í sendiráði
Líbanons en áður. í Damascus
hefur fyrsti sendiráðsritari tekið
við af öðrum sendiráðsritara.
Sýrlendingum er mjög um-
hugað um að endurheimta álit
sitt á Vesturlöndum, eftir að
Nesar Hindavi var dæmdur í 45
ára fangelsi í London fyrir til-
raun til að sprengja ísraelsku
þotuna í loft upp. Sannað þótti,
að hann hefði haft náin tengsl
við sýrlenska sendiráðið í Lond-
on.
Hafa öfgamenn hreiðrað um
sig í mikilvægum embættum?
London. Reuter.
EINN af þingmönnum íhalds-
flokksins hélt því fram i gær, að
ýmsir öfgasinnaðir vinstrimenn
hefðu komið sér fyrir í mikilvæg-
um ráðuneytum og krafðist hann
á því opinberrar rannsóknar.
Kenneth Warren, þingmaður fyr-
ir Hastings, sagði í viðtali við
fréttamann Reuters, að hann hefði
undir höndum lista með nöfhum 270
félaga og stuðningsmanna „Her-
skáu vinstrihreyfingarinnar" (Milit-
ant Tendency), manna, sem væru
í mikilvægum stöðum í vamarmála-
ráðuneytinu, innanríkisráðuneyt-
inu, vegabréfaskrifstofunni og
öðrum stjómarskrifstofum.
„Þessir menn eru stjórnleysingjar
að eigin sögn og hafa lýst yfir, að
þeir vilji lýðræðið feigt," sagði
Warren. „Þessi listi er aðeins yfir
það, sem upp úr stendur af ísjakan-
um. Ég mun skrifa forsætisráð-
herranum og fara fram á ítarlega
rannsókn."
„Herskáa vinstrihreyfmgin" er
samtök, sem nokkuð mikið hefur
borið á síðustu fímm árin, en talið
er, að félagar hennar séu um 7000
talsins. Eru þeir mjög virkir og vel
skipulagðir. Er þessari hreyfíngu
almennt kennt um mikinn ósigur
Verkamannaflokksins í kosningun-
um 1983 og Neil Kinnock, formaður
flokksins, hefur heitið að reka hvem
þann félaga hennar, sem komist
hefur í valdastöðu innan flokksins.
Talsmaður Margaret Thatcher,
forsætisráðherra, segir, að hún hafi
ekki séð umræddan lista en eftir
öðmm heimildum er haft, að henni
hafi verið skýrt frá, að öfgasinnað-
ir vinstrimenn fæm með ýmis
embætti á skrifstofum stjómarinn-
ar.
Sir Marcus Fox, formaður í
áhrifamiklum hópi íhaldsþing-
manna, kvaðst í gær mundu skrifa
Richard Luce ráðherra, sem fer
málefni opinberra starfsmanna, og
hvetja hann til að endurskoða þær
reglur, sem gilda um ráðningu opin-
berra starfsmanna. í þeim em nú
ákvæði, sem banna félögum í
kommúnistaflokknum og hægri-
sinnuðum fasistasamtökum að
gegna opinbem starfí en ólíklegt
Begun látinn laus eft-
ir sextán ára baráttu?
Moskvu, Reuter.
HÁTTSETTUR sovéskur emb-
ættismaður tilkynnti á laugar-
dag að sovéski gyðingurinn
Iosif Begun yrði látinn laus úr
fangelsi og sagði Georgi Arb-
atov, sem situr í miðstjórn
sovéska kommúnistaflokksins,
að honum hefði verið sleppt.
Fjölskylda Beguns fékk þær
upplýsingar hjá sovéskum emb-
ættismönnum i gær að hann
sæti enn í fangelsi. Begun hef-
ur í sextán ár barist fyrir að
fá brottfararleyfi til Israels og
hefur þrisvar verið dæmdur til
fangelsisvistar á þeim tíma.
Begun er 56 ára gamall stærð-
fræðingur frá Moskvu og sótti
hann fýrst um leyfi til að flytja
úr landi árið 1971. Beiðni hans
var hafnað af sömu ástæðu og
beiðnum margra annarra gyðinga
í Sovétríkjunum: því var haldið
fram að hann hefði leynilegar
upplýsingar undir höndum.
Begun var vikið úr starfi hjá
hagfræði og skipulagsstofnun
ríkisins, Gosplan, og hófust þá
miklar samningaumleitanir við
yfirvöld um að veita honum leyfi
til að kenna hebresku.
í júní árið 1977 hófust mála-
ferli á hendur Begun og var hann
sakaður um að vera sníkjudýr og
þjóðfélaginu til byrði. Hann var
dæmdur til tveggja ára útlegðar
í Síberíu. Begun var handtekinn
á nýjan leik skömmu eftir að hann
var leystur úr haldi og sakaður
um að hafa brotið reglur um bú-
setu.
Reuter
Sovéski andófsmaðurinn Iosif
Begun.
Aftur hófust réttarhöld og nú
var Begun sendur í þriggja ára
útlegð í Síberíu.
Hann afplánaði dóm sinn, en
var handtekinn þriðja sinni í
Leníngrad í nóvember árið 1982.
Dómur féll í máli hans í október
ári síðar og hann var þungur.
Andófsmenn úr röðum gyðinga
óttuðust að dómurinn yfir Begun
ætti að vera víti til vamaðar þeim
mönnum, sem kenndu hebresku.
Begun var dæmdur til að af-
plána sjö ára vist í þrælkunarbúð-
um og flmm ára útlegðar þar á
eftir. Þrælkunarbúðir í Sovétríkj-
unum eru greindar í fjóra flokka
eftir mataræði og aðbúnaði. Beg-
un var sendur í fangabúðir, sem
skipa næststrangasta flokk.
Opinbera fréttastofan TASS
greindi vitnaði í úrskurð dóms-
valda í máli Beguns: „Begun
skrifaði, dreifði og sendi til út-
landa róg og lygar um lífið í
Sovétríkjunum og leiðbeiningar
um hvemig skipuleggja ætti
andsovéskar miðstöðvar erlend-
is.“
Inna, kona Beguns, og sonur
hans Boris föstuðu í Moskvu til
að draga athygli að máli hans og
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
tók sögu Beguns sem dæmi um
mannréttindabrot Sovétmanna.
Síðan Mikahil Gorbachev komst
til valda í Sovétríkjunum hefur
andófsmönnunum Anatoly
Shcharansky, Yury Orlov og
Andrei Sakharov og konu hans
Yelenu Bonner verið sleppt. Hefur
athygli vestrænna ríkja því beins
að máli Beguns í auknum mæli.
Gennady Gerasimov, talsmaður
utanríkisráðherra, sagði í síðustu
viku að 140 fangar yrðu nú leyst-
ir úr haldi. Aftur á móti væri
Begun enn í fangelsi vegna þess
að hann neitaði að undirrita yfir-
lýsingu um að hann myndi láta
af aðgerðum gegn stjórnvöldum.
Kona Beguns, sonur hans og
nokkrir vinir þeirra reynda að
mótmæla fyrir hönd Beguns á
götu í Moskvu en óeinkennis-
klæddir lögregluþjónar leystu
mótmælin upp.
er talið, að þau muni ná til félaga
í „Herskáu vinstrihreyfíngunni".
Kenneth Warren ætlar hins vegar
að leggja til, að þeir verði fluttir í
ábyrgðarminni störf.
Talið er, að Sýrlendingar og
Iranir séu að reyna að semja um
lausn Terry Waite. Sýrlendingar
reyna að þrýsta á um, að hann
verði látinn laus fljótlega, og
vilja, að sér verði þökkuð lausn
hans. íranir vilja hins vegar not-
færa sér hann í samningum um
vopn frá Bandaríkjamönnum.
Breska utanríkisráðuneytið
hefur neitað, að það standi í
samningaviðræðum við Sýrlend-
inga um að fá Terry Waite
lausan úr haldi.
Þessi mynd var tekin í Sydney í Ástralíu í gær, eftir að Mark Thatc-
her kom þangað með eiginkonu sinni Diane í brúðkaupsferð.
Bretland:
Miklar varúðarráð-
stafanir fyrir brúð-
kaup Marks Thatchers
Þrjátíu manns komu til að horfa á
# St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
A Valentínusarmessu, hinn 14. febrúar sl., gekk Mark Thatcher að
eiga Diane Burgdorf frá Texas, dóttur bilasala og milljónamærings,
í Savoy-kapellunni í London. Um 150 gestum var boðið í kapelluna.
Fáir komu til að horfa á.
Það var væta og svalt í veðri
þennan morgun. Miklar varúðarráð-
stafanir höfðu verið gerðar vegna
þessa atburðar og lögreglumenn
leitað í öllu nánasta umhverfi að
sprengjum og leyniskyttum. Öll
herbergi á Savoy-hótelinu voru ná-
kvæmlega skoðuð, vegna þess að
veislan var haldin þar. Um 300 lög-
reglumenn voru á verði, þegar
athöfnin hófst. Þeir voru þarna til
að hafa stjórn á mannfjöldanum og
koma í veg fyrir óeirðir, að sögn
yfirlögregluþjónsins. Um 30 manns
komu til að horfa á.
Gestimir byrjuðu að koma um
ellefuleytið, en athöfnin hófst
klukkan hálftólf. Þar mátti sjá feg-
urðardísir frá Texas í loðfeldum,
Cesil Parkinson, fyrrum ráðherra í
ríkisstjórn Thatcher, sem varð að
segja af sér vegna þess að hann
hélt við einkaritarann sinn og gat
við henni barn. Margaret Thatcher
sjálf mætti bláklædd frá hvirfli til
ilja og ljómaði af sælu. Hún sagði,
að þetta væri hamingjuríkasti dag-
urinn í lífí sínu.
Mark Thatcher hefur átt litríkan
feril. Hann hefur stundað viðskipti,
verið kappakstursmaður og fyrir-
sæta. Eitt sinn týndist hann í
Sahara-eyðimörkinni á ökuferð. Til
að koma í veg fyrir, að sama gerð-
ist á brúðkaupsdaginn birti Daily
Mirror kort af leiðinni í kapelluna.
Brúðguminn kom á tilsettum tíma
með gulu Texas-rósina í barminum.
Carol Thatcher, systir Marks,
sagði, að athöfnin hefði verið elsku-
leg, enginn hefði ruglast í svörunum
og enginn grátið.
Mark og Diane eru farin til Ástr-
alíu í brúðkaupsferð.